Dagur - 23.05.1998, Blaðsíða 21

Dagur - 23.05.1998, Blaðsíða 21
 LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998 - 37' •* LÍFIÐ í LANDINU KvLkmyndaliátíð þeirra vandlátu Kvikmyndahátíð Há- skólabíós og Regn- bogans hófstsíðast- liðinn miðvikudag og lýkur 16. júní. Átta myndir verða á hátíðinni, fjórar í hvoru bíói og verður hver mynd sýnd í eina viku, frá miðvikudegi til þriðjudags. Opnunarmyndir hátíðarinnar eru Keimur af kirsuberi og Wings of the Dove. Herra Badii og Henry James Keimur af kirsuberi er kvik- mynd eftir hinn virta íranska ieikstjóra Abbas Kiaarostami. Myndin fjallar um hinn mið- aldra herra Badii sem leikinn er af Homayon Ershadi. Badii keyrir um Teheran og svæðið í kringum borgina í leit að manni sem er reiðubúinn til að grafa hann eftir að Badii hefur framið sjálfsmorð. En menn eru tregir til að taka að sér verkið. Myndin hlaut Gullpálmann á Cannes hátíðinni á síðasta ári ásamt kvikmyndinni Állinn sem einnig verður sýnd á há- tíðinni. Nokkrar kvikmyndir hafa verið gerðar eftir skóldsögum Henry James. Wings of the Dove er ein þeirra og hún hef- ur fengið fádæma góðar við- tökur gagnrýnenda og Helena Bonham Carter hefur sankað að sér verðlaunum fyrir frammistöðu sína en missti þó af Óskarnum. Myndin segir frá Kate Croy sem þráir að komast í hóp ríka fólksins og grípur til örþrifaráða til að láta þann draum sinn rætast. Leik- stjóri myndarinnar er Ian Softley en fram að gerð þess- arar myndar var hann þekkt- astur fyrir leikstjórn bítla- myndarinnar Backbeat. Framhjáhald og glerkirkja Állinn sem deildi Gullpálman- um á Cannes á síðasta ári með Keimi af kisuberi er japönsk kvikmynd í leikstjórn Shohei Imamura. Myndin segir frá eiginmanni sem myrðir ótrúa eiginkonu sína, fangelsisdvöl hans og kynnum af ungri konu sem aðstoðar hann við að takast á við Iífið og tilver- una. Óskar og Lúsinda er byggð á samnefndri skáldsögu Peter Carey sem hlaut Booker verð- launin á sínum tíma. Sagan fjallar um Óskar (Ralph Fiennes) og Lúsindu (Cate Blachett) sem ákveða að byggja glerkirkju og sigla henni til afskekktrar e\ju í norður-Ástralíu. Gillian And- erson leikstýrir myndinni sem hefur fengið mjög góða dóma gagnrýnenda. Lorca og dauðiim I Dauði í Granada er fjallað um dauða spænska skáldsins Feederico Garcia Lorca. Ung- ur spænskur blaðamaður fær brennandi áhuga á lífi og starfi Garcia Lorca og er stað- ráðinn í að komast að því hver banamaður hans var. Esai Morales leikur blaðamanninn, Andy Garcia leikur Lorca og Edward James Olmos leikur skuggalegan yfirmann í hem- um. Hin ljúfa eilífð (The Sweet Hereafter) hlaut verðlaun á kvikmyndahátfðinni í Cannes á síðasta ári og var útnefnd til Óskarsverðlauna fyrir bestu leikstjórn og besta handrit. Myndin, sem er í Ieíkstjórn Atom Egoyan, fjallar um harmleik sem á sér stað í litl- um smábæ í Bresku Kólombíu þegar böm láta lífið í umferð- arslysi. Lögfræðingur, sem Ian Holm leikur frábærlega vel, reynir að fá aðstandendur til að höfða skaðabótamál. Schlðndorff og Rea John Malkovich leikur aðal- hlutverkið í Vominum, nýjustu kvikmynd leikstjórans Volker Schlöndorffs, franskan mann sem á stríðsárunum starfar fyrir Þjóðverja við að fá börn til að ganga í Nasistaflokkinn. Frekari ábending er athygi- isverð mynd með Stephen Rea um írskan strokufanga sem sest að í Bandaríkjunum. Ásamt Rea fara Alfred Molina og Rosana Pastor með stór hlutverk í myndinni. Myndirnar á kvikmyndahá- tíðinni eiga það sameiginlegt að vera sérlega vandaðar enda hafa þær vakið mikla athygli og ættu að vera kærkomnar þeim sem \álja taka sér hvíld frá hinum dæmigerðu banda- rísku afþreyi ngarmyndu m. Dagskrá hátíðarinnar er sem hér segir: 20. maí - 26. maí Háskólabíó - Keimur af kirsu- beri Regnboginn - Vængir dúfunn- ar 27. maí - 2. júní Háskólabíó - Állinn Regnboginn - Óskar og Lús- inda 3. júni - 9. júní Háskólabíó - Dauði í Granada Regnboginn - Hin ljúfa eilífð 10. júní - 16. júní Háskólabíó - Vomurinn Regnboginn - Frekari ábend- ing ______ TrésmiðjQn Alfa ehf. • Óseyrl lo • 603 Akureyri Sími 461 2977 • Fax 461 2978 • Farsíml 85 30908 9H*tAéttUujG/i ocj, liuAxUri ■ HVAÐ ER Á SEYfll? NORÐURLAND Vorsýning í Gilinu Hin árlega vorsýning Myndlista- skólans á Akureyri var opnuð fimmtudaginn 21. maí ld. 14 í húsakynnum skólans að Kaup- vangsstræti 16 og er afrakstur vetrarins til sýnis. Tíu nemendur luku eins árs námi í fornáms- deild og sex þriggja ára námi í sérnámsdeildum. Sýningin er opin kl. 14 til 18 sýningardagana en henni lýkur sunnudaginn 24. maí. Aðgangur er ókeypis. Söguskilti um sr. Friðrik Frið- riksson Sunndaginn 24. maí kl. 15.00 verður afhjúpað söguskilti um sr. Friðrik Friðriksson stofnanda KFUM og K á íslandi, við fæð- ingarstað hans að Hálsi í Svarf- aðardal. Kór Dalvíkurkirkju syng- ur og sr. Magnús G. Gunnarsson sóknarprestur á Dalvík annast ritningarlestur og bæn. Eftir at- höfnina verður boðið upp á kaffi í Safnaðarheimili Dalvíkurkirkju. Um kvöldið verður samkoma í félagsheimili KFUM og K í Sunnuhlíð á Akureyri ld. 20.30. Ræðumaður verður Ástráður Sig- ursteindórsson. Boðið verður upp á kaffi á eftir. Allir eru vel- komnir á þessar samverur. Gæðingakeppni Léttis Gæðingakeppni Léttis og úrtaka fyrir landsmót verður á Hlíðar- holtsvelli 30. maí og 1. júní. Keppt verður í A og B flokki gæðinga, öllum flokkum, 150 og 250 m skeiði og 300 m stökki. Skráning er í Hestasporti og Hestabúðinni og er síðasti skrán- ingardagur miðvikudagurinn 27. maí kl. 18.00. Kántrýdans á Akureyri Jóhann Örn Ólafsson danskenn- ari verður með námskeið í línu- dönsum á Bjargi við Bugðusíðu kl. 17.00 á laugardag fyrir lengra komna en kl. 18.00 fyrir styttra komna og byijendur. Skráning á staðnum. Hver danstími kostar kr. 500,-. Hadda í Gallerý A.S.H. Guðrún H. Bjarnadóttir, Hadda, opnar sýningu sína „Sitt af hvoru" í Gallerý A.S.H. í Varma- hlíð í Skagafirði í dag kl. 14.00. Sýningin stendur til 12. júní. Hadda sýnir „sitt af hvoru“ af því sem hún hefur verið að vinna að á síðasta ári. Gallerí Svartfugl Bryndís Björgvinsdóttir opnar sýningu á málverkum sínum í Gallerí Svartfugli, Kaupvangs- stræti 24 á Akureyri í dag. Sýn- ingin stendur franytil 7. júlí. Akureyrardeild RKÍ Akureyrardeild Rauða kross ís- lands hefur flutt starfsemi sína í Viðjulund 2. Þar er tekið á móti fatnaði á afgreiðslutíma, kl. 13.30 til 16.30. Þessa dagana er að hefjast námskeið í skyndihjálp og skráning á barnfóstrunám- skeiðið er hafin, en þau verða haldin í byrjun júní. PKK á Café Menningu I kvöld munu PKK skemmta á neðri hæðinni á Café Menningu á Dalvík. Breikdans á Akureyri í dag kl. 14.00 verður haldin breikdansskemmtun á Ráðhús- torginu á Akureyri. Fram koma „Shakers" frá Reykjavik, helstu hjólabrettasnillingar Akureyrar leika listir sínar, boðið verður uppá tískusýningu frá Holunni og fleira. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Klúbbur Listahátíðar Klúbbur Listahátíðar er starf- ræktur í Iðnó. Kl. 15.00 í dag mun tónsmiður- inn. I gervi Hermesar er Guðni Franzson klarinettuleikari en gestur hans á tónleikunum er Atli Heimir Sveinsson tónskáld. Kl. 21.15 í kvöld verður kynning á Carmen Negra, sem er „rokk- salsa-popp“ útfærsla á óperunni Carmen eftir Bizet. I helstu hlut- verkum eru Caron, ensk söng- kona af uppruna Sioux indíána Norður-Ameríku, Egill Ólafsson, Garðar Thor Cortes, Helgi Björnsson, Bubbi Morthens, Val- gerður G. Guðnadóttir og Berg- þór Pálsson. I Klúbbnum koma fram söng- konan Caron sem syngur titil- hlutverkið og Garðar Thor Cortes sem syngur José. Kl. 22.30 hefur hljómsveitin Skárr’en ekkert upp leik sinn og spilar „kaffihúsatónlist". Á efnis- skrá hljómsveitarinnar er tónlist eftir Nino Rota, Tom Waits, Les Negresses Vertes, The Pogues og fleiri, auk frumsamins efnis. Athygli er vakin á því að mánu- daginn 25. maí gefst fólki kostur á að koma fram í Klúbbi Listahá- tíðar. Hugmyndum að dagskrár- atriðum skal koma á framfæri við umsjónarmenn klúbbsins í s. 699 1718 og 896 6740. Menningardagar í Gerðubergi Vikuna 25. til og með 29. maí verða menningardagar í félags- starfi Gerðubergs. Handavinnu- og listmunasýning verður alla dagana kl. 9-19. Gerðubergskór- inn flytur söngdagskrá undir stjórn Kára Friðrikssonar \áð undirleik Benedikts Egilssonar harmoníkuleikara og Unnar Ey- fells píanóleikara. Danshópur Helgu Þórarins sýnir dans, hljóð- færaleikarar úr Tónhorninu flytja létt lög, stiginn verður dans og margt fleira verður á boðstólum. Daglegt líf unglinganna Nú stendur yfir í Menningarmið- stöðinni Gerðubergi ljósmynda- sýningin „Tilvera - Daglegt líf unglinganna" sem er afrakstur ljósmyndaverkefnis unglinga af öllu landinu, en fyrirmyndin var „Sópaðu aldrei síðdegis". 27 unglingar víðsvegar af land- inu fengu senda einnota mynda- vél til að ljósmynda sitt nánasta umhverfi og daglegt líf. Sýningin er haldin í Gerðubergi og stend- ur til 20. júní. Tvær aðrar sýningar standa yfir í Gerðubergi. „Odella - að lifa af‘ og Ljósmyndir Maya Indíána frá Chipas í Mexíkó. Minjagripasýning Nú stendur yfir sýning í galleríi Handverks & Hönnunar að Amt- mannsstíg 1 í Reykjavík á verð- launuðum og áhugaverðum til- lögum úr minjagripasamkeppni sem haldin var á vegum Átaks til atvinnusköpunar og Handverks & Hönnunar. Alls bárust 289 tillögur og eru um 40 tillögur til sýnis. Að lok- inni sýningunni í Reykjavík verð- ur hún flutt til Akureyrar og sett upp í Deiglunni í tengslum við Listasumar. Sýningin að Amtmannsstíg 1 stendur til 6. júní og er opin þriðjudaga-föstudaga kl. 11-17 og laugardaga kl. 12-16. Aðgang- ur er ókeypis. Hana-nú Kópavogi Að morgni kosningadags verð kosningaskrifstofur listanna heimsóttar. Lagt verður af stað frá Gjábakka kl. 10.00 árdegis. Allir eru velkomnir með í för hvort sem þeir eru frá Kína, Klakksvík eða Kópavogi. Ferðafélag Islands Göngudagur Ferðafélagsins í Hraunum sunnudaginn 24. maí. Hinn 20. í röðinni. Gengið verð- ur í náttúruperlunni Hraunum og nágrenni og eru skemmtilegar gönguferðir í boði fyrir alla. Gjásel - Straumsselsstígur - Þor- bjarnarstaðir. Um 4-5 klst. ganga undir leiðsögn Jónatans Garðars- sonar frá Umhverfis og útivistar- félagi Hafnarfjarðar. Brottför kl. 11.00 frá Rallýkrossbrautinni við Krísuvíkurveg. Straumur - Kúarétt. Um 1,5-2 klst. fjölskylduganga. Brottför ld. 13.30 frá listamið- stöðinni Straumi. Verð kr. 500 fyrir fullorðna en frítt fyrir börn. Rútuferðir frá BSI austanmegin og Mörkinni 6 kl. 10.30 og 13.00. Frítt ef kom- ið er á eigin vegum beint í Straum. Allir fá merki göngu- dagsins og í boði verða léttar veitingar. Félag eldri borgara Rvík Félagsvist í Risinu kl. 14 á morg- un. Allir velkomnir. Dansað í Goðheimum kl. 20 á sunnudagskvöld. Ferð í Heiðmörk 4. júní kl. 14 frá Risinu. Farið um Hafnarfjörð og Hellisgerði skoðað og síðan í Heiðmörk og Vatnsveita Reykja- víkur heimsótt og veitingar að Jaðri. Skrásetning og miðar af- hentir á skrifstofu félagsins. Ljósmyndarar framtíðarinnar 1 dag ld. 16.00 verður sýningin „Dimmblá" opnuð í Tehúsi Kaffi- leikhússins. Sýningin sam- anstendur af Ijósmyndum nem- enda sem hafa í vetur verið á ljósmyndanámskeiði Sissu. Nem- endurnir munu sýna svart-hvítar Ijósmyndir sem þeir hafa unnið undir handleiðslu Sissu ljós- myndara og er þar að finna hin Ijölbreytilegustu viðfangsefni. Við opnunina verður boðið upp á léttar veitingar ásamt flautuleik og eru allir velkomnir. Sýningin er opin laugardaga og sunnudaga frá kl. 12 til 18 og stendur til 31. maí.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.