Dagur - 24.09.1998, Blaðsíða 3

Dagur - 24.09.1998, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 2 4 . S E P T E M B F. R 1998 - 3 Tkgur. FRETTIR ItB býður tiygg- ingar áhúsuin Ekki mun Lauga á Kárastöðum rýna í þessi iður, enda eru þau eyfirsk Óvíst með gamaspá Svo gæti farið að landsmenn yrðu án garnaspár Laugu á Kárastöðum í Skagafirði í ár. Lauga hefur Iesið í iður kinda mörg undangengin ár og hefur séð í görnunum hvernig veður- kerfi vetrarins líta út. Lauga er hins vegar orðin öldruð kona og óvíst hvort heilsa hennar leyfir frekari spár. „Eg veit það hreinlega ekki hvort von er á fleiri spám. Eg er orðin gömul og lappalaus og al- veg hætt að fara út,“ segir Lauga. Hún segist undrast því- líkan áhuga almenningur hafi sýnt spám hennar í seinni tíð. „Ætli ég sé ekki orðin fræg af vitleysunni." Þrátt fyrir að Lauga geri grín að sjálfri sér og landsmönnum er staðreynd að spár hennar hafa gengið ágæt- lega eftir. - Bt> Verðkönnim áslátri Neytendasamtökin á Akureyri hafa gert verðkönnun á slátri á Norðurlandi. Af þeim Ijórum stöðum þar sem slátur er selt í stykkjatali reyndist slátrið dýrast á Akureyri eða 650 krónur. Fjallalamb á Kópaskeri kom næst en þar kostar slátrið 647 krónur og á Húsavík kostar það 640 krónur. Lang ódýrast er slátrið hins vegar á Sauðárkróki en þar kostar það 520 krónur. Á Króknum fylgja vömb og keppur slátrinu en á hinum stöðunum fylgja 4 gervivambir. FÍB býður félags- möniiiLni nú trygging- ar á húsum þeirra og heimilum sem það segir 12-15 prósent- um ódýrari en á ís- lenska markaðnum. Húsa- og heimilistryggingar „Það sem við bjóðum eru algerar grundvallartryggingar fyrir heim- ilin - ekkert umfram það og ekk- ert minna en það,“ sagði Halldór Sigurðsson, tryggingamiðlari hjá Alþjóðlegri miðlun sem hefur milligöngu við Lloyd’s - sem að fenginni góðri reynslu af bíla- tryggingum landsmanna býðst nú til að tryggja líka hús þeirra og heimili. Þrenns konar trygg- ingar eru í boði: Lögboðin brunatrygging fasteigna, beimil- istrygging, sem bætir tjón á inn- búi vegna eldsvoða, sprenginga, skammhlaups, óveðurs, skýfalls og asahláku, hruns, þjófnaðar, ofhitnunar á þvotti, straumrofi á frystikistu og fleira, og húseig- endatrygging sem bætir m.a. tjón vegna vatnsskaða, snjóþunga, foks, innbrots, heimilistækja og tapaðrar húsaleigu. Harðánægðir hjá Lloyd’s Árni segir nú á sjöunda þúsund bíla tryggða hjá FIB. Alls eigi um 19.000 heimili aðild að sam- tökunum og búist við að fjöldi þeirra noti þetta tækifæri til að flytja nú allar sínar tryggingar til félagsins. Árni minnti á hrakspár tryggingafélaganna á sínum tíma; að hin lágu iðgjöld stæðust í mesta lagi í 1-2 ár. En Lloyd’s hafi hvorki séð ástæðu til að kvarta undan viðskiptunum, né hækkað iðgjöldin. Og þessi nýi samningur sé staðfesting á að dæmið gangi upp. - HEI „Meginmarkmiðið nú, er að við- halda þeim árangri sem við náð- um fyrir réttum tveim árum, sem Ieiddi til 25 til 30% almennrar verðlækkunar bílatrygginga. Fé- Iagsmenn FIB, sem tryggingafé- lögin refsuðu fyrir að flytja bíla- tryggingar sínar, báðu okkur að koma með fjölbreyttari trygg- ingar. Og nú erum við tilbúnir að bjóða mjög hagstæðar almennar tryggingar fyrir heimilið og hús- ið,“ sagði Árni Sigfússon, for- maður FIB, í gær. Varðandi ið- gjöldin sagði hann erfitt um hár- nákvæman samanburð, en öll dæmi sem tekin voru séu 12 til 18% ódýrari en sambærilegar tryggingar tryggingafélaganna m.v. samsettar tryggingar. En hjá FIB sé ekki verið að búa til neina tryggingapakka. Árni Sigfússon, formaður FÍB, boðar lækkuð iðgjötd á heimilistryggingum miðað við það sem áður þekkist hér á landi. Sigurðarmáli frestað Útvarpsráð frestaði á fundi sín- um á mánudag að taka fyrir ásak- anir Sigurðar Þ. Ragnarssonar, fyrrum fréttamanns Ríkissjón- varpsins, á hendur Helga H. Jónssyni, settum fréttastjóra. Þetta er í annað sinn sem mál- inu er frestað í útvarpsráði, en nú var ástæðan fjarvera Gunn- laugs Sævars Gunnlaugssonar, formanns ráðsins. Sigurður hef- ur sem kunnugt er ásakað Helga H. Jónsson fyrir „pólitíska ritstýr- ingu“ á fréttastof’u Sjónvarpsins og fyrir að hafa beitt sig óbæri- Iegum þrýstingi við skrif greinar- gerðar vegna fyrirspurnar Mark- Sigurður Þ. Ragnarsson. úsar Arnar Antonssonar útrv'arps- stjóra um hvað orðið hafi af við- talsbút við dómsmálaráðherra. „Málinu var einfaldlega frestað að ósk útvarpsstjóra vegna ijar- veru útvarpsráðsformanns. Ég tel það afar óheppilegt að þessu mál- i sé ekki lokið hið fyrsta, því á meðan þarf fréttastofan að burð- ast með þetta mál á bakinu,“ seg- ir Guðrún Helgadóttir útvarps- ráðsmaður aðspurð um málið. Reikna má með því að Sigurðar- málin verði tekin fyrir á næsta fundi útvarpsráðs eða á þriðju- daginn nk. - FÞG RB gert að innheimta vask Samkeppnisstofnun hefur beint þeim tilmælum til Ríkisskatt- stjóra að Reiknistofu bankanna (RB) verði gert að innheimta virðisaukaskatt af þjónustu sem RB veitir í samkeppni við fyrir- tæki á almennum markaði. Við athugun málsins kom í ljós að Samkeppnisstofnun hefði vegna annars máls kveðið upp sama úr- skurðinn, án þess að farið hefði verið eftir honum. Erindið barst Samkeppnis- stofnun frá samkeppnisaðilum, sem kvörtuðu undan því að RB innheimti ekki tirðisaukaskatt af sambærilegri þjónustu sem þeim var ætlað að innheimta. Þá hefur Samkeppnisstofnun úrskurðað í máli sem Barri hf. vísaði til embættisins vegna kaupa fyrirtækisins á rekstri Fossvogsstöðvarinnar ehf., en bæði fyrirtækin selja skógarplöntur. Niðurstaða Sam- keppnisstofnunar var að kaupin muni ekki leiða til markaðsyfir- ráða, né draga verulega úr sam- keppni á viðkomandi mörkuðum. - FÞG Stuttgart með auga- stað á Fram? Dagur hefur heimildir f)TÍr því að Stuttgart hafi sýnt áhuga á að kaupa góðan hlut í meistaraflokki Fram í knattspyrnu. Hlutafélag verður stofn- að um meistaraflokkinn og standa viðræður yfir við stór lið í Evrópu um kaup á hlutafé. Dagur bar orðróminn um Stuttgart undir Svein Andra Sveinsson, formann Fram, í gærkvöld en hann vildi ekki staðfesta neitt. „Eg get ekkert sagt af eða á um þetta, en það væri fagnaðarefni ef rétt er,“ sagði Sveinn Andri. Hann gat þess jafn- framt að viðbrögðin við breytingunni á Fram hefðu verið mjög jákvæð al- mennt. — BÞ Stjómskipulagi íslaudsbauka breytt Ákveðnar hafa verið breytingar á stjórnskipulagi Islandsbanka sem eiga að taka gildi þann 1. desember næstkomandi. Samkvæmt upp- lýsingum frá bankanum verður starfseminni skipt upp í sjö svið, fjög- ur afkomusvið og þrjú stoðsvið. Afkomusviðin eru útibúasvið, fyrir- tækjasvið, Glitnir hf. og VÍB hf. Stoðsviðin eru áhættustjórnun, rekstur og upplýsingatækni. Tilgangurinn er að styrkja enn frekar samkeppnisstöðu bankans og einfalda alla ákvarðanatöku. Sveinn Andri Sveinsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.