Dagur - 24.09.1998, Page 13
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 - 13"
ÍÞRÓTTIR
Gríndavík Reykj a-
nesmeistarí
Grindvíkingar Iögðu Keflvikinga,
83-88, í síðustu umferð Reykja-
nessmótsins í körfuknattleik í
Keflavík á þriðjudaginn. Leikur
liðanna bar þess glöggt vitni að
Grindvíkingar höfðu þegar tryggt
sér titilinn íyrir leikinn og þvi' var
viðureignin frekar skemmtilegur
æfingaleikur en alvöru úrslita-
leikur. Grindvíkingar unnu alla
leiki sína í mótinu og er það í
fyrsta sinn sem Reykjanesmótið
vinnst með fullu húsi stiga.
Skemmtilegar leikfléttur og
glæsilegt einstaklingsframtak
nokkurra leikmanna liðanna í
leiknum gefa góð fyrirheit um
það sem þau munu bjóða upp á í
DHL-deildinni í vetur. Grindvík-
ingar eru með sterka leikmenn í
öllum stöðum og eiga að geta
náð langt ef meiðslaaldan, sem
nú gengur yfir liðið, líður ein-
hverntíma hjá. Keflvíkingar eru
hinsvegar með stóran hóp
sterkra bakvarða, miðherjann
sterka, Fannar Ólafsson, og
Damon Johnson sem getur leikið
hvaða stöðu sem er. Fróðlegt
verður að fylgjast með Keflavík-
urliðinu gegn sterkum hávöxn-
um Iiðum þar sem liðið verður
að treysta nánast alfarið á lang-
skyttur sínar.
Haukar kjöldregnir í
Njarðvík
í hinum leik Reykjanessmótsins
tóku Njarðvnkingar á móti Hauk-
um. Skemmst er frá því að segja
að gestirnir sáu ekki eina einustu
ljósglætu allan leikinn. Heima-
menn sigruðu, 109-76, eftir að
hafa náð fjörutíu stiga forskoti
um tíma. Njarðvíkingar tefldu
fram nýjum bandarískum leik-
manni, Rodney Obrick, 180
sentimetra leikstjórnanda. Sá
þótti standa sig vel en hann rétt
hafði tíma til að reima á sig
körfuboltaskóna og koma sér í
Grindvíkingar Reykjanesmeistarar. Pétur Guðmundsson, fyririiði Grindvík-
inga, með verðlaunagripinn.
gallann eftir að hann steig út úr
flugv'élinni. Njarðvíkingar, sem
eru núverandi Islandsmeistarar,
munu ekkert gefa eftir í barátt-
unni í vetur. Reykjanesmótið er
mót sterkustu liða landsins og
gefur góða mynd af þvf sem
koma skal í deild og bikar.
Það er nokkuð ljóst að Suður-
nesjaliðin eru sem fyrr langsterk-
ustu körfuboltaliðin hér á landi
og ekkert, nema kannski Isfirð-
ingar, getur komið í veg fyrir að
hin glæsilega Islandsmeistara-
stytta verði áfram geymd á Suð-
urnesjum eftir leiktíðina. Hauk-
arnir virðast ekki mæta jafn
sterkir til leiks nú og oftast áður.
Þeir töpuðu öllum leikjum sín-
um í Reykjanesmótinu, nokkuð
sem ekki hefur áður gerst á þeim
bænum. - GÞÖ
Lokastaða mótsins varð þessi:
1. Grindavík 6 6 0 537-500 12
2. Njarðvík 6 3 3 515-483 6
3. Keflavík 6 3 3 520-489 6
4. Haukar 6 0 6 412-544 0
NBA-karfan í beinnl
Sjónvarpsstöðin Sýn mun í vet-
ur verða með beinar útsending-
ar frá leikjum í bandarísku
NBA-deildinni í körfuknattleik.
Að sögn Gunnars R. Svein-
björnssonar, dagskrárfulltrúa
hjá Islenska útvarpsfélaginu,
hefjast beinar útsendingar frá
NBA-deildinni þann 6. nóvem-
ber. „Þetta verður fastur liður í
dagskránni í vetur og verða út-
sendingarnar á föstudagskvöld-
um, um klukkan eitt eftir mið-
nætti. Síðan verður endursýnt
frá leikjunum eftir hádegi á
sunnudögum á Stöð 2,“ sagði
Gunnar.
Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem leikir í NBA-deildinni eru
sýndir í skipulagðri dagskrá
vikulega, en áður höfum við
fengið að sjá einstaka leiki, auk
beinna útsendinga frá úrslita-
leikjum deildarinnar.
Auk beinu útsendinganna
verður framhald á öðrum NBA-
þáttum eins og NBA-molum og
NBA-tilþrifum, þannig að
körfuknattleiksáhugafólk getur
því farið að hlakka til vetrarins.
Beinar útsendingar í
nóvember:
6. nóv. Minnesota-New York
13. nóv. Boston-L.A. Lakers
20. nóv. Boston-Phoenix
27. nóv. Utah-Chicago
ÍÞRÓTTA VIÐ TALIÐ
SKOÐUN
GUÐNI Þ.
ÖLVERSSON
Handbolti í
útrýmmjfax-
hættu
Tuttugasta og annan september
er óvíst hvenær keppni hefst í
annarri deild handboltans. I síð-
ustu viku hafði HSI raðað upp
keppni í deildinni, sem þá taldi
tíu lið. Síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar og tvö lið dreg-
ið sig út út keppninni. Nú þarf
að raða mótinu upp á nýtt og
enginn veit hvenær því verður
lokið eða hve mörg lið verða
skráð til keppni á morgun.
Landsbyggðin og HSÍ
Hvernig má það gerast, að sú
íþróttagrein sem Islendingar
hafa staðið sig best í á alþjóða-
vettvangi er í útrýmingarhættu.
Handbolti er spilaður á sárafá-
um stöðum á Iandsbyggðinni,
öfugt við körfuboltann, þar sem
aðalgróskan er í íþróttinni. Það
fer ekki á milli mála að hér verð-
ur handboltaforystan að taka til
hendinni. Af hverju er 2. deildin
ekki riðlaskipt eftir landsíjórð-
ungum. Austfirðingar og Vest-
firðingar hafa eignast glæsileg
íþróttahús en enga handbolta-
menn. Það er ekki vegna áhuga-
leysis heimamanna heldur
vegna þess að útbreiðslustarf
HSÍ hefur brugðist.
Þarf að taka tH hendiimi
Meðan erlend lið sækjast eftir
bestu handboltamönnum okkar
verðum \ið að herða róðurinn í
útunguninni hér heima. Annars
verður efsta deildin ekki svipur
hjá sjón innan mjög fárra ára.
Þess vegna verður HSI, ásamt
félögunum af landsbyggðinni,
að fara út í markvisst útbreiðslu-
starf strax. Nema HSI vilji
standa yfir moldum íslenska
handboltans um aldamótin.
Mæti með minn KR-trefíl
EllertB.
Schram
forseti ÍSÍ
Urn helgim leika KR og
ÍBV hreimn úrslitaleik
um íslandsmeistaratitil-
inn í knattspymu. KR-ing-
arunnu titilinn síðast
árið 1968 ogþví mikil
spenna meðal þeirra. Einn
þeirra sem bíður og vonar
erEllert Schram, forseti
ÍSÍ ogfyrrverandi leikmað-
ur ogfyrirliði KR til
margra ára.
- Verda KR-ingar íslands-
meistarar í ár?
„Nú eru liðin þrjátíu ár frá því
við unnum titilinn síðast og til-
efnið því ærið. Við getum reynd-
ar líka haldið upp á það að við
unnum hann fyrir sjötíu árum og
einnig fyrir fimmtíu árum,
þannig að það væri vel við hæfi
að vinna titilinn í ár.“
-Tókst þú á móti íslandsbik-
arnum árið 1968?
„Reyndar var ég ekki í fyrirliða-
stöðunni það árið. Gunnar Felix-
son var þá fyrirliði, því fyrir
keppnistímabilið tók ég að mér
að stýra knattspyrnudeildinni.
Mig fór þó fljótlega að kitla í
tærnar og spilaði með liðinu allt
sumarið."
- Hvað varð ferillinn langur
með KR?
„Eg byrjaði að spila með meist-
araflokki árið 1957 og hélt það
út í fimmtán ár. Ég varð fimm
sinnum Islandsmeistari með fé-
laginu og sjö sinnum bikarmeist-
ari og hugsa að það teljist bara
nokkuð gott og það gæti jafnvel
verið Islandsmet. Þetta var
skemmtilegur tími og sigursælt
tímabil hjá félaginu. Liðið var
mjög sterkt á þessum árum og
við áttum marga frábæra knatt-
spyrnumenn.“
- Hefur þrjátiu ára bið eftir
íslandsmeistaratitli verið etftð
fyrir harðan KR-ing og ertu
vongóður um sigur gegn Eyja-
mönnum?
„Þetta er búin að vera löng
þrautaganga hjá okkur KR-ing-
um og kannski er vonin meiri
núna en oft áður, þar sem við
erum komnir í hreinan úrslita-
leik og það á heimavelli. Við höf-
um oft verið nálægt sigri og jafn-
vel komnir með aðra hendina á
bikarinn. Núna verðum við bara
að vona það besta og ég mæti
með minn KR-trefil, eins og
venjulega og hvet mína menn."
- Ertu ánægður með frammi-
stöðu KR-liðsins t' sumar?
„Það hefur verið góður stíg-
andi hjá Iiðinu í sumar og í raun
og veru hefur komið meira út úr
því heldur en að vonir stóðu til.
Ég er mjög ánægður með
frammistöðu strákanna og tel að
keppnistímabilið hafi verið mjög
skemmtilegt og ánægjulegt fyrir
KR. Liðið vann sjö leiki í röð og
hefur fram að þessu aðeins tap-
að tveimur leikjum. Liðið er til-
tölulega ungt og við misstum
marga góða leikmenn frá því í
fyrra. Menn hafa því verið að
finna rétta taktinn og réttu Iiðs-
uppstillinguna með nýjum
mönnum fram eftir sumri. Hóp-
urinn er stór og það tekur sinn
tíma að finna réttu blönduna.
Þetta verður því að teljast mjög
góður árangur, ekki síst ef við
únnum titilinn á laugardaginn."
- Hver er helsti munurinn á
liðum KR og ÍBV?
„Liðin eru mjög jöfn að styrk-
leika og bæði vel skipuð mjög
sterkum leikmönnum í öllum
stöðum. Ég tel því að dagsformið
skipti mestu máli þegar kemur í
leikinn. Eyjamenn hafa staðið
sig mjög vel á heimavelli og eru
með sjálfstraustið í lagi, eins og
hæfir meistaraliði.“
- Hvemig á svo að ltalda upp
á sigurinn ef af verður?
„Ég hef átt mjög stóran og veg-
legan vindil síðustu fimm eða
sex árin og hef heitið því, að
geyma hann þar til KR verður Is-
landsmeistari. Þó ég reyld ekki,
þá ætla ég mér að reykja þennan
mikla vindil ef við vinnum og
það geri ég í rólegheitum heima
í stofu. Ég vona samt að það
verði mér ekki ofraun, því aðalat-
riðið verður auðvitað að varpa
öndinni léttar og fagna kær-
komnum sigri.“