Dagur - 05.01.1999, Page 13

Dagur - 05.01.1999, Page 13
 ÞRIBJUDAGUR S. JANÚAR 1999 - 13 ÍÞRÓTTIR Þrjú úrvalsdeildarlid fallin úr bikarkeppn in n i Japp Stam, leikmaður Manchester United, í baráttu um boitann við Brian Deane hjá Middlesbrough. Markalaust jafnteili Leeds gegn utan- deildaliðinu Rushden & Dimond. Sout- hamton stálheppið á móti FuIIham. West Ham fær annað tæki- færi á móti Swansea. Owen með sögulegt mark á Vale Park. Mörg undarleg úrslit litu dagsins ljós í þriðju umferð ensku bikar- keppninnar um helgina. Uppúr stendur þó 0-0 jafntefli Leeds við utandeildaliðið Rushden og Dimond. Leeds, í toppbaráttu úrvalsdeildarinnar, hafði skorað 21 mark í síðustu átta leikjum sínum en nú var það hunda- heppni sem færði þeim aðra til- raun, á Elland Road, til að fram- lengja líf sitt í bikarnum. Utandeildaliðið, sem er 90 sæt- um á eftir Leeds, í ensku deild- unum, var mun sterkara í fyrri hálfleik og átti þá m.a. skot í stöng og hefði getað gert út um leikinn. „Svona eiga bikarleikir að vera,“ sögðu þjálfarar liðanna, Brian Talbot og David O’Leary, sem urðu bikarmeistarar með Arsenal fyrir 20 árum. O’Leary bætti við að hann reiknaði með að sitt lið ætti meiri möguleika á heimavelli sínum í næsta leik. Eyðumerkurganga Forest heldur áfram Þrjú úrvalsdeildarlið félllu út úr bikarnum í þriðju umferðinni. Nottingham Forest mátti þola enn eina niðurlæginguna þegar Portsmouth kom, sá og sigraði, 0-1, á City Ground í Notting- ham. Dave Basset, stjóri Forest, sagði upp eftir leikinn en seinna var sú uppsögn dregin til baka. Charlton og Middlesbrough fylgja Forest út úr keppninni eft- ir töp gegn Blackburn og Manchester United. Blackburn er á rjúkandi siglingu þessar vik- urnar og fór Iétt með 2-0 sigur á Charlton. Manchester United þurfti hins vegar að hafa veru- Iega fyrir 3-1 sigri sfnum á Midd- lesbrough, sem náði forystu í leiknum eftir enn ein mistökin hjá Jaap Stam, sem bjó til mark- tækifærið fyrir Andy Townsend, þegar hann sat eftir þegar aðrir varnarmenn gerðu Townsend rangstæðan. Hundaheppni bjargaði Sout- hampton frá niðurlægingu á heimavelli sínum, The Dell, þeg- ar Kevin Keegan mætti með sína menn í Fullham á svæðið. Egil Östenstad náði að jafna leikinn, 1-1, liggjandi á vellinum á loka- sekúndunum. Southampton fær því annað tækifæri til að ldekkja á Keegan, fyrrum stórstjörnu sinni, í London. Pylsuárás á Durkin dómara Chelsea átti ekki í teljandi vand- ræðum með annarrardeildarlið Oldham. En 0-2 sigurinn var samt ekki án dramatíkur. Paul Durkin, dómari leiksins, varð fyrir sérkennilegri árás þegar hann bar saman bækur sínar við aðstoðardómara. Pylsu, með öllu tilheyrand,i var kastað í hann frá stúkunni. „Mér brá skelfilega þegar ég fann bleytuna, strauk hnakkann og sá „blóð“, sem bet- ur fer reyndist aðeins vera tómatsósa þegar betur var að gáð,“ sagði Durkin, sem fékk lög- reglufylgd í burtu eftir leikinn. Arásin verður Oldham að öllum líkindum mjög dýrkeypt. Watford náði forystunni á White Hart Lane en það dugði ekki til. Tottenham vann góðan sigur, 5-2, sem hefði getað orðið mun stærri ef Norðmaðurinn Steffen Iversen hefði notað öll færi sín til fullnustu. Hann lét sér nægja tvö mörk í stað fimm eftir færunum. Michael Owen skoraði sögu- Iegt mark gegn Port Vaie þegar hann setti inn sitt fyrsta hikar- mark, úr vítaspyrnu. Leikurinn var reyndar fyrsti bikarleikur Owens sem nú hefur skorað í öllum keppnum sem hann hefur tekið þátt í. Annars einkenndist Ieikurinn af fautagangi heima- manna á Vale Park. Öwen var sárt leikinn og jafnan með tvo öskupoka á sér hvar sem hann var á vellinum. Það dugði þó ekki til þegar hann lagði upp fal- legasta mark leiksins, sem Fowler skoraði á síðustu mínútu, eftir snilldarleik táningsins. Þrjú núll sigurinn var auðsóttur. Stórleikur fjórðu umferðarinn- ar verður því á Old Trafford þar sem Manchester United tekur á móti sérstökum vinum sínum, Liverpool. — GÞÖ Enski bikamm 3. umferd Wimbledon - Man. City 1-0 Coventry - Macclesfield 7-0 Aston Villa - Hull 3-0 Oldham - Chelsea 0-2 Blackburn - Charlton 2-0 Leicester - Birmingham 4-2 Southampton - Fulham 1-1 Cardiff - Yeovil 1-1 Lincoln - Sunderland 0-1 Nott. Forest - Portsmouth 0-1 Rotherham - Bristol Rov. 0-1 Newcastle - Cr. Palace 2-1 Bolton - Wolves 1-2 Bradford - Grimsby 2-1 Bristol City - Everton 0-2 Crewe - Oxford 1-3 Bournemouth - WBA 1-0 West Ham - Swansea 1-1 Tottenham - Watford 5-2 Rushden & Dim. - Leeds 0-0 QPR - Huddersfield 0-1 Plymouth - Derby 0-3 Bury - Stockport 0-3 Sheffield Wed. - Norwich 4-1 Man. Utd - Middlesbr. 3-1 Port Vale - Liverpool 0-3 Wrexham - Scounthorpe 4-3 Tranmere - Ipswich 0-1 Southport - Leyt. Orient 0-2 Sheff. Utd - Notts County 1-1 Swindon - Barnsley 0-0 4. umferð Sheff. Wednesday/Norwich - Stockport Wolves - Preston Bristol Rov. - Leyton Orient Wrexham - Huddersfield Portsmouth - Rushden & Dimon/Leeds Oxford - Chelsea Sheff. Utd/Notts County - Cardiff/Yeovil Swindon/Barnsley - Bournemouth Newcastle - Bradford Leicester - Coventry Aston Villa - Southampton/Fulham Blackburn - Sunderland West Ham/Swansea - Derby Man. Utd - Liverpool Wimbledon - Tottenham Everton - Ipswich Knattspymuhetjiir í synd og sköntm Paul Gascoigne er ókrýndur viUikóngur enska boltans. Jóla- gleði knattspymn- manna engar jólatrés- skemmtanir. Mælir- inn íulliir segir enska knattspymusamband- ið. Enskir knattspyrnukappar hafa verið iðnir við að verða sér til skammar undanfarna mánuði, bæði innan vallar og ekki síður utan þeirra. Nú síðast var það Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, sem setti ljótan blett á lið sitt að mati stjórnarmanna Liverpool. Hegðun knattspyrnu- manna í Englandi hefur verið áhyggjuefni enska knattspyrnu- sambandsins í langan tíma og það hvatt félögin til að taka hart á málum þar sem leikmenn, með ósæmilegri framkomu sinni skaða orðstír íþróttarinnar. Nú er svo komið að mælirinn er fullur og enskir áhugamenn um bolt- ann eru búnir að fá nóg af hegð- un nokkurra Ieikmanna. Þar fór að sjálfsögðu fremstur gleðipinn- inn hjá Middlesbrough, Paul Gascoigne, sem nú hefur lofað sjálfum sér og öðrum bót og betr- un á hegðun sinni. Hér á eftir fylgja nokkur dæmi um fáránlega hegðun fyrirmynda ungviðsins, knattspyrnuhetja í ensku úrvals- deildinni. Október 1997 Sjónvarpsstjarnan Davinia Murphy var send alblóðug á sjúkrahús eftir að fyrrum kærasti hennar, knattspyrnumaðurinn Ryan Giggs hjá Manchester United, hafði brotið á henni nef- ið. Það sem fór fyrir brjóstið á Giggs var að hún hafði fundið sér annan vin. Nóvember 1997 Paul Gascoigne, sem þá lék með Glasgow Rangers, var kærður til lögreglu fyrir að míga á fyrrum félaga sinn hjá Rangers, Danann Erik Bo Andersen. Maí 1998 Gascoigne til vandræða á tveggja daga fylleríi með rokkstjörnunni Rod Steward. Kærður fyrir að hella úr bjórglösum yfir bargesti auk þess að fara niðrandi orðum um fólk. Júní 1998 David Seaman hjá Arsenal og Paul Ince hjá Liverpool urðu að beita sauðdrulckinn Gascoigne valdi til þess að hindra að hann gengi í skrokk á Glenn Hoddle landsliðsþjálfara. Astæða ætlaðr- ar árásar var að Hoddle hafði rekið Gazza úr landsliðshópnum. Júní 1998 Vandræðagemlingurinn hjá Aston Villa, Stan „The Man“ Collymore, barði kærustu sína, Ulriku Johnson, til óbóta á veit- ingahúsi í París. Gestir hússins höfðu náð að stöðva Stan áður en lögreglan kom á staðinn og handtók kappann. Ágúst 1998 Sheryl Failes, eiginkona Paul Gascoigne, heimtar skilnað frá kappanum eftir að hann hafði margsinnis gengið í skrokk á henni. Hin 33 ára gamla eigin- kona hafði fengið nóg af drykkju- skap og ólifnaði hetjunnar. Október 1998 Góðvinur Paul Gascoigne sækir hann meðvitundarlítinn, grát- andi og skjálfandi á járnbrautar- stöð er hann kom heim eftir fjögurra daga gleðireisu til Ir- lands. Knattspyrnumaðurinn var lagður á sjúkrahús þar sem hann afréð ganga nú út af hinum breiða vegi Bakkusar og feta hinn þrönga veg dyggðanna. Sú ganga gengur vel sem stendur og verður vonandi löng. Jólin 1998 Southamptonleikmaðurinn, Matt Le Tissiér fluttur á sjúkra- hús eftir að gestur á veitingahúsi hafði barið hann í hausinn með bjórkönnu. Astæða árásarinnar var að gestinum Iíkaði ekki að Le Tissier daðraði við fáklædda feg- urðardís er liðsmenn fögnuðu einum af fáum sigrum sínum. Jólin 1998 West Ham leikmennirnir Travovr Sinclair og Neil Ruddock, hand- teknir og látnir dúsa í dyflissu eftir að hafa ráðist á tvítuga feg- urðardís á bláum Mini. Stúlkan átti leið framhjá næturklúbbnum þar sem leikmenn West Ham fögnuðu jólunum. Jólin 1998 Jamie Carragher tekur eina af nektardansmeyjunum, sem leik- menn Liverpool höfðu fengið til að skemmta á jólafagnaði sínum, á löpp. Tveir af þeim áttatíu gest- um sem boðið var á fagnaðinn fengu sér einnig smá hopp hjá dömunum. „Live Show“ félag- anna var ekki á dagskrá skemmt- unarinnar og fór mjög fyrir brjóstið á fyrirliðanum, Paul Ince, og fleiri leikmönnum. Ekki fer sögum af því hvort tví- menningarnir sem nutu ásta með dansmeyjunum voru Roy Evarv og Doug Livermore, cn þen heiðruðu leikmennina með nær- veru sinni. Enginn af núverandi leiðtoguui !,/'nfins var á staðn- lim. - GÞÖ

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.