Dagur - 31.10.1998, Side 18
14- L Aii'ú'A éö'áð trg 51: ö é yöb Ptt' i » '
LÍFIÐ í LANDINU
Áslaug söngkona Klamedíu X...
útgáfu, sem verður sí-
fellt ódýrari og auð-
veldari og/eða upp-
troðslum hvar sem
þeim verður við kom-
ið, af ýmsu tagi. Eitt
skýrt og gott dæmi um
hversu mikið er að
gerast og geijast, er að
í sumar var í annað
sinn haldin hljóm-
sveitakeppni í bítla-
bænum Keflavík er
kallast Rokkstokk á
vegum æskulýðsmið-
stöðvarinnar Ungó.
Tóku þar þátt rúmlega 20 sveitir og spönn-
uðu þær nánast allt litróf popp og rokktón-
listarinnar. Eins og gengur í svona löguðu,
er misjafn sauðurinn í mörgu fénu, en sam-
dóma álit þeirra er komu að herlegheitun-
um, var að miklir hæfileikar væru í mörgum
þeirra er tóku þátt. Það hefur greinilega ver-
ið vel vandað til þessarar keppni, því líkt og í
Músíktilraunum voru ýmsar viðurkenningar
veittar í formi upptökutíma í hljóðveri,
hljómplötugjafa og fleira. Að auki var svo allt
saman hljóðritað með það fyrir augum að
gefa hluta, það sem skaraði framúr, út á
geislaplötu með sömuleiðis upptökum verð-
launasveitar innanborðs. Hefur þessi út-
dráttur af keppninni auk hljóðversupptaka
og nokkurs margmiðlunarefnis í kaupbæti,
(myndir, upplýsingar og fleira er tengist
keppninni) nú Iitið dagsins Ijós á tvöfaldri
geislaplötu er kallast einfaldlega, Rokkstokk.
Verður ekki annað sagt en að útkoman sé
virðingarverð í meira lagi og aðstandendum
og öðrum sem í hlut eiga til sóma. Ber þessi
útgáfa glöggt vitni um mikinn kraft þess
unga fólks er þátt tók og þær lystugu kræs-
ingar sem fram voru bornar. Sigurvegari varð
framsækin rokksveit úr Reykjavík, Klamedía
X. I öðru varð önnur reykvísk sveit, en af
dansgerðinni, Vað, og í þriðja sæti varð svo
keflvísk sveit af þyngri gerðinni, Terrance.
Vilji fólk kynna sér áþreifanlegt dæmi um
gróskuna í íslensri ungherjatónlist og fá
sönnur á hve merkileg hún er, þá ætti þessi
tvöfalda geislaplata að vera tilvalin.
Gróskan í íslensku tónlistarlífi lætur ekki að
sér hæða. Ut um hinar breiðu byggðir lands-
ins eru ungkraftar hvarvetna í hverju horni,
hverjum bílskúr og hverju herbergi, í óða
önn að skapa og fremja saman tónlist og það
í öllum regnbogans litum, af öllum stærðum
og gerðum. Afraksturinn birtist svo í formi
...og Bragi gítarleikari sömu sveitar, komu, sáu og
sigruöu á Rokkstokk 1998.
Jæja, þá er sá fremsti meðal jafningja í
íslenskri tónlist, baráttujaxlinn hann
Bubbi, kominn með enn eina plötuna.
Og hverning tekst honum nú til? Hvað
er hann að fara nú? Er kappinn að boða
eitthvað nýtt? Þessar og fleiri spurningar
koma nú sem endranær upp þegar
Bubbi er annars vegar auk þess sem
ýmsir velta því enn og aftur fyrir sér
hvort kappanum fari nú ekki að fatast
flugið. Svo því síðasttalda sé strax svar-
að, þá lítur ekki út fyrir það að „kóngur-
inn“ sé neitt að misstíga sig með nýju
plötunni, er hann nefnir Arfur. Að sönnu
er hann ekki svosem að bera fram neitt
nýtt, og er þá sérstaklega átt við tónlist-
ina sem slíka, (og er þá næst síðustu
spurningunni að mestu svarað) en gamli
og góði Bubbastíllinn er áfram við völd
og virðist enn ekki hafa gengið sér til
húðar. Við þó nokkra hlustun á plötuna
er því útkoman tónlistarlega alls ekki
sem verst og þar með er annarri spurn-
ingunni að hluta til a.m.k. svarað. Það
sem hins vegar skiptir mestu máli við plöt-
una að undirrituðum finnst, er fyrsta spurn-
ingin, hvað vor Asbjörn er að fara í þetta
sinnið.
Gott innlegg
Bubbi hefur fyrir löngu gert sig út fyrir að
vera poppskáld og lagt ýmislegt á sig í þeim
efnum í seinni tíð, m.a. lagt áherslu á að
yrkja undir bragarreglum, með stuðlum og
höfuðstöfum að hætti Þjóðskáldanna góðu.
Með nafninu á nýju plötunni, Arfur, og
forminu á textunum á henni, er hann að
skerpa þá áherslu enn frekar auk þess að
vísa öðrum þræði til þess ARFS sem liggur í
ljóðmælum landans frá ómunatíð. í
þeirri áminningu felst svo Iíka ádeila á
yngri tónlistarmenn fyrir að sækja ekki
í þennan arf, réttilega/ranglega, það sé
aumt að yrkja og syngja á erlendu máli
í stað íslenskunnar, sem hafi svo margt
að bjóða. A hinn bóginn er svo nafn
plötunnar skírskotun og innihald texta
hennar, innlegg í annað pólitískt deilu-
efni, kvótann og allt sem honum fylgir.
Ekki þarf að segja þjóðinni að Bubbi
hefur löngum verið pólitískur og sjald-
an eða aldrei getað „haldið kjafti".
Með Arfi og þeirri áherslu sem birtist í
henni, tvíþættri í meginatriðum sem
fyrr sagði, er hann líklega beinskeytt-
ari í þeim efnum en nokkru sinni fyrr.
Skiptir þar öngv^u hversu rétt eða rangt
hann í sjálfu sér hefur. Aðalatriðið er
að um gott innlegg á réttum tíma er að
ræða, sem vissulega er tekið eftir þeg-
ar vinsælasti tónlistarmaður þjóðar-
innar á í hlut. Arfur er semsagt sem
aldrei fyrr frá hendi Bubba í takt við
tíðarandann og verður kannski sérstaklega
minnst fyrir það. Ritari Poppsíðu nennir
annars ekki frekar að fara út í efni plötunn-
ar, einstök lög o.s.frv. Til þess er ekki sérstök
ástæða. Þið þarna úti vitið nokkurn veginn
að hverju þið gangið.
Popp-
fregnir
* Blúskempan aldna, Otis
Rush, sem engu minna var
merkilegur en garpar á borð
við B.B. King, Albert King og
Bo Diddley m.a. í
Chicagoblúsnum á sjötta ára-
tugnum, en galt ávallt fyrir
slæmt þunglyndi sem lengst
af hefur hrjáð hann þannig
að ferill hans hefur ekki verið
jafn glæstur og hinna, er nú
hins vegar í seinni tíð bara
nokkuð brattur og hefur verið
að gera ágæta hluti á síðustu
árum. Nýjasta platan hans,
Any place I'm going, kom út
fyrir skemmstu og þykir Otis
bara takast vel upp á henni.
* Kvikmyndin Popp í Reykja-
vík var frumsýnd á þriðjudag-
inn eins og landsmenn hafa
væntanlega tekið eftir, í það
minnsta þeir er teljast til tón-
listaráhugamanna. Er myndin
sem kunnugt er afrakstur
samnefndrar hátfðar í sumar
þar sem yfir tuttugu hljóm-
sveitir komu við sögu.
* Samnefnd plata, Popp í
Reykjavík, er svo líka að koma
út samfara myndinni, ef hún
er þá ekki bara komin nú
þegar í verslanir. Þar er þó
ekki um upptökur frá hátíð-
inni sjálfri að ræða, heldur
valdar hljóðversupptökur með
nokkrum þeirra listamanna er
þátt tóku. M.a. eru þar með
lög, Gus gus, Maus, Bellatrix
o.fl.
* Og fyrst minnst er á Gus
gus, þá kom það fram í spjalli
sem Ólafur Páll Gunnarsson
átti við Baldur Stefánsson,
einn meðlima hópsins fyrr í
vikunni, að nýja platan frá
þeim væri að verða tilbúin og
kæmi að líkindum út í mars
eða apríl á næsta ári. Annað
og ekki síður athyglisvert sem
fram kom f spjallinu, var að
fyrsta platan frá Gus gus hef-
ur gengið mjög vel og selst í
um 200.000 eintökum á
heimsvísu.
www.visir.is
FVBSTUR MEÐ FRETTIRNAR