Dagur - 07.01.1999, Blaðsíða 8

Dagur - 07.01.1999, Blaðsíða 8
8- FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 Dagur Á nýliðnu ári féllu margir athyglisverðir dómar í einka- og saka- málum - ekki bara Kvótadómurinn. Tnnan um fjölmarga fíkni- efna-, fjársvika- og of- beldisdóma er að finna nokkur sérstæð og at- hyglisverð mál, sem hér verða tíunduð í ör- stuttu máli. Af mörgum athyglisverðum dóm- um nýliðins ár fer vart milli mála að sá þjóðfélagslega afdrifaríkasti var dómurinn í kvótamáli Valdi- mars Jóhannssonar. Fíkniefnamál, ofbeldismál, fjársvikamál og skattamál voru áberandi að vanda, en einnig ýmis sérstæð mál; „morð“ á tík, berserksgangur ungr- ar stúlku, mótmælendur á Austur- velli, hnefaleikar, umdeild ævi- saga, arfur katta, brenndir afreks- peningar og fleiri. Skoðum nokkur athyglisverð dómsmál ársins 1998. Kvótúm er víst sameign þjóð- arinnar Hæstiréttur felldi úr gildi ákvörð- un um að synja Valdimari Jó- hannssyni um leyfi til að stunda fiskveiðar í atvinnuskyni hér við Iand. Taldi Hæstiréttur að það stangist á við jafnræðisreglu stjómarskrárinnar að binda veiði- leyfi við tiltekin skip. „Þótt tíma- bundnar aðgerðir af þessu tagi til varnar hruni fiskistofna kunni að hafa verið réttlætanlegar, en um það er ekki dæmt í málinu, verður ekki séð, að rökbundin nauðsyn hnígi til þess að lögbinda um ókomna tíð þá mismunun, sem leiðir af reglu 5. greinar laga nr. 38/1990 um úthlutun veiðiheim- ilda. Stefndi hefur ekki sýnt fram á, að aðrar leiðir séu ekki færar til að ná því lögmæta markmiði að vemda fiskistofna við Island," seg- ir í dómi Hæstaréttar. Sægreifar og ráðherrar brugðust ókvæða við dómnum meðan aðrir fögnuðu. I „kvótaskilnaðarmálinu" dæmdi Hæstiréttur Sigríði Kristinsdóttur í hag og komst að þeírri niður- stöðu að Qárskiptasamningur milli hennar og Aðalbjöms Jóakimsson- ar útgerðarmanns væri bersýnilega ósanngjarn. Þessi niðurstaða færir Signði verðmæti upp á um 30 milljónir króna. I málinu var ekki minnst á „kvóta“, heldur talað um verðmæti hlutabréfa og þóttí sýnt að verðmæti hlutabréfanna lægi á bilinu 85 til 100 milljónir króna og jók það „skiptahlut" Sigríðar úr 13,5 í 42-50 milljónir króna. Tveir merkilegir dómar féllu, þar sem sjómenn voru látnir taka þátt í „kvótabraski". Fengu sjó- mennirnir sínar kröfur viður- kenndar að fullu. I máli Magnúsar Þorgeirssonar gegn Þormóði ramma krafðist Magnús 104 þús- und króna greiðslu, þar sem hann hefði verið hlunnfarinn í „tonn gegn tonni“ kvótaviðskiptum. I máli Alberts Hansen gegn Lómi hf. var einnig um „tonn gegn tonni“ viðskipti að ræða og kröfu- upphæðin vel hærri eða 1,6 millj- ónir króna. Þá má nefna að fjórir menn voru dæmdir til að greiða vænar sektir fyrir kvótabrask. Þrír þeirra voru starfsmenn Reiknistofu fiskmark- aða í Njarðvík og sá fjórði fram- kvæmdastjóri útgerðarfélags. Hæstiréttur dæmdi að skerðing Lífeyrissjóðs sjómanna á þegar áunnum lífeyrisréttindum með reglugerð í október 1994 hafi verið ólögmæt. Þá dæmdi Hæstiréttur að Fiskistofu hafi verið heimilt að leggja sérstakt gjald á fyrirtækið I Nausti vegna ólögmæts sjávarafla. Slegið á putta Skattmauns Athyglisverð eru nokkur mál þar sem slegið var á putta Skattmanns. I máli fyrirtækisins Boðeindar var ríkinu gert að endurgreiða fyr- irtækinu sjö milljónir króna vegna klúðurs við meðferð máls þess hjá embætti skattstjóra. Skattstjóranum f Reykjavík var með dómi óheimilt að breyta skattframtali og endurákvarða skattgreiðslur Myllunnar. Verður ríkið að endurgreiða Myllunni um 20 milljónir. Kolbeinn í Myllunni vann sigur í málinu, eins og í sam- runamálinu gegn Samkeppnis- stofnun vegna Samsölubakarísins. Veitingamaður í Reykjavík var sýknaður af ákæru um virðisauka- skattsvik. Héraðsdómur Ieit svo á að þar sem skjöl og gögn sem ákærða bar að halda og varðveita væru ekki til staðar væri einungis hægt að byggja á áætlunum og taldi dómarinn að þessar áætlanir væru reistar á Iitlum sem engum gögnum. Tollstjóra var óheimilt að skuldajafna virðisaukainnskatt þrotabús Mikiagarðs gagnvart skuld verslunarinnar á opinberum gjöldum og loks má nefna að Hæstiréttur dæmdi ríkið til að endurgreiða apótekurum svokallað Iyfjaeftirlitsgjald, þar sem það hafi verið ólöglega Iagt á. Lyfjaeftirlits- gjaldið taldist án nægilegrar stoðar í lögum. Langir armar laganna ná fingralöngum Að vanda var mikið af þjófnaðar- og fjársvikamálum fyrir dómstól- unum. Við stiklum á nokkrum þeim helstu. Sölumaður á fasteignasölu var dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyr- ir að hafa svikið um 11 milljónir króna af hjónum á áttræðisaldri. Maðurinn blekkti hjónin og fékk hjá þeim féð undir því yfirskini að fasteignasalan myndi ávaxta það. Skömmu áður en þetta gerðist hafði bú söiumannsins verið tekið til gjaldþrotaskipta. Hæstiréttur dæmdi fyrrum sparisjóðsstjóra á Þórshöfn f árs fangelsi fyrir fjárdrátt. Sannað þótti að hann hefði dregið sér tæp- ar 6,5 milljónir króna af fé spari- sjóðsins og viðskiptamanna hans. Atta 16 til 18 ára ungmenni voru dæmd í frá 6 til 15 mánaða fangelsi fyrir rán og gripdeildir í verslununum Kvöldúlfi við Sund- laugaveg og Kjalfelli við Gnoðar- vog. Dómarnir voru skilorðs- bundnir en ungmennunum gert að halda sig frá áfengi og öðrum vímuefnum næstu þrjú árin. Þijár systur voru dæmdar í 4 til 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaði, fjársvik og fleiri brot. Ein systirin var nýlega sektuð fyrir þjófnað og fékk þriggja mán- aða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals, þjófnað og umferðar- lagabrot. Rúmlega sextug ekkja var dæmd til að greiða háaldraðri tengda- móður sinni hálfa milljón króna þar sem eiginmaður ekkjunnar hefði nýtt sér elli og bágindi hinn- ar öldruðu móður sinnar og slegið eign sinni á peninga hennar. Fyrrum framkvæmdastjóri Skel- fangs á Akranesi var dæmdur í 5 mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt, sem fólst í að greiðslur voru færð- ar í fimm áföngum á viðskipta- reikning ákærða hjá fyrirtækinu, samtals 3,4 milljónir króna. Framkvæmdastjóri Spors og fyrrum eigandi Steina, var dæmd- ur til að greiða 2,2 milljóna króna sekt í ríkissjóð fyrir að standa ekki skil á alls 9,2 milljóna króna virð- isaukaskatti í fyrirtækjum sínum 1992-93. Liðlega fertugur karlmaður var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyr- ir að falsa nafn bróður síns á skuldabréf og á víxil vegna bif- reiðakaupa. Það var sjálfur bróðir mannsins sem tilkynnti um föls- unina til RLR. Hæstiréttur dæmdi fyrrverandi aðaleiganda Kjarrs efh. í átta mán- aða fangelsi fyrir að hafa dregið sér tæplega tvær milljónir króna, sem Rauði kross Islands greiddi umboðsversluninni Bros vegna kaupa á sjúkrabifreið. Hæstiréttur dæmdi fyrrum framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs starfsmanna Aburðarverksmiðj- unnar til að greiða sjóðnum 55 milljónir króna, þar af ljórar millj- ónir óskipt með bókhaldara sjóðs- ins. Framkvæmdastjórinn hafði skuldbundið sjóðinn um rúmlega 100 milljónir króna tryggingalítið og án leyfis stjórnar. MiMð íun alvarleg ofibeldis- mál Bíræfnasti svikahrappurinn verður þó að teljast Stefán Jón Sigurðs- son, sem hlaut tveggja ára fangelsi vegna svika, þar sem hann nánast sérhæfði sig í að féfletta konur sem af ýmsum ástæðum voru veik- ar fyrir. Akæruliðirnir voru alls 29 vegna kerfisbundinna svika gagn- vart 12 einstaklingum. Töldust brot mannsins afar stórfelld. Allnokkur alvarleg ofbeldismál sáu dagsins Ijós. Þannig dæmdi meirihluti Hæstaréttar Sigurþór Arnarsson og Sverri Þór Einarsson í ríflega tveggja ára fangelsi fyrir að hafa orðið Sigurði Sigmundssyni að bana eftir átök á Vegas. Sömu menn hlutu fangelsisdóma fyrir að hafa svipt mann í Grafarvogi frelsi. Færðu þeir hann nauðugan í skott á fólksbifreið og óku á brott. 42 ára karlmaður var dæmdur til að sæta fangelsi í 6 ár fyrir að ráð- ast að tveimur ungum stúlkum í miðborginni með fjaðurhníf. Mað- urinn stakk aðra stúlkuna í brjóst- ið „af ráðnum hug“ og gekk hníf- urinn svo nálægt hjarta stúlkunnar að hún hlaut næstum bana af. Hæstiréttur dæmdi ungan mann í 15 mánaða fangelsi fyrir grófa líkamsárás, en með hliðsjón af breyttum högum mannsins og ungum aldri hans var fullnustu 12 mánaða af dómi hans frestað í fimm ár. Maðurinn hafði gengið til geðlæknis og farið í fulla meðferð hjá SÁÁ. Fertugur síbrotamaður var dæmdur til 14 mánaða fangelsis vegna grófrar líkamsárásar á sal- erni Ölkjallarans. Fórnarlambið Iamaðist á hægri hendi og hægri fæti, en fékk mátt í fótinn áný. Ungur Keflvíkingur var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að hafa ráðist á annan mann og veitt hon- um áverka með dúkahníf og skrúfjárni. Dómarar Hæstaréttar tóku tillit til þess að maðurinn sem varð fyrir árásinni hafði misgert hinum seka og valdið honum mik- illi geðshræringu. Hæstiréttur sfaðfesti fimm ára fangelsisdóm yfir manni, sem und- ir miklum áhrifum áfengis og lyfja fór á heimili fórnarlambs og stakk það með hnífum og skærum, svo fjöldamörg sár hlutust af og tilvilj- un ein réði því að ekki hlaust bani af.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.