Dagur - 07.01.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 07.01.1999, Blaðsíða 2
2 - FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 Tfgptr FRÉTTIR HLustuni framvegis á veðiirfiréttimar Jim Rogers við bílinn góða sem mun skila honum og unnustu hans, Paige Parker, um heiminn á næstu þremur árum. Undirvagninn er af Benz-jeppa en yfirbyggingin af nýrri SLK-sportbifreið af Benz-gerð. Verð bílsins er ekki undir 30 milljónum króna, væri hann falur. mynd: brink Ferðin hafin á íslandi vegna þess að hér er vest- asti hluti Evrópu og héð- an kom Leifur Eiríksson sem fann Ameríku. Bandaríski milljónamæringurinn Jim Rogers, sem hóf þriggja ára ökuferð sína um heiminn á Þingvöllum á ný- ársdag, kom til Akureyrar ásamt unn- ustu sinni, Paige Parker, á miðvikudag eftir að hafa lent í nokkrum hrakning- um á leiðinni frá Egilsstöðum til Möðrudals. Ferðinni lýkur í New York 31. desember árið 2001. Á leið til Möðrudals festist bíllinn og þurfti hann að fá aðstoð björgunarsveitar til að komast aftur til Egilsstaða. Þaðan hélt hann aftur af stað á miðvikudag þegar veður hafði gengið niður. Jim segir ökuferðina á mánudeginum hafa verið eina þá erfiðustu sem hann hafi farið en þegar hann hafi komist upp á fjallgarðinn hafi mætt honum einhver fallegasta Qallasýn í heimi. Auk þess hafi verið mikið um ijúpu sem hann hafði frétt að væri helsti jólamatur Is- lendinga. Eina vandamálið hafi verið að björgunarbíllinn sem fylgdi þeim hafi ekið út af á leiðinni og nokkra stund hafi tekið að ná honum aftur upp á. Vestast í Evrópu „Við hefjum ferðina á Islandi vegna þess að hér er vestasti hluti Evrópu og héðan kom Leifur Eiríksson sem fann Ameríku. Jarðfræðilega kemur Evrópa og Ameríka saman á íslandi og við sáum hvaða áhrif misgengið getur haft með eldgosinu í jöklinum. Jarðfræði- lega erum við að aka í Ameríku en þó í Evrópu. Island er sennilega eina land- ið þar sem við munum þurfa að takast á við harðan vetur og snjóbyl en þó er oft hlýrra hér á vetrum en í New York. Við gerðum ráð fyrir vandamálum vegna veðurs vegna þess að við erum svo náfægt heimskautsbaugnum, en ekki svona miklum en ég hef aldrei áður ekið í snjó og byl. Við vorum vöruð við íslenskum vetri áður en við fórum frá Þingvöllum og ráðlagt að fara ekki af stað frá Egilsstöðum en tókum tókum engum ráðleggingum. Nú munum við hlusta á veðuraðvaran- ir í allri ferðinni, enda urðum við svo- fítið skelkuð, en í svona ferð verður þú fyrst og fremst að trúa að sjálfan þig,“ segir Jim Rogers. - Eigiði von ú slæmu veðri aftur í ferðinni? „Það frýs varla í eyðimörkunum en þar gæti okkur skort vatn en við gæt- um lent í stormi, jafnvel sandstormi, í Afríku, Kína og Síberíu. Á íslandi tala allir ensku og Benz er með góða um- boðsmenn en í Afríku og Ásíu gæti orðið erfitt að tala við íbúana og erfitt að fá læknisaðstoð ef hennar verður þörf. Hér eru margir sem bjóða okkur aðstoð að fyrra bragði. Það er mjög ánægjulegt." Giftumst 1. janúar 1. janúar árið 2000 ætlum við að gifta okkur, það er eitthvað svo rómantískt við það. Þá ætlum við að reyna að vera komin til Norður-Afríku, vonandi í Timbuktu en það er staður sem sveip- aður er mikilli dulúð. Paige er mér ekki sammála um staðarvalið, kannski giftum við okkur í Casablanca." Þau Jim og Paige segjast ætla að koma aftur til íslands, og þá að sumar- Iagi. Þeir sem hafa aðgang að Internet- inu geta fylgst með ferðalagi þeirra á slóðinni www.jimpage.com. -GG FRÉTTA VIÐTALIÐ Hræringar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík eru nú í al- gleymingi og kraumar allt í heita pottinum í sögum. Þannig heyrist úr herbúð- um Ama Þórs Sigurðs- sonar nokkur óánægja með þær fullyrðingar sem komið hafa fram í íjölmiðlum um að eftir Svavar sé Bryndís Hlöðversdóttir nokkuð örugg um að koma efst þeirra Alþýðubadalags- manna. Telja stuðningsmenn Arna Þórs að hann sé ekki síður þekktur og vel kynntur með- al Alþýðubandalagsmanna í Reykjavík og eigi því talsverðan séns á fyrsta sætinu.... Árni Þór Sigurðsson Ásta R. Jóhannesdóttir En pottverjar veita því líka athygli að Jóhanna hyggst fara fram í prófkjörinu í „hólfi“ þeirra alþýðuflokks- manna. Einn dyggasti stuðn- ingsmaður Jóhönnu frá stofnun Þjóðvaka er Ásta R. Jóhannesdóttir, sem nú er komin í mun þrengri stöðu í prófkjörinu enda líklegt að bæði Ossur og Jóhanna verði ofar en hún á lista. Ásta er því, segja menn, í raun farin að slást um 3. sætið.... Úr herbúðum stjórnarliða á Alþingi heyrist sú sögu- skýring á brotthvarfi Svavars Gestssonar úr stjórnmálum að hann sjái fram á annað kjörtímabil í stjórnarandstöðu og hafi ekki haft hug á að vera í því hlutverki Ijögur ár í viðbót. Stjórnarsinnar segja hins vegar að stjórn- arandstaðan þurfi nú að finna nýja foringja á Al- þingi, því þar hafi Svavar stýrt stjórnarandstöð- unni styrkri hendi.... Svavar Gestsson Enun að rétta af kompás- inn hjá útgerðarmonnum Guðmundur Hallvaiósson alþingismaðurog formaður Sjómannadagsráðs Sjómannadagsráð Reykjarík- ur og Hafnarfjaiðar birtu í gær auglýsingar þar sem bent er á að það séu sjómenn sem veiði fiskinn og að kvótakerfiðhafi ekki tryggtöllum sanngjama hlutdeild í sjávarútvegi. - Hvers vegna þessi auglýsing Guðmundur? „Við vorum afar ósáttir við þá auglýsinga- herferð sem Landssamband íslenskra út- vegsmanna fór í á síðari hluta Iiðins árs. Þar var þess getið að það væru fyrst og fremst útgerðarmenn sem hefðu fært ís- Iensku þjóðinni björg í bú. Eins og við bendum á í okkar auglýsingu fiskar ekkert skip bara svona eitt og sér og mannlaust. Það þarf góða áhöfn til þess að ná fiskin- um. Aflaheimildir á hvert skip eru að sjálf- sögðu til komnar á þann hátt að stuðst var við ákveðin viðmiðunarár. Það fór eftir því hvað menn höfðu fiskað hve mikill kvótinn var hjá hveijum og einum. Og auðvitað var það áhöfn hvers skips sem mestu réð um það hver útkoman var.“ - Það má þá h'ta á ykkar auglýsingu sem beint svar við auglýsingum Landssamband tslenskra útvegsmanna í haust? „Já, það er rétt að því leyti að við erum að rétta af kompásinn hjá þeim. Hann var ekki réttur. Við höldum því fram að það séu sjómennirnir sem eru undirstaða þess sem þeir voru að auglýsa án þess að þeirra væri að nokkru getið.“ - En hvers vegna eru það Sjómannadags- ráð Reykjavíkur og Hafnarfjarðar sem standa fyrir ykkar auglýsingum en ekki Sjó- mannasambandið eða stétarfélög sjómanna? „í samþykktum Sjómannadagsráðs er eitt af megin markmiðum þessara samtaka að efla samhug meðal sjómanna á Sjómanna- daginn og kynna þjóðinni hin mikilvægu störf sjómannastéttarinnar í þágu þjóðfé- lagsins, auk þess að byggja heimili fyrir aldraða sjómenn? - Þið segið í auglýsingunni að kvótakerfið hafi ekki tryggt öllum sanngjarna hlutdeild í sjávarútvegi. Eru auglýsingamar liður í kvótaátökum og deilum meðal þjóðarinnar? „Nei, við erum ekki að blanda okkur í átökin um kvótann sem slík. Við erum að framfylgja stefnu sjómannasamtakanna í Reykjavík og Hafnarfirði vegna þess að við teljum að auglýsingar Landssambands ís- lenkra útvegsmanna hafi verið villandi." - Nú kemur kvótamálið og breytingar á lögunum um stjórn fiskveiða enn og aftur til umfjöllunar á Alþingi í dag eða á morgttn. Þetta er ekkert innlegg íþá umræðu? „Nei, alls ekki og okkar auglýsinjgar voru ákveðnar löngu áður en dómur Hæstarétt- ar féll í haust. Við horfðum róglegir á aug- lýsingaherferð Landssambands íslenskra útvegsmanna í haust og ákváðum að hefja nýtt ár með því að svara þeim. Við endum okkar auglýsingar á því að óska lands- mönnum öllum árs og friðar." - Kom auglýsingaherferð útvegsmanna í haust illa við sjómenn? „Eg er alveg sannfærður um að hún pirraði sjómenn og samtök þeirra mjög og það var alveg eðlilegt. Þess vegna svöruð- um við og ákváðum að taka bara þennan eina dag undir okkar auglýsingar. Meira er ekki ákveðið og \ið ætium svo bara að sjá hverju fram vindur.“ -S.DÓR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.