Dagur - 26.06.1998, Qupperneq 12

Dagur - 26.06.1998, Qupperneq 12
12 - F ffsh’U b'A G U R" 2 6y. "jÚN'Í V19\9 8 t^ui- ÍÞRÓTTIR Opiirn veðbanld á kappreiðum Fáks Frá hvítasunnukappreiðum Fáks. Lee Janzen öruggur sigurvegari á opna bandaríska meistaramótinu í golfi með sigurlaunin í höndunum og 38 milljóna króna [535.000 bandaríkja- dala] tékka í vasanum. Janzen sigraði í annað sinn Hestamannamótm í bikarröd Fáks eru fyrsta flokks skemmt- un fyrir afla fjölskyld- ima. Veðbankiim verð- ur sífellt vinsæfli og dregirr að fjölda manns. Bein útsend- ing verður frá mótinu á morgnn í Ríkissjón- varpinu. Annað bikarmót Hestamannafé- Iagsins Fáks verður haldíð á skeiðvelli félagsins að Víðivöllum á morgun, laugardag, og hefst klukkan 10:00. Mótið er eitt af sex mótum í bikarmótaröð Fáks, en það fyrsta var haldið um hvíta- sunnuna. A mótunum eru gefin stig eftir sætum og eru þau eftirfarandi: 1. sæti gefur 20 stig 2. sæti gefur 17 stig 3. sæti gefur 15 stig 4. sæti gefur 13 stig 5. sæti gefur 11 stig Fyrir 6. - 10. sætið eru síðan gefin stig frá tíu og niður í eitt. Hestarnir hlaupa tvisvar sinn- um í hverju móti og reiknast betri tíminn til stiga. Þetta gildir um allar keppnisgreinar nema 800 metra stökk, en þar hlaupa hest- arnir einu sinni í riðlakeppni og gefa fjórir bestu tímarnir þátt- tökurétt í úrslitum. Heildarstigafjöldi hestanna í bikarröðinni reiknast eftir besta árangri þeirra í fimm af þessum sex mótum. Howard Kendall, framkvæmda- stjóri Everton, hefur hætt störf- um hjá félaginu. Kendall tók við liðinu seint á síðasta sumri eftir að stjórn þess hafði lengi leitað að þjálfara til að taka við af Joe Royle, sem hætti eftir dapurt gengi á keppnistímabilinu þar á undan. Miklar væntingar voru gerðar til Kendall, sem gerði Everton að meisturum á sínum tíma eftir harða baráttu við nágranna sína í Liverpool. Arangurinn lét á sér standa og liðið forðaði sér naumlega frá falli í fyrstu deild í sínum síðasta leik í vor. Howard Kendall sagði við Dag í vetur ástæður ófaranna í vetur m.a. að Ieikmennirnir hefðu ver- ið í mjög slæmu Iíkamlegu ástandi þegar hann kom til Goodison Park. Þá hjálpaði það ekki til að stjórn liðsins var lengi að finna knattspyrnustjóra. Margir höfðu hafnað stöðunni og hann kom inn í starfið á síð- Spennandi úrslitakeppni I hveiju móti fer fram úrslita- keppni, þar sem barist er um pen- ingaverðlaun. Keppnisrétt í þeirri keppni eiga þeir hestar sem hafa fjóra bestu tímana í viðkomandi móti. Urslitakeppnin reiknast ekki til stiga og hefur aldrei áhrif á stöðuna í heildarstigakeppn- inni, nema í 800 metra stökki. Að sögn forsvarsmanna móts- ins er aðal ástæðan fyrir öðruvísi reglum í 800 metrunum sú að ekki hefur verið keppt í alvöru í þessari grein í langan tíma og því ákveðið að bíða og sjá hver reynslan yrði. Menn telja það að óreyndu of mikið álag á hestana, að láta þá keppa í tveimur riðlum og svo í úrslitum. Hámarks þátttaka á bikarmót- unum verða sextán hestar í hverri keppnisgrein og fá tíu efstu hest- ar síðasta móts sjálfkrafa keppn- isrétt á því næsta. Um hin lausu sætin fer fram sérstök und- ankeppni daginn fyrir keppnina og er valið í hana eftir sérstökum reglum. Beinar útsendtngai og veðbaúki Beinar útsendingar verða frá öll- um mótunum f Ríkissjónvarpinu og hefst útsendingin á morgun klukkan 12:00 og stendur til 14:00 og verður sýnt frá seinni umferð og úrslitum. Hestamannafélagið Fákur mun reka veðbanka á svæðinu og að sögn Fáksmanna er mikill spenn- ingur fyrir honum og fólk duglegt að veðja. Þeir segja það hina bestu skemmtun fyrir alia fjöl- skylduna og dró það að fjölda fólks á síðasta móti. Howard Kendall. ustu stundu. Áfengisvandamál hrjáðu einnig hópinn. „Eg hef tekið á mínum áfengisvanda. Nú er tími til kominn að sumir drengjanna snúi sér að sínum. Það vandamál er vissulega fyrir hendi,“ sagði Kendall. Ekki er enn vitað hver tekur við af Kendall en þangað til það verður ákveðið mun fyrrum leik- maður liðsins, Aidrian Heath, stjórna liðinu. — GÞÖ Fróðleiksmolar um Opna bandaríska meistaramótið Sigurvegarar síðustu 10 ára Ár Keppandi Skor 1988 Curtis Strange 278 1989 Curtis Strange 278 1990 Hale Irvvin 280 1991 Payne Stevvart 282 1992 Tom Kite 285 1993 Lee Janzen 272 1994 Ernie Els 279 1995 Corey Pavin 280 1996 Steve Jones 278 1997 1998 Ernie Els Lee Janzen 276 280 Þeir hafa oftast sigrað Keppandi Ár Willie Anderson 1901 '03 '04 ‘05 Bobby Jones 1923 '26 '29 '30 Ben Hogan 1948 '50 '51 '53 Jack Nicklaus 1962 '67 '72 '80 Hale Irwin 1974 '79 '90 Alex Smith 1906 TO John McDermott 1911 '12 Walter Hagen 1914 '19 Gene Sarazen 1922 '32 Ralph Guldahl 1937 '38 Cary Middlecoff 1949 '56 Julius Boros 1952 '63 Billy Casper 1959 '66 Lee Trevino 1968 '71 Andy North 1978 '85 Curtis Strange 1988 '89 Ernie Els 1994 '97 Lee Janzen 1993 '98 Ýmii met Lvsing Keppandi Elsti sigurvegari Ilale Irwin 45 ára, 1990 Yngsti sigurvegari John McDermott 19 ára, 1911 Oftast meðal tíu efstu Jack Nicklaus 18 Lægsta skor á 72 holum Jack Nicklaus '80 272 (63-67-69-69) Lee Janzen '93 272 (67-67-69-69) Lægsta skor undir pari á 72 holum J.Nicklaus -8 '80 Hale Irvvin -8 '90 M. Donald -8 '90 Hæsta vinnings- skor Willie Anderson 331 - 1901 Hæsta skor á einni holu Ray Ainsley 19 - 1938 (par 4) Flestir fuglar á einu móti George Burns 6 - 1982 Flestar holur á pari á einu móti Jack Nicklaus 35 Flestir sigrar í röð Willie Anderson 3 - 1903 '04 '05 Þeir hafa þénað samtals mest á US Open Keppandi Arangur Upphæð Ernie EIs 5 keppnir 1. sæti '94 '97 $906.445 Curtis Strange 19 keppnir 1. sæti '88 '89 $606.185 Colin Montg. 6 keppnir 2. sæti '94 '97 $578.627 Tom Lehman 9 keppnir 2. sæti '96 $571.769 Payne Stewart 14 keppnir 1. sæti '91 $515.880 Hale Irvvin 28 keppnir 1. sæti '74 '79 '90 $465.198 Steve Jones 5 keppnir 1. sæti '96 $459.992 Tom Watson 26 keppnir 1. sæti '82 $429.637 Corey Pavin 14 keppnir 1. sæti '95 $433.896 Greg Norman 16 keppnir 2. sæti '84'95 $429.898 Scott Simpson 18 keppnir 1. sæti '87 $410.204 Áhugasamir áhorfendur héldu niðri í sér andanum við átjándu og síðustu holuna á opna bandar- íska meistaramótinu í golfi sem lauk um síðustu helgi. Sigurveg- ari mótsins, Lee Janzen, var með- al áhorfenda og enginn var spenntari en einmitt hann. Fólk- ið var að fylgjast með lokapútti Payne Stewarts, sem leitt hafði keppnina frá byrjun. „Eg gat varla horft á þetta,“ sagði Janzen. „Eg hugsaði, ef hann hittir, erum við jafnir og við verðum þá að halda áfram þar til annar okkar sigrar. Ef hann klikk- ar, þá er ég sigurvegari mótsins, hugsaði ég,“ sagði Janzen þegar hann lýsti þessum spennandi lokakafla mótsins. Það hefur ef- laust aukið spennuna að 535.000 dala verðlaunaávísun beið af- hendingar hjá mótshaldaranum, fyrir sigur í keppninni. Kúlan kom veltandi beint niður hallann í þessu langa pútti Stewarts og virtist stefna beint í holuna. „Eg hélt hún færi beint ofan í,“ sagði Jenzen. Fyrir síðasta hringinn hafði Stewart Ijögurra högga forystu á næsta mann sem var Tom Leh- mann og sjö höggum betur en Lee Janzen. Það áttu því fæstir von á því að Janzen tækist það ótrúlega, sérstaklega þar sem hann hafði skotið kúlunni upp í tré á fimmtu holu. En fyrir ein- hverja heppni hafði kúlan losnað úr trénu þegar hann hugðist taka vítið. En Janzen missti ekki sjálfs- traustið og endurtók leikinn frá árinu 1991, þegar hann sigraði fyrst á „US Open“. Sá sigur var mjög keimlíkur þessum, en þá sigraði hann einnig Stewart á síð- asta hringnum í álíka spennandi keppni. Flestum af þekktustu keppend- unum gekk illa á þessu móti og kvörtuðu margir yfir grófu gras- inu í kringum brautirnar og margir Ientu f vandræðum þess vegna. Það er því ekkert skrftið að „Olympic Club“ völlurinn í San Francisco skuli ganga undir nafn- inu grafreiturinn hjá sumum. Eða eins og einn þeirra sagði svekkt- ur: „Janzen og völlurinn eru sig- urvegarar þessa rnóts" og annar sagði: „Það hvíla álög á þessum skrattans velli.“ Úrslit opna bandaríska meistaramótsins Verðlaun Skor Par Stig Ryder Cup Lee Janzen $535.000 73-66-73-68-280 0 225.000 Payne Stewart $315.000 66-71-70-74-281 +1 135.000 Boh Tway $201.730 68-70-73-73-284 +4 120.000 Nick Price $140.597 73-68-71-73-285 +5 Steve Stricker $107.392 73-71-69-73-286 +6 82.500 Tom Lehman $107.392 68-75-68-75-286 +6 82.500 David Duval $83.794 75-68-75-69-287 +7 45.000 Lee Westwood $83.591 72-74-70-71-287 +7 Jeff Maggert $83.794 69-69-75-74-287 +7 45.000 Jeff Sluman $64.490 72-74-74-68-288 +8 3.750 Phil Mickelson $64.490 71-73-74-70-288 +8 3.750 Stuart Appleby $64.490 73-74-70-71-288 +8 Stewart Cink $64.490 73-68-73-74-288 +8 3.750 Howard KendaH rekinn frá Everton

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.