Dagur - 23.05.1998, Blaðsíða 17

Dagur - 23.05.1998, Blaðsíða 17
 LÍFIÐ í LANDINIJ LAUGARDAGVR 23. MAÍ 1998 ^.33 u .a . x-u-1 . .. ,i r. t. . i . > t, . _ Bamaníðings- málin,frétta- mennskan og Evrópumál bará góma viðlngi- marlngimars- son,fréttamann RÚV í Bmssel. „Margir spennandi hlutir em að gerast í Evrópu og það erheillandi aðganga fréttavakt hér í Brussel. “ Ingimar Ingimarsson er á fréttavakt í Brussel. Fylgist með og segir tíðindi úr höfuðstöðvum Evrópustofnana í borg- inni, en það sem þar gerist og er ákveðið skiptir Islendinga miklu máli, enda hefur það bein áhrif á Islandi þar sem íslend- ingar eru fullgildir þátttakendur á innri markaði Evrópusambandsins. „Hingað til mín hringja margir að heiman og spyrja mig um hin ótrúlegustu mál er varða Is- land og Evrópusamstarfið. Nú fyrir fáum dögum hringdi bóndi að austan og spurði mig um sameiginlega mynt Evrópusam- bandsríkja, sem farið verður að nota á næstu misserum," segir Ingimar Ingi- marsson, fréttaritari Ríkisútvarpsins í Brussel. Á kiumuglegiun slóðum Ingimar hefur starfað fyrir RÚV í Brussel sl. fjögur ár. Áður hafði hann verið frétta- maður Útvarps og síðar Sjónvarps í ára- tug, en 1994 söðluðu Ingimar og kona hans, Hólmfríður Svavarsdóttir, um og héldu utan þegar hún var ráðin til EFTA við þýðingar; þ.e. að þýða reglugerðir og tilsldpanir sem Island varða af ensku og frönsku yfir á íslensku - og stundum öf- ugt. Þessar slóðir Evrópu voru þeim hjón- um þó ekki nýjar því frá 1977 og til 1983 voru þau búsett ytra þegar þau stunduðu heimspekinám við háskólana f Leuven og Leuvain-la-Neuve. Þar luku þau M.A. prófi. Þau bjuggu um árs skeið í Amster- dam, þar sem þau störfuðu m.a. við farar- stjórn á vegum Samvinnuferða - Landsýn og Ingimar sem fréttaritari Útvarps. Heim fluttu þau 1984. Ritgerðin er enn í kassanum „Hér voru góðir skólar og því fórum við hingað út á sínum tíma,“ segir Ingimar. „Á þessum tíma voru fáir íslendingar hér. Ég man eftir því þegar Kristján Eldjárn forseti kom hingað í opinbera heimsókn til Baldvins Belgíukonungs og óskaði eftir að hitta íslenskan námsmann. Þeim var öllum boðið, þ.e. mér og konunni minni. En í dag er þetta breytt, hér býr nú fjöldi íslendinga sem starfar hjá stofnunum hér í borg. Ingimar segist reyndar enn ekki hafa lokið háskólanámi í Belgíu. „Ég hóf dokt- orsnám að loknu magisterprófi og var kominn það langt að ég taldi óhætt að flytja heim og Ijúka ritgerðinni í hjáverk- um með annarri vinnu. En fljótlega eftir heimkomuna fór ég að starfa hjá Útvarp- inu sem fréttamaður. Ég hef verið í því starfi meira og minna síðan og handritið að ritgerðinni er enn í sama pappakass- anum og ég setti það í þegar við fluttum heim,“ segir Ingimar. Hann kom víða við í starfi sínu hjá RÚV, var m.a. í þingfrétt- um og var um skeið aðstoðarfram- kvæmdastjóri Sjónvarps. Þúsund blaðameim Ingimar segist hafa átt um tvo kosti að velja þegar konu hans bauðst starf í Brussel; að taka leyfi frá RÚV eða bjóða fram krafta sfna sem fréttamaður í Brussel. Hann valdi síðari kost- inn og var því boði tekið. „Þeir sáu sér hag í því, úr því ég var að flytja út á annað borð. Það hefði kostað stofnunina mikið að koma hér upp fastri stöðu. Ekki vegna launanna, heldur vegna aukakostn- aðar sem því hefði fylgt. Einnig hafði ég, þegar hér kemur við sögu, fjallað mikið um Ewópumál. Gerði m.a. tvær þáttaraðir um Evrópska efna- hagssvæðið og tengsl Islands við Evrópusambandið sem sýndar voru 1991 og 1993.“ Um eitt þúsund blaðamenn starfa í Brussel - og eru þeir hvergi fleiri. Þeir koma frá öllum heims- hornum til að fylgjast með mál- efnum ESB og Nató. „Ríkisútvarpið ákvað fljótlega eftir að ég kom út að leigja skrifstofu í húsi sem er í aðeins einnar mínútu göngufæri frá höfuð- stöðvum Evrópusam- bandsins. Þetta var skynsamleg ákvörð- un. Hér í húsinu eru blaðamenn frá flest- um stærstu fjölmiðlum Norðurlandanna og fleiri löndum. Samstarf við þá hefur verið gagnlegt og lærdómsrík, en óneitanlega sakna ég starfs- félaga að heiman." Mál sem varða ísland beint Ingimar segir að Evrópusam- bandið búi vel að þeim blaða- mönnum sem til þess komi í upplýsingaleit. Talsmenn fram- kvæmdastjórnarinnar halda blaðamannafundi í hádeginu dag hvern og aðstoða blaða- menn á ýmsa lund. „Blaðamenn frá aðildarlöndum ESB sækja alla ráðherra- og framkvæmda- stjórnarfundi. Ég læt nægja að sækja fundi þar sem fjallað er um mál er varða Islendinga beint. Þau hafa reyndar verið mörg þessi fjögur ár og þar get ég nefnt vinnutímatilskipunina, Schegen, myntbandalagið, Ioft- ferðasamninga og sjávarútvegsmál. Sömuleiðis þarf ég mikið að sækja til Nato í fréttaleit, og ólíkt því sem ég hélt er mjög auðvelt að afla þar upplýsinga," segir Ingimar. „Þetta var ekki jafn auðvelt, a.m.k. ekki fyrst { stað, að því er varðar EFTA, Eftirlitsstofnun EFTA og íslensku sendiráðin hér,“ bætir hann við. „Það hef- ur hinsvegar verið að breytast að því er varðar íslensku sendiráðin. Ég hef á tilfinn- ingunni að þar komi tvennt til; kynslóðaskipti í utanrík- isþjónustunni og hinsvegar vilji núver- andi utanríkisráðherra til þess að íslensk- ur almenningur fái réttar upplýs- ingar um það sem verið er að gera. Utanríkisþjónustan er enn að átta sig á því með því að opna fyrir upplýsingar aukast lík- ur á gagnrýnni um- fjöllun, en það á eftir að líða hjá,“ segir Ingimar. | Bamaniðmgsmál Það sem sett hefur „Hingað til mín hringja margir að heiman og spyrja mig um hin ótrúlegustu mál er varða ísiand og Evrópusamstarfið, “ segir Ingi- mar Ingimarsson í viðtalinu. Hann segir Evrópusambandið og Nató veita fréttamönnum sem þangað leita góða fyrirgreiðslu á ýmsa lund. Þetta eigi ekki síst við um Nató, gagnstætt því sem hann hefði haldið. mynd: yngvar bjbrshol. hvað mestan svip á þjóðlífið í Belgíu á undanförnum árum eru mál er varða barnaníðinginn Marc Dutroux, sem komust í hámæli 1996. Dutroux er talinn bera ábyrgð á dauða fjögurra stúlkna sem hann svívirti og sömuleiðis á dauða vit- orðsmanns síns, sem hann gróf Iifandi. Mál þetta hefur sett þjóðfélagið úr skorð- um og virðing og traust almennings gagn- vart lögreglu hefur sett niður," segir Ingi- mar. Hann segir stjórnvöld nú vinna að því að endurvinna þetta traust. „Hér í Belgíu eru sveitarstjórnarkosn- ingar í sumar og þingkosningar á næsta ári. Faðir einnar stúlkunnar hefur sett á fót stjórnmálasamtök til að berjast fyrir endurbótum á stjórnkerfi landsins og í könnunum hafa þau hlotið um 20% fylgi. Sömuleiðis hafa stjórnmálasamtök nýfas- ista sett sömu mál á oddinn. Hvernig þessum flokkum reiðir af í kosningunum á eftir að koma í Ijós, en einsog staðan er nú er útilokað að sjá þróunina fyrir. Mik- ið veltur á þvf hvernig staðið verður að endurskipulagningu lögreglu- og dóms- rnála." Eingöngu fyrir útvarpið I dag eru búsettir í Belgíu rúmlega 200 Islendingar, flestir í Brussel. Þetta eru starfsmenn sendiráða, stofnana og fyr- irtækja - sem og ljölskyldur þeirra. „íslendingar hér halda hópinn, starf- rækja félag sem m.a. hefur skipulagt íslenskukennslu fyrir börn og þar hef- ur verið unnið ómetanlegt starf," segir Ingimar. Ríkisútvarpið ákvað á sl. ári að leggja niður þá stöðu sem hann hafði verið í og óska í staðinn eftir verk- takasamningi. „Fréttastofa Útvarps gerði mér tilboð í kjölfarið og við náð- um saman um tveggja ára samning, sem tók gildi 1. mars sl. I framhald- inu var vinnuaðstaðan á skrifstofunni bætt, m.a. með ISDN-tengingu og vísi að hljóðveri. Ég er sem sagt ein- yrki á Evrópuvakt og bærilega sáttur við það. Hljóðvarp er skemmtilegur miðill ef maður getur sinnt hon- um einsog vera ber og það er markmiðið. Nýi búnaðurinn er hugsaður til að auka upplýsinga- streymið héðan bæði í fréttum og sérstökum þáttum síðar. Gerir þetta fyrirkomulag mér síðan kleift að taka að mér aukaverkefni, sem ég hafnaði ávallt áður því ég var í föstu starfi og gat ekki um frjálst höfuð strokið." Þrjú ár í viðbót „Fjölskyldan verður hér að minnsta kosti næstu þijú árin,“ segir Ingimar. „Hólmfríður konan mín, hefur nýlega framlengt starfssaming sinn hjá EFTA til næstu þriggja ára og ég hef bundið mig næstu tvö ár. Börnin okkar blómstra hér; Brynhildur 14 ára og Róbert 12 ára. Ingi- mar, elsti sonur okkar, 25 ára, er heima á Islandi við laganám. Okkur líkar vel hér, bæði persónulega og sömuleiðis er margt spennandi að gerast í Evrópu og það er skemmilegt og heillandi verkefni að ganga fréttavakt í Brussel. Hér stendur yfir einstæð tilraun aðildamkja ESB til að varðveita eigið fullveldi og áhrif á al- þjóðavettvangi með því að deila þessu saman með samstarfsríkjunum.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.