Dagur - 17.10.1998, Blaðsíða 1
Nýj ar upplýsingar
um týndu fíknie£nin
Dómsmálaráðimeytið
skoðar nýjar upplýs-
ingar um óútskýrð af-
drif 3,5 kílóa af fOmi-
efnum sem „týndust“
hjá lögreglustjóra-
embættinu. Könnunin
gæti leitt til opinberr-
ar rannsóknar.
Dómsmálaráðuneytið kannar nú
hvort ástæða sé til að taka upp
rannsókn á afdrifum „týndu
fíkniefnanna" hjá embætti Lög-
reglustjórans í Reykjavík, eftir að
ráðuneytínu bárust nýjar upplýs-
ingar, sem það telur þörf á að
kanna nánar. Ekki fékkst upplýst
hvers eðlis þessar upplýsingar
eru, en Ijóst er að frumkönnun á
þeim getur leitt til opinberrar
rannsóknar.
Björg Thorarensen, skrifstofu-
stjóri ráðuneytisins, staðfesti að-
spurð að nýjar upplýsingar hefðu
borist, en vildi ekki að svo stöddu
D.eCode til
Islauds?
Kári Stefánsson í Islenskri erfða-
greiningu stendur þessa dagana í
viðræðum við Ijármálaráðuneytið
vegna áætlana um að flytja íög-
heimili og varnarþing móðurfyrir-
tækisins DeCode frá Bandaríkj-
unum til Islands.
„Við höfum átt í viðræðum við
ráðuneytið í tvo mánuði og send-
um erindi fyrir viku. Hugmyndin
er að eiga fund með ráðuneytis-
mönnum á næstunni," segir Kári.
Kári segir viðræðurnar minnst
snúa um skattamál á Islandi.
„Þær lúta meira að því hvernig við
tökumst á við vaxandi verðmæti
fyrirtækisins í Bandaríkjunum.
Við glímum við bandarískt skatta-
vandamál. Við erum með ansi
sniðuga hugmynd um lausn sem
ég held að gangi upp. En þó Geir
Haarde sé afskaplega þolinmóður
maður og hafi góða söngrödd þá
vil ég ekki leggja það á hann að
tala um þá lausn við fjölmiðla á
þessu stigi,“ segir Kári. — FÞG
Sjá umræður um
gagnabankann bls. 8 og 9
greina frá inni-
haldi þeirra.
„Þessar upplýs-
ingar fela m.a. í
sér skýringar á
afdrifum hluta
þeirra fíkniefna
sem fjallað var
um í úttekt
Ragnars Hall, en
ég greini ekki
nánar frá því, því
ef þetta fer í far-
veg rannsóknar á
opinberu máli þá
er ekki gefið upp
nákvæmlega
hvað sé verið að
rannsaka. Við vit-
um ekki hver verða afdrif þessara
upplýsinga en þær gætu leitt til
opinberrar rannsóknar. Það þarf
að kanna sannleiksgildið og fara
betur ofan í saumana á hlutum
sem voru rannsakaðir af Ragn-
ari.“
Aðspurð hvort mikil líkindi
væru til þess að upplýsingar um
afdrif týndu fíkniefnanna leiddu
til opinberrar rannsóknar sagðist
Björg ekkert
geta fullyrt um
það. „Það eru
alltaf líkindi til
þess ef það eru
uppi hugleiðing-
ar um hvernig
fíkniefni hverfa.
Slík mál eru
þannig vaxin að
þau geta auð-
veldlega farið í
þann farveg,"
segir Björg.
Enn engin
skýring
Megin niður-
stöður Ragnars
voru að afdrif 5 kílóa af fíkniefn-
um hefðu verið óútskýrð, að lög-
reglustjóraembættið gat gefið
fullnægjandi skýringar á afdrif-
um 1,6 kílóa og því hafi engin
fullnægjandi skýring komið á af-
drifum 3,5 kílóa. í rannsókninni
komu í Ijós efni hjá bæði núver-
andi og fyrrverandi hundaþjálfur-
um og hjá Lögregluskóla ríkisins.
Einhver alvarlegasti þátturinn í
skýrslunni laut að ágreiningi
milli Böðvars Bragasonar lög-
reglustjóra og ydirlögregluþjóns
rannsóknardeildar annars vegar
og fyrrverandi lögreglufulltrúa
við fíkniefnadeildina hins vegar.
Lögreglufulltrúinn ber að árið
1993 hafi hann tekið saman
skýrslu vegna eyðingar efna og að
„ýmis efni, sem átti að eyða, hafi
ekki fundist í geymslunni". Hann
hafi afhent yfirlögregluþjóninum
skýrslu með afriti til Böðvars og
síðan „rætt við lögreglustjóra um
efni þessarar skýrslu, eftir að lög-
reglustjóri hefði kynnt sér hana“.
í rannsókninni könnuðust hvorki
Böðvar né yfirlögregluþjónninn
við að hafa fengið vitneskju um
týnd fíkniefni.
Ragnar sagði um hlut lögreglu-
stjóra að hann einn bæri „stjórn-
unarlega ábyrgð á því að skýrar
reglur og starfsfyrirmæli skuli
vanta um þennan mjög svo mikil-
væga þátt í starfsemi embættis-
ins.“ Böðvar Bragason fékk
áminningu vegna vanrækslu í
starfi eftir skýrslu Ragnars.
- FÞG
Hugsanlega gætu nýjar upplýsing-
ar um fíkniefnin sem hurfu úr
vörslu lögreglunnar leitt til opin-
berrar rannsóknar.
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, sýndi á sér hannyrðahliðina í gær þegar hann tók þátt í átaki versl-
unarinnar Radionausts á Akureyri og fleiri aðila sem felst í því að sauma húfur og bangsa sem síðan verða send
sem jólagjafir til stríðshrjáðra í Bosníu. Kristjáni til hjálpar var saumakonan Lilja Torfadóttir frá Dalvík sem í eina
tíð var nemandi Kristjáns í grunnskólanum þar. - mynd: brink
i
I
Mikli viðhöfn verður í dag á Kefla-
víkurflugvelli þegar kista Guðrúnar
Katrínar Þorbergsdóttur kemur
heim.
Kistaii
heim í dag
Mikil viðhöfn verður á Keflavík-
urflugvelli í dag þegar kista Guð-
rúnar Katrínar Þorbergsdóttur
forsetafrúar kemur frá Banda-
ríkjunum með flugvél Cargolux.
Olafur Ragnar Grímsson, forseti
Islands, mun fylgja kistunni að
utan sem og tvíburadætur for-
setahjónanna. Búist er við að
vélin lendi um klukkan 12.30 og
er almenningi velkomið að
heiðra minningu forsetafrúar-
innar með nærveru sinni. Að-
gengi verður þó á einhvern hátt
takmarkað, að sögn sýslumanns-
ins á Keflavíkurflugvelli, Þor-
geirs Þorsteinssonar.
Virðuleg athðfn
Þorgeir segir að leitast verði við
að athöfnin verði virðuleg og við-
eigandi. Lögreglan stendur heið-
ursvörð auk þess sem 8 lögreglu-
menn flytja kistuna í líkbíl. Þá
mun ríkisstjórnin verða viðstödd,
biskup flytur nokkur orð og
hljómsveit leikur sorgarlög. Þor-
geir telur að athöfnin muni ekki
hafa áhrif á flugumferð um
Keflavíkurflugvöll.
Bein samræmd útsending
verður hjá Ríkissjónvarpinu og
Stöð 2 í dag. Dagskráin hefst
klukkan 12.30 og er áætlað að
útsending standi yfir í um hálf-
tíma. Fréttamenn stöðvanna
verða þulir, einn frá hvorri frétta-
stofu.
í dag verður opnuð minningar-
bók um Guðrúnu Katrínu sem
mun ligja frammi í hátíðarsal
Bessastaða frá kl 15:00-18:00
og frá 13:00-18:00 frá sunnu-
degi til þriðjudags. Utförin verð-
ur síðan gerð frá Hallgrímskirkju
miðvikudaginn 21. október. — BÞ
HBHHBHHHHHBHHHBHHHHHBHHHHHHBII
woRtomæ exmess
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
Afgreiddir samdægurs
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMKHR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524