Dagur - 16.09.1998, Síða 1
1
t
t
my'A
í
Ríkisstjómin sendi
Grímseyingum píanó
og ráðherra frá Græn-
landi!
Peter Grönvold Samuelsen at-
vinnu-, samgöngu- og Qarskipta-
ráðherra Grænlendinga varð
vitni að þvf þegar Grímseyingar
tóku í notkun píanó á sannköll-
uðum menningartónleikum
norður við heimskautsbaug.
Hann er í opinberri heimsókn
hér ásamt eiginkonu sinni
Kristine Skifte Heilmann í boði
samgönguráðherra, Halldórs
Blöndal.
Það var augljóst að grænlenski
ráðherrann hafði skilning á því
sem fyrir augu bar í Grímsey og
lifnaðarháttum Grímseyinga.
Hann skoðaði m.a. bátaflotann
með athygli og þeirra útbúnað,
ekki síst handfærarúllurnar.
Halldór Blöndal sagði að þeg-
ar hann hafi fært það í tal við
forsætisráðherra, Davíð Odds-
son, að tímabært væri að endur-
nýja píanóið í Grímsey, hafi
hann lagt áherslu á að eitt af því
sem héldi byggð vakandi væri
fjörug tónlist og möguleikar
fólks til þess að standa þannig að
uppeldi sinna barna að þau ættu
kost á því að leika á hljóðfæri.
Því var samþykkt að gefa Gríms-
eyingum forláta Yamaha-píanó
og verja til þess 500 þúsund
krónum. Það yrði nú vígt af góð-
um listamönnum en „menning-
ardeild" samgönguráðuneytisins
hefði haft veg og vanda af því.
Þorlákur Sigurðsson oddviti,
sem samgönguráðherra nefndi
kóng Grímseyinga, sagði
Grímseyinga vera ákaflega þakk-
láta ríkisstjórninni fyrir píanóið,
nú gæti enginn listamaður borið
því við að ekki væri til hljóðfæri í
Grímsey til að halda tónleika.
„Eg held að okkar góðu gestir
hljóti að vera sammála um það
Höfnin er lífæð Grímseyinga og þangað var haldið, m.a. til að skoða öfluga
brimbrjóta. Á myndinni eru Gyifi Gunnarsson útgerðarmaður og sveitar-
stjórnarmaður, Halldór Blöndal samgönguráðherra, Peter Grönvold Samuel-
sen atvinnu-, samgöngu- og fjarskiptaráðherra Grænlands og Þorlákur
Sigurðsson oddviti og „kóngur“ Grímseyjar.
Öllum Grímseyingum var boðið til móttöku og vígslu á nýju píanói. Börnin í Grímsey sungu við vígsluna við undirleik
Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Hún lék svo einleiksverk á píanóið og sem undirleikari Signýjar Sæmundsdóttur
sópransöngkonu. myndir gg
eftir að hafa skoðað sig hér um
að Grímsey má alls ekki fara í
eyði, það væri meiriháttar slys
því þá vissu Grænlendingar ekki
hvar gott fólk væri að finna á Is-
Iandi! Það er ánægjulegt að fá
svo mikið listafólk til þess að
vígja þetta píanó okkar eins og
þær Ónnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur og Signýju Sæmundsdótt-
ur og ég veit að börnin í Grfms-
ey stóðu einnig vel fyrir sínu,“
sagði Þorlákur Sigurðsson, en
börnin sungu hástöfum „Hafið
bláa hafið“, eftir Örn Arnarson.
Ekkert lag hentaði kannski betur
í Grímsey!
„Vonandi verður heimsóknin
til að auka samskipti Islendinga
og Grænlendinga," sagði Peter
Grönvold Samuelsen, en hann
situr nú í vikunni ferðamála-
ráðstefnu á Akureyri. „Við þekkj-
um vel svona líf eins og er í
Grímsey því á Grænlandi eru
margir staðir svipaðir að stærð
og þessi. Mér sýnist að fólk hér
hafi það mjög gott vegna mikill-
ar þorskveiði í kringum eyjuna.
Hingað eru góðar samgöngur á
sjó og í lofti en til sumra staða á
Grænlandi er á veturna aðeins
hægt að komast með þyrlu, og
það er mjög dýrt. Við glímum
líka við það vandamál að margir
flytja til stærstu bæjanna, eins
og Nuuk og Sisimiut, frá smærri
bæjunum til að auka tekjurnar
en við verðum samt sem áður að ,
halda uppi ákveðnu þjónustu-
stigi í þessum bæjum.“ \
I lok veislunnar í Grímsey '
sagði Halldór Blöndal að það
væri stolt Islendinga að fólk eins
og Grímseyingar væri áfram til
og döfnuðu eftir eigin höfði, eig-
inlega sálin í íslensku þjóðinni.
Þeir væru sannir höfðingjar
heim að sækja. Samgönguráð-
herra þakkaði að Iokum fyrir sig
í bundnu máli.
I Grímsey núna er sólin sest
og svefninn fyrir höndum.
Hún fékk í heimsókn góðan gest
frá Grænlands bröttu ströndum.
GG
iL