Dagur - 09.05.1998, Page 7
Xfe^ur.
LAIPBARDAGUR ■9: 'MA’Í 1998 *- 7
RITS TJÓRNARSPJALL
Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi formaður bankaráðs og núverandi bankaráðsmaður og framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, í kaffi á Hótel Borg síðdegis á fimmtudag með Sverri Hermannssyni,
fyrrverandi bankastjóra.
Haltukj amkarameUa
Á miðvikudag kom maður inn á
ritstjórn DV í Reykjavík. Hann
sagðist vera með grein til birting-
ar. Venjulega er slíkum mönnum
tekið af kurteislegri yfirvegun,
rennt yfir skrifin og þeim sagt
svona nokkurn veginn hvenær
vænta megi að greinin geti birst.
Ekki í þetta skipti. Sá sem tók
við greininni fyrir hönd DV sagði
að hún væri ekki birtingarhæf.
Þessi grein var samansúrraður
svívirðingaflaumur um Sverri
Hermannsson. Allar voru svívirð-
ingarnar upp úr hans eigin skrif-
um um aðra menn. Þessi starfs-
maður á DV sagði að blaðið gæti
ekki birt skrifin, en einhvern
veginn spannst það orð af orði að
annað blað sérhæfði sig í birt-
ingu svona greina. Greinarhöf-
undur fór inn á Morgunblað.
Klukkustund síðar hringdi
greinarhöfundur í þennan starfs-
mann DV. Hann sagði að á
Morgunblaðinu hefðu menn
orðið ögn kindarlegir, þeir væru
með greinina til athugunar.
Hún er þar enn. Til athugunar.
Nema hún hafi birst í blaðinu í
dag.
Margt til athugunar
Þessi litla saga minnir okkur á að
það er margt til athugunar þessa
dagana. Til dæmis hvað þoli
dagsins Ijós. Helstu ráðamenn
landsins eru að spá í hvað þoli
dagsins Ijós. Og hafa í hótunum
hver við annan. „Þessi grein er
bara smjörþefurinn Finnur,“ eru
þau orð sem eftirminnilegust eru
úr hinni magnþrungnu „Ég
ákæri“-grein Sverris Hermanns-
sonar fyrir viku. Allt hitt, dylgj-
urnar, ákærurnar og svívirðing-
arnar eru bara hjóm hjá þessari
litlu yfirlætislausu setningu.
Grein Sverris var ekki til þess að
gera hreint íyrir dyrum, opna al-
menningi sýn á spillt kerfi. Að yf-
irbragði var hún það. En hún var
fyrst og fremst hótun. „Við vitum
hvað er í húfi strákar." Sverrir
var að minna á Iögmál íslenska
kerfisins: samtrygginguna.
Hættan
Af nákvæmlega sama meiði er
hin berorða hótun forsætisráð-
herra í garð Alþýðubandalagsins:
Ef þið hafið ykkur ekki hæg skal
ég rifja upp hvernig Landsbank-
inn var látinn taka skuldir Þjóð-
viljans. Davíð Oddsson er með
blaðaúrldippur frá níu árum um
það mál undir höndum. Allt í
Iagi gamle ven: við skulum þá
bara rifja upp hvernig þú, Björn
Bjarnason og fleiri fínir pappírar
voru losaðir úr feni Almenna
bókafélagsins með hjálp Kol-
krabbans og þjóðbankans. Og
fleiri hótanir liggja í hinu lævi
blandna lofti þjóðfélagsins þessa
dagana. Hver skuldbreytti fyrir
hvern, og hvers vegna? Halda
menn að Þjóðviljinn og AB séu
einu svörtu sauðirnir í Ijárhúsi
þjóðbankanna sem töpuðu 14
milljörðum í afskriftum á síðustu
fimm árum?
Það sem Sverrl gengur til
Það sem Sverri gengur til er ekki
að draga eins marga með sér í
fallinu og mögulegt er. Væri sá
tilgangurinn værum við búin að
sjá miklu meira. Sverrir vill að
menn virði Ieikreglurnar. I hans
heimi fórna menn ekki mönn-
um. Allra síst mönnum sem hafa
alltaf Ieikið samkvæmt venju og
aldrei brugðist trausti. Mönnum
eins og honum. Sverrir vill ekki
hefnd. Sverrir vill fá borgað.
Blaðaskrif hans eru sölu-
mennska. Hann er að sýna varn-
inginn, ekki þjóðinni, því honum
er andskotans sama um hana,
heldur þeim sem eiga að borga
honum stöðumissinn, ærutapið
og valdaleysið. Hann á þetta
nefnilega alls ekki skilið.
í spor Sverris
Setjum okkur í spor Sverris: Það
sem kom fyrir hann er óhapp,
slys, sem á ekki að geta gerst.
Menn eiga ekki að þurfa að taka
pokann sinn, allra síst plastpoka
merktum Landsbanka Islands.
Enginn veit betur en Sverrir
Hermannsson að allt kerfið og
öll samtryggingin gengur út á að
koma í veg fyrir að svona lagað
gerist.
Sverrir Hermannsson Iítur
réttilega á að sér hafi verið fórn-
að út úr neyð til að verja stærri
hagsmuni fyrir minni. Þeir stóru
hagsmunir eru: allt sem falið er í
skúffum bankans, orðstír og álit
framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins, einkavinar Davíðs
Oddsonar og formanns banka-
ráðs öll sukkárin, sem og staða
framsóknarráðherra bankamála
sem ríkisstjórnin má ekki við að
gengið sé í skrokk á. Það er mjög
að vonum að Sverri finnist þetta
léleg framkoma. Eftir allt sem
hann hefur gert.
Allt sem hanii hefur gert
Það eina sem Sverrir gerði var
það sem ætlast var til af honum:
hann tók þátt í því sem hann
hneykslast á öðrum fyrir núna og
leysti þau verkefni með prýði.
40-50 milljónir í lax og viskí eru
ekki neitt. Við erum að tala um
10 milljarða í tap á örfáum
árum, ofan í annað og meira á
undan. Við erum þar að tala um
peninga sem brenndir voru á báli
bankans sem Sverrir stjórnaði.
Berorðar og krassandi Iýsingar
Sverris úr hinu spillta ríki hans
afhjúpa engan meira en hann
sjálfan. Er maðurinn genginn af
göflunum að játa þátttöku sína í
öllu þessu frammi fyrir alþjóð?
Nei. Honum er andskotans sama
um hvað þjóðinni finnst. Hann
vill fá borgað. Hann vill fá risa-
stóra haltukjaftikaramellu frá
vinum sínum.
Þeir samningar eru nú komnir
vel á veg.
Þingið
Getum við verið viss um að AI-
þingi vilji leiða þessi mál til
lykta? Hin raunverulegu Lands-
bankamál? Hið raunverulega
Landsbankamál er ekki persóna,
risna, veiði og áfengi heim til
Sverris Hermannssonar; ekki
makadagpeningar og ekki heldur
ánægjustundir Finns Ingólfsson-
ar með Halldóri Guðbjarnasyni.
Jú, annars. Þar tekur að glitta í
hið raunverulega Landshanka-
mál. Angi af því er hvernig her-
fanginu er skipt. Munið þið
hvers vegna Landsbankastjór-
arnir eru þrír en ekki einn?
Munið þið hvers vegna gamla
bankaráðið sem var rænulaust
öll gósenárin er svo ómissandi
áfram? Hlutverk allra þessara er
að valda stöður. Þótt einum sé
fórnað, tveimur og jafnvel þrem-
ur fyrir slysni, er ekki bara óþarfi
heldur fullkomlega óverjandi að
skilja bankann eftir óvaldaðan.
Ovaldaðan fyrir þær samtryggðu
fámennisklíkur sem ætla sér
hann.
Það er nákvæmlega þetta sem
Sverrir er að fara.
Mikið í húfi
Framundan eru æsilegir tímar
fyrir þá sem ætla sér þjóðbank-
ann. Kjartan Gunnarsson og
Morgunblaðið hafa náð saman
um þau fínu áform að Islands-
banki og Landsbanki renni sam-
an í einkavæddum banka sem
ásamt Vátryggingafélagi Islands
sýslaði með lang stærsta hluta
þjóðarauðsins. Valdataflið er um
þau áform. Fyrir liggur loforð
um að selja ekki þjóðbankana
næstu fjögur árin - undir liggja
sterkir straumar sem krefjast
þess að sölu verði flýtt. Þótt ekk-
ert liggi fyrir um annað en ríkis-
stjórnin haldi áfram eftir kosn-
ingar er ekki hægt að skilja við
þau mál óafgreidd, ef...
Kemur þá ekki útspil!
Þjóðin má ekki til þess hugsa að
enn einu sinni lendi allt í úti-
deyfu, slappist útaf þegar nógu
margir hafa þagað nógu lengi til
að fjölmiðlarnir gefist upp, þing-
ið fari í sumarfrí og Davíð á
Þingvöll að skrifa. Hótanir liggja
í loftinu. Sverrir hótar, Davíð
hótar; hótunin er sú að sam-
tryggingin rofni. Þjóðin hefur
ærna ástæðu til að vantreysta
stjórnmálaflokkunum í þessu
efni.
Rofar þá ekki til. I miðju þóf-
inu kemur Margrét Frímanns-
dóttir formaður Alþýðubanda-
Iagsins og fer fram á úttekt á fyr-
irgreiðslu Landsbankans við
Þjóðviljann gamla. Spilin á borð-
ið takk. Kannski kemur þar eitt-
hvað safaríkt upp. En það er ekki
málið, miðað við hitt að þar með
er búið að aftengja hótun Dav-
íðs, hótun allra Landsbanka-
menna Iandsins. Hótunin hittir
þá sjálfa.
Þetta er óvænt og einstök
ákvörðun sem hugsanlega kann
að breyta öllu andrúmslofti í
Þinginu, þar sem menn hafa leit-
að leiða þessa vikuna. Margrét
hefur séð að eina leiðin til að
sigra í þessum leik er að taka
ekki þátt í honum. Krafan um
spilin á borðið fær raunverulegt
innihald með frumkvæði hennar.
Enga haltukjaftikaramellu hér.
Þetta er eðlilegt framhald af af-
sögn Jóhanns Ársælssonar úr
bankaráði og setur þingflokk
Jafnaðarmanna í þá stöðu að
verða að slást í hópinn. Hvað
sem það kostar í gömlum synd-
um. Verkefni stjórnarandstöð-
unnar næstu daga er að finna
kröfu þjóðarinnar um raunveru-
leg málalok hinn rétta formlega
ogjringlega farveg.
Áður en þingið fer heim verð-
ur að liggja fyrir skýr kostur um
hvernig málinu verði fylgt eftir
og það rannsakað. Þegar sá kost-
ur verður borinn upp í beinni út-
sendingu frá Alþingi sjáum við
hæstvirtan forsætisráðherra
standa upp og ganga í pontu.
Hann á þá kost að opna orma-
gry'fjuna, eða, eins og líklegt er,
segja sínum þurrasta rómi:
„Herra forseti, ég legg til að
þessari tillögu verði vísað frá“.
Þá verður kosið að viðhöfðu
nafnakalli. Þegar eitt ár er í al-
þingiskosningar.