Dagur - 09.05.1998, Blaðsíða 19

Dagur - 09.05.1998, Blaðsíða 19
LÍFIÐ í LANDINU LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 - 35 Sigurður Bogi Sævarsson skrifar Landogþjóð Sögumaður og skrásetjari. Kappar þeir, sem hér sjást á mynd, áttu með sér farsælt samstarf við ritun þriggja binda ævisögu þess manns sem til hægri sést á þessari mynd. Hver er hann og hver er skrásetjarinn, sem reyndar ætti að vera öllum þekktur? Flugfélagið. Hér sést á mynd ein afDC-3 flug- vélum Flugfélags íslands, en þær voru um ára- tugaskeið uppistaðan i innanlandsflugflota félags- ins. Hvaða eftirnafn báru flugvélar FÍ foruðum daga, samanber að vélar Flugleiða eru i dag kallaðar Dísir? Fögur kirkja. Hver er kirkjan sú sem hér sést á mynd og hvert er sálmaskáldið sem við hana er kennt? Á fornu frægðarsetri. Hér sést á mynd sr. Sváfnir Sveinbjarnarson, prestur á Breiðabólstað I Fljótshlíð, sem lengst landsins presta hefur gegnt þjónustu. En hver var faðir sr. Sváfnis, sem lengi gegndi prestsþjónustu á Breiðabólstað, og fyrir hvað flokk átti hann sæti á Alþingi? Skipið stóra. Hvert er það skip sem hér sést, stærsta skip islenska skipastólsins og hver er eig- andiþess? 1. í botni hvaða tveggja fjarða eru mörk hins forna Vestlendingafjórðungs? 2. Hvar á Suðurlandi eru Snæfoksstaðir og við hvað er fengist þar í dag? 3.Spurt er um skáld sem ól sinn aldur í Reykjavík og setti svip sinn á borgina um miðbik þessarar aldar. Hann starfaði Iengst af við verkamannavinnu en síðar blóma- sölu, en var; „...konungur í skuggaríki fá- tækra og drykkfelldra utangarðsmanna," einsog Helgi Sæmundsson sagði. Skáldið gaf úr fjórar ljóðabækur; Næturljóð, Vort daglega brauð, Sól og menn og Blóð og vín? Hver var hann? 4. Hvað hét lagið sem Pálmi Gunnarsson söng árið 1981, lag sem eftirminnilega sigraði í Söngvakeppni Sjónvarpsins það ár? 5. Hann þótti einn fræknasti jarðvísindamað- ur sinnar samtíðar - og var öllum harmdauði þegar hann lést árið 1947 er hann varð fyrir glóandi hraunsteini sem féll úr Hekluhrauninu sem þá rann fram. Hvað hét maðurinn og hver var tengdafað- ir hans? ó.Hvar á Iandinu bjó Guðrún frá Lundi, sem þekktust er fyrir hækur sínar Dalalíf? 7.Hvaða kauptún Iandsins stendur undir Spákonufelli. 8.Snarpur jarðskjálfti skók húsi í kauptúni einu á Norðurlandi illilega snemma 2. júní 1934 og hlutust af miklar skemmdir. Alls 35 hús eyðilögðust og voru ný hús byggð þeirra í stað. Hvert er þetta kauptún? 9. Hvar á landinu er Deildartunguhver og fyr- ir hitaveitu hvaða kaupstaðar er þar teldð vatn? 10. Fyrir hverra hluta sakir voru síðutogar- arnir sem komu til Islands á eftirstríðsár- unum og voru við lýði allt fram yfir 1970 nefndir Nýsköpunartogarar? Svör •sroqx sjbjq pæsjoj Jtpun /,^61 IP FF6I JES uias' ‘sip[0[jngX<jjY 80 s>[>[0[[i;jsi[rjso§ ‘sspjojjsiQæjsjjefs reujoftssp[u ‘npujau -oas j n u u i j t; u j pþ s j e u n do>[ sÁ |vj i[[ijs -[tj jtjXf jpdXa>[ njOA Jissacj JBjeSop '01 •ssauieSjog 80 ssauejjfy ruiaAepq jijXj ujea ppjaj Ja Jecj 80 igjgjeSjog i [epsj[oi[>[Xag i ja j3At[n8unjjep[iaQ-6 1D|BG'8 •puojjseSeqg-^ •i>[OJ>[jegneg y -9 ■ngupj bjj jeseupf jnuosepSuaj jÉa 80 uuunpeui jag uosspjnSjs jopuiajs'g •ejsiau uinjjij jyp •ijioqe^s ejj pieqs jnui[efij[iA'e eSuisaujy sSejajjejqæj -Spqs uin8aA pe jqæjSpqs pnpunjs puaA piaqseSnjeje uin mjaq jecj ua ‘njsXs -saujy 1 isousuijjq 1 rua Jipejssqojæus • Z •jepjefjejnjjg jujoq 1 upiou 1 80 !ujoqjepjefj[BAp| 1 s3unpjptje3uipua[jso/y qjoui ma upns j • j •dppung n8ia 1 gecj ja 80 suisjpjsedpfs eqsuajsi drsjs ejsjæjs ja ssojjenjg • •eSuigaj -jjtnjs-jnjso/y pioqs uin 80 e8uiæ8ueg jnpeui8uicj uias ‘uuijpjogjeuqpsuiejg jijáj i8uicj e ijæs i8ua[ ijje uias ‘uos -eulojq ujofquiaAS jba siujbas ’JS JJgeg • ■pupjjsjepjefjptAj j f efqjiqjefæqjnes ja puÁui e jsas jaq uias ejSbj uefqjryj • 'Id JBjaASng njOA jiuiexcj . ónSjoqjpq uejsiaui iqbjjjs sueq n8os ua ‘iqu jeuig jnpujaujjij ‘umKaeuueuijsa/y 1 uosspjnSjs Jeuig ja puXui e uSæq ]ij jsas uias es uuiddeyj • FLuguveiðar að suinri (66) Við Kári köttur vorum að snudda. Hann haltur eftir skæðan slag við einhvern að- komukött sem mfgur utan í okkar óðal, ég með hugann við aðra afkomendur úr dýraríkinu. Þá hringir bjallan. Frammi á stigagangi heyrist kallað: „Kolbeinn hér“. Sá gamli mættur úr Hlíðarvatni. Þegar ég bregð mér af bæ er Kolbeinn Grímsson „butler“ hjá Kára, sem nú var allt í einu óhaltur við að heyra vel- gjörðarmann sinn kominn heim. Veiðihárin risu á okkur báðum. Kolbeinn lyfti 56 sm. bleikju úr Hlíðarvatni. Flugnahöfðinginn byrjaði vertíðina með stæl. Kári sleikti kampana og iðaði í loðnu skinninu. Já, hún er byrjuð vertíðin. í El- liðavatni sér maður hann vaka nærri landi, fyrir norðan er enn of kalt, en fuglalífið á eyrunum við Poll- inn þegar fjarar segir að allt sé að vakna. Nú styttist óðfluga í fyrsta fískinn hjá mörgum. Og þá talar maður nú ekki af smá virðingu um fyrsta flugufískinn. Síðast fór ég yfír brýnustu nauðsynjar til að gerast fluguveiðlmaður á þessu vori. Nú förum við á veiðar. Við göngum út frá að skilyrðum síðasta þáttar hafi verið fullnægt, þú búin(n) að fá leiðsögn um köst, og ná þér í einfaldar en góðar græjur, stöng, hjól, línu og flug- ur til að byija. Við skulum ekki tefja okk- ur á því að ræða hvernig allt er græjað, frá hjóli og fram í flugu, því það lærir þú af öðrum. Að setja stöng rétt saman, þræða línu, setja upp taum - það er lítið mál, sem þú færð hjálp við. Veiðileyfi A þessum síðustu og verstu tímum þorir maður varla að anda orðinu. En þú þarft veiðileyfí. Margir gera þau mistök að halda jólin strax, fara „i fína á“ því það er jú draumurinn. Það eru mikil mistök að fórna peningum í dýr leyfi sem maður er ekki veiðimaður til að nýta almennilega. Odýr silungsleyfi fást um allt land, nú þegar. Þeir sem lengst ganga vilja meina að maður eigi að æfa köst í vötnum þar sem enginn fiskur sé, því þá trufli ekki veiðivon. Svo langt geng ég ekki. Farðu mörg góð kvöld í silung, vötn eða smá- sprænur sem ekki kosta mikið, og æfðu þig að kasta, bregða við fiski, landa og njóta lífsins. Þá færðu mun meira út úr veiðiferðinni þegar, og ef, þú skyldir vilja á dýrari mið. Sem er alls ekki víst. Flugan Kannski aðal málið. Þú spyrst fyrir um góða flugu íyrir það vatn sem þú ætlar að veiða í. Og færð ábendingar. En eitt gleymist. Að segja þér hvaða stærð á að nota. Stærðin skiptir kannski mestu, og flestir þeirra sem byrja kjósa of stórar flugur. Það er nefnilega þægilegra að hnýta þær á, og svo getur fiskurinn ekki viljað eitthvað „svona lítið". Silungar borða ótrúlega smáar lirfur og flugur. Farðu heldur niður í #14 þótt þér fínnist þægilegra að hnýta á #10. Og svo er ann- að: „flugur“ eru ekki bara þessar flugur með vængjum og stéli. Sjáðu peacock. Einfaldara getur agn ekki verið, en er ekki beint „fluga“. Mörgum byrjanda veit- ist erfítt að skilja að einfaldar púpur og lirfur, mjög smáar, geta verið besta agnið. Því sölumenn eru duglegir að selja þær skrautlegustu. Brögð Það sem menn læra alltof seint. „Eg er bú- inn að standa í allan dag, kasta og kasta, það er fískur um allt en hann tekur bara ekki“. Þessi algenga kvörtun fluguveiði- manna er byggð á misskilningi. Ef fískurinn er „um allt“ þá tekur hann. Hann þarf bara að sjá rétta flugu, við réttar aðstæður, boma fram með réttum hætti. Sem sagt: ef fiskurinn tekur ekki, þá ert þú að gera eitthvað rangt, ekld hann. Skiptu um veiðiaðferð. Það getur falið í sér þetta: skipta um flugu, skipta um stærð á flugunni sem er undir, eða skipta bæði um stærð og flugu. Hitt er kannski mikil- vægara: að hreyfa fluguna rétt. Hvort sem er í á eða vatni er mikilvægt að flugan hreyfíst rétt. „Rétt“ getur verið hvað sem er, og það sem er rétt núna, getur verið rangt á eftir. Það skiptir miklu máli að láta fluguna hreyfast á þann hátt sem vekur áhuga físksins. Það gerir maður með því að draga fluguna misjafnlega hratt, eða of- boðs hægt, eða misjafnlega rykkjótt í stöðuvatni, eða láta strauminn bera hana á breytilegan hátt í nánu samspili við það hvemig maður dregur línuna inn. Þetta virkar flókið - en þú ert að VEIÐA þegar á því stendur! Já, nú loksins ertu ekki bara flugukastari, heldur fluguVEIÐImaður. SveigjanleiM Maður temur sér þennan eiginleika aldrei nógu vel. Að vera sveigjanlegur þýðir í mínum huga að vera sífellt að bregðast við aðstæðum. Skipta um brögð sem maður beitir. Vertu skapandi í hverju sem þú gerir. í sumum gjöfulum vötnum þar sem ég veit af fiski kasta ég sömu flug- unni aldrei oftar en þrisvar ef hann tekur ekki. Ef fiskurinn tekur ekki þegar ég veit að hann er búinn að sjá hana, þá er mál að skipta. „Vindhiiiítar“ Eitt af þessu sem byrjendur verða fyrir. A girnistauminn koma hnútar þegar þú kastar. A veiðimannamáli heitar þeir „vindhnútar“ en eru „vond köst hnútar“ í raun. Eg ætla að spara mér fræðilegu út- skýringuna, en þegar þeir koma á taum- inn ertu ekki að láta stöngina vinna rétt: línan á að leggjast bein aftur áður en þú byrjar framkastið. Hitt er freistandi: að Iáta þessa eilífu hnúta vera. Það er stór- hættulegt. Hnútur á tauminum veikir hann verulega. Margur fiskurinn á líf sitt að þakka leti veiðimanns sem ekki skipti um taum þegar „vindhnútur" var kominn á. Renndu tauminum milli fingra til að athuga reglulega hvort allt sé í lagi. At- hugaðu í Ieiðinni hvort flugan sé á, heil og ósködduð. Byrjendur eiga til að slá henni niður fyrir aftan sig, eða slá henni af með of snöggum rykkjum. Já, margt er bölið við veiðar. Ekki batnar það þegar hann tekur - í næstu viku.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.