Dagur - 18.12.1998, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 - 21
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Þá er komið að síðustu
helgifyrirjól. Þegar
kaupa á allar gjafimar,
skreyta, þrífa, baka,
fara ájólaböllin, tón-
leikana, upplestrana...
Gera má ráð fyrir að nóg verði
að gera hjá þorra þjóðarinnar
um þessa helgi. Hér að neðan
verður farið yfir opnunartíma
verslana og helstu tónleika til að
auðvelda mönnum skipulagn-
inguna.
Verslanir
Það verður hægt að versla fram
til kl. 22 alla daga fram að Þor-
láksmessu í Kringlunni en þann
dag verður hægt að versla til kl.
23. A aðfangadag er opið ld. 9-
12. Og það er ekki lyftutónlistin
ein sem ómar um Kringluna
þessa daga því ýmsir listamenn
hafa verið fengnir til að spila
fyrir viðskiptavini. Bíleigendum
er bent á að búið er að fjölga
bílastæðum við Kringluna. Nýtt
stæði hefur verið malbikað bak
við Sjóvá-AImennar. Þá er
Kringlugestum heimilt að Ieggja
við Morgunblaðshúsið, Hús
verslunarinnar, Verslunarskól-
ann og Viðskiptaháskólann.
I miðbænum verður einnig
mikið um að vera. Verslanir eru
opnar eins og í Kringlunni, þ.e.
til 22 öll kvöld fram að jólum
nema til ld. 23 á Þorláksmessu.
Jólasveinarnir. þrettán verða á
vappi milli ld.14 og 18 um helg-
ina en kl.16-18 eftir helgi. Þá
verða kórar, kvartettar, Iúðra-
sveitir, blásaraflokkar og önnur
Flestar verslanir í Kringlu og í miðbænum verða opnar til kl.22 fram að jólum, nema til kl. 23 á Þorláksmessu að venju.
tónlistaratriði víðs vegar um bæ-
inn öll kvöld fram að jólum.
Uppákomur verða á þriðja
hundrað og helstu viðkomustað-
ir tónlistarmanna og skemmti-
krafta eru Sautján, Barónstorg,
Laugatorg, Dressmann, Flug-
leiðir, Bankastræti og Lækjar-
torg. Þá verða jólatónleikar bæði
laugardag og sunnudag kl.16-18
á Ingólfstorgi.
Frítt er í öll bílastæðahús eftir
kl. 18 öll kvöld en þau eru; Berg-
staðir við Bergstaðastræti, neð-
arlega á Vesturgötu, á móti
Þjóðleikhúsinu, í gamla Kola-
portinu og við Vitatorg fyrir neð-
an Kjörgarð.
Tónleikarnir
Skólakór Kársness og Dómkór-
inn munu sameinast um kvöld-
stund í Hallgrímskirkju í kvöld
kl. 22 (sum sé eftir að búðir
loka). Dagskráin heitir Jóla-
söngvar ú aðventunni og syngja
þær Sigrún Þorgeirsdóttir og
Anna Sigríður Helgadóttir ein-
söng. Tónleikunum lýkur með
fjöldasöng, ókeypis er fyrir börn
og miðinn kostar 500 kr. fyrir
fullorðna.
I kvöld kl. 23 verða Jólasöngv-
ar kórs Langholtskirkju en með
kórnum stíga á svið einsöngvar-
arnir Olöf Kolbrún Harðardóttir,
Olafur Kjartan Sigurðarson,
Halldór Torfason og Regína
Unnur Olafsdóttir. Tónleikarnir
verða endurteknir á sama tíma á
morgun en kl. 20 á sunnudag.
Á morgun ld.15 heldur Sin-
fóníuhljómsveit Islands jólatón-
leikana sína í Háskólabíó. Þar
verður einvalalið samankomið til
að skapa hátíðlega stund, m.a.
Diddú, Drengjakór Laugarnes-
kirkju og Skólakór Garðabæjar
og er efnisskráin stútfull af há-
tíðleika. Margrét Ornólfsdóttir,
kynnir, les jólaguðspjallið og svo
verður íjöldasöngur á sálmunum
Nóttin var sú ágæt ein, Frá
Ijósanna hásal og Heims um ból.
Bamasöngur og pakkar
Risakórverðurí tröpp-
umAkureyrarkirkju á
sunnudag. v
Lokahnykkurinn í söfnun jóla-
gjafa handa börnum í Banja
Luka f Bosníu verður á sunnu-
daginn en þá mun barnakór 5-
12 ára krakka úr grunnskólum
Akureyrar syngja nokkur jólalög
á tröppum Akureyrarkirkju; Ég
sá mömmu kyssa jólasvein, Það á
að gefa bömum brauð, Bjart er
yfir Betlehem, Þá nýfæddur Jesús
og Heims um ból. Prestar munu
leiða friðarbæn. Að söng loknum
munu börnin arka í skrúðgöngu
inn á Norðurpól þar sem síðustu
pakkarnir verða settir í gámana.
Börn sem ætla að taka þátt í
athöfninni eru beðin um að
koma að kirkjutröppunum um
klukkan 18 en söngurinn hefst
klukkan 19. Fólki er bent á að
taka með sér kyndla eða kerti til
að auka á hátíðarblæ stundar-
innar.
Jólasögur og brúðuleikhus
á myndbandi
Þá hefur einnig verið gefið út
myndbandið „Jólaævintýri á
Norðurpólnum" en það inni-
heldur skemmtilegar jólasögur
og brúðuleikhús fyrir börn. Á
myndbandinu eru brot úr dag-
skrá jólasveinsins á Norðurpóln-
um þar sem jólasveinninn segir
börnunum skemmtilegar jóla-
sögur og sýnir þeim brúðuleik-
hús um Grýlu, Leppalúða og
jólasveinana þrettán. Sögurnar
eru ómyndskreyttar, en jóla-
sveinninn er í mynd og á því al-
gjörlega hug barnanna meðan á
lestrinum stendur á sjónvarps-
skjánum.
Ágóði af sölu myndbandsins
rennur til styrktar á sendingu
jólapakkanna til barnanna í
Bosníu, en myndbandið er til
sölu á Norðurpólnum, í Nettó-
verslunum KEA á Akureyri og
Reykjavík og í Blómavali.
Mikið af pökkum hefur þegar
borist, og það víða að af land-
inu, en íslandsflug og Flutn-
ingamiðstöðin sjá um að koma
pökkunum frá íslenskum börn-
um frítt á Norðurpólinn áður en
þeir verða fluttir til Bosníu. Jöfn
og stöðug aðsókn hefur verið á
Norðurpólinn.
UM HELGINA
Afgreiðslutími
verslana
á Akureyri
Verslanir verða almennt opn-
ar á Akureyri til klukkan tíu í
kvöld og klukkan 10-22 á
morgun, laugardag. Á sunnu-
dag verður afgreiðslutíminn
almennt kluklcan 13-18. Á
mánudag og þriðjudag verður
opið til klukkan 22 en á þor-
láksmessu til klukkan 23 og
klukkan 9-12 á aðfangadag.
Fram að jólum verður
Norðurpóllinn opinn sem hér
segir:
föstudagurinn 18. kl. 13-22,
laugardaginn 19. kl. 10-22,
sunnudaginn 20. ld. 13-18,
mánudaginn 21. kl. 10-22,
þriðjudaginn 22. kl. 10-22, á
þorláksmessu kl. 10-23.
Lokað verður á aðfangadag.
Hreingjömingur -
jólagjöftilAkur-
eyringa
Anna
Ric-
hards-
dóttir
sem
vakið
hefur
vegfar-
endur
til vit-
undar
um
hús-
móð-
ur-
störfin
fleira með hreingjörningi sín-
um í göngugötunni á Akur-
eyri flesta föstudaga síðan í
haust verður á sínum stað á
sínum tíma, þ.e. klukkan
16.30 í dag í göngugötunni. I
þetta sinn verður hún með
„jólagjöf til Akureyringa" og
með henni verða hljóðfæra-
leikararnir Karl Petersen slag-
verksleikari og Wolfgang
Frosti Sahr saxófónleikari. Að
svo búnu tekur Anna sér frí í
hálfan mánuð.
Megasukk
áHominu
Það verður einhvers konar
samfagnaður á Horninu í
Hafnarstræti (Rvík.) kl. 20 á
sunnudagskvöldið sem hald-
inn er undir titlinum Jól á
jörðu og kostar 600 kr. inn.
Þar verða m.a. Megasukk
(=Megas+Súkkat), Pollock
Bros., Birgitta Jónsdóttir,
Stína Bongo, Guðrún Eva
Mínervudóttir, Auður Jóns-
dóttir, Sneak Attack og
Tanya.
V______________________/