Dagur - 24.09.1998, Síða 4

Dagur - 24.09.1998, Síða 4
4 - FIMMTUDAGUR 2i. SEPTEMBER 1998 FRÉTTIR L a Ásælni Reykjavíkurborgar mótmælt Svartsengi, en þar hefur ekki fengist teyfi fyrir nýrri 30 mw virkjun. Aðalfundur SSS telur að bregðast verði við ásælni Reykjavíkurborg- ar í landsvæði á Suðurnesjum. Það sé með öllu óásættanlegt þegar orkuveitufyrirtæki í eigu borgarinnar reyni að kaupa upp land með jarðvarma á orkuveitusvæði Hitaveitu Suðurnesja, sem er í nánum tengslum við núverandi orkuvinnslusvæði í Svartsengi. Vakin er at- hygli á því að þetta gerist á sama tíma og ekki hefur fengist virkjun- arleyfi fyrir nýrri 30 MW virkjun í Svartsengi, sem sótt var um fyrir nokkrum árum. Þar stendur á gerð rekstrarsamnings við Landsvirkj- un, sem er að stórum hluta í eigu Reykjavíkurborgar, þeirrar sömu og ætlar sér nú stóra hluti í virkjunarframkvæmdum. Skorað var á iðn- aðarráðherra að veita Hitaveitu Suðurnesja nú þegar virkjunarleyfið. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vantar ijármagn Aðalfundur SSS, Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum, fagnar því að hafnar eru framkvæmdir við byggingu D-álmu við Heiíbrigðis- stofnun Suðurnesja. Fundurinn lýsti hins vegar áhyggjum yfir því að talsvert vanti upp á að rekstrarfjárveitingar á ijárlögum síðustu ára hafi dugað til að standa undir núverandi þjónustustigi stofnunarinn- ar. Fundurinn hvetur til þess að framtíðarhlutverk stofnunarinnar verði skilgreint í samvinnu við heimamenn og fjárveitingar á kom- andi fjárlögum verði í samræmi við þau verkefni sem stofnunin á að vinna að. Útsendingar lj ósvakafj ölmiöla stórgöHuð vara Aðalfunaur SSS Iýsti yfir undrun sinni á seinagangi IjósvakaQölmiðl- anna við að koma gæðum útsendinga sinna í lag á Suðurnesjum. Þrátt fyrir yfirlýsingar um að íjótlega verði úr bætt, bæði af hálfu Rík- issjónvarpsins og Stöðvar 2, hefur ekkert gerst í málinu. Það hljótí að vera umhugsunarefni hjá notendum þessara miðla á Suðurnesjum hvort eðlilegt sé að borga full afnotagjöld fyrir vöru sem í raun er stórgölluð. KeHisnes íýsilegasti kosturiim Aðalfundur SSS undrast þá einhliða umræðu sem átt hefur sér stað á undanförnum misserum um staðsetningu næsta álvers á Islandi. Fundurinn minnir á að Keilisnes í Vatnsleysustrandarhreppi er tal- inn einn fysilegasti kosturinn sem fyrirfinnst í landinu. Þegar staðar- val fyrir hugsanlegt álver Atlantsáls stóð sem hæst, var lögð á það þung áhersla af hálfu landsbyggðarmanna að við mat á staðarvals- kostum skyldi raforkuverð vera það sama allsstaðar á landinu, burt- séð frá staðsetningu \drkjana. Suðurstraudarvegur á vegaáætluu Beint er þeim tilmælum frá aðalfundi SSS tirjringmanna Reykjanes- kjördæmis að framhald Suðurstrandarvegar frá Grindavík um Reykjanesvita að Höfnum og vegur um Osbotna verði tekinn inn á vegaáætlun hið fyrsta. Jafnframt er þess krafist að tvöföldun Reykja- nesbrautar verði flýtt frá því sem nú er gert ráð fyrir í núgildandi vegaáætlun. GG iKIKEIISU Kenni á Subaru Legacy. TÍMAR EFTIR SAMKOMULAGI. ÚTVEGA NÁMSGÖGN. HJÁLPA TIL VIÐ ENDURNÝJUNARPRÓF. Ingvar Björnsson ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11 b, Akureyri Sími 899 9800 Heimasími 462 5692 Atvinnuleysi er nú mest í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu. - mynd: þök Landsbyggðar- karlar í vmnu Kringum 60 prósent allra atvinnulausra í ágústmánuði voru í Reykjavík og yfír 70 prdsent á höfuðborg- arsvæðinu öllu. Skráð atvinnuleysi í ágúst svaraði til 3.100 manns án vinnu að jafnaði. Af þeim voru um 1.800 í Reykjavík og samtals nær 2.200 á höfuðborgarsvæðinu öllu, en aðeins um 900 utan þess, sam- kvæmt yfirliti Vinnumálastofn- unar. Þegar svo þar við bætist að þriðjungur allra atvinnulausra á landsbyggðinni eru í hlutastarfi en borið saman við 15% í höfuð- borginni verður hlutfall hennar ennþá óhagstæðara. Því Reykvík- ingar eru meira en 60% allra þeirra sem enga vinnu hafa (kringum 1.500 manns) en bara íjórðungur þeirra (600 manns) býr utan marka höfuðborgar- svæðisins. Landsbyggðarkarlar allir í starfi Raunar vantar nú lítið á að hver einasti vinnufær karl á lands- byggðinni sé kominn í vinnu. Af þeim tæplega 1.000 körlum sem jafnaðarlega voru á atvinnuleys- isskrá í ágústmánuði voru aðeins rúmlega 200 á landsvæðum utan höfuðborgarsvæðisins en rúm- lega 650 í Reykjavík einni. At- vinnulausar konur eru meira en tvöfalt fleiri en karlar. Af 2.100 atvinnulausum konum í ágúst- mánuði var vel yfir helmingurinn í Reykjavík og tæplega 70% á höfuðborgarsvæðinu öllu. VLonuaflið vex ekkert Atvinnuleysishlutfallið er 2,7% á höfuðborgarsvæðinu (3,9% kvenna og 1,7% karla) en aðeins 1,6% á landsbyggðinni (2,9% kven- na og 0,7% karla). Aðeins á Norð- urlandi er atvinnuleysishlutfallið lítillega yfir 2% en langtum lægra í öllum öðrum landshlutum, lang- minnst á Vestfjörðum, þar sem víð- ast voru aðeins 1-2 á atvinnuleys- isskrá. Vinnumálastofnun býst \'ið að hlutfall atvinnulausra lækki enn núna í september. Aætlaður mannafli á vinnu- markaði í ágústmánuði var tæp- lega 140 þúsund manns og at- hygli vekur að það er nánast sami fjöldi og f ágúst í fyrra og líka í ágúst 1996. - HEI Veitingahús í vanda Óviðimandi að stðrir bópar fólks séu á at- vúmuleysisbótum meðan fyrirtæki eiga í vandræðum vegna fólkseklu, segir Ema Hauksdóttir. „Það vantar gríðarlega mikið starfsfólk í veitingabransann, og það fæst ekki frá Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar. Eg furða mig á því að svo margir skuli vera á atvinnuleysisbótum á meðan fyr- irtækin hrópa á starfsfólk og fá ekki Iausn sinna mála. Eg hef tekið þetta mál mjög alvarlega upp í stjórn Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs, vegna þess að ýmsir skjólstæðinga minna hérna hjá samtökunum eiga orðið í erfið- leikum að halda húsum sínum opnum vegna manneklu," sagði Erna Hauksdóttir, framkvæmda- stjóri Sambands veitinga- og gistihúsa, sem situr í stjórn At- vinnuleysistryggingasjóðs. Orðnir of fínir í uppvask Þá sem leita til Vinnumiðlunar borgarinnar segir Erna fá þau svör að enginn hafi fengist til að sækja um viðkomandi störf. Auð- vitað sé þarna fyrst og fremst um að ræða störf við þrif, uppvask og annað slíkt. „Eg veit ekki hvort Islendingar eru hættir að nenna að sinna slíkum störfum, en alla vega þykir mér við vera farin að halla aðeins á aðra hliðina ef við ætlum að koma fólki upp á það að vera endalaust á atvinnuleys- isbótum á meðan fyrirtækin vantar starfskrafta. Það er degin- um Ijósara, að samkvæmt nýjum lögum um atvinnuleysistrygging- ar og vinnumiðlun, þá eiga þeir einir að fá atvinnuleysisbætur sem eru reiðubúnir að ráða sig til allra almennra starfa." Hópar af ungu frisku fólki Erna segir auðvitað alltaf ein- hverja sem eklu geti unnið hvað sem er og það sé ósköp eðlilegt. „En við vitum líka að það eru þarna stórir hópar af ungu frísku fólki. Og því er spurningin: Af hverju er þetta fólk ekki í vinnu. Eg tel að þetta sé allt of stór hóp- ur til að það geti talist viðunandi m.v. núverandi atvinnuástand. Það er starfsemi Vinnumiðlunar að koma þessu fólki í störf, og það þarf ekki að fara langt til að finna þau störf, því það er gríðar- legur skortur á starfsfólki." Ekkert atvinnuleysi í það heila tekið segir Erna nú ekkert atvinnuleysi. Blöðin eru full af atvinnuauglýsingum. Um allt land séu veitingastaðir sem vantar fjöldann allan af fólki í vinnu, sem hafi verið vandamál núna i allt haust. Þeir séu því að reyna að fá útlendinga til starfa, sem auðvitað hafi gengið misvel. „Því eðlilega hafa menn verið frekar tregir til að gefa atvinnu- leyfi á meðan verið er að borga fólki atvinnuleysisbætur. En vit- anlega verður að lóta fyrirtækin ganga.“ - HEI

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.