Dagur - 18.12.1998, Page 8
24- FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 199 8
■ HVAB ER Á SEYÐI?
SDagfur
Hafnarfjörður í hátíðarskapi
Nú er komið að fjórðu og síðustu
aðventuhátíðinni í Hellisgerði í
Hafnarfirði. A hátíð ljóss og friðar
Qalla Gunnar og Felix um vináttu-
boðskap jólanna, einnig verður at-
riðið úr hinum vinsæla barnasöng-
leik Avaxtakörfunni og Skrýtla og
trúðurinn Barbara hugsa upphátt
um lífið og tilveruna, en þar eru þær
Ólafía Hrönn og Halldóra Geir-
harðsdóttir á ferðinni. Flensborgar-
kórinn syngur jólalög og Jóla-
drengirnir koma syngjandi með
kynninum Ólafi Þórðarsyni (Ríó
Tríó). Þórhallur Heimisson prestur í
Hafnarfjarðarkirkju verður með hug-
vekju og hver veit nema að Kerta-
sníkir renni á kertalyktina. Dagskrá-
in hefst kl. 15.
Æðruleysismessa í Dómkirkj-
unni
Sunnudagskvöldið 20. desember verð-
ur helgistund tileinkuð þeim er leita
eftir tólsporaleiðinni að bata í áfengis-
sýki sinni eða sinna nánustu. Edda
Borg syngur jólalög við undirleik
Bjöms Thoroddsen, Bjarna Svein-
björnssonar og Gunnars Gunnarsson-
ar. Sr. Jakob Agúst Hjálmarsson flytur
hugleiðingu, sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir annast bænagjörð og sr. Jóna
Hrnn Bolladóttir leiðir samkomuna.
Dómkirkjan opnar kl. 20 til þess að
fólk hafi tækifæri til að fá sér kaffisopa
og spjall á undan og í lok helgistundar-
innar verður veitt blessun og jólaljósið
tendrað.
Skítamórall hingað og þangað
Hljómsveitin Skítamórall verður á ferð
og flugi næstu dag spilandi og áritandi.
A sunnudaginn árita þeir nýútkomna
bók sína í Músík og myndum Mjódd
frá kl. 14 - 15. Á mánudaginn árita
þeir í Samtónlist í Kringlunni frá kl.
14- 15.
LANDIÐ
Skítamórall hingað og þangað
Hljómsveitin Skítamórall verður á ferð
og flugi næstu dag spilandi og áritandi.
A sunnudagínn árita j>cír nýútkomna
bók sína í Músík og myndum Mjódd
frá kl. 14 - 15. Á mánudaginn árita
jjeir í Samtónlist í Kringlunni frá ld.
14 - 15.
Jólatónleikar Tónmenntaskólans
Jólatónleikar Tónmenntaskólans á Ak-
ureyri verða laugardaginn 19. desem-
ber kl. 13.30 í Lóni, Hrísalundi 1 a.
Yngri og eldri nemendur koma fram og
leika jólalög og aðra tónlist á hin ýmsu
hljóðfæri. Allir eru velkomnir.
Kórakvöld í Keflavíkurkirkju
Á sunnudagskvöldið verðuf kórakvöld í
Keflavíkurkirkju. Þar munu þrír kórar
sem allir starfa í Keflavík flytja tónlist
tengda aðventu og jólum. Aðgangur er
ókeypis.
í göngugötunni
Anna Richards gerir jólahreingerningu
1 göngugötunni á Akureyri f dag milli
kl. 16.30 og 17.
Pétur Gautur
Sýning á leikritinu Pétur Gautur er nú
í fullum gangi hjá Leikfélagi Akureyrar.
Súkkat íIðnó
Sá rammíslenski dúett Súkkat heldur útgáfutónleika sína í hinu rammreykvíska
Iðnó annað kvöld. Diskurinn nýi, sem hlaut nafnið Ull, hefur fengið afbragðsfína
dóma og m.a.s. verið kallaður sá besti af þremur plötum þeirra og mun þá
miklu til jafnað enda hefur þjóðin fallið kylliflöt fyrir nokkrum lögum þeirra félaga.
Dúettinn skipa þeir Hafþór Ólafsson og Gunnar Örn Jónsson en þeir verða ekki
einir á sviðinu í Iðnó. Þangað mæta og spila með þeim Rúnar Marvinsson, yfir-
kokkur í Iðnó, Birgir Bragason, Gunnar Erlingsson, Kommi, Guðlaugur Óttars-
son, Lárus Grímsson, Hörður Bragason, Gísli Víkingsson, Eyjólfur Alfreðsson,
Einar Pálsson og Jens Hansson.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og kostar miðinn 1200 kr.
wwwvisir is
FYRSTUR WIEÐ FRÉTTIRNAR
mælirmeð...
• •• frumlegum jólagjöfum. Finnið eitthvað sem ekki er aug-
lýst, ekki á tilboði, ekki venjulega gefið í jólagjöf.
• •• glögg og gleði en gleymum þó ekki að taka bara leigubíl
heim ef þannig stendur á. Þú tryggir ekki eftirá.
• • • söng barnanna í kirkjutröppunum á Akureyri á sunnudag
klukkan 19.00. Þeir sem ekki eru komnir í jólaskapið nú þegar
ættu að útbúa sér kyndil og lýsa upp skammdegið um leið og
hlustað er á börnin syngja jólalögin í tröppunum.
• •• jólapökkum fyrir bágstadda og ekki bara jólapökkum,
heldur alvöru stuðningi við líknarfélög sem styðja við og hjálpa
bágstöddum lyrir og um jólin.
• • • fallegum myndum Frans Widerbergs á efri hæð Café Kar-
ólínu. Tíu skemmtilegar litógrafíur tengdar Pétri Gauti eftir
Henrik Ibsen.
• • • tillitssemi, jafnt í umferðinni, verslunum og öðrum stöð-
um þar sem örtröðin verður um þessa síðustu helgi fyrir jól þegar
allir þurfa að gera allt ... í einu. Brosum til þeirra sem eru á und-
an okkur í röðinni og bíðum glöð og róleg eftir því að röðin komi
að okkur. Gefum sjéns í umferðinni. Verum glöð.
Hi/að er á seyði?
Tónleikar, sýningar,
fyrirlestrar o.s.frv...
Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbréfi eða hringdu.
ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100
feþkb .úib. Kfiugöjí go ngiHiut -^ynil'jíjíí
Frans Widerberg
Á efri hæð Café Karólínu á Akureyri hefur verið sett upp sýning á verkum eftir einn
þekktasta núlifandi listamann Noregs, Frans Widerberg. Litógrafíurnar tíu sem
sýndar eru á Café Karólínu byggir Widerberg á efni leikritsins um Pétur Gaut eftir
Henrik Ibsen. Sýningin er sett uþp fyrir tilstilli norska sendiráðsins í Reykjavík í til-
efni af uppfærslu Leikfélags Akureyrar á verkinu.
Widerberg sækir efnivið sinn í eftirfarandi atriði úr verkinu: Pétur segir móður
sinni frá hreindýrsreiðinni (úr 1. þætti), brúðarránið (úr 2. þætti), dauði Ásu (úr 3.
þætti) og Pétur Gautur hittir Anítru (úr 4. þætti). Ætlunin er að sýningin standi allan
þann tíma sem Pétur Gautur verður á fjölum Samkomuhússins.
2f
VÍKINGI
vikun. 18. des. til 24. des.
Stjómandi listans er j
iÞróinn Bjömsson
slR. LAG FLYTJANDI
í Erase / rewind Cordigans
2 When you are gone Brian Adams & Mel C
3 1 Love the whay you love Boyzone
4 Tripicolia Beck
5 Fly amay Lenny Kravitz
6 Ástarfór Land og synir A*
7 Bíddu pobbi Sóldögg
8 Last Cristmas Rap Allstar
9 II you by this record The Tamperer
10 Until the time is through Five
11 Malibu Holes
12 Travel to ramantic Ase of base
13 Enjoy yourself A+
14 Would you Touch and go A*
15 If 1 ever Tanita Tikaram
16 Big Big World Emilia
17 Ninety nine John Forte
18 Goodby Spicegirls
19 Breyttir tímar Á móti sól An
20 Falling apart Bang Gnng 1
VIKA AIISTA
16
Listinn er spilaður á föstudögum milli kl. 20 og 22
Hlustaðu á Frostrásina í beinni á internetinu http://nett.is/frosrasin 1
E-maiL frostras@nett.is • Stjórnandi listans er Þráinn Brjánsson
tkUQLtt
iíIíOOÍi
tiiriua^