Dagur - 26.11.1998, Page 12
rr■ inimimi mi u ■ ■ ■ rri iti n ■ ■■ ■mnm m hbii ■ ■ ■ r» ■ .................................■■■■■■■■■ n ■ ■ ■ ■ ■ ■ ........ ■ n ■■■■■■ ■tti
12- FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
mxsfxi —^ m w m o imtu
Œ l< r( \rl)K H
S 462 3500
Truman Urbank hefur ó tilfinningunni nð einhver fylgist með
honum... Hann hefur rétt fyrir sér, þúsundir sjónvarpsmyndnvéla..
Milljónir manna... Allur heimurinn fylgist með Truman. Fylgist þú
með? Jim Carrey sýnir ó sér nýja hlið.
Það eru allir vitlausir i Mary. Óborganleg gamanmynd fró Farelly
bræðrum, leikstjórum Dumb & Dumber og KingPin.
Fimmtud. kl. 19 og 21.
Fimmtud. kl. 19,21 og 23.
Trere's
S MÍlHlNQ ^bouT
M/1RY
Fyrir 20 órum, sviðsetti Laurie dauða sinn en það hefur ekki hindrað
geðsjúklinginn Michael Mayers í að reyna að hafa upp ó henni.
Nú hittast þau aftur...
Fimmtud. kl. 23 m™;
B.i. 16 óra. siðastn sýning
JIM CARREV / ;
THE TRUMJXN SHOW;
ÍÞRÓTTIR
Ólafur Stefánsson, sem var í strangri gæslu Ungverja í gærkvöld, skoraði fjögur mörk í leiknum.
Stéttin
erfyista
skrefið
inn...
afheHum
og steinum.
Mjög gott verð.
SIÉTI
HELLUSTEYPA
HYRJARHÖFÐI 8
112 REYKJAVÍK
SÍMI 577 1700 -FAX 577 1701
Sætur sigur
íslendingar unnu 22-19 sigur á
Ungverjum í íyrri leik liðanna í
riðlakeppni HM í gærkvöld. Isl-
enska liðið mætti ákveðið til
leiks og hafði náð 13-10 forystu
í hálfleik.
Þrátt fyrir mikla spennu og
mörg mistök í sóknarleiknum
tókst íslenska liðinu að halda því
ungverska niðri og náðu mest 7
marka mun, 21-14, í seinni hálf-
leik.
Ungveijar efldust þegar leið á
hálfleikinn og tókst að minnka
muninn í 3 mörk þegar um það
bil fimm mínútur voru eftir af
leiknum og hélst sá munur til
loka leiksins.
Markahæstir í íslenska liðinu
voru Gústav Bjarnason með 5
mörk og þeir Patrekur, Ólafur og
Valdimar með 4 mörk hver.
Guðmundur Bragason skoraði fimmtán stig gegn Hollendingum.
Tap í Hollandi
íslenska körfuknattleikslandslið-
ið lék í gærkvöld í riðlakeppni
Evrópumóts landsliða gegn
Hollandi og tapaði leiknum
77:65, eftir að staðan í hálfleik
var 41:30 fyrir Holland.
Islenska liðið byrjaði vel í
leiknum og hafði náð sex stiga
forystu 18:24 um miðjan fyrri
hálfleikinn. Þá kom góður kafli
hjá hávöxnum HoIIendingunum
og þeir skoruðu næstu fimmtán
körfurnar.
Hollendingar héldu upptekn-
um hætti í byrjun seinni hálf-
leiks, en um miðjan hálfleikinn
átti íslenska liðið þó góðan kafla
og minnkaði muninn í fimm stig.
Lengra komust þeir ekki og Hol-
lendingar juku aftur við forskotið
og unnu öruggan sigur í lokin.
Hermann Hauksson var stiga-
hæstur íslenska liðsins með 21
stig, en næstir komu þeir Guð-
mundur Bragason með 15 stig og
Teitur Örlygsson með 10 stig.
Úrslit í UEFA-bikarnum
Monaco - Marseille 2-2 0-1 Pires (9.), 1-1 Trézéguet víti (16), 1-2 Caniara (39.), 2-2 Degiuly (56.). Real Socied. - At. Madrid 2-1 0-1 Juninho (3.), 1-1 Kovacevic (45.), 2-1 Fresnesdoso sjálfsmark (85.).
Roma - Ziirich 1-0 1-0 Totti víti (90.). Rangers - Parma 1-1 0-1 Balbo (51.), Wallace (69.).
Grasshoppers - Bordeaux 3-3 0-1 Wiltord (6.), 0-2 Micoud (19.), 1-2 Kavelaschvili (20.), 2-2 Turkyilmaz (33.), 3-2 Comisetti (52.), 3-3 Wiltord (73.). Bologna - Real Betis 4-1 1-0 Fontolan (25.), 2-0 Kolyvanov (52.), 3-0 Friberto (59.), 3-1 Benjamin (63.), 4- 1 Fontolan (74.).
Celta de Vigo - Liverpool 3-1 0-1 Owen (35.), 1-1 Mostovoi (50.). 2-1 K u-jiin (56.), 3-1 Gudelj (90.). Lyonnais - Brugge 1-0 1-0 Bak (47.).