Dagur - 26.11.1998, Page 6

Dagur - 26.11.1998, Page 6
T 6 -FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar: A ðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Simar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjaid m. vsk.: Lausasöiuverð: Grænt númer: Símbréf auglýsingadeildar: Símar augiýsingadeiidar: Netfang auglýsingadeildar: Símbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON STEFÁN JÓN HAFSTEIN ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.800 KR. Á MÁNUÐI 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 460 6161 (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir ornar@dagur.is 460 6171CAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Siðleysi á markaði í fyrsta lagi Hinn fijálsi markaður, sem svo er kallaður, hefur bæði jákvæð- ar og neikvæðar hliðar. Mikið kapp hefur verið á það lagt að sýna þjóðinni hina jákvæðu ásýnd markaðshyggjunnar sem felst í auknu frelsi til athafna í verslun, viðskiptum og pen- ingamálum þjóðarinnar, enda hefur frjálsræðið átt sinn þátt í að styrkja efnahagslífið í landinu. En öllu frelsi verður að fylgja ábyrgð, og þá ekki bara lagaleg heldur líka siðferðileg. Annars fer illa. í öðru lagi Að undanförnu hafa orðið opinber nokkur augljós dæmi um siðleysi sumra þeirra sem beita öllum brögðum til að græða á stórauknum viðskiptum með hlutabréf sem fylgja í kjölfar þeirrar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að selja stóran hluta öfl- ugustu fjármálafyrirtækja almennings. Grófasta dæmið vekur þá spurningu hvort braskarar eigi átölulaust að komast upp með að Ijúga að þjóðinni í því skyni að græða sem mesta pen- inga. Miðlari sem tók að sér að kaupa með leynd mikið af hlutabréfum í Landsbankanum fyrir eignarhaldsfélag laug því blákalt í viðtali við sjónvarpsstöð að hann væri að bjóða í hlutabréfin fyrir einstaklinga en ekki fyrirtæki. Síðan lagði op- inber eftirlitsstofnun í reynd blessun sína yfir siðleysið. í þriöja lagi Annað gróft dæmi var ásetningur verðbréfafyrirtækis að snið- ganga stefnu stjórnvalda um dreifða eignaraðild á hlutabréf- um í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins með því að safna á laun kennitölum fjölda íslendinga og borga þeim fyrir að þykjast kaupa hlutabréf fyrir sjálfa sig. Ekki er enn ljóst hvort banka- eftirlitið, sem fengið hefur kæru vegna kennitölubrasksins, telur þetta framferði í góðu lagi. Víða erlendis, þar sem mark- aðurinn er þroskaðri en hér, eru öflugar eftirlitsstofnanir stöðugt að glíma við einstaklinga og fyrirtæki sem brjóta laga- legar eða siðferðilegar viðskiptareglur. Þar dettur stjórnvöld- um ekki í hug að horfa aðgerðalaus á siðlausa hegðan hrægamma viðskiptalífsins. Elias Snæland Jónsson FLutt hálfa leið Guðmundur Bjamason stend- ur í ströngu þessa dagana. Hann hamast við að flytja stofnanir út á land. Hins vegar kemur greinilega í ljós að Guð- mundur er á útleið úr pólitík og hefur lítinn tíma til stefnu. Eins er það með ráðherra sem búnir eru að tilkynna brottför sína, að þeir hafa ekki sömu vigt og þeir höfðu áður en þeir ákváðu að hætta. Stofnanirnar sem nú eru fluttar úr bænum eru enda af því taginu að líkur eru til að um flutninginn gæti orðið friður, en svo virðist þó ekki ætla að verða. Þannig stefnir allt í að flutningurinn á Framleiðnisjóði landbúnaðar- ins upp í Borgarnes muni verða harðlega gagnrýndur. Hjá Framleiðnisjóðnum hefur að vísu aðeins starfað einn maður, framkvæmda- stjórinn. I nýlegu Skagablaði kom líka í Ijós að starfsmaðurinn telur sig hafa himin höndum tekið því hann býr í Borgarfirði og sér fram á að miklu styttra verði að fara heim en áður. Ekki allt sem spúst Því mætti ætla að þetta væri gott dæmi um vel heppnaðan flutning á ríkisstofnun út á Iand. Ráðherrann fann sér ein- faldlega stofnun þar sem starfsmenn búa allir þegar úti á landi og svo er stofnunin flutt til þeirra. En ekki er allt sem sýnist og Garri getur ekki ann- að en fundið að því að stofnun- in er flutt í Borgarnes en ekki alla leið heim til starfsmanns- ins upp í sveitir Borgarfjarðar. Slíkt hefði auðvitað verið miklu einfaldara mál auk þess sem það væri siðferðilegur stuðn- Guðmundur Bjarnason. ingur við kröfur dreifbýlis að fá ríkisstofnanir alla Ieið í sveit- ina. Og hvaða stofnun væri líka hentugri í slíkt en einmitt þessi þjónustustofnun við landbún- aðinn. Það eina sem í raun mælir gegn slíku er að þá væri verið að hafa kaupstaðarferð af þeim bændum, sem þurfa að eiga viðskipti við sjóðinn. Það ætti þó ekki að koma að sök því nægar eru skuldir bænda í öðr- um bönkum og af þeim ástæð- um næg tilefni til að fara í kaupstað. Kaupstaðadekur Þetta Kaupstaðadekur land- búnaðarráðherra og annarra stjórnvalda verður enn augljós- ara í ljósi þess að auðvitað hefði verið einfaldast að kaupa eina góða margmiðlun- artölvu með tilheyrandi nettengingum handa framkvæmdastjóranum og láta hann hafa hana heima hjá sér. Með fjar- vinnslu gæti hann svo sinnt öllum málum sem upp koma milli þess sem hann skreppur í gegn- ingar í útihúsunum. Nú Garra ekki kunnugt um fr amkvæmdas tj órinn er hvort með skepnuhald eða ekki, en ef þetta lag yrði haft á gæti hann sem hægast sinnt hvoru tveggja og gengið á undan með góðu fordæmi og sýnt hvernig auka má framleiðnina í landbúnað- inum. Hann yrði talandi dæmi um þær búháttabreytingar sem orðið hafa í sveitum. Garra sýnist því að Guðmundur Bjarnason muni ekki sleppa gagnrýnilaust frá þessum ríkis- stofnanaflutningi frekar en þeim hinum fyrri. GARRI JÓHANNES SIGURJÓNS- SON skrifar Heilbrigð samkeppnis- samviima Útgerðarmenn eru eitthvað að væla þessa dagana yfir olíuverði. Þeir kveina yfir því að olíuverð á heimsmarkaði hafi ekki verið lægra í áratug, en þess gæti ekki í lækkuðu olíuverði á íslandi. Út- gerðarmenn ættu held ég að fara að hugsa sinn gang. Það er ekki nóg með að þeir skapi sér óvin- sældir með ósanngjörnu eignar- haldi á þjóðarauðnum og ósmekklegri áróðursherferð í fjölmiðlum, nei, nú er ráðist með offorsi á einn af hornsteinum þjóðfélagsins, olíufélögin, og þar með er í raun vegið að grundvall- arþætti hins frjálsa nútímasælu- samfélags, heilagri frjálsri sam- keppni sem er undirstaða alls hins besta hjá íslenskri þjóð. Skenuntilegar tilviljanir Hin ofsafengna samkeppni olíu- félaganna á undanförnum árum er besta dæmið um þann geig- vænlega ávinning sem þjóðin hefur af frjálsri samkeppni í sinni hreinustu mynd. Hér hefur verið haldið uppi tvöföldu eða þreföldu dreifikerfi sem tryggir einkar notalega samkeppni í dreifingu á olíuvör- um. Hin hatramma samkeppni olíuféfag- anna hefur einnig tryggt stöðugt verð á olíu og bensíni um land allt, sem er neytendum til veru- Iegra hagsbóta. Þeir þurfa sem sé aldrei að velta þvf fyrir sér hvort þeir eru að kaupa bensín hjá Shell, Esso eða Olís, verðið er hið sama á öllum stöð- um. Ennfremur hefur þessi gegnd- arlausa samkeppni tryggt að breytingar á olíuverði á heims- markaði hafa yfirleitt engin áhrif á verðlag hérlendis. Því svo ein- kennilega vill til að þegar verð lækkar erlendis, þá eru öll olíu- félögin einmitt nýbúin að fylla alla tanka af olíu á gamla háa verðinu. Og þegar olíuverð hækkar utanlands, þá hittist ávallt svo á að olíu- félögin eru akkúrat á þeim tímapunkti að fá nýjan farm af olíu á nýja háa verðinu. Einmitt þegar þau ætluðu að fara að Iækka verðið, þá kom þessi óvænta og óheppilega hækkun og því ekki svigrúm til lækkana að sinni. Timabimdnir dyiitir Svona hefur þetta gengið eins lengi og elstu menn muna. OIíu- félögin hafa staðið saman sem einn maður um að tryggja stöð- ugleika og hafa öðrum fremur haldið á lofti merki heilbrigðrar samvinnusamkeppni. Þessu fyr- irmyndar fyrirkomulagi vilja út- gerðarmenn sjálfsagt splundra nú með kveini sínu og kvörtun- um. Og hvað vilja þeir í staðinn? Eitt ríkisrekið olíufélag með samræmda verðskrá um allt land og stöðugar Iækkanir á bensíni og olíu í kjölfar lækkana á heims- markaði, sem myndi gjörsamlega fordjarfa verðskyn landsmanna? Nei, við sem trúum á heilbrigða samkeppni, eigum að fordæma ótfmabært upphlaup útgerðar- manna og skora á olíufélögin að hætta að hugleiða lækkun oh'u- verðs á næstunni. Það hækkar hvort sem er aftur á næstu árum og engin ástæða til að hlaupa nú á eftir tímabundnum dyntum heimsmarkaðar, frekar en endranær. .Xfc^ir Hvemig lístþér á hug- myndirum heilsársveg yfirKjöl? (Þingsályktunartillaga þriggja þingmanna þessa efnis liggur nú fyrir Alþingi). Kristján M. Baldursson framkvæmdastjóri Ferðafélags ís- lands. „Frekar myndi vegurinn rýra gildi hálendisins sem aðdráttarafls fyrir ferðamenn. Með aukinni umferð hverfa töfrarnir nokkuð. Leiðin yfir Kjöl er ein fallegasta hálendisleiðin, með tilliti til Ijalla- og jöklasýnar. Það þarf líklega nokkuð svo hægt sé að halda svona vegi opnum yfir veturinn, en kannski ekki meira en gerist með margra fjall- vegi. Síðan ber að taka fram að kominn er uppbyggður vegur norðanmegin frá Iangleiðina á Hveravelli. Ari Karlsson framkvæmdastjóri ogjeppamaðurá Akureyri. „Það líst mér vel á, tel að það myndi gefa fleir- um kost á að ferðast um há- Iendið að sumri til og reyndar allt árið. Þetta myndi líka stytta akst- urstímann milli Norður- og Suð- urlands og gæfi valkost um tvær leiðir suður. Sem jeppamaður tel ég að þetta myndi eldd rýra gildi hálendisins, fyrir mér eru Hvera- vellir fyrst og fremst áfangastað- ur áður en lengra er haldið til dæmis upp á jökla.“ Sveinn A. Sæland oddviti íBiskupstungum. „Mjög vel. Sjón- armið náttúru- verndarfólks í þessum efnum er að halda umferð ferðafólks á há- lendinu í lág- marki, en sjálfur tel ég að svona væri að vissu leyti náttúruvernd; myndi frekar koma í veg fyrir akstur utan vega. Þetta gæfi öll- um tækifæri til að aka yfir há- lendið og vegurinn sem liggur svo skemmtilega milli jökla myndi nýtast öllum bæði til skemmtunar og gagns.“ Ómar Þ. Ragnarsson fréttamaður. „Þessi vegur gæti verið fær allt árið, ég er búinn að fylgjast með Kili að vetrarlagi í meira en 30 ár og þar sem hann er niðurgrafinn er hann oftast hvít rönd á annars snjólausri jörð. Leiðin frá KerlingarfjöIIum og norður að Hveravöllum er í raun eini hluti leiðarinnar þar sem er um einhvern snjó að ræða, en þó ekki meiri en til dæmis á Stein- grímsfjarðarheiði. Það sem mér sem líst ekki á er að menn geri þetta of ódýrt, betra er þá að bfða færis og gera hlutina vel og hugsa til framtíðar. Vera ekki of bundn- ir af núverandi vegarstæði. “ 4

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.