Dagur - 24.10.1998, Qupperneq 10
10'- LAVGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998
D*gur
Fáskrúðsfjörður, Keflavlk, Reykjavík,
Þorlákshöfn
Um helgina munu útgerðarmenn á fjórum stöðum á landinu bjóða
almenningi að koma og skoða skip sín. Heimboðið er liður í fræðslu-
átaki íslenskra útvegsmanna en tilgangur þess er að glæða áhuga og
auka þekkingu landsmanna á undirstöðuatvinnuvegi fslensku þjóðar-
innar.
Fáskrúðsfjörður: Loðnuvinnslan býður almenningi í móttöku Hof-
fells SU-80 á mánudaginn. Þá mun sr. Carlos Ferrer sóknarprestur
flytja bæn og kór Fáskrúðsfjarðarkirkju flytja nokkur lög. Fiskimjöls-
verksmiðjan verður líka opin.
Kefalavík: Utvegsmannafélag Suðurnesja mun sýna Þuríði Hall-
dórsdóttur, Happasæl og fleiri skip í Helguvík á sunnudag ld 14:00
- 17:00. Loðnuverksmiðja SR mjöls verður til sýnis á sama tfma.
Reykjavík: I dag, laugardag munu Pétur Jónsson RE-69, sem er
eitt fullkomnasta fiskiskipí heimi og Þerney RE -101 verða opin al-
menningi við Miðbakkann í Reykjavíkurhöfn kl. 13:00-17:00. A Mið-
bakkanum verður komið upp tjöldum þar sem Hafrannsóknastofnun
og Vélskólinn kynna starfsemi sína. Þar verða Iíka Hampiðjan, Skelj-
ungur, Snakkfiskur, og Tæknival.
Þorlákshöfn: Arnar AR-55, Friðrik Sigurðsson ÁR-17, SæbergÁR-
20 og lóðsbáturinn Ölver verða til sýnis almenningi í dag, laugardag
frá kl 14:00 - 17:00. Frystihús Árness, Fiskverkun Vers, Isstöð Þor-
lákshafnar og Hafnarvogin verða einnig opin almenningi.
Það er orðið langt síðan hvalur var síðast skorinn í hvalstöðinni en Sjómannasambandsþing telur eðlilegt að hval-
veiðar verði hafnar strax næsta vor.
Sjómenn vilja hval-
veiðar næsta vor
Nýr forstöðumaður
Stuðla
Sólveig Ásgrímsdóttir, sálfræðing-
ur hefur verið ráðin forstöðumað-
ur Stuðla, meðferðarstöðvar ríkis-
ins fyrir unglinga. Sólveig lauk
prófi frá Georg August Universitat
í Göttingen í Þýskalandi. Eftir það
starfaði hún sem sálfræðingur við
ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu
skóla í Reykjanesumdæmi til árs-
ins 1987, er hún hóf störf sem sál-
fræðingur við Barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans þar sem
hún starfaði þar til hún hóf störf á
Stuðlum.
Sólveig Ásgrímsdóttir.
Tónleikar Guðrúuar og Steinuuuar
Birnu
I tilkynningu um einsöngstónleika Guðrúnar Ingimarsdóttur sópran-
söngkonu og Steinunnar Bimu Ragnarsdóttur í blaðinu í gær var
rangt farið með tímasetningu. Hið rétta er að tónleikarnir verða í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á sunnudagskvöld klukkan 20.00.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Sjóinaimasambands-
þing telur eðlilegt að
veiða nm 290 lirefnur
nú þegar þoli stofninn
það vel.
Sævar Gunnarsson, forseti Sjó-
mannasambandsins, segir valda
miklum vonbrigðum að sjávarút-
vegsráðherra skuli ekki ætla að
leggja fram frumvarp um hvalveið-
ar á yfirstandandi þingi, ekki síst í
ljósi þess að stjórnunarnefnd
Norður-Atlantshafsfiskveiðiráðsins
(NANMCO) hafi samþykkt tillög-
ur vísindamefndarinnar um að
ekki væri tekin áhætta með því að
leyfa hrefnuveiðar.
Þingi Sjómannasambandsins
lauk í gær á Hótel Sögu. Sjávarút-
vegsráðherra sagði þegar hann
ávarpaði þingið í vikunni að hann
hygðist ekld leggja ffarn í vetur
frumvarp um að hvalveiðar yrðu
hafnar að nýju við Islandsstrendur.
Sævar segir að stjómvöld hafi
m.a. skákað í því skjólinu að ekki
væru til vopn til þess að veiða
hrefnur en samkvæmt upplýsing-
um sem hann hafi frá Noregi sé
það fjarri lagi. Sævar segir að Is-
Iendingar eigi að hefja hvalveiðar
strax næsta vor, ekki bara hrefnur,
heldur allar tegundir sem vitað er
um hér við land, en auðvitað und-
ir vísindalegu eftirliti.
Hræðsluáróður sölusamtaka
fiskafurða hefur lengi átt hljóm-
grunn hjá stjómvöldum að mati
forsvarsmanna Sjómannasam-
bandsins. Það megi hins vegar
velta upp þeirri spumingu hvað
þau ætli að selja í framtíðinni ef
hvölum fjölgar stöðugt hér við land
og ganga stöðugt nærri bolfisk-
stofninum. Sjómannasambands-
þing telur eðlilegt að veiða um 290
dýr nú þegar, enda sé það innan
ramma sjálfbærra veiða.
Áróðrinuiii hafnað
Sjómannasambandsþing sam-
þykkti stuðning við starfsemi
Kvótaþings og Verðlagsstofu
skiptaverðs og bindur við það von-
ir að hér sé um að ræða tilraun
stjómvalda til að koma verðlagn-
ingu sjávarfangs í eðlilegt horf.
Þingið telur þó að Verðlagsstofa
leysi verðlagningarvandann aðeins
tímabundið því endanleg lausn á
verðlagningu afla upp úr sjó fáist
ekki fyrr en allur afli verði seldur á
fiskmörkuðum. Þeim áróðri út-
vegsmanna að Kvótaþing leiði til
atvinnuleysis meðal sjómanna er
hafnað og bent á að úthlutaðar
veiðiheimildir minnki ekki þótt
viðskipti með afla fari gegnum
Kvótaþing. Utgerðarmenn séu eft-
ir sem áður frjálsir að því að selja
eða kaupa aflamark og því eigi hag-
ræði að því að flytja veiðiheimildir
milli skipa ekki að breytast. Ut-
gerðarmenn eigi hins erfiðara með
að láta sjómenn taka þátt í afla-
markskaupum skipa þeirra, og það
sé vel, segir m.a. í ályktun Sjó-
mannasambandsþings. — GG
nniDOLBYl
BORGARBIO KYNNIR:
Tom Hanks
Saving private ryan
http://WWW.NET.IS/BORGARBI0
ŒXí- DIGITAL jpr ^pr rnriinn
l(l ( Vl l»l« 1]
Hóttl nr flestum
sveitum eystra
Það fækkar enn á Austfjörðum. í nýju sameinuðu sveitarfélagi Reyðar-
fjarðar, Eskifjarðar og Neskaupsstaðar fluttu 240 á brott fyrstu 9 mánuði
ársins, langflestir suður, en aðeins 170 komu og settust þar að.
Á fjórða himdrað
nianns fluttn frá Aust-
urlandi á þessu ári
uuifram þá sem fluttu
í fjórðungiim. FæKk-
unin samsvarar næst-
um 3% af íbúum kjör-
dæmisins um áramót.
Næstum öll sveitarfélög á Austur-
landi hafa þurft að sjá á eftir
fleira fólki en þau hafa fengið að
bjóða velkomið í byggðarlagið á
fyrstu níu mánuðum ársins.
Munurinn er 335 manns sem
Austurland hefur þannig tapað á
brottflutningunum, sem samsvar-
ar hátt í 3% íbúafjölda Austur-
lands um síðustu áramót. I fyrra
fækkaði um 210 manns. Hlut-
fallslega virðist Stöðvarhreppur
hafa farið verst út úr þessu, með
rúmlega þrefalt fleiri brottflutta
(33) en aðflutta (10), en „tapið"
svarar til næstum 8% allra íbúa
Stöðvarhrepps um áramótin, en
þá bjuggu þar 295 manns sam-
kvæmt tölum Hagstofunnar.
Næstum allar sveitir tapa
I beinum tölum var tapið mest
(70 manns) hjá nýju sveitarfélagi
í S.-Múlasýslu, þaðan sem 240
fiuttu brott, langflestir suður, en
aðeins 170 komu og settust að.
Tapið var litlu minna (60 manns)
úr nýju sveitarfélagi kringum
Hornafjörð, því aðeins 100 komu
í staðinn fyrir 160 brottflutta.
Tölur fyrir Austur-Hérað eru
mjög svipaðar. Seyðisfjörður tap-
aði á sama hátt 26 manns vegna
brottflutninga á tímabilinu,
Djúpivogur jafn mörgum og
Vopnafjörður og Búðahreppur
lfka yfir tuttugu manns.
Mjóifjörður (þar sem flutningar
voru í jafnvægi) og Jökuldalur
(sem græddi 2) eru raunar einu
sveitarfélögin á Austurlandi sem
ekki þurftu að sjá á eftir fleira
fólki fyrstu níu mánuði ársins
heldur en þau fengu í staðinn.
- HEI