Dagur - 24.10.1998, Blaðsíða 5

Dagur - 24.10.1998, Blaðsíða 5
LA1JGARDAGUR 24.OKTÓBER 19 9 8 - S FRÉTTIR Fjðldi maiins veður- tepptur í Víkurskarði Miklum snjó hefur kyngt niður á Grenivík í norðvestan hvassviðri enda ölduhæð um 10 metrar þar utan við. Það oili nokkrum áhyggjum um ör- yggi hafnarinnar enda auk þess stórstreymt í gær. Snjóflóð féll á veginn til Grenivlkur í gær- morgun við bæinn Fagrábæ og lokaði honum. Á fjórða tug manna var veður- tepptur í Víkurskarði í vonskuveðri norðan- lands. „Við fórum í ágætu veðri og ætl- aðum austur um Víkurskarð að sækja barnapíu. A Víkurskarði var orðið snarvitlaust veður og þegar ég ætlaði að snúa við gáfu rúðuþurrkurnar á bílnum sig. Það versta var að fjölskyldan var með mér, konan komin að því að eiga barn og ársgamalt barn. Það olli mér mestum áhyggjunum en það væsti ekkert um okkur, vor- um með kuldagalla á alla, jafnvel líka á litla guttann," sagði Vil- hjálmur Snjólfsson á Akureyri. Um 35 manns í 19 bifreiðum þurfti að eyða aðfaranótt föstu- dags í bílum uppi á Víkurskarði milli Eyjaljarðar og Fnjóskadals en síðdegis í gær skall þar á iðu- laus stórhríð að norðvestan. Um sexleytið í gær fóru lögreglunni á Akureyri að berast fyrirspurnir um fólk sem þarna átti leið um og voru þá sendar af stað hjóla- skóflur og veghefill. Mjög erfið- lega gekk að koma fólkinu niður af heiðinni og voru þeir sem fyrstir urðu þar strandaglópar því búnir að dvelja þar í 11 tíma. Þess má geta að lögreglan á Ak- ureyri hefur til umráða aðeins eina íjórhjólabifreið en jeppabif- reið sem lánuð var embættinu í sumar er farin suður. Vonir standa þó til að úr þessu máli verði bætt, þó ekki fyrr en næsta vor. Það er því oftar leitað á náðir hjálparsveitanna, sem eru mjög vel tækjum búnar. Norðvestan átt er mjög óhag- stæð á Víkurskarði þar sem veg- rið sem þar hefur verið komið fyrir safnar mjög f sig snjó og verður ófært þar á augabragði fyrir fólksbíla. Hjá Vegagerðinni á Akureyri fengust þær upplýs- ingar að það hefði verið miklum erfiðleikum bundið að athafna sig á skarðinu, alls staðar hefðu bílar verið fastir og ekki hægt að komast fram hjá þeim. Þokkalegt veður var á Akureyri í gær, en að Víkurskarði eru aðeins 18 km svo veðrabrigði voru mikil. Snjóflóð við Fagrabæ I gærmorgun féll svo snjóflóð á veginn til Grenivíkur við bæinn Fagrabæ og Iokaði honum en síðdegis í gær var enn beðið þess að veður gengi niður og hættan liði hjá svo óhætt væri að senda snjómoksturstæki á staðinn. Mjög óvenjulegt er að þarna falli snjóflóð. Snjóflóð féllu einnig í gær í Súðavíkurhlíð innan við Hamar og á Eyrarhlíð milli Hnífsdals og Isaljarðar en síð- degis í gær var búið að opna veg- inn þar að nýju. — GG Bankinn greiði miiljón fyrir Mókoll Landsbankinn þarfað greiða hönnuði Mókolls milljón í bætur. Gunnlaiigiir í framboð „Ég get stað- fest að þess hefur verið far- ið á leit við mig að ég taki sæti krata á lista samfylkingar- innar hér í Austurlands- kjördæmi. Ég geri fastlega ráð fyrir því að ég verði við þess- ari ósk,“ sagði séra Gunnlaugur Stefánsson, prestur í Heydölum og fyrrverandi alþingismaður. Hann féll út af þingi í síðustu al- þingiskosningum og vantaði að- eins 7 atkvæði til að komast inn á þing. Alþýðubandalagsmenn á Aust- urlandi eru ekki búnir að ákveða hver þeirra leiðir Iista samfylk- ingarinnar í vor. Talað hefur ver- ið um Smára Geirsson, foringja í Neskaupstað, í því sambandi. Talið er víst að prófkjöri verði sleppt og að stillt verði upp á list- ann. Um það mun vera fullt samkomulag. - S.DÓR Sigurður nýr landlæknir Heilbrigðisráðherra hefur skip- að Dr. Sigurð Guðmundsson í embætti landlæknis og tekur hann við af Ólafi Ólafssyni 1. desember næstkomandi. Sigurður er fimmtugur og er með sérfræðipróf í lyflækning- um og smitsjúkdómum. Hann var m.a. aðstoðarlæknir á Borg- arspftala og Landspítala 1975- 78, kennari við University of Wisconsin 1983-85, kennari hér á landi frá 1985 og dósent frá 1989. Hann hefur verið í stjórn Læknafélagsins frá 1988 og er formaður Vísindasiðaráðs. - FÞG Landsbankinn var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur til að greiða Hlín Gunnarsdóttur 950 þúsund krónur ásamt vöxtum og 200 þúsund krónur í málskostn- að vegna notkunar bankans á fígúrunni Mókolli. Hlín er leikmyndateiknari og stefndi hún Landsbankanum og Möguleikhúsinu til greiðslu 3,5 milljóna króna. Hlín taldi sig vera aðalhöfund að Mókolli, en Möguleikhúsið seldi Landsbank- anum hugmyndina og fígúruna árið 1994. Héraðsdómur sýknaði Möguleikhúsið og lækkaði hina umstefndu upphæð niður í tæpa eina milljón króna. Helgi I. Jónsson dómari komst að þeirri niðurstöðu að MókoIIur í endanlegri gerð væri alfarið hugarfóstur og gerð Hlínar og að framsal Möguleikhússins á höf- undarréttinum hafi verið ólög- mætt. Málið er talið prófmál um hverjir megi framselja höfundar- rétt og hversu framsalshafinn eignast ríkan höfundarrétt við framsal og er líklegt að það fari alla leið til Hæstaréttar. Mókollur varð upphaflega til sem fígúra í leikriti eða hugverki þar sem hann var umferðarálfur - hann var nýttur sem áróð- urstæki gagnvart börnum við umferðarfræðslu. Síðar samdist við bankann um Mókoll sem sparibauksfígúru og enn fremur var Mókollur notaður sem „lukkudýr" á heimsmeistaramót- inu í handknattleik, sem var haldið hér á Iandi 1995. - FÞG Stór pottur í Lottóinu „Menn eru að gæla við þá hug- mynd að fyrsti vinningurinn í Lottóinu geti orðið yfir 40 millj- ónir króna,“ segir Vilhjálmur Vil- hjálmsson, framkvæmdastjóri Is- lenskrar getspár. I fyrsta skipti í sögu íslenska Lottósins verður potturinn sjö- faldur um næstu helgi, en Is- lensk getspá hefur verið starf- rækt frá árinu 1986. Það voru hins vegar margir nálægt því að hirða sexfaldan pottinn um sl. helgi. Þá voru 334 með íjórar töl- ur réttar og 11 til viðbótar höfðu fjórar að viðbættri bónustölu. Þessir 11 fengu 135 þúsund krónur hver en hinir tæpar 8 þúsund krónur hver. Þar fyrir utan hrepptu tveir sitt hvora milljónina fýrir að hafa allar töl- urnar í Jókernum. 300 þúsimd á ininútu Framkvæmdastjóri Islenskrar getspár býst við mjög mikilli lottósölu þegar líða tekur á vik- una. Hann telur jafnframt ekki loku fyrir það skotið að á síðustu klukkutímunum geti salan numið allt að 300 þúsund krón- um á hverja mínútu ef ekki meira. Áætluð vinningsupphæð í það heila gæti numið alít að 60 milljónum króna. Hins vegar er viðbúið að fyrsti vinningur á laugardaginn skiptist á milli nokkurra einstaklinga fremur en einhver einn fá allt óskipt. Lík- urnar á að fá fyrsta vinning er u einn á móti 501 þúsundi. — GRH Gunnlaugur Stefánsson. Nýr hópur flóttamaima Nýr hópur flóttamanna er vænt- anlegur til Islands á næsta ári. Fjöldi þeirra verður 20-25. Þetta var samþykkt á fundi ríkisstjórn- arinnar í gær. Enn er óákveðið hvaðan þeir koma og hvert á land þeir fara. Vantar fólk á lands- byggðinni Atvinnukönnun Þjóðhagsstofn- unar í september sýndi að at- vinnurekendur úti á landi töldu æskilegt að fjölga starfsmönn- um, einkum í fiskiðnaði, verslun, veitingarekstri og byggingarstarf- semi. Á landinu öllu kynntu vinnuveitendur óskir um íjölgun starfsmanna um 401, sem er 0.47% af áætluðu vinnuafli. Þetta er minni eftirspurn eftir Hnnuafli en á sama tíma í fyrra. Minkar í flóði Minkar sem héldu sig í stórgrýti við Húsavíkurhöfn, fóru illa út úr miklum sjógangi í gær. Þeir drukknuðu reyndar ekki þegar sjór gekk á land. Þeir flúðu hins- vegar á land upp þegar öldurnar fy'lltu bækistöðvar þeirra í stór- grýtinu. Og þar beið þeirra ekk- ert nema dauðinn, þó þeim hafi tekist að forðast hina votu gröf. Þegar minkanna varð vart á landi, var umsvifalaust haft sam- band við Meindýravarnir Islands og höfuðandstæðingur allra meindýra, Árni Logi Sigur- björnsson, kom á staðinn og felldi a.m.k. tvo minka sem voru eins og hundar af sundi dregnir. -JS Langaði svo í húsið Lögreglan á Akureyri var í fyrri- nótt beðin aðstoðar vegna manns sem barði hús eitt að utan íbúum þess til mikils ama. Þegar lögreglan kom á staðinn var maðurinn, sem var mjög ölv- aður og Iítt viðræðuhæfur, búinn að brjóta rúðu í aðaldyrunum. Þegar hann var inntur skýringa á athæfinu sagði hann að sig lang- aði ósegjanlega mikið til að eiga heima í húsinu. Ekki var hægt að verða við þeirri bón mannsins en hann fékk hins vegar að gista í húsnæði sem ekki er heldur falt á fasteignamarkaðnum, þ.e. fangageymslum Iögreglunnar. - GG Komhæna fannst á Húsavík Kornhæna fannst á Húsavík í gærmorgun en þessi fugl hefur ekki áður fundist villtur á Islandi svo vitað sé. Gaukur Hjartarson, byggingafulltrúi Þingeyinga og kunnur fuglaáhugamaður, fann fuglinn á hafnarsvæðinu. Kornhæna er lítil hæna/rjúpa, nokkru stærri en snjótittlingur. Hún verpir í mið- og suður Evr- ópu, en hefur að mestu vetursetu í Afríku. Að sögn Gauks verður að teljast óvenjulegt að fuglinn berist hing- að til lands, en yfirstandandi óveðurslægð sé mjög kröftug og hefur líklega borið kornhænuna af sinni réttu farleið. Gaukur seg- ist reyndar vita til þess að korn- hænur hafi verið í haldi hérlend- is og því fræðilega hugsanlegt að hér sé um að ræða „búrfugl" sem sloppið hefur úr haldi eða verið sleppt. Hann telur það hinsvegar ólíklegra en að fuglinn hafi hrak- ist hingað með Iægðinni. - JS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.