Dagur - 18.12.1998, Blaðsíða 6
22-FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998
1M&.
fjör
Meistari Jakob
Hópurinn sem átti aðsetur í Listhúsi 39 í
Hafnarfirði, plús 3 nýir listamenn, hafa
flutt sig í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltek-
ið að Skólavörðustíg 5. Þar opnaði 11
listamanna hópur nýlega listhúsið Meistari
Jakob og verður þar til sölu grafík, vatns-
litamyndir, olíumálverk og veflist auk ým-
issa nytjahluta úr gleri og leir, Listamenn-
irnir sjálfir skiptast á um að sitja yfir í búð-
inni enda meiningin að halda kostnaði í
lágmarki og sem bestum tengslum við
kaupendur. Listamennirnir eru Aðalheiður
Skarphéðinsdóttir, Anna Sigríður Sigurjónsdóttir, Auður Vésteinsdóttir,
Elísabet Haraldsdóttir, Guðný Hafsteinsdóttir, Hjördís Frimann, Jean
Antoine Posocco, Kristín Geirsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Sigríð-
ur Ágústsdóttir og Þorbjörg Þórðardóttir.
Jól á Pól
Meðal þess sem á dagskrá verð-
ur á Norðurpólnum á Akureyri um
helgina: Föstudagur klukkan 17:
Barnakór Norðurpólsins syngur
nokkur jólalög.
Laugardagur: Klukkan 14.30 og
16.30: Verðlaunasögur úr „Sögu-
skjóðunni", jólasögukeppni JC Akureyrar og Norðurpólsins lesnar
upp. Verðlaunaafhending klukkan 16.30. Kór Akureyrarkirkju syngur
klukkan 15.00. Akureyrarkirkja verður öllum opin frá klukkan 18 og
fram á kvöld. Þangað geta allir leitað í frið og ró frá erilsömum jóla-
undirbúningi og hlustað á undurfagran kórsöng og klassíska tónlist.
Sunnudagur: Friðarljós tendruð á Akureyri klukkan 18. Þess er óskað
að allir íbúar á Akureyri tendri friðarljós til að minna á að víða um
heim eru börn sem um sárt eiga að binda vegna stríðsátaka, hung-
urs og náttúruhamfara.
André Tribbensee í
Deiglunni
Fjöllistamaðurinn André Tribbensee frá
Hamborg oþnar sýningu á verkum sínum í
Deiglunni laugardaginn 19. desember klukk-
an 16.00. Verk Andrés eru hluti afraksturs af
vinnu hans og viðhorfum til náttúrunnar.
Hann dvelur nú í gestavinnustofu Gilfélags-
ins og heldur áfram vinnu sinni við verkefni
sem hann hóf 1997 á íslandi og felst í at-
hugun á norður-evrópskum eyðisvæðum en
einnig tengir hann inn í listsköpun sína þau búsetuskilyrði sem fólk í
stærri borgum í Mið-Evrópu lifir við án þess að eiga kost á beinni
snertingu við móður jörð. Við slíkar aðstæður býr André sjálfur og
þangað sækir hann efnivið sinn líka. Ljósmyndir af verkum hans og
viðfangsefnum eru uppistaðan í sýningunni í Deiglunni en henn lýkur
30. desember og er opin daglega klukkan 14-18.
■ HVAD ER Á SEYÐI?
Með Chantibic í ísskápnum
áttþú alltaf gómsætan
rjóma tilbúinn við öll
tœkifœri - ekkert mál.
Ljúffengur rjómi við
öll tœkifœri
Alltaf tilbúinn í ísskápnum
Lágt kólesterólinnihald
Náttúrulegur jurtarjómi
- ekta rjómabragð
Góðurfyrir línurnar
Handhœgar umbúðir
Gott geymsluþol
Fáðu þér
Chantibic
jurtarjóma
í ncestu búð
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Happdrætti Bókatíðinda
Vinningsnúmer í happdrætti Bókatíð-
inda 18. desemher er: 80.036.
Félag eldri borgara Ásgarði
Dagskrá Félags eldri borgara í Asgarði:
Göngu-Hrólfar fara í létta göngu kl.
10 á laugardag. Jólatrésskemmtun í
Asgarði verður haldin 30. des. kl. 16,
skrásetning í síma 588-211 1. Skrif-
stofa félagsins verður lokuð frá 21.
des. opnuð aftur 4. janúar.
Félag eldri borgara Þorraseli
Lokað í Þorraseli í dag. Jólagleði á
morgun kl. 14. Sr. Öm Bárður Jónsson
sér um jólahugvekju. Sigurbjörg
Hólmgrímsdóttir Ieikur á píanóið og
leiðir söng. Barnakór Austurbæjarskóla
syngur. Guðlaug Hróbjartsdóttir les
jólasögu og Anna Jónsdóttir ljóð. Kaffi,
heitt súkkulaði og meðlæti.
Ferðafélag íslands
Sunnudagur 20. des kl. 10.30. Göngu-
ferð á Kerhólakamb Esju um vetrarsól-
stöður. Aramótaferðin í Þórsmörk
30.12 - 02.01. Nú er hver að verða
síðastur að panta miða í þessa ein-
stæðu ferð. Góð gisting í Skagfjörðs-
skála.
Amal og næturgestirnir
Laugardaginn 19. desember kl. 17
verður Amal og næturgestirnir eftir
Menotti sýnt í Neskirkju. Aðgöngu-
miðar kosta kr. 1500 fyrir fullorðna en
800 fyrir börn.
Við Tjörnina
I herbergi nr. 8 á veitingastaðnum „Við
tjörninau er nú til sýnis myndröð eftir
Rúnu Þorkelsdóttur, sem ber heitið
EYJA. Myndröðin er unnin með olíu-
litum á ljósrit og unnin samhliða bók-
verki með sama heiti. Opið alla daga
kl. 14 - 19 í desember en einnig er vel-
komið að panta borð í herberginu.
Gallerí NEMA HVAÐ
Auður Sturludóttir og Asdís Arnardótt-
ir opna sýningu á verkum sínum í
Gallerí Nema Hvað, föstudaginn 18.
desember kl. 18. Auður og Ásdís eru
nemendur á 3. ári í Myndlista- og
handíðaskólanum. Verkin eru bæði
unnin á pappír og striga og olía og Iita-
duft er notað. Sýningin stendur yfir til
4. janúar og er á Skólavörðustig 22C.
Jólamessa á ensku í Hallgíms-
kirkju
Undanfarin þrjátíu og fimm ár hefur
verið hefð að halda sameiginlega guðs-
þjónustu fyrir enskumælandi fólk, fjöl-
skyldur þeirra og vini. I ár verður hún
haldin í Hallgrímskirkju, sunnudaginn
20. desember kl. 15.
Málstofa í efnafræði
Einar Karl Friðriksson efnafræðingur,
efnafræðideild Cornellháskóla, Iþöku,
NY, flytur erindi á málstofu efna-
fræðiskorar í dag föstudaginn 18. des-
ember kl. 12.20 í stofu 158, húsi VR-
II við Hjarðarhaga. Erindið nefnist:
Rannsóknir á IgE mótefni og lípíðum
með Fourier transform massagreini.
Allir velkomnir.
sU Hjá okkúr er hagstætt J
verð á jólasteiKinni ♦
Bayonneskinka
Hamborgarahryggur
Grísakambur úrbeinaður
Hangilæri með beini
Hangilæri úíbeinaó
Hangiframpartur úrbeinaður
Ný tilboð alla daga
Jólapappír og jólaskraut
Alltaf eitthvaö fyrir jólasveininn aó setja í skóinn
Heimsendingarþjónusta
Greiðslukortaþjónusta
VERSLUNIN ESJA - Strandgötu 37 - Akureyri - Sími 462 2676
1.082 kr/kg
1.299 kr/kg
1.122 kr/kg
948 kr/kg
1.352 kr/kg
1.043 kr/kg
LBOÐ
ii
• Wisoll Brandy 150 gr kr. 199 pk.
• Lindu konfekt 1 kg kr. 1398 pk.
• Klementínur 2,5 kg kr. 389 kassinn
• 15% afsláttur af öllum snyrtivörum í kjallara til Jóla
Ath. opið laugardag til kl. 22 og sunnudag frá kl. 13 til 18
Úr Kjötborði
KEA Hamborgarhryggur
Hrísalundar graflax
Grillaður kjúlingur
KEA Hangilæri
KEA Hangiframpartur
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
1279 kg
1298 kg
498 stk
1224 kg
747 kg
\ AJ í 4 i
• i < -- . •f-i 't
- fyrir þig!
^f^TjTTT f * t 4