Dagur - 23.05.1998, Blaðsíða 8

Dagur - 23.05.1998, Blaðsíða 8
yr 24 7-,l,ajjg a rd&g ur, 3 3 maJ,x9J8 LÍFIÐ í LANDINU Er það svo, - ertu viss? Allarkosn- ingarverða að lokum minningar sem sumar eru eftir- minnilegri en aðrar. Kosningumfylgja skemmtilegar sögur og ógleymanleg atvik. í öll- um kosningum gerist eitt- hvað óvænteða eins og GunnarThoroddsen sagði þegarkosningaúrslit lágu fyrir...erþaðsvo, ertu viss?“ Á leið í gúlagið Guðrún Helga- dóttir rithöf- undur er fyrrum borgarfulltrúi. Aðspurð um eftirminnileg- ustu borgar- stjórnarkosn- ingarnar segir hún þær tví- mælalaust vera kosningarnar 1978 þegar vinstri menn unnu borgina af Sjálfstæðisflokknum. „Það var Ijóst um ellefu að undur og stórmerki voru að ger- ast. Eg var í íjórða sæti á lista Alþýðubandalagsins og hafði aldrei látið mig dreyma um að komast inn í borgarstjórn. Það var hins vegar um miðnætti sem ég var komin inn en um tvö sem fimmti fulltrúinn, Guðmundur Þ. Jónsson, var öruggur með sæti.“ Guðrún segir þessa kosn- ingánótt 1978 hafa verið mjög sérstaka svo ekki sé meira sagt. „Stuðningsmenn höfðu hist heima hjá mér og Guðmundur var farinn heim þegar ljóst var að hann var kominn í borgar- stjórn. Auðvitað hringdi ég í hann alveg um leið en þá var Guðmundur bara í baði og hélt að ég væri að plata sig. En hann var fljótur upp úr.“ Sigurinn var óskaplega mikil tíðindi að sögn Guðrúnar og enginn átti von á honum. „Við vorum lítið undir hann búin og gerðum mörg mistök í verka- skiptingu. Auðvitað var t.d. eng- in ástæða til annars en eitthvert okkar yrði borgarstjóri en við vorum föst í því að borgarstjór- inn yrði að vera geðþekkur ung- ur maður eins og Birgir Isleifur. Við fundum því mann úti í bæ sem var ágætis maður í sjálfu sér en ég held að líf hans hafi ekki verið auðvelt þar sem hann var þjónn margra flokka og kerf- ið þungt í vöfum.“ Það fór ekki á milli mála að íhaldið í borginni var í Iosti eftir kosningamar, eins og Guðrún segir ... „og fólk sá fram á algjört gúlag. Andstaðan í borgarkerf- inu var svo yfirgengileg að fólk myndi ekki trúa sínum eigin eyr- um. Fólk á skrifstofum borgar- innar neitaði að heilsa okkur. Hatrið var svo gríðarlegt að það munaði engu að maður yrði fyrir meiðslum beinlínis, það gekk svo langt. Það var t.d. ágætis kona í afmælisveislu í borginni sem henti ansi hreint þungri og útskorinni gestabók í átt að mér og ég var heppin að fá hana ekki í hausinn. Þrátt fyrir allt voru næstu fjögur ár tími uppbygg- ingar í borginni sem Reykvíking- ar búa enn að.“ Barátta í stofiuini Björn Jósef Arnviðarson er sýslumaður á Akureyri og fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins. Hon- um eru minni- stæðastar kosn- ingarnar 1958 en þá var hann aðeins 11 ára og bjó á Húsavík. „Þetta árið hafði ríkisstjórnin sett lög sem bönnuðu m.a. að flokkarnir fylgdust með kjör- deildum og hringdu í þá sem áttu eftir að kjósa. Þetta átti að negla íhaldið og var sett til höf- uðs Sjálfstæðisflokknum svo hann sigraði ekki í borgar- stjórnarkosningum." Þvert á móti þá hleyptu lögin mönnum kapp í kinn að sögn Björns Jósefs og ýmsum ráðum var beitt til að fylgjast með kjósendum. „Kosningaskrif- stofa Sjálfstæðisflokksins á Húsavík var höfð í stofunni heima hjá mér en þaðan var besta útsýnið yfir Samkomu- húsið (kjörstað) og auðvelt að nota kíki til að fylgjast með öll- um þeim sem komu og kusu.“ I hans huga standa engar kosningar upp úr aðrar en þessar. „Eg hef aldrei verið svo heppinn að vera frambjóðandi í stórkostlegum sigurkosningum. Ætli ég sé ekki hálfgerður „lúser" í þeim efnum.“ ÓIi D. Friðbjörnsson er sjálf- stæðismaður eins og Björn Jósef. Hann er þekktur sem slíkur og hefur í áraraðir starf- að á bak við tjöldin hjá Sjálf- stæðisflokknum á Akureyri. Nýútskrifaður frá Hriflu-Jónasi og Samvinnuskólanum gerðist hann sjálfstæðismaður og hann minnist því orða Jóns heitins Sólnes sem lengi sat í bæjar- stjórn á Akureyri. „Jóni tókst allt með persónuleikanum," segir Óli. „Eitt sinn, þegar ekki var samstaða um uppröðun á lista, segir hann ... „æ, greyin mín, verið ekki að rífast um uppröðun. Ég fer bara í fjórða sætið.“ Og Jón gerði gott betur því með persónufylgi sínu náði hann inn fimmta manninum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hon- um tókst það sem hann ætlaði sér og það lét allt undan hon- « um. Maurar og vísur upp úr kössuuuut Sigurður Pétur Harðarson fyrrverandi út- varpsmaður hefur í áraraðir verið talninga- maður í kosn- ingum. Hann fór í talninguna fyrir algera til- viljun og það var einnig tilviljun sem réði því að hann fór að safna vísum sem koma upp úr kjörkössunum. „Eitt sinn kom mjög góð vísa upp úr einum kassanum. Ég þekkti strax stílinn á henni og var viss um hver hefði gert hana,“ segir Sigurður Pétur. „Ég bar það undir Pál Asgeirsson yf- irlögregluþjón í Reykjavík sem samsinnti mér, en við vorum vissir að hún væri eftir mann sem hafði unnið með okkur. Eft- ir kosningarnar gengum við óvænt á fund mannsins, fórum með fyrstu línuna í vísunni en hann hinar þrjár.“ Það er fleira sem hefur komið upp úr kjörkössunum en at- kvæðaseðlar og vísur. Eitt sinn voru það ... „maurar. Kassarnir höfðu verið geymdir uppi háa- lofti í Austurbæjarskólanum og maurarnir komið sér þar vel fyr- ir. Þeir höfðu ekki náð að forða sér í tæka tíð og nokkrir þeirra lutu upp úr kössunum með at- kvæðunum.“ Þó maurar hafi komið við sögu í talningunni eru það alltaf vísurnar sem standa upp úr í minningunni í huga Sigurðar Péturs. „Ég þekki einn vísna- smið sem skilar alltaf auðu og gerir grein fyrir atkvæði sínu í leiðinni. Eitt sinn sagði hann þetta: 7 frainboði ern nú fantar fagurgalandi trantar. Eg er einn af þeim snauðu, sem skila auðu, þvi málefnagrundvöllinn vantar. Besti stuðningur- inn á ferlinum Sigríður Stef- ánsdóttir var bæjarfulltrúi AI- þýðubandalags- ins á Akureyri til margra ára. Það eru þó síð- ustu kosningar sem standa upp úr í hennar huga. „Oft eru frambjóðendur beðnir að gera ýmislegt sem þeim er mismikið að skapi. í síð- ustu kosningum var haldin íþróttakeppni frambjóðenda sem mér fannst alls ekki fyrir mig. Ein keppnisgreinin var að kasta bolta í körfu, sem ég hafði ekki gert ffá því í skólaleikfimi í gamla daga, og þar að auki átti ég að vera með bundið fyrir aug- un. Ég er leidd að körfunni og heyri þá þennan óskaplega stuðning, áfram Sigga, áfram Sigga, sem ég vissi alls ekki hvaðan kom en heyrði að voru krakkaraddir. Það kemur að því að kasta og ég slysast til að hitta ofan í körfuna, mér er ákaft fagnað og þegar ég tek frá aug- unum sé ég hóp bekkjarfélaga sonar míns standa við hliðarlín- una. Mér hefur sjaldan þótt jafn vænt um stuðning eins og þenn- an.“ Kosningarnar í ár eru sérstak- ar fyrir Sigríði því hún er ekki í framboði. Hún segir frá- hvarfseinkennin ekki hafa gert vart við sig. „Ég sit ekki með hendur í skauti heldur styð mitt fólk. Ég hef haldið mig til hlés og það er þægilegt en annars er nóg að gera þar sem ég er ennþá á fullu í sveitarstjórnarmálun- um. Kosninganóttin verður einnig öðruvísi en vanalega því ég er á leiðinni til Strassborgar á sveitarstjórnarþing Evrópuráðs- ins. Það verður sérstök tilfinn- ing að vera fjarri en ég er búin að byrgja mig upp af símanúm- erum til að fylgjast vel með gangi rnála."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.