Dagur - 26.11.1998, Side 2

Dagur - 26.11.1998, Side 2
¥ - H V l> 1 l, 1 (l « q ■< í\ '* A s «ii;h a !S It >1 I '4 2 - FIMMTUDAGVR 26. NÚVEMBER 1998 FRÉTTIR Líklega er í mörgum tilvikum meira hugað að öryggisráðstöfunum sem eiga að koma í veg fyrir aðgang utanaðkomandi að upplýs- ingakerfum en að hegðun eigin starfsmanna, en hún er ein afstærstu ógnunum við öryggi upplýsingakerfa. Ógnim við öryggi Hegðun eigin starfs- inaima ein af stærstu ógn- unum við öryggi upplýs- ingakerfa, segir RíMsend- urskoðun. „I öryggismálum upplýsingakerfa þurfa ráðstafanir að beinast bæði að utanað- komandi aðilum og starfsmönnum við- komandi. Líklega er í mörgum tilvikum meira hugað að öryggisráðstöfunum sem eiga að koma í veg fyrir aðgang ut- anaðkomandi að upplýsingakerfum en að hegðun eigin starfsmanna, en hún er ein af stærstu ógnunum við öryggi upplýsingakerfa. Hér er bæði átt við umsjónamenn upplýsingakerfa og al- menna starfsmenn," segir í nýrri grein- argerð um rekstraröryggi upplýsinga- kerfa sem Ríkisendurskoðun tók sam- an í beinu framhaldi af greinargerð um ártalið 2000, í þeim tilgangi að aðstoða forstöðumenn ríkisaðila við að efla þann hluta innra eftirlits sem snýr að upplýsingakerfum þeirra og draga úr líkum á verulegri röskun af völdum rekstrartruflana. Mest hættan af starfsmonniun í könnun á meðal endurskoðenda upp- lýsingakerfa segir Ríkisendurskoðun þá m.a. spurða um helstu ógnanir sem steðjuðu að tölvuvæddum fjárhagskerf- um. „Afar athyglivert er að sjá hve þessir sérfræðingar telja hegðun starfmsmanna mikla ógnun við öryggi upplýsingakerfa, sérstaklega þegar um einka- eða miðtölvur er að ræða, en þar eru áhættuþættir tengdir starfs- mönnum f þrem efstu sætunum. I stórtölvuumhverfi eru þeir í fyrsta og þriðja sæti. Það er aðeins í nettölvu- umhverfi sem áhætta tengd starfs- mönnum er eingöngu í þriðja sæti en aðrir þættir í fyrsta og öðru“. Af ásettu ráði eða óvart Varðandi einkatölvur er mest hætta á; að starfsmenn eyði gögnum af slysni, hleypi tölvuvírusum inn í kerfið og skrái óvart inn röng gögn. Helstu hætt- urnar af völdum starfsmanna við önn- ur tölvukerfi eru; að þeir nái sér í að- gang að gögnum eða kerfum með ólög- mætum hætti og slái óvart inn röng gögn. Tæknin ein og sér sé því hreint ekki lausn á öllum vandamálum sem upp koma varðandi öryggi upplýsinga. Ekki lengur eihkamál tölvudeilda Ríkisendurskoðun segir þó langmikil- vægasta atriðið til þess að tryggja rekstraröryggi upplýsingakerfa ríkisað- ila það, að ætíð séu til fullnægjandi af- rit af gögnum og hugbúnaði. Gera verði kröfu um að varðveisluöryggi sé tryggt í þeim upplýsingakerfum sem hafi þýðingu fyrir ríkissjóð. „Töívuöryggismál eru ekki lengur einkamál tölvudeilda, heldur meðal brýnustu viðfangsefna forstöðumanna stofnana og fyrirtækja ríkisins," segir Ríkisendurskoðun. — HEl FRÉTTA VIÐTALIÐ Grasrótarmegin við girðingu samfylking- arinnar í Reykjavík er nú mikið skrafað og skeggrætt um hvort reyna eigi að grípa frumkvæði úr liönd- um þeirra sem gera tilkall til „öruggra sæta“ eins og þau eru kölluð. Hugmynd tun almcnnan borgara- ftmd var talin ótíma- bær, en hún var alvarlega til uinræöu um síðustu helgi. Sú tillaga var slegin af þar sem mál væru í greinilcgri þróun þessa dagana. Hins vegar eru órói talsverður og sterk „tjáningarþörf" talin munu leita útrásar í óformlegum rabbfundum víða um bæinn.... Halldór Ásgrímsson. í pottinum heyrðist að ýmsir tengdir utanríkis- þjónustunni séu tauga- veiklaðir vegna yfirlýs- inga forsetans um utan- ríkismál. Fræg cr orðin mismunandi túlkun Hall- dórs Ásgrímssonar og Ólafs vegna ummæla Ólafs Ragnars um að ís- lendingar væru ekki vnt- sælir meðal ráðamanna í Þýskalandi og Bandarikjunmn vegna afdráttarlauss stuðnings við bmgöngu Eystrasaltsrikjanna í NATO. Fæstum blandast hugur um að Ólafur hafi rétt fyrir sér hvað það varðar að málið er frekar viðkvæmt, en það á ekki einungis við um ísland hcldur líka Dan- mörku og Noreg sem lika eru NATÓríki sem styðja Eystrasaltsríkin. Taugaveiklunin stafar frckar af því að mönnum ftnnist að oft megi satt kyrrt liggja - sér- staklega í opinberum heimsóknum.... Ólafur Ragnar Grímsson. Það sem þó hefur valdið utanrikisþjónustumömmm heilahrotum og beinlínis áliyggjum er yfirlýsing for- setans um að hann túlkaði ekki utanríkisstefnu ríkis stjómarinnar i því verki væri fjöldi annarra maima. Lánasjóðurmn best staðsettur í Reykjavik Sigurgeir Þorgeirsson framkvæmdastjóri Bændasamtakanna Tilmæli Guðmundar Bjama- sonar, landbúnaðarráðherra, um aðlánasjóði landbúnaðarins verðifundinn framtíðarstaðurá Húsavík hefur vakið upp um- ræðursem voru árið 1995þegar Bændasamtökin voru stojnuð og þá rætt um að þeirra framtíð- arseturgæti allt eins veriðáAk- ureyri, Borgamesi eða á Selfossi í nálægð við stórar afurðastöðvar. - Þessi mál hafa ekki kotnið til utnræðu eða endurskoðunar í stjóm Bændasatn- takanna stðan. En er einhver niöguleiki á að Bændasamtökin verði jlutt út að landsbyggðina ? „Þessi umræða komst aldrei á það stig. Rændasamtökin eiga Bændahöllina sem m.a. hýsir Hótel Sögu og það hefur ekki komið til þess að hótelið hafi þörf fyrir hæðina þar sem skrifstofur Bændasamtak- anna eru. Fjárhagslega er það alveg út í hött að við förum að svo stöddu að byggja yfir okkur eða kaupa húsnæði einhvers staðar annars staðar og jafnframt leigja þetta húsnæði út og standa í breytingum sem því fylgja og binda húsnæðið kannski ekki til lengri tima en sjö ára. Bændasam- tökin munu hins vegar ekki standa í vegi fyrir þvi ef hótelið hefur vaxtarþörf eða vaxtarmöguleika." - Það höfðu tnörg sveitatfélög áhuga á að fá Bændasamtökin til sín? „Það kom bréf frá bæjarstjórnum Akur- eyrar og Selfoss og það kom sendinefnd frá Egilsstöðum en það var aldrei í alvöru far- ið að tala um einn stað öðrum fremur. Eg hygg þó að Akureyri og Selfoss hafi verið helstu valkostirnir eins og ég álít að sé nú með Lánasjóð landbúnaðarins." - Hvemig hugnast þér sú hugmynd að starfsemi Lánasjóðs landbúnaðarins fari frá Reykjavik? „Ef við hugsum um það hveijum Lána- sjóðurinn þjónar þá er staðreyndin sú að hann er hvergi betur staðsettur en í Reykjavík. Hitt er svo annað mál að það er markmið í sjálfu sér að fj'ölga vel launuðum störfum á landsbyggðinni, það er markmið stjórnvalda að flytja stofnanir út á land og ég býst við að það henti að flytja Lánasjóð landbúnaðarins eins og hveija aðra stofnun en ég veit ekki hversu mikið viðskiptavin- irnir, þ.e. bændur, þurfa að mæta í stofn- unina. Það mun vera talsvert um það, að hluta til einfaldlega vegna þess að Lána- sjóðurinn er í höfuðborginni og bændur þar oft á ferð. Það er nauðsynlegt fyrir Iandsbyggðina að fá meira af störfum sem krefst menntaðs fólks og vel launaðra starfa því það hleður utan á sig. En það þýðir ekki að flytja stofnanir til mjög fá- mennra staða vegna þess að þeim mönnum sem stofnununum stjórna fylgir oft mennt- aður maki, og þá er ekkert starf til fyrir hann.“ - Er þessi utnræða utn flutning stöðugt í gangi? „Árð 1988 eða 1989 var mikil umræða í gangi um stofnanaflutning út á land. Þá var Háskólinn á Akureyri í burðarliðnum og þá benti ég á að það gæti verið skynsam- legt að flytja allt vísinda- og leiðbeininga- kerfi Iandbúnaðarins til Akureyrar og setja upp eina öfluga deild í Háskólanum á Ak- ureyri sem hefði með að gera rannsóknir, háskólamenntunina í greininni en eftir mundi standa bændaskóli á Hvanneyri og leiðbeiningaþjónustan. Trúlega hefði þá Búnaðarfélagið og síðan Stéttarsamband bænda sem nú er Bændasamtökin viljað vera með í þéssum kjarna.“ - gc,

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.