Dagur - 23.05.1998, Blaðsíða 10

Dagur - 23.05.1998, Blaðsíða 10
26 - lÁlvga hda Gr/ft' 2V. MÁí iá9 a D^tíir'« LÍFIÐ í LANDINU Þar sem brimaldan fellur að á hann net sem fanga þang. Aflinn í lítilli skjóðu á öxlinni. •Sws* verður. Þeir eru eins og grá- sleppukarlarnir heima, nema þeir eru ekki á bátum og hér er sjórinn heldur hlýrri. Og aflinn af öðru tagi. Uppskeran er þang Hluta af uppskerunni er „sáð“ eða plantað í fjöruna; svo vaxa jurtirnar meðfram strengdum línum. Það er ekki auðvelt fyrir aðkomumann að fá fullkomnar upplýsingar um þessa rækt því þarna í fjörunni tala menn ekki alþjóðlega boðleg tungumál. En tekjurnar eru ekki miklar: árs- laun í þessu landi eru talin sam svara kringum 50-60 þúsund ís- lenskum, og þetta fólk er ekki á neinum meðallaunum, svo mik- ið er víst. En þetta er búbót fyrir afrakstur- 'nn / bastkörfu. þá sem ekkert jarðnæði hafa fyr- ir hrísgijón, engan bát til að veiða, enga vinnu við að skúra hjá stóru hótelunum. Og þarna virðist nokkur eigna- og stétta- skipting: „Stórbændur" eiga skika með græðlingum og beð- um; „minni bændur" eiga kannski eitt eða tvö eða fleiri net, sem þeir leggja utan við garðana. Og svo eru gamlar kon- ur og börn að tína þá þangsprota sem sleppa hjá netunum eða losna upp úr görðunum - nú eða náttúran leggur til sjálf af örlæti sínu þarna í hlýju Indlandshaf- inu, þar sem litskrúðugar fiska- torfur koma að með flóðinu. Vegir heimsmarkaðar Þangið er þurrkað og notað til matar. En þar verður ekki mesti virðisaukinn. ríhnotskurn: jörunni, sent til myrsl, þau sen^ ___r* 6 ríka Meðan pólitísk upplausn ríkirílndó- nesíu er fjörufólkið á Bali áfram við sín störf Fátæklingar sem ræktaforvitnilega garða þarsem hafald- an brotnará kóralrifi - fyrirframan einhver fínustu lúxushótel í heimi. Þegar síðdegissólin lækkar á lofti og gyllir strönd taka ferða- mennirnir sem gista á dýrlegum lúxushótelum saman pjönkur og skreppa á „hamingjustund" á sundlaugarbarnum. Samtímis koma úr kofum lengra út með ströndinni þeir heimamenn sem „rækta garðinn sinn“ úti fyrir. Fjaran rís hægt úr hafi þegar aldan hopar út fýrir kóralrifin. Þá koma á þurrt ótal smágarðar, stög og net sem fjörufólkið á. Það .ræktar þang. Og veiðir í net. Eins og kartöflugarðar A háljöru er eins og maður horfi yfir kartöflugarða. Langar raðir af „beðurn" blasa við; þar hafa menn plantað sérstakri tegund af þangi sem vex í skipulegum röðum. Sums staðar eru staurar löngum röðum sem bera uppi „girðingar“ af netum, þau fyllast af þangi. I pollum milli kórala bogra kerlingar með bast- körfur og tína upp það sem til fellur. Lengst úti þar sem brimið hamast enn eru karlar að vitja „þangneta" sem þeir hafa lagt eins langt út og komist Þangbóndi hugar að garði sínum. Mikið af því er flutt út, og eink- um til Japans. Þarlendir eru vit- lausir í það með sjávarréttum sínum heimskunnum, en svo eru það fegurðarlyfin og smyrsl- in. Þegar þangið frá Ijörufólkinu er komið í krem og olíur er það fyrst orðið verðmætt. Og svo merkilegur er heimsmarkaður- inn að þangið frá Balí ratar þangað aftur eftir að það er komið í smyrsl. A stóru fínu hót- elunum sem liggja meðfram ströndinni verður nú æ vinsælla að bjóða upp á „spa“ þjónustu með heilsupottum, nuddi, olíum og smyrslum sem roðið er á kroppa gesta. Þangið sem fjöru- fólkið tínir nokkra tugi metra frá fínu hótelunum ratar því á end- anum á sólbrenndu Iíkamina sem þar gista, og vilja fá slak- andi meðferð eftir sólböð dags- ins, fyrir eða eftir „hamingju- stund“ á sundlaugarbarnum, áður en þeir drífa sig út á lífið. En þá er aftur farið að flæða að, netin sökkva í djúpið til að veiða þang og ljósin slökkna hvert af öðru í kofunum við ströndina. Móðir og sonur að störfum við þanggirðingar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.