Dagur - 09.05.1998, Side 8
v > fv"* )t*fW \ X v "
8 - LÁ U GÁRDAt
SDgjpr
rD^tr.
ITA UG AR DAGU'R 9. M A Í 19 9 8 •-79
FRETTASKYRING
Spurning Dags:
Hver verða úrslit
kostiinganna í
Hveragerði?
Svava Bogadóttir
„Það er mjög erfítt að spá. Ég
hefði haldið að baráttan yrði
harðari og umræðan meiri. Það
er Iítili málefnamunur á listun-
um, en einhver áherslumunur."
Birkir Kristjánsson
„Ég spái engu um úrslitin. Ég er
ekki búinn að ákveða hvern ég
ætla að kjósa, en er ákveðinn í
því að kjósa rétt.
Sólveig Pétursdóttir
„Ég greiði öllum jafnt, en hef
bara eitt atkvæði og er búin að
ákveða hveijum ég greiði það.
Ég vildi gjarnan geta kosið ein-
staklinga sinn af hveijum listan-
um. Það eiga að vera einstak-
lingskosningar í þessum litlu
sveitarfélögum.
Garðar Hannesson
„Úrslitin verða L3, B2, D1 og
H1. Þetta er svo augljóst að það
þarf ekki einu sinni að kjósa um
það.
Simdnmg og samstarf í senn
SOFFIA
SIGURÐAR-
DOTTIR
SKRIFAR
Einkennileg blanda af sundrung
og samstarfi einkenndi bæjar-
málapólitík Hveragerðis á þessu
kjörtímabili. Bæjarstjórn Hvera-
gerðis starfaði með fágæta góðu
samkomulagi í lok kjörtímabils-
ins, þar sem allir voru vinir og
enginn var útundan. A sama tíma
logaði bæjarpólitíkin af illindum í
fjölmiðlum. Hverjir verða vinir
eftir kosningarnar?
I Hveragerði verða kosnir 7
bæjarfulltrúar. Sjálfstæðisflokkur-
inn var í meirihluta þegar hinir
sameinuðust og sigruðu fyrir átta
árum. 1994 voru sömu tveir listar
bornir fram aftur, en þá snerust
hlutföllin við og Sjálfstæðisflokk-
urinn náði 4 en H-listinn 3. Inn-
anhússerjur í Sjálfstæðisflokkn-
um leiddu síðan til þess að bæjar-
fulltrúar D-listans yfirgáfu for-
ingja sinn Knút Bruun og gengu
til samstarfs við H-listann. Knút-
ur hætti þá í bæjarstjórn og vara-
maður kom inn og þar með átti D-
listinn fjóra samstæða menn í
bæjarstjórninni. Það leiddi hins
vegar ekki til vinslita í nýja meiri-
hlutanum og var því hvorki meiri-
hluti né minnihluti seinni helm-
ing kjörtímabilsins. Þetta þótti
sumum drottinssvik að starfa með
óvininum þegar kostur var á að
hafa völdin einn. Síðan hefur
pólitíkin í Hveragerði verið fræg
að endemum.
Framsóknarmenn ákváðu síðan
á félagsfundi sínum, með yfír-
gnæfandi meirihluta, eða 6 gegn
4 og 1 sat hjá, að hætta samstarfi
á H-lista og bjóða fram sér. Nú
eru því 4 listar í boði í Hveragerði.
Kosningabaráttan er ekki orðin
hörð enn. Kannski eru menn bún-
ir með öll stóru orðin. Mjög erfitt
er að spá um úrslit kosninganna,
en flestir sem spá á annað borð,
nefna skiptinguna 3+2+1 +1 og
ætla þá yfirleitt L-Iista 3 og mis-
jafnt er hverjum spáð er 2. Þá er
líka alveg óljóst hverjir muni
vinna saman eftir kosningar.
Sumir telja að Sjálfstæðisflokkur-
inn muni ná saman á ný þrátt fyr-
ir allt. Aðrir telja að gott samstarf
í lok kjörtímabilsins muni leiða til
samstarfs L og H og/eða B lista.
Enn aðrir segja að D-listinn muni
leggja mikið í sölurnar til að ein-
angra L-listann eftir kosningar.
Engar skoðanakannanir hafa ver-
ið gerðar og því verður bara enn
meira spennandi að bíða eftir úr-
slitunum.
Helstu málefni allra frambjóð-
enda eru þau sömu, skólamál, frá-
veitumál og atvinnumál. Megin-
stefnan er mjög svipuð en
áherslumunur einhver.
Helstu mátefni allra frambjóðenda f Hveragerði eru þau sömu, skólamál, fráveitumál og atvinnumál. Meginstefnan er mjög svipuð en áhers/umunur einhver.
Byggja þarf við grunnskólann til
að hægt sé að einsetja hann og
verið er að gera úttekt á innra
starfi skólans. Áformuð er bygging
nýs leikskóla.
Fráveitumál hafa verið í miklum
ólestri. Varmá sem rennur um
Hveragerði að hluta, er ein meng-
aðasta á Iandsins, m.a. vegna frá-
rennslis frá iðnfyrirtækjum.
Heildaráætlun hefur verið gerð í
fráveitumálum. Verkið er þegar
hafið, lífrænni hreinsun á að vera
lokið árið 2003 og öllu dæminu
2025. Astand þessa máls stendur
hins vegar Hveragerðisbæ fyrir
þrifum, bæði sem heilsubæ og
ferðaþjónustustað.
Atvinnuleysi hefur verið lítið í
Hveragerði. Margir íbúar sækja
hins vegar vinnu utan bæjarfé-
lagsins. Atvinna fyrir konur hefur
verið næg, en þar er mikið um
hefðbundin láglaunuð kvenna-
störf.
Aður fyrr var Hveragerði þekkt-
ur skáldabær, svo tóku garðyrkju-
bændurnir yfir og síðan heilsubót-
in. Þetta eru allt tengd mál. Nátt-
úra Hveragerðis og nágrennis gef-
ur bænum mikla sérstöðu. Gífur-
leg orka er í jarðhita á svæðinu og
eru virkjunarmöguleikar hennar
miklir. Það er einstakt fyrir ferða-
menn að stíga út úr rútum og kafa
skafla á leið sinni inn í banana-
húsið í Garðyrkjuskólanum á
Reykjum. Mjög falleg útivistar-
svæði eru í og umhverfis bæinn og
margt að sjá fyrir ferðamenn. All-
ar greinar garðyrkju eru stundað-
ar í Hveragerði, blómarækt, garð-
plöntuframleiðsla, ylrækt og úti-
ræktun grænmetis og eru gróður-
húsin einkennishús bæjarins.
Náttúrulækningahælið, sem nú
heitir Heilsustofnun NLFI er vel
þekkt og hefur nýtt hveraleirinn
svo frægt er. Eins er stórt elli-
heimili í Hveragerði, þar sem býr
fólk víða að. Hveragerði hefur því
verið kynnt sem heilsubær,
blómabær og ferðamannabær og
hver veit nema bærinn verði
skálda- og listamannabær á ný.
Vill ekki vera á H-lista
„Ég fer bara í heita pottinn í garð-
inum heima, svo ég heyri ekki nýj-
ustu spár, segir Arni Magnússon,
efsti maður á B-lista. „Það er
næsta víst að allir listar ná inn
manni og slagurinn stendur um
hina þijá. Kosningabaráttan verð-
ur hraustleg í lokin og það verður
skipt upp í meiri- og minnihluta í
næstu bæjarstjórn. B-Iistinn fer í
það samstarf eftir kosningar, þar
sem hann kemur stefnumálum
sínum og áherslum best fram.
Framsóknarflokkurinn hafði
ekki boðið fram í 16 ár og það
þótti tímabært að Iáta reyna á
okkar fólk og okkar stefnu. Fé-
lagsmenn eru virkari nú en þegar
sambræðingurinn var og ég segi
t.d. að það hefði ekki komið til
greina fyrir mig að vera á H-lista.
Stefnumál flokka eru um margt
lík í sveitastjórnarmálum og allir
vilja vinna fyrir sinn bæ. Við leggj-
um áherslu á fjölskyldumál og þá
helst barnafjölskyldur. Við viljum
efla íþrótta- og tómstundastarf.
Þá þarf að efla heilsugæsluna hér.
Svo má nefna að við viljum knýja
á um lýsingu á Hellisheiði.
Heilsutengd ferðaþjónusta og
virkjun orkuauðlindarinnar eru
mál framtíðarinnar.
B-listinn setur það markmið að
áður en kjörtímabilið verði hálfn-
að skuli bæjarbúum kynntir kostir
og gallar í sameiningu við
grannsveitarfélög. Nærtækasti
kosturinn er Olfusið. Við erum
ekki að stefna lengra, alla vega
ekki á þessu kjörtímabili," segir
Árni.
Lyftum bæjarpólitíkmni á
hærra plan
„Fyrir mann að flytja hingað í
Hveragerði, virkaði pólitíkin afar
einkennilega og ég sá ekki ástæð-
urnar fyrir þessum látum," segir
Einar Hákonarson efsti maður á
D-lista. Mitt kjörorð er að fylkja
öllum Sjálfstæðismönnum undir
D-listann. Það verða allir mögu-
leikar á samstarfi skoðaðir eftir
kosningar. Ég spái því að D-listinn
fái 3 menn kjörna og spái engu
um hvernig hinir skiptist.
D-listinn hefur skýra stefnu-
skrá, ekki um að stefna beri að,
heldur hvað skuli gert. Atvinnu-
málin eru efst á baugi. Bæjarfé-
lagið verður að laða til sín fyrir-
tæki og geta boðið þeim einhver
hlunnnindi á byijunarárum þeir-
ra. Uppsveiflan í þjóðfélaginu
stefnir framhjá Hveragerði. Ann-
arsstaðar bora menn ekki svo holu
að þeir sjái ekki í henni bullandi
tækifæri, en hér er gífurleg orka
og vannýtt. Hér er orkumiðstöð
alls Árborgarsvæðisins.
Úrslit 1994
atkv. fulltr.
Sjálfstæðisflokkur 515 4
Hagsmunasamtök 463 3
Það er á stefnuskrá D-listans að
taka strax upp viðræður við Ölfus-
hrepp um sameiningu. Ég get al-
veg ímyndað mér að Árborgar-
svæðið verði eitt sveitarfélag í
framtíðinni og hugsanlega sýslan
öll. Fáir staðir á landinu bjóða
upp á meiri fólksfjölgun og þétt-
býlismyndun, en Suðurlandsund-
irlendið."
Allir vinir í Hálsaskógi
„Þetta verða mjög tvísýnar kosn-
ingar, en ég giska á L 3, H 2, B 1
og D 1,“ segir Magnús Ágústsson
efsti maður á H-lista, Hveragerð-
islistanum. „Þetta býður upp á
flesta möguleika og erfiðasta. Ég
vil hafa fyrirkomulag dýranna í
Hálsaskógi að allir vinni saman og
ekki sé skipt upp í meiri- og
minnihluta. Það eykur ábyrgð ein-
Við leggjum áherslu á eflda
ferðaþjónustu. Hér eru góð fyrir-
tæki starfandi á því sviði, hvera-
svæði í miðbænum og svo er það
útivistarsvæðið inni í dal og golf-
völlurinn þar.
Varðandi sameiningu sveitafé-
Iaga, þá eigum við í mjög góðu
samstarfi við Ölfushrepp og sam-
eining við þá gæti orðið báðum til
góða. Ég horfi alls ekki lengra
austur á bóginn."
staklinganna og þá getur hver og
einn greitt atkvæði eftir sinni
sannfæringu í stað þess að hugsa
um flokksbagsmunina. Annars vill
meirihlutinn sýna hroka og minni-
hlutinn vandræði, ákvarðanir eru
teknar fyrir bæjarstjórnarfundi og
bara atkvæðagreiðsla og þras þar.
Við hugsum til framtíðar. Auð-
lind Hveragerðis er fólkið sem hér
vinnur, náttúran sjálf og fyrirtæk-
in hérna. Ég sé Hveragerði sem
heilsubæ og mikla framtíð í ferða-
þjónustu. Orkan býður upp á
milda möguleika til atvinnustarf-
semi. Það er eindregin afstaða
þessa Iista að hér verði ekki fyrir-
tæki sem valda mengun og álagi á
umhverfið.
H-listinn vill láta kanna vilja til
sameiningar við önnur sveitarfé-
lög. Ég tel persónulega að öll Ár-
nessýsla sé hæfileg stærð á sveit-
arfélagi. Það verður viðfangsefni
næsta kjörtímabil að fara vandlega
yfir þessi mál og einhver breyting
verður hér á eftir nokkur ár.“
Okkur er best að treysta
„Við stefnum á að fá 3 menn og ég
spái engum um hvernig hinir
skiptast," segir Gísli Páll Pálsson,
efsti maður á L-lista bæjarmálafé-
lagsins. „Um meirihlutasamstarf
eru allir möguleikar opnir af okk-
ar hálfu. Samstarf okkar við Sjálf-
stæðisfélagið Ingólf verður ekkert
vandamál, því þeir hafa lýst því
yfir að þeir muni ekki starfa með
okkur.
Það er ekkert annað en fólkið á
listunum sem skilur á milli fram-
boða í Hveragerði. Hér eru allir
með sömu áherslur um skóla, frá-
veitu og atvinnumál. Allt þetta
fólk vill bæjarfélagi sínu heilt. Val-
ið snýst um það hverjum fólk
treystir best. Ég legg áherslu á að
ef fólk vill láta halda áfram þeirri
vinnu sem hér hefur verið unnin á
síðasta kjörtímabili, þá styður það
bæjarmálafélagið. Það er nýtt fólk
efst á öllum hinum listunum.
Bæjarmálafélagið (L)
1. Gísli Páll Pálsson
2. Hörður Hafsteinn Bjarnason
3. Aldís Hafsteinsdóttir
4. Jóhann Svavar Isleifsson
5. Inga Lóa Hannesdóttir
6. Anton Tómasson
7. Pálína Gestrún Siguijónsdóttir
8. Aðalbergur Sveinsson
9. Dóra Snorradóttir
10. Magnús Einarsson
Gísli Páll
Pálsson.
Framsóknarílokkur (B)
1. Ami Magnússon
2. Magnea Ásdís Árnadóttir
3. Þorvaldur Snorrason
4. Guðbjörg Björnsdóttir
5. Egill Gústafsson
6. Guðmundur Baldursson
7. Runólfur Þór Jónsson
8. Karl H. Sigurðsson
9. Helga Haraldsdóttir
10. Páll K. Eiríksson
Árni
Magnússon.
Hveragerðislisti (H)
1. Magnús Ágúst Ágústsson
2. Hrafnhildur Loftsdóttir
3. Guðmundur Óli Ómarsson
4. Sigurður B. Jónsson
5. Berglind Sigurðardóttir
6. Garðar Rúnar Árnason
7. Anna Sigríður Egilsdóttir
8. Eyvindur Bjarnason
9. Jóhann Tr. Sigurðsson
Magnús Ágúst
Ágústsson.
Sjálfstæðisflokkiir (D)
1. Einar Hákonarson
2. Kristín Ólafsdóttir
3. Knútur Bruun
4. Guðbjörg Þórðardóttir
5. Hjalti Helgason
6. Hafdís Ó. Guðmundsdóttir
7. Alda Andrésdóttir
8. Snorri Sturluson
9. Berglind Bjarnadóttir
10. Sólmundur Sigurðsson
Einar
Hákonarson.
Vísbending
Lestu blaðið ogtaktu þdtt í leiknum!
550 oooo
Þú greiðir ekkert umfram venjulegt símtal
Kennara vantar
að Grunnskólanum í Bárðardal S.-Þing.
næsta skólaár.
Almenn kennsla 6 til 12 ára nemenda.
Nánari upplýsingar gefa skólastjóri,
Svanhildur Hermannsdóttir í síma 464 3291
eða 464 3290, Ólafur Ólafsson formaður
skólanefndar í síma 464 3218 og oddviti Skarp-
héðinn Sigurðsson í síma 464 3400.
Umsóknarfrestur er til 29. maí nk.
I
UTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir til-
boðum í viðhald hita- og hreinlætiskerfa í ýmsum fasteignum
Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000,- á skrifstofu okkar frá mið-
vikudeginum 13. maí 1998.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 20. maí 1998 kl. 15.00 á sama
stað.
bgd 54/8
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í
gerð steyptra gangstétta ásamt ræktun víðs vegar um borgina.
Verkið nefnist: Steyptar gangstéttir og ræktun 1998.
Heildarmagn gangstétta er u.þ.b. 11.000 m2.
Heildarmagn ræktunar er u.þ.b. 8.000 m2.
Lokaskiladagur verksins er 15. september 1998.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá þriðjudeginum 12. maí
1998 gegn 5.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 20. maí 1998 kl. 11.00 á sama
stað.
gat 55/8
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í
eftirfarandi verk: Iðnaðarhverfi í Austurborginni - gatnagerð og
lagnir.
Helstu magntölur eru þessar:
I
I
I
Gröftur:
Fyllingar:
Púkk:
Holræsalagnir: u.þ.b.
Ræktun:
u.þ.b. 15.700 m3
u.þ.b. 15.500 m3
u.þ.b. 8.200 m2
1.500 m
u.þ.b. 3.000 m2
Skiladagur verksins er 15. október 1998.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá þriðjudeginum 12. maí
1998 gegn 10.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboða: þriðjudaginn 19. maí 1998 kl. 15.00 á sama
stað.
gat 56/8
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið:
Skammadalsæð - Viðgerð ofanjarðarlagnar.
Verkið felst í viðgerð, einangrun og álklæðningu á 1640 m af
Skammadalsæð, sem liggur milli Reykjadals og Helgadals í Mos-
fellsbæ. Um er að ræða DN700 og DN800 mm víðar stálpípur
sem hvíla á steyptum undirstöðum. Gera skal við festuhús úr
krossviði sem eru með um 100 m millibili og klæða þau með áli.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá miðvikudeginum 13.
maí 1998, gegn 15.000,- kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: þriðjudaginn 26. maí 1998, ki. 14.00 á sama
stað.
hvr 57/8
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í
malbiksyfirlagnir á umferðargötur í Reykjavík. Verkið nefnist:
Malbiksyfirlagnir 1998.
Helstu magntölur eru:
Útlögn yfirlagnir 66.700 m2
Útlögn afréttingar 7.500 m2
Malbik 7.500 tonn
Lokaskiladagur verksins er 1. september 1998.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá kl. 12.00 þriðjudaginn
12.maí 1998 gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: þriðjudaginn 19. maí 1998. kl. 14.00 á sama
stað.
gat 58/8
INNKA UPASTOFNUN
REYKJA VÍKURBORGA R
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16