Dagur - 07.01.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 07.01.1999, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 - 9 ly^ur. ið 1998 Hæstaréttar í kvótamáli Valdimars Fjórir menn hlutu þunga dóma fyrir margvísleg brot á lögum og skilorðsrof eða á bilinu frá sex upp í 15 mánaða fangelsi. Brynjólfur Jónsson, sem skömmu áður var dæmdur fyrir árásina á Engilberg Jensen, var nú dæmdur í 10 mán- aða fangelsi. Tryggvi Rúnar Leifs- son, sem var meðal sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, fékk nú 15 mánaða óskilorðsbund- inn dóm og var þar hliðsjón höfð af löngum sakaferli hans. Ofbeldi af kynferðislegum toga Sér á parti í ofbeldinu er „hunda- drápsmálið". Olafur Guðmunds- Jon var í dæmdur til að greiða 200 þúsund króna sekt fyrir að hafa orðið tíkinni Queeny að bana í Neðstaleiti 1. Hann var sýknaður áf ákæru um Iíkamsárás gegn Dag- Björtu Ingu Olsen, öðrum eiganda tíkarinnar. Sannað þótti að dánar- orsök tíkarinnar hafi verið köfnun, en hún hékk dauð í ól sinni á hurð- arhúninum innandyra hjá Ölafi þegar að var komið. Mæðgurnar eru Iluttar úr húsinu. En lítum því næst á nokkra nauðgunar- og aðra kynferðisaf- brotadóma. 38 ára karlmaður var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir kynferðis- Drot gegn ungum börnum sínum. Hann játaði sakargiftir og var dæmdur fyrir nokkur kynferðisbrot gegn 10 ára stjúpsyni sínum árið 1990 og gegn 9 ára dóttur sinni árið 1995. Reykvíkingur á sextugsaldri var dæmdur í 12 mánaða óskilorðs- bundið fangelsi fyrir að hafa not- fært sér að 3 5 ára kona var þroska- heft og verulega greindarskert og haft við hana samfarir. 32ja ára Reykvíkingur var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa haldið þroskaheftri konu nauðugri á heimili sínu, handjárn- að hana og nauðgað. Konunni kynntist maðurinn á vínveitinga- húsi fyrr um nóttina. Reykvíkingur var dæmdur í 8 mánaða fangelsi fyrir að hafa haft við konu holdlegt samræði og not- fært sér að hún svaf ölvunarsvefni og gat ekki spornað við samræð- inu. Dómur í máli, þar sem fimmtug- ur karlmaður var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa beitt dóttur sína kynferðislegu of- beldi í sjö ár, var ógiltur af Hæsta- rétti. I Ijós kom að stúlkan hafði lent í umferðarslysi og fengið höf- uðhögg og gæti skaphöfn og per- sónuleiki hennar hafa breyst. Mál- inu var því vísað heim í hérað á ný. Klám og annað áreiti 36 ára karlmaður var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gagnvart átta ára stúlku og fyrir að hafa kynferðismök við ann- að stúlkubarn nokkrum sinnum þegar hún var 6 til 12 ára. I síðar- nefnda málinu gekk fjölskipaður dómurinn lengra en ákæruvaldið og taldi athæfi mannsins vera mök en ekki áreitni. Þá var rúmlega þrítugur maður dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir að hafa misboðið fjögurra ára stúlkubarni með grófri kynferðis- legri áreitni í Búðardal. Maðurinn þekkti til á heimili stúlkunnar, mætti ölvaður á vettvang eina nótt- ina og vöknuðu systir stúlkunnar og móðir hennar þá er maðurinn var með kynferðislegar athafnir gagnvart stúlkunni. Þá er vert að minnast á dóm, þar sem maður var dæmdur í 20 þús- und króna sekt íyrir að hafa sett klámmyndir á heimasíðu sína á Netinu. Myndimar voru á heima- síðu mannsins um nokkurra mán- aða skeið og var hann talinn hafa boðið öðrum aðgang að myndun- um með því að búa svo um að að- gangur að þeim væri háður heimild hans. Hann er því talinn hafa miðl- að kláminu. Að vanda féllu margir og stund- um verulega íþyngjandi dómar vegna fíkniefnamála, en umíjöllun um þá kemur sfðar, þvf mikil gróska er í þessum málum um þessar mundir. Við skulum að Iok- um nefna nokkra athyglisverða dóma af ýmsum toga. Gæsaskytta, kettir og umdeild ævisaga 3 j. Gæsaskytta var dæmd til vægrar refsingar fyrir að hafa byrjað gæsa- veiðitímabilið heldur snemma. Gæsaskyttan fékk 5 þúsund króna sekt, sem hann þarf þó ekki að greiða ef hann gerist ekki brotlegur við lög næsta árið. Hæstiréttur hafnaði áfrýjun Jó- hanns G. Bergþórssonar á meið- yrðamáli gegn Gunnari Inga Gunnarssyni, sem Jóhann tapaði í undirrétti. Hæstiréttur felldi úr gildi úr- skurði, þar sem settar voru tak- markanir á stjórnarsetu manna tengdum Flugleiðum í stjóm dótt- urfélagsins, Flugfélags Islands. Kattavinafélag Islands telst lög- mætur erfingi tæpra fjórtán millj- óna króna sem kona á Blönduósi Iét eftir sig, samkvæmt dómi Hæstaréttar. Deildu systurdóttir konunnar og Kattavinafélagið um arfinn. Rúmlega fimmtug kona skal greiða fyrrum sambýlismanni sín- um eina milljón króna í skaðabæt- ur vegna skemmda sem hún vann á eigum hans. Safnaði konan öllum eigum mannsins í eina hrúgu og kveikti í. Þar á meðal voru verð- launagripir sem hann hafði hlotið á farsælum íþróttaferli. Esra Pétursson læknir og Ingólf- ur Margeirsson rithöfundur voru dæmdir til fésekta fyrir að hafa brotið gegn friðhelgi einkalífs og Esra fyrir brot gegn þagnarskyldu Iækna með útgáfu bókarinnar „Sálumessa syndara". Dómararnir töldu að brot ákærðu gegn per- sónufriði og einkalífi Áslaugar heitinnar Jónsdóttur væri „stórfellt og siðferðislega mjög ámælisvert". Steiner, box og mótmæli á Austurvelli Franklin Kr. Steiner og Ari Þor- steinsson voru sýknaðir í máli þar sem Ara var gefið að sök að hafa viðhaft rangan framburð í fíkni- efnamáli gegn Steiner og Steiner sjálfum fyrir að hafa beitt Ara for- tölum og hvatt hann til verknaðar- ins. Bar Ari að hann hefði átt amf- etamín f poka sem fannst í garðin- um hjá Steiner. Bæði Framkvæmdasjóður Is- Iands og Framsóknarflokkurinn töldust sýkn af tugmilljóna króna kröfum Vífilfells í skuldamáli sem spannst út frá því að Vífilfell keypti Gamla-Alafoss og Farg (dagblaðið NT) í því skyni að nýta yfirfæran- Iegt skattalegt tap. Vífilfell verður samkvæmt þessu af 99 milljónum króna. Bubbi Morthens, Fjölnir Þor- geirsson, Siguijón Gunnsteinsson og Olafur H. Ásgeirsson voru fundnir sekir um að hafa brotið Iög sem banna hnefaleika á Islandi, ástundun, skipulagningu og sýn- ingu þeirra. Fjölnir og Siguijón öttu kappi í beinni útsendingu, í því sem ljórmenningarnir kölluðu sýningu vegna útgáfuteitis á vegum Bubba. Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins var skylt að veita Einari S. Hálf- dánarsyni upplýsingar með vísan til upplýsingalaga. Einar vildi fá upplýsingar um úthlutun úr Iðn- lánasjóði á óafturkræfum framlög- um og styrkjum eftir nöfnum og upphæðum, sem sjóðurinn hafnaði að veita. Að lokum er að nefna einn allra síðasta og merkilegasta dóm árs- ins. Mótmælendur voru á Austur- velli, hrópuðu slagorð gegn ofbeldi og báru mótmælaspjöld. Á sama tíma var ijölmenni á staðnum f til- efni sjónvarpsútsendingar. Lög- reglan hafði um það skýr fyrirmæli frá aðstoðaryfirlögregluþjóni að „fjarlægja skyidi alla sem upphæfu mótmæli og væru með óæskilega háreysti“ og voru mótmælendurnir handteknir og fjarlægðir og gistu fangageymslur í þrjá og hálfa klukkustund. Dómarinn taldi mót- mælin vera stjórnarskrárvarin og fá sexmenningarnir 50 þúsund króna bætur hver. Jólahappdrætti Framsóknarflokksins 1998 Dráttur í jólahappdrætti Framsóknarfiokksins sem fara átti fram 6. janúar 1999 verður 20. janúar n.k. Velunnarar flokksins sem enn eiga ógreidda happdrættismiða eru hvattir til að greiða heimsenda gíróseðla fyrir þann tíma. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu flokksins í síma 562-4480. Hð Framsóknarflokkurinn Deildarstjóri óskast við leikskólann Álfastein!! Hver vill prófa að vera deildarstjóri í litlum fallegum leikskóla við Akureyri? Okkur á Álfasteini í Glæsibæjarhreppi vantar leikskólakennara til að leysa af í barnsburðarleyfi í eitt ár, frá 1. febrúar 1999. í leikskólanum eru 22 börn á aldrinum 1-6 ára, og áhugasamt og jákvætt starfsfólk. Á Álfasteini leggjum við áherslu á umhverfið okkar, sjálfshjálp, skapandi starf og persónuleg samskipti. Umsóknarfrestur er til 20. janúar 1999. Upplýsingar veitir leikskólastjóri, Jakobína Áskelsdóttir, í síma 461-2624. Jógasetrið JÉÉ- Glerórgötu 32, 3ju hœð. •mmmmmmmt^ (Gengið inn oð austan). auglýsir Kæru nemendur og jógaáhugafólk! Nú hefjumst við handa á nýju ári í Glerárgötu 32, 3ju hæð. Mánudaga kl. 18.30 framhaldstími, opinn kl. 20.00 byrjendatími Fimmtudaga kl. 18.30 framhaidstími, opinn kl. 20.00 byrjendatími Byrjendanámskeið að hefjast þar sem kennt verður: • Hatha-Yoga æfingar, sem styrkja vöðva, liðamót, mýkja hrygginn, efla innkirtlakerfið og örva blóðrásina. • Öndun, sem gefur okkur meiri orku og styrkir lungun. • Slökun, sem losar um spennu í vöðvum, róar og kyrrir hugann. • Um rétt fæðuval, sem stjórnist af hófsemi og fjölbreytni. • Jákvætt hugarfar, sem er undirstaða góðs lífs. Opinn frír kynningartími mánudaginn 11. jan. kl. 20.00. Verið velkomin Upplýsingar í símum: 462-1312 og 898-0472 Árný Runólfsdóttir, Jógakennari

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.