Dagur - 02.12.1998, Blaðsíða 5
MIÐVJKUDAGU R 2. DESEMBER 1998 - 21
X^wr
LÍFIÐ í LANDINU
Útgáíutónlelkar
Tj amarkvartettsins
Sunnudaginn 29. nóv-
ember efndi Tjarnar-
kvartettinn til tónleika í
Dalvíkurkirkju. Tónleik-
arnir voru haldnir til
kynningar á nýrri geisla-
plötu, I fíflúlpum, sem
kvartettinn er að gefa
út, en hún er þriðja
plata hans.
Víða leitað fanga
A efnisskrá útgáfutónleikanna í Dalvíkur-
kirkju voru lögin á nýju plötunni. Þau eru
af ýmsu tagi, en öll íslensk, mörg samin
fyrir kvartettinn og einnig mörg útsett
fyrir hann sérstaldega. I því síðastnefnda
á Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson, tónskáld,
stærstan hlut, en hann á einnig nokkur
frumsamin Iög á plötunni. Onnur tón-
skáld og lagahöfundar, sem við sögu
koma eru Atli Heimir Sveinsson, Elías
Davíðsson, Gunnar Reynir Sveinsson,
Heimir Sindrason, Hildigunnur Rúnars-
dóttir, Hilmar Oddsson, Ingibjörg Berg-
þórsdóttir, Jón Múli Arnason, Ríkharður
Pálsson, Sigfús Halidórsson, Sigríður
Hafstað, Sigurður Halldórsson, Sigvaldi
Kaldalóns, Þorkell Sigurbjörnsson og
Tryggvi M. Baldvinsson.
Svo sem sjá má á þeirri upptalningu,
sem er hér á undan, er víða leitað um
efni, enda er það fjölbreitt mjög að brag
„Listrænn metnaður og fágun einkenna störfog flutning Tjarnarkvartettsins. Hann á sér nú um
stundir enga hliðstæðu hér á landi.“
og innihaldi. Hin mikla breydd gefur all-
gott færi til þess að meta hvaða efni hæfi
væntanlega Tjarnarkvartettinum hvað
best. Sú agaða raddbeiting, sem kvartett-
inn hefur tamið sér, fellur sérlega fallega
að útsetningum, sem eru í pólifónískum
stíl, svo sem heyra má á fyrstu plötu
kvartettsins, þar sem hann flytur nokkra
madrigala. I hliðstæðum stíl eru ýmsar
útsetningar Hróðmars Inga Stefánssonar
og einnig nokkrar aðrar á efnisskrá tón-
leikanna í Dalvíkurkirkju. Þau lög, sem
þessa njóta, voru almennt talað þau, sem
best nutu sín.
Agi og vönduð vinnubrögð
Það kom berlega í Ijós á útgáfutónleikun-
um í Dalvíkurkirkju, að Tjarnarkvartett-
inn hefur gott vald á mikið fleyguðum út-
setningum. Þar nýtur hann mikillar
natni, ögunar og vandaðra vinnubragða.
Hins vegar er svo, að nokkur þeirra laga,
sem flutt voru í Dahakurkirkju, eru hlað-
in fleygunum og öðru flúri umfram það,
sem laglínur þeirra bera svo vel fari. Svo
var til dæmis um nokkur lög í útsetning-
um Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar og
Elíasar Davíðssonar. Nokkur lög enn á
efnisskrá tónleikanna liðu fyrir hið sama í
mismiklum mæli.
Kvartettinn flutti nokkur lög á útgáfu-
tónleikum sínum í útsetningum, sem eiga
að draga fram kómík eða leikræn til-
brigði. Því miður náðu þessi lög að jafn-
aði ekki markmiði sínu. Hinn fágaði stíll
kvartettsins virðist almennt ekki falla að
þeim flutningsbrag, sem að er stefnt.
Listrænn metnaður og fágun einkenna
störf og flutning Tjarnarkvartettsins.
Hann á sér nú um stundir enga hlið-
stæðu hér á Iandi. Því miður er íslenskur
tónlistarmarkaður of smár til þess að
þessi ágæti söngflokkur geti einbeitt sér
að þeim tegundum sunginnar tónlistar,
sem honum láta best. Innan þess sviðs,
svo sem heyra má á plötunni I fíflúplum,
er margt það, sem Tjarnarkvartettinn hef-
ur látið frá sér fara, á meðal þess besta
sem heyrist hvort heldur hér á landi eða
annars staðar.
SVOJMA
BRUHD
Vigdís
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Vigdís svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Góð ráð
Til okkar hringdi lesandi sem vildi koma efirfarandi ráðum á
framfæri:
Epli gefa frá sér eitthvert gas sem veldur því að aðrir
ávextir þroskast mjög hratt í nágrenni við þau. Því er gott ef
maður er með til dæmis óþroskaðar perur eða kiwi að setja
epli með þeim í plastpoka í einn dag eða svo. Hins vegar ætti
helst ekki að geyma epli í ísskáp með öðrum mat út af þessu
því það vill skemma aðra ávexti.
Epli eru líka
góð til annars,
en það er að
losna við tób-
akslykt úr bíl.
Þá er gott að
taka ferskt
grænt epli,
skera það í
tvennt og láta
vera í bílnum
yfir nótt með
glugga og hurð-
ir lokaðar.
Ólykt í kæli-
skáp er gott að
losna við með
því að setja not-
aðan kaffipoka
með korgi í inn í skápinn yfir nótt. Það dregur í sig lyktina.
Edik er lífræn sóttvörn og því óvitlaust að setja edik í vatn-
ið sem notað er síðast þegar gólf eða skápar eru þvegnir, sér-
staklega ísskápurinn.
Þessum lesanda fannst Islendingar stundum kærulausir
með grænar kartöflur sem hún segir vera eitraðar og að fólk
ætti alltaf að gæta þess vel að henda þeim sé eitthvað grænt
á þeim.
Leiðrétting
Hann Guðlaugur Aðalsteinsson, saltfiskverkandi með meiru,
sem viðtal var tekið við hér í blaðinu 4. nóvember sl. hringdi
og vildi leiðrétta heimilisfangið sitt. Blaðamaður staðsetti
hann á Laugarásvegi en hann býr við Laugarnesveg, nánar
tiltekið númer 77. Og líka vildi hann að það kæmi fram að
Friðrik sá sem hann keypti bíóvélarnar af, var Jónsson, en
ekki Sigurjónsson eins og misritaðist. Við viljum biðja Guð-
laug afsökunar á þessum mistökum.
■ HVAD ER Á SEYÐI?
LJÓÐ OG SÖGUR Á SÚFISTANUM
Fimmtudaginn 3. desember verður lesið úr fimm nýút-
komnum bókum á Súfistanum, bókakaffi, Laugavegi 18.
Hallgrímur Helgason fer með ljóð úr Ljóðmælum sínum,
lesið verður úr þýðingu Sverris Hólmarssonar á Liljuleik-
húsinu, kínverskri ævisögu frá tíma menningarbyltingar-
innar, Mikael Torfason les úr skáldsögu sinni Saga af
stúlku, Sjón úr ljóðabók sinni Myrkar fígúrur og Guðjón
Arngrímsson les úr bók sinni um Vestur Islendinga, Annað
ísland, framhaldi hinnar geysivinsælu bókar Nýja íslands
sem Guðjón sendi frá sér á síðasta ári. Dagskráin hefst kl.
20.30.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Happdrætti Bókatíðinda
Happdrættisnúmer dagsins 2. desember er
25.531
Opinn fundur um gagnagrunnsmálið
Samtökin Mannvernd efna til opins fund-
ar um gagnagrunnsfrumvarpið í Norræna
húsinu fimmtudaginn 3. desember kl.
16.45 - 18.00. Dagskráin hefst með kaffi-
veitingum og harmonikuleik Tatu
Kantomaa. Framsögumenn verða Ólafur
Ólafsson fyrrverandi landlæknir, Dögg
Pálsdóttir hrl., Einar Arnason prófessor,
Sigurður A. Magnússon rithöfundur og
Ólafur Hannibalsson blaðamaður. Fund-
urinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Kvöldvaka Kvennasögusafhs íslands
Árleg kvöldvaka Kvennasögusafns íslands
verður haldin í veitingastofu á 2. hæð
Þjóðarbókhlöðu, fimmtudaginn 3. desem-
ber kl. 20. í tilefni af því að 5. desember
eru 90 ár liðin frá fæðingu Önnu Sigurð-
ardóttur, stofnanda Kvennasögusafns Is-
lands, verður sýning við veitingastofu á
gögnum hennar er varða kvenréttindi og
kvennasögu. Aðgangur er ókeypis.
Alkóhólmælingar
Lyfjafræðingarnir Jakob Kristinsson og
Kristín Magnúsdóttir, Rannsóknastofu í
lyfjafræði, ílytja erindi á málstofu efna-
ffæðiskorar föstudaginn 4. desember kl.
12:20 í stofu 158, húsi VR-II við Hjarðar-
haga. Erindið nefnist: Nýjar og gamlar að-
ferðir til alkóhólmælinga Allir velkomnir.
Tónleikar í Iðnó
I kvöld ld. 21 heldur tónleikaröðin áfram i
Iðnó. Hinn landsþekkti tónlistarmaður
Hörður Torfason mun þá þenja raust sína
og plokka gítarinn á sinn kunna hátt. Hús-
ið opnað kl. 20.30 og er miðaverð kr.
1.200.
Ofjarlinn á Litla sviðinu
Leiklestur Leikfélags Reykjavíkur á Ieikrit-
inu Ofjarlinn (Le Cid) eftir Pierre
Corneille verður í kvöld kl. 20 á Litla svið-
inu í Borgarleikhúsinu.
Hafhargönguhópurinn
Gengið verður um Laugarnes og Sunda-
höfn í kvöld. Lagt af stað frá Hafnarhús-
inu kl. 20. Farið verður með strandstígn-
um inn £ Norðurskotsvör á Laugarnes-
töngum. Einnig verður hægt að hefja
gönguna við Hrafnistu kl. 20 og fara niður
að Gömlu sundlaugunum og út í Norður-
skotsvör, þar sem hóparnir munu samein-
ast.
Félag eldri borgara í Þorraseli
Opið í dag í Þorraseli frá kl. 13-17.
Handavinna og jólaföndur kl. 13.30. Spil-
að og kennt Iomber í umsjón Bergsveins
Breiðfjörð kl. 13.30.
Félag eldri borgara Ásgarði
Handavinna og jólaföndur kl. 09 í umsjón
Kristínar Hjaltadóttur. Línudanskennsla í
umsjón Sigvalda Id. 18.30.