Dagur - 05.09.1998, Blaðsíða 10
10-LAUGARDAGUR S.SEPTEMDER'1998
FRÉTTIR
Sjálfsvíg sexfaldast á Vesturlandi
Sjálfsvígsbylgja sem
hófst meðal nngra
karla fyrir 2 áratug-
iiiii hefur ekki gengið
yfir, bara hjaðnað
austanlands og borist
til Vesturlands.
Sjálfsvígsbylgjan sem hófst hér
meðal ungra karla (15-34 ára)
rétt fyrir 1980 hefur ekki gengið
yfir í heildina litið. Þótt hún hafi
fjarað nokkuð út á Austurlandi,
þar sem hún reis langhæst á ní-
unda áratugnum, hefur hún nú í
staðinn borist til Vesturlands - þar
sem sjálfsvígstíðni hefur meira en
sexfaldast á þessum áratug - og
einnig til sveitarfélaga í nágrenni
höfuðborgarinnar og á Suður-
land. Þetta kemur fram í greinar-
gerð frá landlæknisembættinu í
nýju Læknablaði (sept.’98).
Austíjarðaleiðiiuii ekM íylgt
eftir
Arangur á Austurlandi er ekki síst
rakinn til aðgerða embættisins og
góðs framgangs héraðslæknis
Austurlands. Geðlæknir, sálfræð-
ingur og prestur hafi farið til
Austurlands og átt þar fjölmarga
borgarafundi bæði með fullorðn-
um og unglingum. En þrátt fyrir
góðan árangur hafi þessi leið ekki
verið valin í öðrum héruðum.
Ráðuneyti mennta- og heilbrigð-
ismála hafa átt fundi með völdum
hópi starfsmanna úr fræðslu-
málageiranum víða um Iand. En
landlæknir segir brýnt að funda
með íbúum og hefur haft sam-
band við héraðslækna Vestur-
Sjálfsvígstíðni meðal ungra karla
hefur margfaldast á Vesturlandi.
lands, Reykjaness og Suðurlands
vegna þess.
Stöðugt 26 af hverjum
100.000
Sjálfsvígstíðni meðal ungra karla
hér á landi (um 15 af hveijum
100.000) setti okkur í miðjan hóp
meðal Evrópubúa 1970-75.
Sjálfsvíg í þessum hóp nær tvö-
földuðust síðan á fáum árum. Frá
1980 hefur tíðnin verið stöðug -
um 26 af hveijum 100.000 - og
Islendingar í 3. til 4. sæti í álf-
unni.
Nú langhæst á Vesturlandi
Þótt Iitlar breytingar séu á Iand-
inu í heild eru þær gríðarlegar í
landshlutunum, einkum eftir
1990. ÁAusturlandi lækkaði tíðn-
in (m.v. 100.000) úr 84 á síðari
hluta áttunda áratugarins niður í
28 árin 1990-95. A sama tíma
margfaldaðist hún á Vesturlandi,
úr 8 upp í 51. Allt að tvöföldun
varð í nágrannabæjum höfuð-
borgarinnar (úr 18 upp í 38) og á
Suðurlandi (úr 17 upp í 29). Aft-
ur á móti lækkaði tíðni sjálfsvíga í
Reykjavík úr 32 á árunum 1986-
90 niður í 21 árin 1990-95, þ.e.
vel niður fyrir Iandsmeðaltal.
Miklar hreytingar varasamar
Landlæknir segir sjálfsvígum Iíka
hafa fjölgað meðal ungs fólks í
nágrannalöndunum og víðar. I
Svíþjóð séu sjálfsvíg til dæmis um
þrefalt tíðari meðal ungra inn-
flytjenda (15-18 ára) en inn-
fæddra. „Þessar niðurstöður
beina athyglinni að þeim gífur-
legu breytingum sem orðið hafa á
fjölskyldumynstri og afleiðingum
þess á undanförnum 15-20
árum,“ segir Iandlæknir og bætir
við: „Eftir stendur að „Austur-
landsaðferðin" dugði vel enda
hafa menn farið þá leið til dæmis
í Skandinavíu með góðum ár-
angri." -HEI
BALENO
BALEf
SWIFT BALENO VITARA GRAND VITARA
TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ:
GLS 3d 980.000 KR. l,3GL3d 1.140.000 KR. JLX SE 3d 1.580.000 KR. GR, VITARA 2,0 L 2.179.000 KR.
GLX 5d 1.020.000 KR. 1,3GL 4d 1.265.000 KR. 1,6GLX 4d 1.340.000 KR. 1,6 GLX 4x4 4d 1.495.000 KR. 1,6GLX WAGON 1.445.000 KR. WAGON 4x4 1.595.000 KR. JLX SE 5d 1.830.000 KR. DIESEL 5d 2.180.000 KR. Sjálfskipting kostar 150.000 aukalega GR. VITARA 2,5 L V6 2.589.000 KR. Sjálfskipting kostar 150.000 aukalega
Sjálfskipting kostar 100.000 aukalega
• vökvastýri • 2 loftpúða •
aflmiklar vélar • samlæsingar
• rafmagn í rúðum og speglum
• styrktarbita í hurðum •
• samlitaða stuðara •
—*
ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ
SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur 6. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf.,
Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavik: BG
bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17.
$ SUZUKI
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is