Dagur - 02.12.1998, Page 7
MIDVIKUDAGUR 2. IIESEMBER 19.98 - 23
X^MT_
LtFJD 1 LANDINU
MEINHORNID
• Meinhyrning-
ur verður að
minnast einu
sinni enn á
nokkuð sem er
algjörlega óþol-
andi. Ef ekld
væri fyrir ein-
staka skapprýði
væri sá er þetta
ritar fyrir Iöngu
búinn að missa
stjórn á skapi
sínu þegar kom-
ið er að kassa í
Hagkaupi til að
. greiða þar fyrir
vörur. Þegar
maður réttir
fram debet- eða
kreditkort og
EKKERTANN-
AÐ er spurt
engu að síður:
Notarðu
fríkort?
• Sem betur fer
vill svo til að
meinhyrningur
á Iítil skipti við
aðrar þær versl-
anir sem undir
fríkortssökina
eru seldar. Það
skiptir ekki máli
- þeir sem nota
fríkort ættu að
vera fullkom-
lega færir um
að framvísa því
sjálfir þannig að
afgreiðslufólk
fríkortsverslan-
anna ætti að
geta látið okkur
hin í friði.
FOLKSIIMS
Maður er
manns gaman
ÓLAFUR QUÐMUNDSSON
SKRIFAR
Mig hefur alltaf langað til að búa í sveit.
Vera bóndi og eiga jörð og góða gripi og
sinna hvoru tveggja af alúð og elsku.
(Væmið? Nei, ég meina þetta og ætla
líka að viðhafa skynsemi og hagsýni).
Það lítur meira að segja út fyrir að
draumurinn geti ræst og jörðin og búið
fáist á viðunandi
kjörum.
Svo kemur nýjasta
ráð stjórnvalda.
Fækka bændum,
stækka búin. Veit
ekki alveg hvernig
þetta verður. Ekki
það að ég treysti
mér ekki til að reka
sæmilega stórt bú.
En mig langar ekki
til að hringla ein-
angraður einhvers
staðar úti í móa og
margir kílómetrar til
næstu nágranna.
Ekkert félagslíf og
kannske verður
skólinn lagður niður vegna fámennis.
Kannske kaupfélagið leggist niður lfka
vegna lítilla viðskipta og engin verslun
kemur í staðinn. Sjoppan á vegamótun-
um færi líka eða yrði bara rekin yfir há-
sumarið. Vélaverkstæðið færi á hausinn
og félagsheimilið yrði leigt einhverjum
„Veit llka að maðurinn lifir ekki afbrauði einu
saman og að maður er manns gaman"
sértrúarsöfnuði ef það myndi ekki bara
grotna niður ónotað. Enginn kæmi til
að halda tónleika eða sýningu í næstum
mannlausri sveit. íþróttastarf myndi
leggjast niður og jafnvel ferðamenn
myndu hætta að heimsækja þessa
mannlífsdaufu sveit þar sem takmark-
aða þjónustu væri að fá. Nei, slfkt um-
hverfi býð ég ekki börnunum mínum,
konunni né sjálfum mér.
Vonandi verður
framtíð íslenskra
sveita ekki svona.
Svo er það þetta
með arðsemina af
stóru búunum.
Hún er ekki alltaf
meiri en af þeim
Iitlu. Ég er ekki á
móti stórbúskap en
þekki það vel til bú-
skapar að ég veit að
ekki er allt undir
hausafjölda komið.
Veit líka að maður-
inn lifir ekki af
brauði einu saman
og að maður er
manns gaman. Ef
fólki fækkar í sveitum minnkar líka at-
vinnan í nálægum bæjum og þorpum og
með allri virðingu fyrir höfuðborgar-
svæðinu, þá er engan veginn æskilegt að
byggð íslands verði öll á einu lands-
horni. Það þarf ekki mikið hugmynda-
flug til að gera sér grein fyrir því.
Bjartsýnin
og Benedikt
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,106 Reykjavfk
Sfml umsjónarmanns
lesendasfðu:
460 6122
Netfang: ritstjorl@dagur.ls
Símbréf: 460 6171/551 6270
Ó8kaö er eftlr aö bróf tll
blaöslns séu aö jafnaðl hálf til
eln vélrltuö blaðsfða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
tll að stytta lengrl bréf.
ELLILÍFEYRI8ÞEQI
SKRIFAR
Margir eru undrandi á formanni Lands-
sambands aldraðra að takíi við svoköll-
uðum bjartsýnisverðlaunum Framsókn-
ar úr hendi tryggingaráðherra á flokks-
þinginu á dögunum. Er Benedikt Dav-
fðssyni ókunnugt um þær skerðingar á
réttindum aldraðra sem þingmenn
flokksins með Ingibjörgu Pálmadóttur í
broddi fylkingar hafa staðið fyrir og
samþykkt, síðan þeir komust til valda
fyrir þremur og hálfu ári síðan?
Það er hrein og bein hneisa að maður
sem valinn hefur verið til forustu í bar-
áttunni fyrir bættum kjörum
ellilífeyrisfólks skuli leggjast
svo Iágt að kyssa á vöndinn,
með því að taka við þessari
dúsu.
Hann var ekki á þingpöllum
fyrir fáum dögum eins og
margir eldri borgarar þar
sem Ingibjörg var spurð
hvort ekki yrði breyting á
tekjutryggingu ellilífeyris á
sama hátt og fyrirhugað er
að gera hjá öryrkjum; svar
hennar var ekki til að auka
mönnum bjartsýni um að
hún hyggðist beita sér fyrir
því.
Manni er nær að halda að Framsókn
hafi verið að hafa aldraða að háði og
spotti með þessari uppákomu, þau
hefðu svo sem getað heiðrað formann-
„Er Benedikt Davíðssyni ókunnugt um þær
skerðingar á réttindum aldraðra sem þing-
menn Framsóknarflokksins með Ingibjörgu
Pálmadóttur í broddi fylkingar hafa staðið fyrir
og samþykkt, slðan þeir komust til valda fyrir
þremur og hálfu ári slðan?“
inn persónulega fyrir bjartsýni með
þessum skrípaleik - aldraðir almennt
hafa ekki ástæðu til að vera bjartsýnir á
meðan núverandi ráðhcrrar gegna störf-
um trygginga- og félagsmála.
Bjartsýni er góð en biðin eftir því að
dropinn holi steininn er býsna löng.
Benedikt ætti að sjá að sér og skila
gripnum til síns heima og biðja aldraða
afsökunar á þessu frumhlaupi.
Vl'DiS K
Veðrið í dag...
Suðvestan kaldl eða stlnningskaldi og skúrir eða slydduél
sunnan- og vestanlands, en léttskýjað noröaustantil.
Gengur siðdegis í allhvassa norðanátt með snjókomu á
Vestfjöröum og Breiðafirði, en síðar einnig á Norðurlandi.
Vestan kaldi eða stinningskaldi sunnan og vestan til og
slydda eða rigning með köflum. Hiti viða 1 til 7 stig en
vægt frost norðvestan til.
Hiti-ltilSstig
Reykjavík
Akureyri
'C Hm Föa ........Lau.. Sun
10
5-
0-
•B
mm
>16
-10
■ 5
0
S-flffl-,...sl, jasl, pJMnJsy,
N4 SSA3 SSV4 SSAS S6
A2 SSV3 8SVS V1
Stykkishólmur
10
5-
0-
•B ■
■10.
NNV4 SSV3 SV3 8SV3 8SV3
S3 SSV3 SV3 8V3
■10
■ 5
Egilsstaðir
Flm Föa Lau Sun mn’ "c Flm Föa Lau Sun m
um ■10 5‘ 0- - B .5. ■ 0 -10-
N4 SSA4 SSV4 SSAB SSA4
A8A3 8SV4 SSV4 V2
Bolungarvík
NV4 SSV2 SV2 8V2 SSV3
NNV3 S1 VSV3 VSV2
Kirkjubæjarkla ustur
Flm Fös Lau Sun iq-, Flm FÖ8 Lau Sun
•10
- 5
0
NNA3 S2 SSV4 84 8A2
SSV2 SSV3 SSV3 SV3
10
B ■
0-
•16
•10
- 6
0
NV3 SSV2 SV2 8SV2 S3
A2 SV2 SV2 SSV2
Blönduós
Stórhöfði
Flm Fös Lau Sun mm_
/ ‘
NNV3 SSV2 SSV3 S3 i
S1 S8V2 SSV2 VSV1
NNV7 SSAB SSV0 SS 87
A3 SV4 SV4 SSV3
Veðurhorfur næstu daga
Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á
hveijum stað. Linan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan.
Færð á vegiun
Á Vestfjörðum er hálka á heiðum, einnig á Mývatns- og
Möðrudalsöræfum. Hálkublettir eru um norðanvert land-
ið, einkum á heiöum. Greiðfært er um sunnan- og vestan-
vert landið.
SEXTIU
OG
SEX
NORÐUR