Dagur - 09.05.1998, Blaðsíða 12
12- LAUGARDAGUS 9. MAÍ 1998
átt von á góðum Degi
I hverri viku eru dregnir út
bíómiðar og aðrir ankaviiniingar
ÍÞRÓTTIR
Ríkharður
átti stórleik
Ríkharöux með tvö
mörk fyrir Viking.
Tryggvi lagði upp
vítaspymu fyrir
Tromsö. Rúnar Krist-
insson með Lil-
leström á ný.
Ríkharður Daðason átti stórleik í
norska boltanum á fimmtudaginn
og skoraði 2 mörk fyrir Viking í 3-
2 sigri á Haugasund. Ríkharður
fékk einkunnina 6 sem var næst
hæsta einkunn Vikinganna. Það
voru fleiri gleðitíðindi fyrir Is-
lendinga í norska boltanum á
fimmtudaginn, Rúnar Kristins-
son lék sinn fyrsta leik fyrir Lille-
ström. Hann kom inn á á 70.
mínútu og þótti standa sig vel.
Heiðar Helguson lék ekki með
Lilleström sem vann Strömgod-
set 2-3. Oskar Hrafn Þorvalds-
son lék með Godset og fékk 3 í
einkunn. Tryggvi Guðmundsson
átti fínan leik með Tromsö sem
vann Brann, 1-0. Tryggvi átti fyr-
irgjöfina sem gaf Tromsö víta-
spyrnuna sem réð úrslitum og
fékk 5 fyrir sinn leik. Agúst
Gylfason fékk 3 fyrir leik sinn
með Brann.
Bjarki Gunnlaugsson kom inn
á á 67. mínútu í 6-0 sigri Molde
á Moss. Bjarki var ekki meðal
markaskorara og fékk ekki eink-
unn. Með stórsigri sínum náði
Molde toppsæti deildarinnar frá
Rosenborg sem náði aðeins jafn-
tefli á heimavelli gegn Stabæk.
Helgi Sigurðsson var ekki í liði
Stabæk. Válerenga, sem lék án
Brynjars Gunnarssonar, missti
unninn leik í 2-2 jafntefli á síð-
ustu mínútunum. Menn eru allt
annað en ánægðir með árangur
þjálfaranna Lars Tjærnás hjá
Válerenga og Dags Vidar
Kristoffersen hjá Godset. Þeir
verða að fara að koma með eitt-
hvað nýtt í leik liða sinna ef þeir
ætla sér að klára tímabilið við
stjórnvölinn.
Úrslitin úr 6. umferð urðu
þessi:
Kongsvinger-Sogndal 3-2
Molde-Moss 6-0
Rosenborg-Stabæk 2-2
Strömsgodset-Lilleström 2-3
Tromsö-Brann 1-0
Viking-Haugesund 3-1
Válerenga-Bodö/Glimt 2-2 - GÞÖ
Lestu blaðið og taktuþátt ileiknum!
550 oooo
Þú greiðír eJJtert umfrarn venjule^t símtal
Ecre/irbic
Hörkugóð spennumynd frá Barry Levison. Myndin er byggð á bók
Michael Crighton höfundar Juragarðsins, E.R. og Twiater.
- “TERROR RUNS DEEP“ Megastjörnurnar Sharon Stone, Dustin
Hoffman og Samuel L Jackson í aðalhlutverki
http://WWW.NET. IS/BORGARBÍÓ
DIGIT/X.L SOUND S Y S T E M
ýáff íþróttafélagið Þór
AÐALFUNDUR
miðvikudagskvöldið 20. maí í Hamri kl. 20.00
Venjuleg aðalfundarstörf.
Mætum öll.
stjórnin.
Útboð
Húsavíkurbær óskar eftir tilboði í byggingu stjórnsýsluhúss á
Húsavík. Um er að ræða breytingar á núverandi skrifstofuhúsnæði
bæjarins og breytingar á Ketilsbraut 7 (áður Trésm. Borg hf.).
Útboð þetta sem telst vera 1. og 2. áfangi felst í endurbyggingu á
Ketilsbraut 7 eingöngu. Verkið felst m.a. í að innrétta húsið, ein-
angra að utan og múrhúða.
Áætlaður skilatími á frágangi utanhúss er 1. nóvember 1998 en 1.
ágúst 1999 á heildarverkinu.
Útboðsgögn verða afhent hjá Tækniþjónustunni Garðarsbraut 18,
frá og með mánudeginum 11. maí nk. gegn 5.000,- kr. skilagjaldi.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Húsavíkurbæjar, Ketilsbraut 9,
þriðjudaginn 2. júní nk. kl. 11.00
Á SKJÁNUM
Laugardagur 9. maí
SJÓNVARPIÐ
Kl. 10.55 Kappakstur
Formúla 1 frá Barcelona
Kl. 13.25 Fótbolti
Þýski-boltinn
Rostock - Karlsruhe
Kl. 16.00 Fótbolti
Meistarakeppni KSI
ÍBV - ÍBK
SÝN
Kl. 13.55 Fótbolti
Reykjavíkurmótið
Valur - Fram
Kl. 17.00 Íshokkí
NHL-deildin
Philadelphia - Buffalo
Phoenix - Detroit
Sunnudagur 10. maí
SJÓNVARPIÐ
Kl. 11.40 Kappakstur
Formula 1 frá Barcelona
STÖÐ 2
Kl. 13.05 Körfubolti
NBA-deildin
Miami - NewYork
Kl. 14.00 Fótbolti
Italski boltinn
Juventus - Bologna
Kl. 23.35 Körfubolti
Úrslitakeppni NBA
LA Lakers - Seattle
SÝN
Kl. 14.00 Golf
Golfmót í Bandaríkjunum
Kl. 14.55 Fótbolti
Enski boltinn
Chelsea - Bolton
Kl. 17.25 Fótbolti
Spænski boltinn
Atl. Madrid - Barcelona
Kl. 19.15 Fótbolti
Italski boltinn
Bari - Inter Milan