Dagur - 12.05.1998, Page 11
LÍFIÐ í LANDINU
ÞRIDJUDAGUR S.MAÍ 19 9 8 - 27
R A D D I R
FÚLKSIIMS
• Fyrir meinhyrn-
ing dagsins er
Laugavegurinn í
Reykjavík hámark
leiðindanna. Hví-
líkt rask, hvílík
læti, hvílíkt vesen
þegar maður geng-
ur niður þessa ann-
ars fínu götu.
Stöðugt verktakar
og vinnumenn að
bora og grafa og
byggja og vesenast
svo að skórnir
verða strax skítugir
og maður verður
að klöngrast upp á
palla og niður
palla. Hvílík
mæða! Nei, það er
ekki gaman að lifa
í henni Reykjavík.
• Suðurbæjarlaug í
Hafnarfirði er
löngu sprungin og
tími til kominn að
byggja stóra, al-
mennilega keppn-
issundlaug í bæn-
um. I Firðinum er
stærsta og fremsta
sundfélag Iandsins
og sundmennirnir
þar þurfa góða að-
stöðu. Það er Iíka
óttaleg pína fyrir
sundáhugamenn að
fara í þrengslin og
skítinn í Suðurbæj-
arlaug. Laugin er
löngu sprungin og
það sem verra er,
hún er alltof illa
þrifin. Sérstaklega
karlaklefarnir.
• Tískan er óþol-
andi núna. Bara
hægt að fá níð-
þrönga stutterma-
holi í búðunum,
sem passa engan
veginn öllum.
„Hlutverki sveitarstjórnarmanns ætti að fylgja ýmislegt auk valdanna - sem okkur finnst nú
mörgum býsna sæt. Því verður að fylgja virðing fyrir röddum íbúanna, víðsýni og það að vera
reiðubúinn að skoða mál frá sem flestum hliðum..."
Mín bamslega,
pólitlska einfeldni
BRÉF FRfl
HRAFNAGILI
HELGA
ÁGÚSTSDÓTTIR
SKRIFAR
Lítið hef ég gert af því
að skipta mér af stjórn-
málum, ef frá er talin
ungæðisleg hugsjón
menntaskólaáranna og
einhver innri tilfinning
þess að til sé nóg handa
öllum, sé því bróðurlega
skipt af kærleika. Þessar
tilfinningar taka nú
raunar á sig þær myndir
á köflum að ég hef fyrir
löngu fundið ráð til að allir meðbræður
mínir og systur á þessari jörð fái mat,
húsaskjól og föt - og fái auk þess að
læra að Iesa! En ég er ekki viss um að
allir samþykktu að fórna því sem ég vil
fórna á altari þessa. Og ugglaust yrði
mér brigslað um verulegan barnaskap ef
lýðum yrði Ijóst að ég held endilega að
þetta með að sá sem á tvennt af ein-
hverju, ætti að gefa þeim sem ekkert á,
sé í fullu gildi. Að ekki sé nú minnst á
þann sparnað sem ég sé í að hætta
hreinlega að framleiða allt sem tengist
vígbúnaði. Ég fæ blátt áfram glýju í aug-
un \áð tilhugsunina um það sem fyrir þá
Ijármuni mætti gera! Ja hvílíkur barna-
skapur býst ég við að margir hugsi. Og
það er allt í lagi frá minni hálfu. Eg er
bara svo barnaleg að ég held að mann-
kynið hljóti að eiga að fara að æfa sig í
að lifa í samlyndi, samkennd og kær-
leika. Svo Iengi hefur það duðrað við að
æfa sig í andstæðum þessa.
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Síminn lesendaþjónustu:
460 6111
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskaö er eftir að bréf til
blaðsins séu aö jafnaði hálf til
ein vélrituö blaðsíöa, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengrí bréf.
Ástædur framboðs
En það voru nú ekki heims-
málin sem ég ætlaði að gera
að umræðuefni hér, þótt ég
gæti auðvitað ekki stillt mig
um að koma þessu að. Nei,
það eru yfirvofandi sveita-
stjórnarkosningar, sem ég
hef verið að velta fyrir mér
undanfarið. - Oft hefur mig
langað að vita hvaða raun-
verulegar ástæður liggja að
baki framboða fólks. Svörin
yrðu nú ugglaust eins mörg
og þeir sem í hlut eiga eða
hátt í það. En ótrúlega margir láta í
veðri vaka að þeir séu nú bara að þessu
vegna þess að það hafi verið lagt svo
hart að þeim. Og mig sem hefur alltaf
langað svo að heyra rödd sem segir: „ég
býð mig fram af því ég hef áhuga og
vilja til að sinna þessum málum og ég
vona að mér takist að gera það af víð-
sýni og heiðarleika, fordómalaust". Já,
minn barnaskapur ríður nú ekki við
einteyming, hafi einhver haldið það! -
En getur átt sér stað að stundum gleym-
ist að í sveitarstjórn er um þjónustu að
ræða; þjónustu við hagsmuni byggðar-
lags og íbúa þess?
Virðing, vísýni og völd
Hlutverki sveitarstjórnarmanns ætti að
fylgja jrnislegt auk valdanna - sem okk-
ur fínnst nú mörgum býsna sæt. Því
verður að fylgja virðing fyrir röddum
íbúanna, víðsýni og það að vera reiðu-
búinn að skoða mál frá sem flestum
hliðum; láta fordóma og/eða tengsl lönd
og leið. Sennilega er ég að tala um rétt-
sýni og heiðarleika samfara skilningi á
hagsmunum heildarinnar, til lengri tíma
litið. Þarna verða persónulegir hags-
munir og illdeilur að víkja, menn þurfa
að kynna sér leikreglurnar - og fara eftir
þeim. Það hefur gerst - og það ekki alls
fyrir löngu - að sveitarstjórn nokkur
neitaði að ræða við fjölmennan hóp
starfsmanna sinna um málefni sem
varðar starf þeirra. Taldi ekki ástæðu til
þess að hitta hópinn saman kominn,
þrátt fyrir ítrekaðar óskir hans. Það hlyti
að vera nóg að ræða við fulltrúa þeirra
eða sambærilega persónu, sem átti sæti
í nefnd. En ef starfsmenn telja ástæðu
til að biðja um fund til að ræða málefn-
in, sem þeir vinna að, er þá bara í lagi
og eðlilegt að hundsa þá? Hvað segir
slík afstaða um Hðhorf til valdaaðstöðu?
- Nei, \að val til setu f sveitastjórnum
þurfa kjósendur að hafa í huga að þar
séu á ferð einstaklingar sem vilja vinna
fyrir sveitarfélagið af heilindum og virð-
ingu fyrir íbúum þess - ekki bara njóta
þess að RAÐA. Og \ið val í sérhverja
nefnd verður að gæta þess að vaidir séu
hæfir einstaklingar, sem hafa þekkingu
og áhuga á því málefni sem um ræðir í
hverju tilviki, en mæta ekki til leiks á
valdagræðginni einni fata. Og hananú!
MEIIMHORNIÐ
Siðleysi er
skaðvaldur
ALBERTJENSEN
SKRIFAR
„Sýnist ykkur þetta vera andlit
morðingja?" spurði Pol Pot
fréttamenn í sínu síðasta við-
tali, en hann var einn af ill-
ræmdustu fjöldamorðingum
veraldarsögunnar.
„Ég er saklaus og sé engu
eftir sem ég hef gert," sagði
„Það hefur margsannast að viðsjá-
verðir tímar gefa viðsjáverðum
mönnum gullin tækifæri sem ekki
gæfust við venjulegar aðstæður“
þessi vesæli grimmdarseggur
um leið og hann horfði á við-
mælendur sína. Menn verða
alveg agndofa við að heyra um
slíkt siðleysi.
Svo ótrúlegt sem það er, sá
hann ekkert athugavert við að
myrða meira en helming þjóð-
ar sinnar.
Hver sem er, hvar sem er,
sem vinnur í smáu eða stóru
gegn hagsmunum þess sem
falið hefur honum trúnaðar-
störf, virðist líklegur til að láta
sér líða vel með því. Ótrúlega
margir menn eru til sem ekki
geta verið heilir í starfi, taka
greiðslu umfram aðra fyrir
ábyrgð sem þeir reyna svo að
skjóta sér undan þegar illa fer.
Það hefur margsannast að
viðsjáverðir tfmar gefa viðsjá-
verðum mönnum gullin tæki-
færi sem ekki gæfust við
venjulegar aðstæður. Sið-
blindir menn gera ekki mun á
réttu og röngu. Kannski er
siðleysi ólæknandi sjúkdómur.
A þá að leifa þeim að fara
sínu fram? Að sjálfsögðu
gengur slíkt ekki og eru smá-
menni ekki látin komast upp
með slíkt. Oðru máli gegnir ef
þeim hefur lánast að slá sig til
riddara með einum eða
öðrum hætti. Sumir slysast til
auðs og valda fyrir aðgæslu-
Ieysi fólksins sem haldið er
endalausri trúgirni og er ég þá
ekki að tala um guðstrú.
Tru á stjómniálameiui
A Islandi trúir fólk á stjórn-
málamenn. Það er alveg sama
hvað loforð þeirra glatast oft
og auðveldlega. Alveg sama þó
þeir vinni á móti hagsmunum
ákveðins hóps, hann styður þá
samt. Vegna gleymsku fólks-
ins og barnslegrar trúar verða
til stórmenni með litlar sálir.
Gagnslausir öllum og ábyrgð
verður bara hismið eitt.
Mönnum er eflaust í minni
þegar þingmaður nokkur gekk
út úr þinginu sem bankastjóri
Landsbankans en á fullum
launum á báðum stöðum. Þó
undarlegt sé, var það löglegt.
Illa útfærð lög gerðu
manninnum þetta mögulegt.
Drengskaparmaðurinn Bene-
dikt Gröndal nýtti sér ekki
lagalega annmarka biðlauna.
Ljóst hlýtur öllum að mál
bankastjóra Landsbankans er
bara toppurinn á ísjakanum.
Hvað um alla afskrifuðu millj-
arðana. I núverandi bankaráði
eru menn úr fyrrverandi
bankaráði og þeir bera fuila
ábyrgð og það veit þjóðin.
Það er því, í allri alvöru
málsins, grátbroslegt hvað
hæstvirtur forsætisráðherra
rembist við að verja allt þessu
viðkomandi, nema auð\itað
bankastjórana. Hann hefur
Ifka varið ráðherra bankamála
og sá aftur varið bankaráð af
þvílíkri sannfæringu að jafn-
vel trúgjörnustu sálum blöskr-
ar. A Islandi er slíkt landlægur
hagræðingarmáti stjórnenda.
Svörtu breytt í hvítt.
Og það mun takast ef að
líkum lætur. Það hefur marg-
sannast að barnsleg trúgirni
okkar Islendinga kemur þeim
best, sem eru okkur verst.
N ámskeið
Vinnueftirlit ríkisins fyrirhugar að halda
námskeið dagana 27. og 28. maí nk.
á Akureyri fyrir stjórnendur fyrirtækja,
deildarstjóra og verkstjóra ef næg
þátttaka fæst.
Fjallað verður m.a. um markmið vinnuverndar,
ábyrgð og skyldur, húsnæði vinnustaða,
starfsumhverfið, vinnuslys o.fl.
Nánari upplýsingar og skráning hjá
Vinnueftirliti ríkisins í síma 462 5868 milli
kl. 13 og 17 virka daga.
Athugið að þátttökutilkynning
þarf að berast fyrir 20. maí.