Dagur - 23.05.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 23.05.1998, Blaðsíða 2
18-LAUGARDAGUR 23.MAÍ 1998 LÍFIÐ í LANDINU í föruneyti HaUdórs Blöndals sam- göiiguráöherra í Finnlandi var slegið á létta strengi og ráðherrann hélt mönn- um uppi á sögum á kvöldin. Aðrir reyndu að sjálfsögðu að láta ekki sitt eftir liggja og rifjuðu upp gamlar minn- ingar. Þaimig kom eitt kvöldið til tals „æskudjTkunin" á ljölmiðlunum þar sem aðeins ungt fólk er starfandi og enginn yfir fcrtugu ráðinn hin. Jón Ár- sæll Þórðarson, fréttamaður á Stöð 2, rifjaði upp að Elín Hirst fréttamaður hefði boðið sig velkominn til starfa á sínum tíma með þeim orðum að það væri gott að fá einhvem „gamlan" inn. Ákveðið áfall þegar maður heyrir þetta orð í lyrsta skipti... Nýtt tölublað Mannlífs kemirr á mark- að í byrjun næsta mánaðar. Meðal for- vitnilegs efnis í því blaði er úttekt á þingmönnum í formi skoðanakönnun- ar. Meðal annars var kosinn þingmað- ur ársins, skcmmtilegasti þingmaður- inn, latasti þingmaðurinn, sá starf- samasti og síðan besti og versti ræðu- maðurinn. í heita pottinum var mönnum ekki kunnugt um einstök úrslit kosninganna fyrir utan það að Össur Skarpliéðinsson mun hafa ver- ið kosinn skemmtilegasti þingmaðurinn eftir harða keppni við Guðna Ágústsson. Á miðvikudagskvöld hélt Planet Pulse líkamsræktarstöðin upp á eins árs af mæli sitt undir stjóm Jónlnu Ben sem hefur sama stýrikraftinn í fjöri og púli. 150 manns í mat og ati í Þjóðleikhús- kjallaranum. Fyrr um daginn fengu púl- arar hins vegar hressingu eftir tíma: snittur og fleira. Sérstaka athygli vakti ný Ilna í snittum sem sannar að holl- usta þarf ekki að vera vond, og að gamla þjóðlega hnan í snittum, sem gengið hefur boð fram af boði svo Iengi scm elstu mcnn muna er orðin endanlega úrelt. Línan fyrir stúdentsboðin og fímmtugsafmælin er komin: hohar snittur! Og meira af Jónínu: stöðin sem hún byggði upp í Sviþjóð og vakti feiknalega athygli þegar íslenskt hugvit raddi sér til rúms í líkamsræktargeiranum er nú ekki lengur undir stjóm stúlkunnar frá Húsavík. Hún erbúin að selja. Eins og alkunna er hefur Sjáhstæðis flokkurinn barið duglega á einum frambjóðanda R listans, Hrannari B. Arnarsyni. Sú aðferð hefur mælst misjafnlega fýrir og frést hefur af góðri og gegnri sjálfstæöiskonu sem blöskrar svo aöfcrðimar að hún ætlar nú að snúa frá sínum ílokki og kjósa R-listann. Réttara væri h'klega að segja að hún muni kjósa Hrannar því í kjör- klefanum ætlar hún að setja x við R- listann en strika um leið út alla fram- bjóðendur listans aðra en Jhannar. Össur Skarphéðinsson. Jón Ársæll Þórðarson. „Mig vantaði eitthvert áhugamál til að sinna eftir vinnu. Sumir spila goif, ég fór að mála, “ segir Guðfinna Guðmundsdóttir húsvörður. mynd: bós. Með pensil og kúst að vopni Margirhafa sjálfsagt rekið augun ífjögur málverk sem hanga innií afgreiðslu íþróttahallarinnar á Akureyri. Þeirvita færri að það var Guð- finna húsvörður sem málaði þau. „Ég byijaði að teikna árið 1989 þegar ég var búsett í Keflavík. Eg sótti ýmis myndlista- námskeið þar syðra og þannig kviknaði áhuginn. Þegar ég flutti norður sótti ég námsskeið hjá Erni Inga og þá fyrst byrjaði ég að mála af einhverri alvöru. Hann er hreint frábær kennari og það er mikið til honum að þakka hversu áhuginn er mikill. Hjá honum vann ég aðallega með olíu, vatnsliti og pastel og hef gert síðan.“ Guðfinna Guð- mundsdóttir hefur unnið sem húsvörður í Iþróttahöllinni á Ak- ureyri f þijú ár. Eftir vinnu fer hún heim og málar. „Mig vant- aði eitthvert áhugamál til að sinna eftir vinnu. Sumir spila golf, ég fór að mála,“ segir Guð- finna en bætir við hlæjandi að hún laumist einnig í golf endr- um og eins. Sumar, vetur, vor og haust Málverkin fjögur í íþróttahöll- inni eru myndir af árstíðunum. „Þetta kom nú eiginlega að sjálfu sér. Eg málaði fyrst mynd sem lýsti vetri og fannst sniðugt að mála hinar árstíðirnar líka. Annars eru þessar myndir ekki í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér en þetta eru olíumálverk sem mér hafa alltaf þótt skemmtileg." Aðspurð hvort hún væri ekki að „misnota" aðstöðu sína með því að hengja myndirn- ar upp á almenningsstað sagði Guðíinna svo ekki vera. „Það var bara ekki neitt pláss heima. Ég vildi helst hafa þær inni í setu- stofunni hér í Höllinni en sam- starfsmenn mfnir tóku það ekki í mál. Veggurinn í afgreiðslunni var hálf ber svo við hengdum þær bara þar upp. Þær hafa vak- ið heilmikla athygli. Fólk kemur sérstaldega til að sjá og spyrja," segir Guðfinna og ekki er Iaust við að pínu stolt leynist í mál- hreimnum. „Fólk kemur stund- um og spyr hvort ég geti málað mynd fyrir sig. Það er ekkert mál.“ Ekki í „atviimiuneimskima“ Guðfinna segist ekki ætla að leggja myndlistina fyrir sig að fullu. „Ég er í fullu starfi og kann því vel. Ég hef alveg áhuga á að mála eina og eina mynd en ekki gera mig út sem einhvern atvinnulistamann. Það eru líka svo margir listamenn fyrir að ég er ekki viss um að það sé grund- völlur fyrir mikið fíeiri. Þetta er aðallega til gamans og ég gleymi mér alveg þegar ég er að mála. Það er eins og ég fari inn í ann- an heim.“ Fyrsti útskriftamemiim Guðfinna útskrifaðist frá Erni Inga í fýrra en segist ekki vita hvort hún muni halda sýningu í bráð. „Ég hef tekið þátt í nokkrum samsýningum fyrir sunnan og haldið eina einkasýn- ingu. Það var þegar ég útskrifað- ist hjá Erni Inga. Sýningin var haldin heima hjá honum í tilefni þess að ég var fýrsti útskriftar- neminn hans.“ Guðfinna hefur selt þónokkuð af myndum en segist eingöngu mála ánægjunn- ar vegna. Fyrirmyndir eigi hún engar. „Ég mála það sem mér finnst fallegt." -jv. Maður vLkunnar er kjósandi Forsíða Lífsins í landinu í dag sýnir mann vikunnar: kjósandann. Eins og listakonan Áslaug Jónsdóttir túlkar stöðu hans t' dag þá hefur „ráðvillti kjósandinn“ svo til lagst áflótta, „loforðafrumskógu rinn“ teygir sig á eftir honum; þessi skógur sem her ekki laufnema svo semfjórða hvert ár, og varla nokkurn tíma ávöxt. Og þegar „loforðin“ sölna og falla af trjánum eftir kosningar, þá standa aðeins gamlir stofnarnir eftir: sumirfeysknir ogfúnir... en skrælnuð loforð fjúka fyrirfyrsta vindi. “ Eigi að stður segir Dagur: Til hamingju með atkvæðisrétt- inn, við værum ver á vegi stödd án hans.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.