Dagur - 07.01.1999, Blaðsíða 6

Dagur - 07.01.1999, Blaðsíða 6
6 -FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 ÞJÓÐMÁL mmmammm Utgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: elías snæland jónsson Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6100 og soo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@daour.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.800 KR. Á MÁNUÐl Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símar auglýsingadeildar: creykjav(k)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRIJ460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Símbréf ritstjómar: 460 6171(akureyrí) 551 6270 (reykjavík) Hressileg prófkjör í fyrsta lagi Á sama tíma og Sjálfstæðisflokkurinn virðist ætla að gefast upp á lýðræðislegu prófkjöri við ákvörðun um framboðslista sinn í Reykjavík og fela forystunni að raða á listann stefnir í hressileg átök í nokkrum prófkjörum hjá Samfylkingunni og Framsóknarflokknum næstu vikurnar. Þessu ber að fagna. Stjórnmálaflokkar eiga að sjálfsögðu að gefa stuðningsmönn- um sínum tækifæri til að hafa bein áhrif á val einstaklinga á framboðslistana. Það yrði mikil afturför ef ákvörðun um fram- boð stórra flokka færðist á ný inn í bakherbergi flokksforingj- anna eins og reglan var áður en prófkjörin hófu göngu sína. í öðru lagi Fyrsta prófkjörið í janúar verður hjá framsóknarmönnum í Reykjavík. Það er bundið við flokksmenn, en stuðningsmönn- um var gefinn nokkur tími til að ganga í flokkinn og nýttu meira en eitt þúsund manns sér það. Eins og fram kom í frétt- um Dags í gær er tekist á af miklum krafti um þau tvö þing- sæti sem talin eru örugg hjá framsóknarmönnum í höfuðborg- inni. Telja má fullvíst að Finnur Ingólfsson sé öruggur um fyrsta sætið - framsóknarmenn eru ekki líklegir til að henda nýkjörnum varaformanni flokksins út í kuldann. Átökin snúast því fyrst og fremst um annað sætið, en þar sækja gamalreynd- ir flokksmenn eins og Alfreð Þorsteinsson hart að Olafi Erni Haraldssyni, þingmanni. í þriðja lagi Framboðsfrestur rennur út í dag í prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þegar er ljóst að þar verður um hressilegan slag að ræða í opnu prófkjöri. Ekki síst í „hólfi“ Alþýðuflokksins þar sem Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir munu keppa af miklum krafti um fyrsta sætið. Sú ákvörðun Svavars Gestssonar að gefa ekki kost á sér hleypti líka nýju fjöri í fram- boðsmál í „hólfí“ Alþýðubandalagsins. Ekki er tímabært að spá um úrslit, en hitt er ljóst að því meiri sem þátttakan verður í þessu prófkjöri því betra íyrir væntanlega Samfylkingu. Elías Snæland Jónsson —-S Menn og skepn- ur ársins Að ómetanlegu mati Garra stóðu fjölmargir Islendingar sig vel á síðasta ári, sköruðu fram úr og slógu í gegn á ýms- um sviðum. Nokkrir slíkir hafa verið útnefndir menn ársins á hinum og þessum fjölmiðlum og voru sumir vel að nafnbót- inni komnir. Garri velur hins- vegar þann kostinn að þrengja valið og tilnefna menn og skepnur (nema hvortveggja sé) á tilteknum afmörkuðum svið- um og fær þannig meiri fag- legri breidd í sitt val en tíðkast í útnefningum annarra. Hér á eftir fer heiðurslisti Garra yfir þá Iands- menn og skepnur sem eru honum efstar í huga í ársbyijun fyrir eftir- minnileg tök á nýliðnu ári: Sjómaður ársins: Valdimar Jóhannesson, kvótakaupmaður og bindindisfrömuður, sem siglir því tæplega lengi „ef öldurnar breytast í vín.“ Vindur ársins: Kári Stefánsson að sjálfsögðu, ef ekki beinlínis stormur. I 2. sæti er svo að sjálfsögðu Garri sjálfur. Salómon ársins: Davíð Oddsson, hæstaréttar- dómari í kvóta- og Geirfinns- málum. Okumaður ársins: Halldór Ásgrímsson fyrir að aka edrú á aðfangadag. Hómófób ársins: Árni „Mozart“ Johnsen, tón- skáldið handóða og hógværa sem samdi „Big Head Suite." Fórnarlamb ársins: Páll Óskar sem Ienti í lúkum tónskáldsins úr Vestmannaeyj- um. Bjartsýnismaður ársins: Ástþór Magnússon, hugðist uppræta spillingu í Framsóknarflokknum!!! Niðurgangur ársins: Hljómsveitin Botnleðja, sam- kvæmt orðanna hljóðan. KR ársins: Fram, Fótboltafélag Reykja- víkur. Jón ársins: Steinar Gunnlaugsson, meint- ur aðalhöfundur Salómons- dóma Davíðs. Blíðfinnur ársins: Illugi Jökulsson. Spyrjið bara Finn Ingólfs og Árna Johnsen sem Illugi hefur farið hvað mýkstum höndum um í pistlum sínum. Tré ársins: Björk - að sjálfsögðu. Gamli sorrý Gráni árs- ins: Ólafur Ólafsson, fráfar- andi landlæknir. Flutningaverkamaður ársins: Guðmundur okkar Bjarnason. Pervert ársins: Hvalurinn Keikó, nýkjörinn verndardýrlingur alþjóðasam- bands hjólbarðaframleiðenda. Blindingi ársins: Snorri í Betel, sem kom ekki auga á perversjónir Keikós og tók fagnandi á móti honum. Gestur ársins: Einar Jónasson, heimamaður í hlustum húsmæðra á miðjum aldri. Fugl ársins: Hrafn „hrossahreðjaskáld" Gunnlaugsson. Ungmennafélagi ársins: Egill á Seljavöllum fyrir að vera svo ótrúlega ólfkur alþjóð- legum glaumgosum á borð við Brad Pitt og Leonardo Di Caprio. GARRI. Tré ársins. Hún var glæsileg óperudrottn- ingin úr Hafnarfirði, Alda Ingi- bergsdóttir, sem söng í kryddsíld- arþætti Stöðvar tvö á gamlárs- dag. Hún náði góðum samhljómi við heldur lágt stemmda stjórn- málamenn við matarborðið ekki síst þegar hún söng af innlifun Viljuljóð eftir Franz Lehár. I þeim söng bregður fyrir Ijóðlín- unum „Vilja, ó Vilja ég vegsama þig, veittu mér hamingju og elsk- aðu míg!“ Þetta voru efnislega sömu Ijóðlfnur og stjórnmála- mennirnir sungu til sjónvarpsá- horfenda (kjósenda) þótt upp- skeran hafi trúlega orðið jafn rýr hjá þeim flestum og hjá þeim sem vegsamaði Vilju í söngnum - en lokalína Viljuljóðs er einmitt: „Hann dó úr þrá!“ Sérstaða Davíðs Nema hjá einum stjórnmála- manni. Davíð Oddsson var ekki fórnarlamb óendurgoldinnar ást- Meirihlutamartröðm ar kjósenda, síður en svo. Hans vandamál var frekar að endur- gjalda alla ástina sem að honum beindist. Vissulega viðurkenndi hann að honum, eins og öllum öðr- um, þætti gott að vera elskaður, en of mikið fylgi væri þó hvorki honum né Sjálfstæðisflokkn- um hollt. Forsætis- ráðherra bað menn lengstra orða að leggja það ekki á hann, að veita hon- um og Sjálfstæðis- flokknum hreinan meirihluta í kosn- ingunum í vor. Þannig fengu sjón- varpsáhorfendur að fylgjast með því einstæða atviki, að íslenskur stjórnmálamaður frábað sér stuðning kjósenda. Meirihluta- fóbía er nýtt hugtak í íslenskum stjórnmálum og Davíð er fyrsti stjórnmálamaðurinn sem ekki vill syngja kjósendum sitt Vilju- ljóð. Hann á ekki á hættu að „deyja úr þrá“. Hans hætta er að fá! Kvöldbæn ráð- herrans I dag felst því mesta pólitíska spennan í að fylgj- ast með hvort Dav- íð verði bænheyrð- ur. Samfylkingin er loksins að komast á koppinn og nú eru aftur horfur á að Kvennalistinn verði þar með. Ekki kæmi á óvart þótt í kvöld- bænum Davíðs væri þess inni- lega óskað að ekkert væri til í yf- irlýsingum þeirra Sighvatar Björgvinssonar, Ágústar Einars- sonar og fleiri um að menn myndu í stórum stíl snúa baki við Samfylkingunni ef Kvenna- listinn yrði hluti hennar. Eins er við því að búast að félagar for- sætisráðherra í framsókn fái að fljóta með í kvöldbæninni. Davíð hlýtur að biðja fyrir friði í Fram- sóknarflokknum svo prófkjörs- slagurinn í Reykjavík endi ekki í svo miklum illindum að allt springi í Ioft upp. Það væri þokkalegt ef reykvískir fram- sóknarmenn færu Iíka að flykkj- ast um Davíð. Slíkt myndi stór- auka hættuna á hreinum meiri- hluta og breyta vægri meiri- hlutafóbíu forsætisráðherrans í ósvikna meirihlutamartröð. Við slíkri þraut er lítil líkn. Ekki einu sinni koss frá glæsilegri óperu- söngkonu dugar til að vega upp á móti þeim ógurlegu örlögum, að lenda í hreinum meirihluta. Davíð Oddsson, forsætis- ráðherra. svarað Eru gjaldskrárhækkanir Reykjavíkurborgar óeðli- lega miklar? Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri á Seltjanianiesi. „Reykvíkingar hljóta að vita vel hver kassastað- an hjá þeim er og því er óþarfi fyrir okkur Seltirninga að gefa út neinar yfirlýsingar um mál nágranna okkar. Þær gjaldskrárbreytingar sem verða hjá okkur á Nesinu eru þær að leikskólagjöld hækka um 5,5%, en aftur á móti fer sorphirðugjaldið niður um 2.000 kr. vegna hagstæðra tilboða sem vað fengum í verkið. Þá gæti gjaldskrá vegna heilsdagsskóla hækkað um rúm 10%. Utsvar á Seltjarnarnesi hækkar heldur ekkert, einsog frægt er orðið.“ Flosi Eiriksson oddviti Kópavogslistans. „Mér sýnist þær almennt vera í samræmi við verðlagsþróun síðustu ára og í fljótu bragði virðast þær ekki orka tvímælis. Gagnrýnin sem Reykjavíkurlist- inn hefur fengið vegna hækkana frá Sjálfstæðisflokknum sýnir hve illa honum gengur að ná tök- um á því að vera í minnihluta í borginni, þar sem þetta hefur ekkert híft hann upp í skoðana- könnunum. Gjaldskrá Kópavogs er á svipuðu róli og Reykvíkinga, þó við höfum yfirleitt verið eitt- hvað hærri, en eftir stendur auð- vitað sú krafa að sveitarfélögin séu vel rekin fyrirtæki." Guðný HaUdórsdóttir bæjaifulltrúi G-listans íMosfellsbæ. „Nei, það finnst mér ekki. Það er búið að taka arðinn út úr hitaveitunni til þess að byggja Perluna - og nú er Reykjavík orðin það skuldsett sveitarfélag að nú þarf að gera upp dæmið. Úr því allir vilja búa á þessu einu horni landsins þá hlýtur fólk líka að vilja borga eitthvað fyrir það.“ Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri í Gaiðabæ. „Hér í Garðabæ hafa gjaldskrár- hækkanir engar verið um all- langt skeið, en hinsvegar eru menn með það í skoðun alltaf með vissu millibili hvort tilefni sé til hækkana. Ég geri núna ráð fyrir því að tilefni sé til að hækka leikskólagjöld hér, en þau hafa ekkert hækkað síðustu tvö árin. Hinsvegar vil ég ekkert segja til um hækkanirnar sem verið hafa í Reykjavík, enda hef ég engar for- sendur til að meta þær.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.