Dagur - 31.10.1998, Blaðsíða 2
r v {ir .‘unM i
M t . A P P r O '4 w 6 VM o
18-LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998
LÍFIÐ í LANDINU
Alþýðubandalagið er meö miðstjómarfund
um helgiua, sem væri ekki í frásögur fær-
andi í þessari deild heita pottsins, nema íýr-
ir þá sök að strax eftir helgi færist fjörið í
lcikinn. Allabailar ætla að ná í sambatakt í
liðamótin áður en kosningabaráttan hefst,
og stefna í hópferð til Kúbu. Margrét for-
maður fer, Heimir Már (aðalritari) og margir
fleiii. Fullyrt er að einhverjir leiðangurs-
meim hafi verið að reyna að koma á við-
skiptasamböndum við Kúbu héðan aö heim-
an - kannski ekki sist tii að stríða Banda-
ríkjamönnum vegna viöskiptabaimsins, eða, chis og chm sagði í
potthmm: „Til að koma útflutningsleiðinni loksins í verk“.
Heimir Már.
Þeir sem halda að megnmarduft í gegnum fjölþrepakeðju sé það
nýjasta nýja í „heiisumú" hafa rangt tyrir sér. Það er gamaldags. í
undirheimum megnmaræðisms eru nú ný og „harðari" cfiú grass-
erandi og getur að h'ta mestu ncytenduma í tisku-, popp- og öðmm
álíka atvhmulífsgrehium. Það algengasta segja óstaðfcstar heimild-
ir pottshis er „Rip“ scm fullyrt er að gangi í harðlínudeildum lík-
amsræktar, en alltaf undh borðið. Það „harðasta" er svo efedrtn í
töfluformi eins og hvert annað magnýl. Það er sama efni og olli hve
hörðustum deilum um Herbalife og varð þess valdandi að ákvcðin
tcgimd þess fékkst ekki lcyfð hér á landi. Nú er það sem sagt komið
- smyglað - í sinni lireinustu mynd að örva og slá á svengd. Allt fyrir
ímyndina.
Stefán Guðmundsson þingmaður mætti
staffhugur á fundi með öðrum þing-
mönnum Norðurlands vestra í vikunni og
var víða komið við og hagsmunamál kjör-
dæmisins rædd. Mcðal annars var við-
koma höfð á Skagaströnd og í fundarlok
var þessi vísa komm á servéttu við kaffi-
borð sr. Hjálmars Jónssonar.
Sterkur á fundi Stefán var,
stöðuna sjá vill bætta.
Mér fhmst ckki mæla þar,
maður sem er að hætta.
Ragnari Inga Aðalsteinssyni hefur sennilega verið létt þegar hami
sá loks á efth próförkunum að nýrri bók shini í prentsmiðjuna og
talið málmu þar með lokið af sinni hálfu. Svo var þó ckki þvi
skömmu síðar var hringt i ofboði frá prentsmiðjmuú og honum til-
kyimt að í prentvélunum væri bók efth Gmmar Dal scm héti Mað-
m og Jörð - en bók Ragnars hét einmitt - Maðm og Jörð. Þar sem
Gunnar hafði vcrið fyrri til var ekki um annaö að ræða fyrir Ragnar
en að stroka út „Maðm og“ og sat þá uppi mcð bókartitilhin: Jörð.
Skákmeistarar landsins hafa trúlega ekki misst nætursvcfn þótt
nokkrir fasta- og lausagcstir Grand Rokk knæpunnar við Klappar-
stíg, þar sem Hrafn Jökulsson gengm um beina, hafi tekið sig sam-
an og stofnað skákklúhb. Þó hefur sú saga kvisast út að einn klúbb-
meðlimm - og fylgdi ekki sögunni hvort haim væri lausa- eða fasta-
gestm - hcfði unnið sjálfan Þröst Þórhallsson skákmeistara á dög-
unum...
Þórir Jökull
Þorsteinsson.
Þóri Jökli Þorsteinssyni, Iderki Selfossbúa,
var tekið með kostum og kynjuin þegar
hann kom til starfa í Bretíandi á dögunum,
en þar mmi hann þjóna fram til vors. Mcðal
þeirra veraldlegu gagna sem sóknamcfndin
útvegaði presti var íbúð og jafnframt bíll.
Hhiu síðamefnda neitaði sr. Þórir, enda
óvanur vinstri umferðinni sem er við lýði í
Bretlandi. Niðurstaöan varð hinsvegar sú að
hann þáði gott boð um reiðhjól!
r
Maöur vikimnar
er draugabani!
Maður vtkunnar er draugabani. Dr. William Roll er búinn að
fræðast ogferðast um heiminn og kom til okkar í vikunni með
þann boðskap að framhaldslíf Skottur, Mórar, álfar, huldufólk,
dvergar, Ijósálfar og gott ef ekki englar og miðlar séu bara
rugl í segulorkunni!
Loksins. Boðskapurinn er: slappiði af! Þá fara fyrirbrigðin, ærsla-
draugarnir og fljúgandi furðuhlutir eins og bíómynd sem slökkt
hefur verið á. Ljósin kvikna og við göngum tít úr salnum - þetta
sem vil héldum að væri annað lífer bara plat. Minna hefur verið
sagt við svo hjátrúarfulla þjóð sem við erum.
Velkominn til ísalands dr. Roll!
Dr. Wiiiiam Roll.
„Mér fannst umræða almennings um umhverfismál til dæmis gjörbreytast
með Kyoto-ráðstefnunni á síðasta ári, “ segir Skarphéðinn Þórisson á
Egilsstöðum. Stóra myndin er úr Eyjabökkum.
Vatnaskil í virkj-
unarumræðu
Málþing í hátíðarsal Háskóla ís-
lands þarsem rætt verðurum virkj-
anirá hálendi - það sem mælirmeð
þeim og á móti.
„Við höfum verið að sjá vatnaskil í umræðu um
virkjanir hér á landi. Viðhorfin hafa verið að breyt-
ast og fleiri hliðar málsins eru komnar í umræð-
una,“ segir Skarphéðinn Þórisson á Egilsstöðum,
sem er meðal Iiðsmanna í Félagi um verndun há-
lendis Austurlands. Félagið stendur að málþingi
um áhrif virkjana norðan Vatnajökuls sem verður í
hátíðarsal Háskóla Islands í dag, Iaugardag. Það
hefst kl. 13 og stendur fram eftir degi. Skarphéð-
inn er þar meðal frummælenda, en að þinginu
standa Náttúruverndasamtök Islands, Náttúru-
verndarsamtök Austurlands og Fuglaverndarfélag
íslands auk Félgas um verndun hálendis Austur-
lands.
Framsögux og pallborð
Fjölmargir málsmetandi einstaklingar munu á
þinginu reifa sjónarmið, bæði þeir sem meðmæltir
eru virkjunarframkvæmdum á hálendi Austurlands
og þeir sem þeim eru mótfallnir. Að framsöguer-
indum loknum eru pallborðsumræður og í þeim
taka þátt dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir líffræðingur
og Bjarnheiður Hallsdóttir ferðamálafræðingur,
sem talar um hina neikvæðu þætti sem virkjunar-
framkvæmdir gætu haft í för með sér, meðal ann-
ars fyrir umhverfi og ferðaþjónustu sem er vaxandi
atvinnugein. - Um ágæti virkjana tala Þorsteinn
Hilmarsson, upplýsingarfulltrúi Landsvirkjunar, og
Þorvaldur Jóhannesson framkvæmdastjóri Sam-
taka sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, en sveit-
arstjórnarmenn eystra hafa einmitt talað mjög fyrir
virkjunum og mikilvægi þeirra fyrir atvinnu og bú-
setu í héraði.
Málþingið mótsvar við einhliða íunræðu
„Málþingið er mótsvar við þeirri einhliða umræðu
um virkjunarmál sem verið hefur í gangi. Mótrök-
in hafa til þessa ekki fengið næga umfjöllun. En
ég held að við séum í þessum málum að sjá vatna-
skil. Mér fannst umræða almennings um umhverf-
ismál til dæmis gjörbreytast með Kyoto-ráðstefn-
unni og fyrst þá hafi fólk til dæmis áttað sig á því
að ósnortin víðerni gætu verið verðmæti. Það er
nokkuð sem ekki hefði þýtt að vekja máls á fyrir
fáum árum og að því leyti vinnur tíminn með
þessum sjónarmiðum," segir Skarphéðinn Þóris-
son. - Hann sagði ennfremur að tilkoma Náttúru-
verndarsamtaka Islands hefði haft mikið að segja í
þessum efnum og breytt miklu í umræðunni.
-SBS.
L