Dagur - 18.12.1998, Blaðsíða 2
18-FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998
T)agur
LÍFIÐ í LANDINU
k.
ÞAÐ ER KOMIN HELGI
Hvaó
ætlar þú að
gera?
„Gaman að fara í
laufabrauðsgerð, “
segir Guðný Guð-
björnsdóttir.
Kliikkutíma fram í tíinaiin
„Einsog staðan er núna í pólítíkinni sé ég
ekki nema klukkutíma fram í tímann í einu.
En ég sé ekki annað en ég verði á þingfund-
um á laugardaginn og síðan er auðvitað mikið
að gera í þeim málum er varða Kvennalistann
og samfylkinguna," segir Guðný Guðbjöms-
dóttir, þingmaður Kvennalista.
„Ég vona þó að ég geti eitthvað komist í jóla-
undirbúning á sunnudaginn. I tiltekt og þrif
heima, að kaupa jólagjafir og ef tækifæri gefst
til á sunnudagskvöldið væri líka mjög gaman
að fara í laufabrauðsgerð en við það skemmti-
lega viðfangsefni hefur ljölskyldan sameinast
mörg undanfarin ár,“ segir Guðný.
Ungur byrjaði Valdimar Jóhannesson í biaðamennsku á Vísi. Einnig kom hann
að sjónvarpsþáttum sem voru á dagskrá um 1970, sem enn eru umtalaðir sakir
þess hve æriega var saumað þar að ráðamönnum. Kannski var það fyrsta bylt-
ing Valdimars, velgja valdsmönnum undir uggum og umbylta þjóðfélaginu. Nú
fiskveiðistjórnunarkerfi landsmanna, og það gerir hann án yfirvaraskeggs.
■ LÍF OG LIST
„Fjölskyldan hellir sér
út í jólaundirbúning, “
segir Heigi Hjörvar.
Skreytajólatréð
„Nú þegar törninni við gerð fjárhagsáætlunar
borgarinnar er lokið ætlar fjölskyldan að hella
sér í jólaundirbúninginn. Til þess ætti að gef-
ast tækifæri nú þar sem um helgina eru engir
fundir eða opinberar móttökur," segir Helgi
Hjörvar, borgarfulltrúi.
„Hæst ber auðvitað að dóttir okkar Þórhild-
ar er á laugardaginn að spila með nokkrum
öðrum fiðlunemendum Lilju Hjaltadóttur,
með Sinfóníunni á jólatónleikum hennar. En
það sem þarf helst að hyggja að í undirbún-
ingi jólanna um helgina er að kaupa jólatré,
búa til konfekt og skreyta heimilið. Jólagjaf-
irnar erum við hinsvegar búin að kaupa. Ég
hlakka til þess í jólafríinu að líta í skemmti-
legar bækur - og forðast pólítískar ævisögur."
„Sírópskökurnar sem
eru næstar á dag-
skrá," segir Guð-
mundur Jóhannsson.
Gemsar vinsæl j ólagj öf
„Ég verð að vinna um helgina hér í þjónustu-
miðstöð Landsímanns á Akureyri. Það er
einmitt mikil sala í símum nú fyrir jólin og
sérstaklega virðast GMS-símar ætla að verða
vinsæl jólagjöf," segir Guðmundur Jóhanns-
son, þjónustustjóri Landsímanns á Akureyri.
„En á sunnudaginn ætlar fjölskyldan að
fara í bæinn. Að mörgu er að hyggja, við eig-
um til dæmis eftir að baka og nú eru það
sírópskökurnar sem eru næstar á dagskrá.
Laufabrauðsbaksturinn er frá. Búið er að
setja upp jólaskreytingu utan á húsinu, en
eftir er að gera eitthvað inni. Ég kem fremur
lítið að jólaundirbúningi á mínu heimili, kon-
an sér um þetta að mestu Ieyti, nema hvað ég
fer í bæinn á Þorláksmessu með strákunum
okkar tveimur og við kaupum myndarlega gjöf
handa henni."
Bíttu á jaxlinn
Binnamín
„Ég er ári á
eftir áætl-
un að lesa
jólabæk-
urnar,“ seg-
ir Kristín Helga Gunnarsdótt-
ir, blaðamaður. „Fótspor á
himnum" eftir Einar Má Guð-
munsson er yndisleg bók og í
takt við þann fallega hrynjandi
sem einkennir bækur Einars.
Þá var ég líka að lesa Galdra-
stafi og Græn augu eftir Onnu
Heiðu Pálsdóttur, sem er
skemmtileg barnabók. En
talandi um bækur þá hefur
tími minn að undanförnu að
miklu leyti farið í ferðalög út
og suður til að lesa upp úr þeim bókum sem
ég sendi frá mér fyrir þessi jól; Bíttu á jaxlinn
Binna mín og Keiko - hvalur í heimsreisu."
Einsog Diddú
„Hér í jólastressinu erum við
að hlusta á jóladiskinn henn-
ar Diddúar sem kom út í
fyrra. Hann er eitthvað það
yndislegasta sem ég heyri; er
alveg einsog Diddú. En annars finnst mér í
skammdeginu líka mjög gaman að hlusta á suð-
ur-ameríska salsa-tónlist og spænska gítartón-
list. Þannig má hrinda skammdegisdrunganum
frá sér - og ekki er verra ef maður er líka í
skræpóttri skyrtu."
Tónafióð frá finun ára aldri
„Alveg frá því ég var fimm ára
hefur Sonud of music, á ís-
lensku nefnd Tónaflóð, verið
uppáhaldsmyndin mín. Myndin
er bæði ljúf, bernsk og falleg.
Stendur alltaf fyrir sínu. Ekki síst er það vegna
tónlistarinnar í myndinni sem hún hefur lifað
svona lengi, og einnig vegna fallegra mynd-
skeiða, meðal annars úr Olpunum. Eða það
finnst mér. Almennt er ég mjög heilluð af göml-
um bíómyndum, meðal annars með Bogart og
Ritu Hayworth." -SBS.
■ fra degi til dags
Heimskra manna háttur er að hæða
konur í orðum.
Jón Bjarnason á Presthólum: HEILRÆÐARÍMA
Þettagerðist 18. desember
• 1682 lést Guðríður Símonardóttir, sem
var flutt nauðug til Alsír og giftist síðar
Hallgrími Péturssyni.
• 1865 var þrælahald afnumið í Banda-
ríkjunum með stjórnarskrárbreytingu.
• 1897 var fyrsta sýmngin hjá Éeikfélagi
Reýkjávíkur.
• 1898 var sett hraðakstursmet þegar vél-
knúin bifreið komst upp í 63 km hraða
á klukkustund.
• 1956 hlutu Japanir aðild að Samein-
uðu þjóðunum.
• 1969 var dauðarefsing afnumin f Bret-
landi.
• 1982 var frumsýnd kvikmynd' St uð-
manna, Með allt á hreinu.
Þau fæddust 18. desember
• 1778 fæddist enski trúðurinn og lát-
bragðsleikarinn Joseph Grimaldi.
• 1863 fæddist Franz Ferdínand erkiher-
togi af Austurríki, en fyrri heimsstyrj-
öldin hófst með morði hans 28. júní
1914.
• 1870 fæddist skoski rithöfundurinn
H.H. Munro (Saki).
• 1879 fæddist svissneski málarinn Paul
Klee.
• 1913 fæddist Willy Brandt, fyrryerandi
kanslari Þýskalands.
• 1946 fæddist suðurafríski baráttumað-
urinn og píslavotturinn Stephen Biko.
Vísa dagsins
Búi sendi þessa vísu um daginn, en hon-
um er Keíkó hugleikinn.
Brímann í blóðinu eyhur
hin brimhvíta ólgancli dröfn.
- Aumingju kjötbollu - Keiltur
^^nei&Klettsvíkur lokuðu höfn!
Afmælisbam dagsins
Kvikmyndaléikstjórirth vinsæli,
Steven Spielberg, ér 51 árs í dag.
Honum hefur tekisit betur en flest-
urn öðrum að buá til bíóniyndir sem
séljast grimnit, og þrjár mynda hans
-Jaws 1975, E.T. 1982 og júragaéð-
urinri 1993 - slógu öll aðsóknarmet.
Meðfram hefur hann líka revnt að
búa til „veigameirfy mýndir og hefur
tekist æ betur u.pp á því sviði með
árunum.
Ekki til áfyllingar!
Áhyggjufullur sjúklingur hringdi til lækn-
isins og fékk viðtal við hann. „Er það
rétt,“ spurði sjúklingurinn, „að ég eigi að
taka lyfin sem þú ávísaðir á mig út æv-
ina?
„Já, ég er hræddur um að þess þurfi,"
svaraði læknirinn alvarlega.
Það varð andartaksþögn og svo hélt
konan áfram. „Ég er að velta því fyrir
mér hversu alvarlegur sjúkdómurinn er.
Það stendur nefnilega á dósinni: EKKI
TIL ÁFYLLINGAR!"
Veffang dagsins
Fjölmargar dýratégúndir hafa aldrei verið
til nema í göðsögúm og hugarheimi
manna. Um þær helstu má fræðast á
v. gryphonhearE.com/index.htm