Dagur - 02.12.1998, Blaðsíða 3
Xk^ur
MIÐVIKUDAGUB 2. DESEMBER 1998 - 19
LÍFIÐ í LANDINU
Skorið í fátækrabrauðið
Góð þátttaka varí
keppniískurðiá
laufobrauði sem hald-
in varíÞingeyjarsýsl-
um um helgina. Ýmis
form eru til í laufa-
hrauðsskurðinum, sem
erí raun sérstök menn-
ingþareystra. Dagur
fylgdist með og ræddi
við keppendur.
„Laufabrauðsskurðurinn er það
sem ég vildi síst missa í undir-
búningi jólanna. Þetta er
ómissandi. Ætli ég hafi ekki verið
fimm ára þegar ég fór að skera
fyrstu kökurnar út og því eru
komin 5 5 ár sem ég hef gert þetta
fyrir jólin," segir Alfhildur Jóns-
dóttir á Víðifelli í Fnjóskadal.
Hún eru meðal þeirra kvenna í
Þingeyjarsýslum sem mynda fé-
lagið Handverkskonur milli
heiða, en síðastliðinn Iaugardag
stóðu þær í veitingahúsinu við
Goðafoss fyrir næsta sérstæðri
keppni í því að skera út laufa-
brauð. Keppnin gengur út á að
skera út fallegasta brauðið, þá
með tilliti til forma og mynda.
íslend-
Átta blaða rósir
Laufabrauðsmenning
inga er
hvergi rót-
fastari en í
Þingeyjarsýsl-
um og í Eyja-
firði. Upphaf-
lega var farið
að baka laufa-
brauð til þess
að spara mjöl í
bakstri, enda
eu kökurnar
örþunnar. Var
því gjarnan tal-
að um fátækra-
brauð. Upp-
skrift að laufa-
brauði stendur
saman af hveiti,
sykri, salti,
mjólk, smjöri og
lyftiefni. Sínu
Iitlu af hverju.
Uppskriftin getur
verið breytileg frá einum bæ til
annars, en allir vilja halda í sína
og þar með sitt bæjarbragð.
Einsog keppnin sem haldin
var á sunnudaginn er gleggst
dæmi um liggur þessi menning-
arhefð ekki síst í Iagninni að
skera út falleg form og mynstur
í kökurnar. Margir skera út hin-
ar svonefndu átta blaða rósir og
jafnvel geta blöðin orðið 32 hjá
þeim sem allra lagnastir eru.
Aður fyrr var svo algengt á
sveitabæjum að fólk skæri stafi
sína í köku sem væri síðan efst í
þeim laufabrauðsbunka sem
hverjum manni var skammtaður
fyrir jólin. Það var í þann tíð
þegar matur fyrir hvern og einn
var ekki of mikill. -, Og slfkt
hnossgæti þótti laufabrauð í
eina tíð að fyrir aldamót tíðkuð-
ust meira að segja brúðkaups-
veislur þar sem þetta brauð var
uppistaðan í vetingunum, ásamt
skonroki - og var þetta síðan
borið fram með sírópi.
Þær stóðu fyrir laufabrauðskeppninni á Fosshóli. Svanhildur Sigtryggsdóttir á
Engi í Bárðardal, Úsk Helgadóttir á Merki í Fnjóskadal, Álfhildur Jónsdóttir á
Víðifelli í Fnjóskadal og Sigrún Hringsdóttir á Lundarbrekku í Bárðardal.
þessum jólasið kynntist ég fyrst
beqar ég fluttist í Bárðardal fyrir 45
Bólstað í Bárðardal.
„Mér finnst ómissandi að skera út laufabrauð. Ég hefbara aldrei skilið íþeim fyrir sunnan að gera þetta ekki líka fyrir
jólin einsog við Norðiendingar," sagði Þóra Arnardóttir. myndir: sbs
Það þarf ekkert listfengi
„Það þarf ekkert Iistfengi við
þetta, fyrst og fremst er þetta
íagni og æfing. Þetta Iærist líka
með árunum,“ sagði Sigrún
Garðarsdóttir, húsmóðir á Lækj-
armóti í Köldukinn, sem er búin
að skera út laufabrauð fyrir
fimmtíu jól. Hún skar út átta
blaða rós og lagði inn f keppn-
ina, en hún kann líka mörg fleiri
form í skurðinum -
rétt einsog þing-
eyskra húsmæðra
er siður. „Eg Iegg
aldrei upp með að
baka færri en
hundrað kökur
fyrir hver jól. Þær
klárast yfirleitt
alltaf, nema að
það hefur reyndar
einstaka sinnum
komið fyrir að fá-
einar kökur hafi
verið eftir til þess
að eiga á þorra-
blótið.“
Til keppninnar
mætti einnig
dóttir Sigrúnar,
Þóra Arnardótt-
ir, sem búsett
er á Akureyri.
„Mér finnst al-
veg ómissandi
að skera út laufabrauð. Eg hef
bara aldrei skilið í þeim fyrir
sunnan að gera þetta ekki líka
fyrir jólin, einsog við Norðlend-
ingar gerum,“ sagði Þóra. Að-
spurð segir hún laufabrauðs-
menningu standa traustum fót-
um á Akureyri, meðal fólks á öll-
um aldri, hvort heldur það eru
innfæddir Akureyringar eða að-
fluttir.
Alveg sjálfsagður siður
„Þessum jólasið kynntist ég fyrst
þegar ég fluttist í Bárðardal fyrir
45 árum. Þetta var alls óþekkt
þar sem ég ólst upp vestur í On-
undarfirði,“ sagði Ingileif Ólafs-
dóttir á Bólstað í Bárðardal.
Frægasti jólasiður Vestfirðinga
er auðvitað skatan góða sem
borðuð er á messu heilags Þor-
láks - og við hann ólst Ingileif
líka upp. „Mér finnst það nú
orðið vera alveg sjálfsagður siður
að skera út og steikja laufabrauð
fyrir jólin. Enda fara fállega út
Ungu mennirnir sem tóku þátt í keppninni voru þeir Allan Haywood frá Foss-
hóli og Sævar Páll Stefánsson á Merki í Fnjóskadal.
skornar kökurnar alltaf vel á
jólaborðinu," segir hún.
Ungu mennirnir sem tóku
þátt í keppninni voru þeir Sævar
Páll Stefánsson á Merki í
Fnjóskadal og Allan Haywood,
sem býr á Fosshóli. Þeim fannst
þetta skemmtileg iðja sem þeir
kváðust jafnvel vilja að yrði tek-
in upp í skóla þeirra Stóru-
Tjarnaskóla, sem er í Ljósa-
vatnsskarði. „Það sem ég er að
skera út eru engin form, þetta er
alveg út í höttinn," sagði Allan.
Keppt í þremur Ilokkum
Hin merka laufabrauðskeppni,
sem nú var efnt til i annað sinn
var haldin siðastliðinn Iaugar-
dag. Keppt var í þremur flokk-
um, það er í barnaflokki 6 til 10
ára, unglingaflokki 11 til 15 ára
og fullorðinsflokki sem nær frá
16 ára og uppúr. Fagurkerar
Iaufabrauðanna skoða þessa
dagana kökurnar sem svo listi-
lega voru skornar út - en á laug-
ardagskvöldið um aðra helgi
verða svo úrslit kunngjörð. Það
verður á jólagleði á Fosshóli en
að henni stendur áðurnefnt fé-
lag handverkskvenna, sem búa í
sveitunum milli Vaðlaheiðar og
Fljótsheiðar. -SBS.
BÆKUR
Stiómlaus liLkka
Skáldsagan ,
Stjórnlaus
lukka eftir
Auði Jóns-
dóttur er
komin út hjá
Máli og
menningu.
Lýst er mót-
unarárum
ungrar
stúlku í
kunnuglegu umhverfi sem
fáir þekkja þó af raun. Tæp
tólf ár eru liðin frá því að
Didda fluttist með mömmu
sinni í Iítið sjávarþorp úti á
landi. Nú á hún sér fast pláss
á flæðilínunni í frystihúsinu
og þær mæðgur orðnar hluti
af sérstæðu mannlífi smábæj-
arins.
Blikktrommaii
Blikktromman er fyrsta bók
þýska rithöfundarins Gúnter
Grass. Fyrsta bók af þremur
er nú komin út
í íslenskri þýð-
ingu Bjarna
Jónssonar.
Sögð er saga
Óskars sem
rifjar upp sér-
kennilega og
viðburðarríka
Giím
Ews
rP\0mW
ævi, en
þriggja ára ____
gamall ákveður
hann að hætta að vaxa. Hann
verður vitni að uppgangi nas-
ismans, lendir í hringiðu
heimsstyrjaldarinnar og upp-
lifir þýska efnahagsundrið.
Hann stendur utan og ofan
við umhverfi sitt og berst við
örvæntingu sína og ótta með
því að slá blikktrommu af
mikilli ástríðu í tíma og ótíma.
Veröld víð
Vaka-Helgafell
hefur gefið út
skáldsöguna
Veröld víð eftir
Jónas Krist-
jánsson. Fjall-
ar hún um
ævi Guðríðar
Þorbjarnar-
dóttur, sem
ferðaðist víð-
ar um heiminn og sá
fleiri lönd en aðrar konur á
fyrri öldum. Hún fluttist með
manni sínum, Þorfinni karls-
efni, til Vínlands og dvöldu
þau þar nokkur ár og þar
fæddist sonurinn Snorri. Eftir
átök við frumbyggja fluttu þau
aftur til Islands og á gamals
aldri fór Guðríður pílagríms-
för suður til Rómar.
Veröld víð er söguleg skáld-
saga sem sækir efni sitt að
miklu leyti til frásagna í ís-
lenskum fornritum, en höf-
undurinn, sem var fyrrum for-
stöðumaður Árnastofnunar
hefur yfirgripsmikla þekkingu
á söguefninu.
Fvlgdu mér slóð
Fylgdu mér slóð
heitir nýútkom-
inn Ijóðabók
eftir Eystein
Björnsson, og
er þetta önnur
ljóðabók hans,
en hann hefur
einnig skrifað
skáldsögur og
smásögur.
Nýútkomna bókin skiptist í
þrjá hluta: Tíbrá, Svipir og
Heiðmyrkur. Norðurljós gefur
út.