Dagur - 26.06.1998, Page 4

Dagur - 26.06.1998, Page 4
é - FÖSTUDAGUR 26. JÚNt 1998 FRÉTTIR VESTMANNAEYJAR Upplýsingar úr náttúmiuii skynjaðar og þeim miðlað Rannsóknarsetur Vestmannaeyja hefur kynnt hugmyndir um DELFI umhverfið en það snýst um stofnun sem hlustar, skynjar og miðlar hvers kyns upplýsingum frá umhverfinu. Miðstöðin verður í Eyjum. Þorsteinn Ingi Sigfússon segir að ýmis atriði verði lögð til grundvall- ar hugmyndinni. Þar má nefna hafið, landið og loftið og hugmyndin er að gera Keikó að lifandi tákni fyrir hlustir og augu alls heimsins. Byggð verður upp ferðamannaþjónusta þar sem DELFI umhverfið gæti orðið nokkurs konar hlustunarmiðstöð náttúrunnar í mjög víð- feðmum skilingi. Goslokahátíð hefst 3. júlí Mikil hátíðarhöld heíjast í Vestmannaeyjum föstudag- inn 3. júlí með skrúðgöngu úr Friðarhöfn að Stakka- gerðistúni en hátíðarhöldin eru tengd goslokum í Eyj- um og standa þau til 11. júlí. I gosnefnd sitja Arnar Sigurmundsson, Guðjón Hjörleifsson og Ragnar Oskarsson en umsjón með gleðskapnum hefur Andrés Sigurvinsson Ieikari. Yfir- skriftin verður götuleikhús en einnig verður boðið upp á myndlistarsýningar í Akóges og Listaskólanum. A laugardag verður útidansleikur á Stakkagerðistúni, gömlu dansarn- ir í gamla veitingatjaldinu frá þjóðhátíðinni við Vesturveginn og uppákomur í Skvísusundi. A sunnudag verður messa í gígnum í Eld- felli en síðan verður athöfn á Skansinum. Þess má geta að nemend- ur Barnaskólans hafa útbúið heimasíðu um eldgosið í Heimaey og er slóðin http://rvik.ismennt.is/~neyglob/. Þetta kemur fram í FRETT- UM. Vestmannaeyingar hyggjast halda mikia hátíð í byrjun júlí sem tengist lokum eld- gossins í Heimaey. - mynd: gva Vestmaimaeyjiun stjúmað af konum Sigrún Inga Sigurgeirsaóttir (D) verður forseti bæjarstjórnar Vest- mannaeyja næstu fjögur árin en í bæjarráði sitja Sigurður Einarsson og Elsa Valgeirsdóttir frá Sjálfstæðisflokki og Þorgerður Jóhannsdótt- ir af Vestmannaeyjalista. Konur eru auk þess í meirihluta í bæjar- stjórn en á fyrsta fundi bæjarstjórnar voru mættar Guðrún Erlings- dóttir af Vestmannaeyjalista, Andrea Atladóttir frá Sjálfstæðisflokki auk áðurnefndra kvenna. — GG Utaiiríkisráðherrafiindiir Eystrasaltsráðs Utanríkisráðherrafundur Eystrasaltsráðsins var haldinn 22.-23. júní sl. og sat Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherrafundinn fyrir Islands hönd. Á fundinum var rætt um mannréttindamál og lýðræð- isþróun; efnahagssamvinnu; menningarmál og al- mannaöryggi. Einkum var rætt um réttindi minni- hlutahópa í Lettlandi, en í gær samþykkti lettneska þingið lög um ríkisborgararétt. Halldór lagði áherslu á mannréttindamál Eystrasaltsráðsins í ræðu sinni og benti á nauðsyn þess að ráðið ynni með óháðum mannréttindasamtökum. Ásamt aðildarríkjunum sátu fundinn fulltrúar Bandaríkjanna, Frakklands og Ukraínu en þessi ríki hafa sýnt störfum ráðsins mik- inn áhuga. Halldór Ásgrímsson. Tölur um veltu verslana seinkar Tölur um veltu verslana, skv. virðisaukaskattframtölum fyrir tvo fyrstu mánuði ársins, hafa ekki enn borist, en hafa venjulega borist í bytjun maí. Þjóðhagsstofnun segir seinkunina nú sökum þess að nú er í fyrsta sinn flokkað skv. staðli sem stendur fyrir íslenska atvinnu- greinaflokkun 1995 og er þessi flokkun mun ítarlegri en fyrr. Einnig koma samanburðartölur frá 1997 og gefur þessi flokkun mun betri upplýsingar um vöruflokka en áður. Tölurnar munu liggja fyrir inn- an fárra vikna. Afmælisrit K.Í. Á 50 ára afmæli Kaupmannasamtaka Islands, árið 2000, verður gef- ið út afmælisrit K.Í., 4 binda ritverk sem inniheldur bæði sögu sam- takanna og kaupmannatal. Bókaútgáfan Byggðir og Bú ehf. gefur verkið út en Lýður Bjömsson og Þorsteinn Jónsson eru ritstjórar verksins. Sögunefnd K.í. starfar sem ráðgjafi við vinnslu verksins. Kaupmáttarauki góðærisins hefur ekki farið í að kaupa ávexti samkvæmt hagtölum. Hólmfríður Þorgeirsdóttir hjá Manneldisráði segir það ekki góðar fréttir. Ávaxtaát á niðurleið á uppgangsánmuin Laiidsmeim hafa ekki farið með sinn aukna kaupmátt í ávaxta- kaup, því þau eru að minnka nema á allra dýrustu ávöxtuuum. Öfugt við það sem ætla mætti á þessum heilsuræktartímum hefur ávaxtaneysla Iandsmanna verið heldur á niðurleið í góðærinu, 1996 og 1997. Innflutningur ferskra ávaxta á síðasta ári var að- eins 118 grömm á mann á dag, sem samsvarar um 1/2 banana, epli eða appelsínu - og þá að ekk- ert hafi farið forgörðum. Banan- ar, epli og appelsínur voru sam- tals nær 2/3 alls ávaxtainnflutn- ings framan af áratugnum. En at- hyglisvert er að innflutningur á eplum og appelsínum hefur nú minnkað um 1/6 síðustu tvö árin, eða um 790 tonn, en bananarnir hafa haldið sínum hlut. Kaup á jarðarberjum og bláberjum hafa hins vegar aukist mjög verulega, þótt það séu bæði dýrustu ávext- irnir og hafi hækkað mest í verði. Töluverð aukning er líka í mandarínum og perum. Hreint ekki nógu gott „Við erum auðvitað ekkert ánægð með þessa þróun, því það er bú- inn að vera í gangi áróður um að borða meira af ávöxtum og græn- meti - helst fimm skammta á dag. Þannig að þetta er hreint ekki nógu gott - og þarf greinilega að gera eitthvað meira," sagði Hólm- fríður Þorgeirsdóttir hjá Mann- eldisráði. Ávaxtainnflutningur jókst tölu- vert milli 1990 til 1993 og náði hámarki 1995, en síðan hefur heldur sigið á ógæfuhliðina. Grænmetisneysla virðist líka hafa staðið nokkurn veginn í stað síð- an 1994, kringum 30 kíló á mann á ári, eða um 85 grömm á dag að meðaltali. Þær tölur eru þó eðli- lega ónákvæmari, þar sem ís- lenskt grænmeti úr ótal görðum (m.a. skólagörðum) ratar eðlilega illa í hagskýrslur. Innlend ávaxta- rækt er aftur á móti afar takmörk- uð. Hálft epH á dag Rúmlega 12.100 tonn voru flutt inn af ferskum ávöxtum í fyrra, samkvæmt skýrslum Hagstofunn- ar, ríflega 400 tonnum minna en 1995, þegar ávaxtakaupin urðu mest. Þetta samsvarar rúmum 43 kg að meðaltali á hvern íslending (1,5 kg minna en 1995) - eða um 118 grömm á mann á dag, sem samsvarar um 1/2 góðum ávexti, banana, epli eða appelsínu. Sam- anlagður dagskammtur af ávöxt- um og grænmeti er þannig aðeins rúm 200 grömm á mann (að með- talinni rýrnun í verslunum og því þvf miður endar í ruslafötunni heima hjá okkur). Ávextimir kannski of ódýrir? Innflutningsverð á bönunum hef- ur lítið hækkað á undanförnum árum (60 kr./kg í fyrra), en með- alverð á eplum (76 kr./kg) og app- elsínum (66 kr./kg) hækkaði hins vegar töluvert árið 1996 en stóð síðan í stað í fyrra. Sítrónur, greip og perur kostuðu svipað í fyrra og tveim árum áður. En melónur, jarðarber og bláber hafa hækkað töluvert, þ.e. þær tegundir sem sala hefur samt mest aukist á. - HEI Sótt að landsbyggðar- versluninni Verslimin á suðvest- urhorninu sogar í vax- audi mæli til sín verslun við lauds- byggð. Mauuréttiudi að hafa aðgang að versluu. Dauska mód- elið heillar. „Það er alveg Ijóst að verslunin á suðvesturhorninu sogar rosalega til sín og í vaxandi mæli. Þeir úti á landi verða að bregðast við með einhverjum hætti en þeir eru ekki farnir að gera það enn- þá,“ segir Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri Kaupmanna- samtaka íslands. Með tilkomu æ stærri eininga í verslun á höfuðborgarsvæðinu samfara greiðari og öflugri sam- göngum er farið að verða vart við vaxandi ótta meðal landsbyggð- arfólks og verslunareigenda um framtíð verslunar úti á landi. Þar er fólk m.a. farið að velta því fyr- ir sér hvort þjóðfélagið láti sér það einhverju varða hvernig þessi mál þróast og hvort það séu mannréttindi að hafa aðgang að verslun. Horft til Danmerkur Sigurður Jónsson segir að lands- menn megi í þessum efnum draga mikinn Iærdóm af því hvernig staðið er að þessum mál- um í Danmörku þar sem hugsað er meira um heildina en al- mennt gerist hérlendis. í því sambandi bendir hann á þá hugsun Dana að það sé ódýrara fyrir þjóðfélagið að viðhalda litlu dreifbýlisverslununum í stað þess að Iáta þær fara á hausinn. Það kemur í veg fyrir að verja þurfi fjármunum í kostnað við að koma vörunum til fólks sem ekki á bíla eða getur ekki af öðrum ástæðum nálgast gnægtaborð stórverslana í stærri bæjum og borgum. Hérlendis virðast menn hinsvegar ekki hafa miklar áhyggjur af þessari þróun í versl- uninni þar sem hinir stóru verða sífellt stærri á sama tíma og Iitl- ar landsbyggðarverslanir eiga undir högg að sækja. — GRH

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.