Dagur - 24.10.1998, Síða 6

Dagur - 24.10.1998, Síða 6
I 6 - LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjórar: stefán jón hafstein ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: BIRGIR GUÐMUNDSSON Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu 31, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6100 og soo 7oso Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjaid m. vsk.: 1.68O kr. á mánuði Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símar auglýsingadeildar: creykjavik)563-igi 5 Amundi Ámundason (AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Símbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyrd 551 6270 (reykjavík) Upp úr hjólfönmum í fyrsta lagi Umræðan um byggðamál er að mjakast upp úr fomum hjólför- um. Enginn trúir því lengur að byggðastefna felist í að slettá styrkjum í atvinnulíf í erfiðleikum. Togara hér og fiskvinnslu þar. Menn eru að vakna upp við að byggðaröskun er flókið og marg- slungið mál þar sem ffamvindan ræðst af samspili margra þátta þar sem samnefnarinn er lífsgæði. Þetta uppgvötuðu menn eftir að málið var kannað með kerfisbundnum fræðilegum aðferðum og hætt var að ákveða fjárframlög og stefhu á grundvelli tilfinn- inga og hugdetta stjómmálamanna. í ððru lagi I umræðum á Alþlingi í vikunni mátti greina talsvert af fortíðar- hyggju, en líka enduróm nýrrar hugsunar í byggðamálum. Þar kom skýrt fram hvílíkar þjóðfélagslegar hamfarir eru að eiga sér stað. Hins vegar hafa menn engar töfralausnir lengur og enn ósamþykkt þingsályktunartillaga forsætisráðherra, sem byggir annars vegar á skýrslu um byggðamál ffá Háskólanum á Akureyri og hins vegar á könnun Stefáns Ólafssonar hjá Félagsvísinda- stofnun, er ferskasta og raunhæfasta innleggið í málið um þess- ar mundir. Þar kemur með áberandi hætti í ljós hve mikilvæg menntamál eru, ef menn ætla að auka lífsgæði á landsbyggðinni. í þriðjalagi Aðgangur að háskólamenntun utan höfuðborgarsvæðisins hefur verið að aukast. Reynslan sýnir að þessir skólar, einkum Háskól- inn á Akureyri, hefur útskrifað fólk sem hverfur til starfa á lands- byggðinni. Að styðja við slíkar stofnanir er því hvort tveggja í senn raunhæf byggðastefna og hagkvæm notkun opinberra fjármuna. Viðtökurnar sem Ijarkennslutilboð á framhalds- og háskólastigi hafa fengið, sýna líka að alls staðar er fólk sem sér menntun og endurmenntun sem eftirsóknarverð Iífsgæði. En boltinn er ekki eingöngu hjá ríkisvaldinu. Gæði grunnskóla munu t.d. í vaxandi mæli stýra því hvar fólk sest að. Skólastefna sveitarfélaga er því gríðarlega mikilvæg byggðastefna. Það er hluti hinnar gömlu mis- heppnuðu byggðastefnu að spyrja sífellt um hvað sé verið að gera í málunum „fyrir sunnan". Lífsgæðin ákvarðast ekki síður heima í héraði. Birgir Guömundsson. Ftóttamannageiiið Þessa dagana hefur Garri þung- ar áhyggjur af þróun í þjóðfélag- inu sem orsakast af tilbneigingu landsins bestu sona til að hlaupast undan merkjum, legg- ja skóna á hilluna, gefast upp, leggja árar í bát, yfirgefa hið sökkvandi skip og freista þess að bjarga sér á flótta. Það eru sem sé allir að hætta og því miður, yfirleitt menn sem við megum alls ekki missa. Þetta hófst allt saman þegar Olafur Skúlason hætti að vera biskup. Og síðan komu þeir hver af öðrum, Friðrik Sópbus- son vildi ekki Iengur vera ráðherrra, stakk af og smitaði aðra ráð- herra af þessari afstun- guflensu, svo Guð- mundur Bjarnason og Þorsteinn Pálsson til- kynntu innan tíðar að þeir væru líka á förum. Innáskiptiiigar Nú væri þetta auðvitað sök sér ef í staðinn kæmu jafn ffábærir einstaklingar og áður- nefndir, að varamannabekkur- inn væri það sterkur að liðið myndi ekki veikjast verulega við innáskiptingar. En því er því miður ekki að heilsa. I stað hins þokkafulla þunga- vigtarbiskups Ólafs sem æfin- Iega vakti athygli alþjóðar fyrir iðju sína og athæfi margvíslegt, fengum við svo grandvaran fjað- urvigtarbiskup að engra upp- sláttarffétta af honum er að vænta í fjölmiðlum næstu ára- tugina. Þegar Friðrik yfirgaf völlinn var skipt inn á KR-ingi sem þar að auki er af norskum ættum! Og skarð hins prúða þingeyska sjentilmanns, Guð- mundar Bjarnasonar, á að fylla lurkurinn Kobbi sem er Akur- eyringur ofan á allt annað. Hugsanlega er þó möguleiki á að þjóðin geti sætt sig við þessi Þorsteinn Pálsson. býtti, en það harðnar á dalnum þegar dregur að Suðurlandi. Þar mun víkja af velli valmenn- ið Þorsteinn Pálsson og inn á koma göslarinn og Göllavísna- söngvarinn Árni kaldi úr Eyjun- um! Það setur að Garra hroll og þarf ekki að hafa fleiri orð um það. Eitthvað genetískt En hver er skýringin á þessu flóttamannasyndrómi sem svo hefur heltekið efri lög samfé- Iagsins? Hví hlaupast allir þess- ir atorkupiltar undan merkjum og það á sama tíma? Hér býr eitthvað undir, hér er eitthvert plott í gangi, einhver pólitísk undiralda. Fyrst dettur Garra og ugglaust fleiri gáfumönnum í hug að þetta sé eitthvað genetískt, því allt er jú genetískt þegar upp er staðið eins og Kári hef- ur marg bent á. Að of- annefndir brotthlauparar séu allir með flóttamannagen í sín- um kroppi sem þeir hafa aung- va stjórn á. Öllu líldegra er þó, a.m.k. hvað ráðherrana varðar, að þeir hafi haft pata af hugmyndum Péturs Blöndals um 70% hækk- un á launum þingmanna. Þre- menningarnir Friðrik, Þor- steinn og Guðmundur eiga það sammerkt að vera einstaklega grandvarir menn og heiðarlegir. Og þeir vita vel að þeir eiga ekki skilið 70% launahækkun. Og í stað þess að þurfa að neita að taka við þessari hækkun og flækja þar með málið fyrir félög- um sínum sem flestir eru gíru- gri í spesíurnar, þá ákváðu þeir að hætta Ieik þá hæst stóð. En Garri er ekki að hætta. Garri hættir aldrei, þrátt fyrir Ijölda áskorana. — GARRl ELÍAS SNÆLAJVD JÓNSSON f-* 'skrifar Það er munur að eiga góða vini í vondum heimi. Ýmsir hafa vafa- laust klökknað þegar Magga Thatches skrifaði bréf til The Times TAundúnum til að verja vin sinn Pínóchet sem bresk stjórnvöld Iétu setja í stofufang- elsi á dögunum vegna kröfu frá spænskum dómara um að þessi gamli blóðugi einræðisherra Chile yrði framseldur til Spánar, en þar er verið að reyna að koma lögum yfir þá sem báru ábyrgð á morðum á spænskum ríkisborg- urum við og eftir valdaránið í Chile árið 1973. Það hefur lengi verið hlýtt á milli Möggu og Pínóchets; á heimsóknum sinum til Lundúna að undanförnu hefur hann þannig skroppið til hennar í síð- degiste og haft með sér blóm og konfekt. Glæpur lýðræðisms Það er hins vegar tíl marks um breytta tíma að Magga er eini Emkavinur Moggu fyrrum leiðtogi vesturlanda sem rennur blóðið til skyldunnar að koma Pínóchet til hjálpar. Hann var að sjálfsögðu einn af þessum siðlausu ein- ræðisherrum sem vest- rænir leiðtogar töldu sjálfsagt að styðja á tím- um kalda stríðsins af því að hann var á móti kommum, laumu- kommum og öðru \dn- stra liði sem hafði framið þann stórkost- lega glæp í Chile að vinna sigur í lýðræðis- legum kosningum. Salvadore Allende var kjörinn forseti landsins þrátt fyrir öfluga and- stöðu bandarískra stjórnvalda sem gátu engan veginn unað nið- urstöðunni. Fyrst var hafist handa við að rústa efnahag landsins. Þegar það dugði ekki var herinn studdur til valdaráns sem kostaði Allende og þúsundir óbreyttra borgara lífið og þjóðina langvarandi einræði. Þótt svo eigi að heita að nú sé komið á lýðræði á nýjan leik vita allir að Chile er stýrt á bak við tjöldin af hern- um og að þar er Pínóchet enn áhrifa- mestur allra. Hann lét setja lög sem tryggja honum í reynd ævar- andi sakaruppgjöf í heimalandinu vegna hryðjuverka sinna og hersins. Heim til Möggu? Fyrir nokkrum árum hefði verið óhugsandi að merín á borð við Pínóchet yrðu hand- teknir í Evrópu. En kalda stríðinu er Iokið. Vestrænir Ieiðtogar þurfa því ekki lengur á slíkum kommaandstæðingum að halda. Eins hefur alþjóðasamfélagið reynt hin síðari ár að koma böndum yfir pólitíska glæpa- menn, til dæmis í Bosníu og Rú- anda. Það starf er að vísu enn á frumstigi og afar ófullkomið. Engu að síður er vaxandi þrýst- ingur á að refsað verði fyrir póli- tíska glæpi. Pínóchet hefur verið auðmýkt- ur með handtökunni í London. Ekki er hægt að reikna með því að hann verði dæmdur fyrir ógn- arverk sín. Telja verður mun lík- legra að hann sieppi fljótlega og skríði heim í ból sitt. Frumleg tillaga um refsingu fyrir Pínóchet kom fram í breska þinginu í vikunni. Einn þing- maður lagði þar til að hann yrði dæmdur til að búa heima hjá Möggu Thatcher í sex mánuði; það væri næg refsing fyrir jafnvel hina verstu menn! Með blóm og kon- fekt til Möggu. -fy^ur Hvað berkomandi vetur í skauti sér? Reinhard Reynisson bæjarstjóri á Húsavík. „Fyrir mér er þetta vetur eftir- væntinga, ég er nýlega byrjaður hér í nýju starfi sem ég hef mikl- ar væntingar til og þetta er fyrsta ár eftir kosning- ar - og nú verða lögð drög að því starfi sem verður unnið á vegum bæjarfélagsins á næstu árum. I landsmálunum horfi ég á ákveðna hluti er varða byggðamálin; í þingsölum og víðar er talað um nauðsyn þess að grípa til aðgerða varðandi byggðaröskunina í Iand- inu - og þá er ég með væntingar um að menn geri meira en tala um vandamálið ekki síst vegna þess að kosningar eru að vori.“ Lilja Ólafsdóttir forstjóri SVR. „Eg tel að sá vet- ur sem nú geng- ur í garð beri með sér ýmsar breytingar; það eru umbrotatím- ar i heiminum bæði hvað snert- ir friðarmálin og efnahagsþróun. Hér á landi geri ég ráð fyrir svipuðu ástandi og nú er - en stjórnmálin munu setja sinn svip á Iífið í landinu enda kosningar að vori. I fyrirtækjum munu menn í enn ríkari mæli reyna að undirbúa sig vegna tölvuvanda ársins 2000, en al- menningi mun líða ágætlega; vel klæddum í kuldahretum vetrarins - þar sem kaupmáttur hefur vaxið og uppgangur er í efnahagslíf- inu.“ Páll Kr. Pálsson framkvæmdastjóriNýslwputiarsjóðs atvinnulífsins. „Vonandi ber veturinn með sér áframhald- andi blíðviðri til sjávar og sveita sem og í mann- lífinu almennt. Vonandi ekki síst góðan gang í rekstri fyrirtækja og ég held að ýmis merki séu um að hér getum við áfram búið við hagsæld og uppbyggingu ef menn halda sig áfram við að Iáta markaðinn og samkeppnina stjórna ferðinni. Sjálfur á maður sér alltaf drauma sem maður reynir að Iáta rætast yfir veturinn - frá hausti og fram á vor - en ég held þvf fyrir mig og mína nánustu hverjir draumarnir eru.“ Jón Viðar Matthíasson varaslökkviliðsstjóri í Reykjavílt. „Vonandi ánægjulega tíð fyrir alla, því það virðist vera bjart framundan hvarvetna í þjóð- lífinu. Að minnsta kosti er okkur sagt það. Hvað sjálfan mig varðar í vetur ]iá er það þetta venjubundna mark- mið manna sem þeir setja sér þeg- ar aldurínn fer að færast yfir þá, er að stunda líkamsrækt og reyna að halda í horfinu."

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.