Dagur - 07.01.1999, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 - 3
Vaguí--
FRÉTTIR
L.
Aðalsteinn Á. Baldursson.
Fiskverkafólk
i auglýsingar?
„Það er aldrei að vita hvað okk-
ur dettur í hug. Hvort við förum
út í eitthvað svona eða annað,“
segir Aðalsteinn A. Baldursson,
formaður fiskvinnsludeildar
Verkamannasambands Islands,
aðspurður hvort fiskverkafólk
áformi að auglýsa í fjölmiðlum
mikilvægi þess í sjávarútvegi og
fyrir þjóðarbúið.
Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
hafa auglýst mikið að undan-
förnu um mikilvægi sitt fyrir
efnahagslífið. Fyrst til að ríða á
vaðið var LÍÚ sem auglýsti
grimmt mikilvægi útgerða og
kvótakerfisins með mörgum
heilsíðuauglýsingum og jafnvel
opnum í Morgunblaðinu. Talið
er að sú auglýsingaherferð hafi
kostað um 30 milljónir króna.
Þá hafa sjómenn auglýst einu
sinni um mikilvægi sjómanna,
eða fyrir 300 þúsund krónur.
Formaður fiskvinnsludeildar
VMSÍ segir það vera alveg ljóst
að útgerðir hefðu ekki fengið
þann kvóta sem þeir fengu eftir
viðmiðunarárin á sínum tíma ef
fiskverkafólk og sjómenn hefðu
ekki Iagt hart að sér við veiðar og
vinnslu aflans. — GRH
35 imlljóna króna stofn-
kostnaði kastað á glæ
Samtök um byggingu
tónlistarhuss vart
hunsuð. Haldið hug-
myndinni lifandi á
aiiiiau áratug. Áíorm-
uð hótelhygging Eim-
skips í láginni.
„Ég gef mér það að samtökin
verði ekki hunsuð í þessu máli
og þau verði áfram samráðsaðili í
allri þessari vinnu að minnsta
kosti,“ segir Stefán Pétur Egg-
ertsson, verkfræðingur og for-
maður Samtaka um byggingu
tónlistarhúss.
Hugmynd haldið lifaudi
Mörgum þótti miður að ekkert
var minnst á það grasrótarstarf
sem samtökin hafa staðið í fyrir
byggingu tónlistarhúss á blaða-
mannafundi ríkis og borgar í Há-
skólabíói í fyrradag. Samtökin
hafa starfað að þessu máli vel á
annan áratug og allan þann tíma
haldið þessari hugmynd lifandi
um byggingu tónlistarhúss. Um
2-3 þúsund virkir félagar eru í
samtökunum. Þá hafa samtökin
m.a. greitt um 35 milljónir
króna, miðað við verðlag í dag, í
ýmsan kostnað í tengslum við
byggingu tónlistarhúss.
I efnahagsreikningi samtak-
anna kemur fram að þessir fjár-
munir hafa farið í stofnkostnað
að undirbúningi að byggingar-
framkvæmdum. Þar á meðal er
kostnaður vegna hönnunar og
Séð yfir svæðið við höfnina í Reykjavík þar sem nú er áformað að byggja nýja tónlistarhúsið.
samkeppni um tónlistarhús í
Laugardalnum, sem Guðmund-
ur Jónsson arkitekt vann á sínum
tíma. Stefán Pétur segist ekki
getað svarað því hvort eitthvað
verði stuðst við verðlaunatillögu
Guðmundar í þeirri vinnu sem
framundan er. Þess utan sé verk-
efnið töluvert öðruvísi en þá var
hugsað og staðsetningin önnur,
eða í miðborginni.
Fagnað
Almennt má segja að tónlistar-
fólk og áhugafólk um tónlist hafi
tekið fagnandi samþykkt ríkis-
stjórnar og borgarráðs um bygg-
ingu tónlistarhúss og ráðstefnu-
miðstöðvar í miðborginni. I það
minnsta telur Valgeir Guðjóns-
son, tónlistarmaður og fyrrum
framkvæmdastjóri Samtaka um
byggingu tónlistarhúss, að þetta
séu „dásamleg tíðindi."
Eimskip fylgist með
Hins vegar er óvíst hvernig stað-
ið verður að byggingu hótels í
tengslum við tónlistar- og ráð-
stefnumiðstöðina. Eimskipafé-
lagið hefur löngum haft á prjón-
um að byggja lúxushótel á lóð
sinni við miðbæinn. Þau áform
hafa legið í láginni að undan-
förnu og ekkert sem bendir til
breytinga í þeim efnum á næst-
unni. Hjá félaginu fengust þær
upplýsingar að fyrst um sinn
mundi það einungis fylgjast með
framvindu mála. - GRM
Alþingi kallað saman
til að útbýta skjolum
Stjdmarandstaðan
gagnrýndi harðlega
þau vinnubrögð að
kalla þing saman bara
til að úthýta skjölum.
Alþingi var kallað saman til
fundar í gær eftir jólaleyfi.
Akveðið var fyrir jól að kalla þing
saman 6. janúar til að taka
kvótadómsfrumvarp sjávarút-
vegsráðherra til 2. umræðu.
Sjávarútvegsnefnd var hins vegar
ekki tilbúin í 2. umræðu vegna
þess að samkomulag um breyt-
ingar náðist ekki fyrr en á miðj-
um degi í gær. Fyrir fundinum lá
því það eitt að útbýta nýjum
þingmálum og slíta síðan fundi.
Þessi vinnubrögð gagnrýndi
stjórnarandstaðan harðlega.
Það var Steingrímur J. Sigfús-
son, sem hóf umræðuna um
störf þingsins. Hann sagðist
leyfa sér að efast um það að Al-
þingi hafi fyrr verið kallað sam-
an, með sérstökum hætti eins og
nú, til þess eins að útbýta skjöl-
um til þingmanna. Hann benti á
að stjórnarliðar í sjávarútvegs-
nefnd hefðu ekki verið tilbúnir
með neitt vegna ósamkomulags
þeirra í millum.
„Þess vegna er þingið kvatt
saman allt of snemma miðað við
Steingrímur J. Sigfússon hófumræð-
una um störf Alþingis.
þá vinnu sem fram þarf að fara í
sjávarútvegsnefnd," sagði Stein-
grímur. Hann sagði þingið þurfa
rúman tíma til að afgreiða þetta
mikla mál.
Skortur á samstarfsvilja
Olafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, sagðist myndi ræða við
formenn þingflokka um fram-
hald þingstarfa en sagðist gera
sér vonir um að sjávarútvegs-
nefnd ljúki umfjöllun um þessi
veigamiklu mál sem allra fyrst, í
dag eða á morgun, eins og hann
orðaði það.
Rannveig Guðmundsdóttir,
formaður þingflokks jafnaðar-
manna, benti á starfsáætlun
þingsins sem hvað eftir annað
væri ekki hægt að standa við
vegna þess að henni væri hag-
rætt eftir þörfum. Hún sagði
megin ástæðuna fyrir þessu vera
skort á samráði við stjórnarand-
stöðuna.
„Forsætisráðherra vill stjórna
bæði ríkisstjórn og Alþingi.
Þannig á það ekki að vera. AI-
þingi á að vera sjálfstætt gagn-
vart framkvæmdavaldinu," sagði
Rannveig.
Úrelt ákvæði
Svavar Gestsson, formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins, benti
á að það ákvæði væri enn í
stjórnarskrá lýðveldisins Islands
að forsætisráðherra hefur með
það að gera hvenær þing kemur
saman. „Akvæði af þessu tagi
var í stjórnarskrám hinna Norð-
urlandanna, í Danmörku til árs-
ins 1953 eða 1954. Atburðirnir
hér í dag staðfesta að þetta
ákvæði er úrelt," sagði Svavar
Gestsson.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði ástæðu þess að þing-
ið var kallað saman nú vera þá
ósk þingmanna, líka stjórnarand-
stöðunnar,' að frumvarpið vegna
kvótadómsins yrði afgreitt hratt,
það lægi á að svo yrði. I sama
streng tók Valgerður Sverrisdótt-
ir, formaður þingflokks Fram-
sóknarflokksins. - S.DÓR
Leikskólakeimarar vilja úr BSRB
Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna í Félagi íslenskra leikskóla-
kennara vill ganga úr BSRB, samkvæmt skoðanakönnun sem gerð
var meðal félagsmanna nýlega. Sérstök nefnd á vegum félagsins hafði
það verkefni að kanna hug félagsmanna í þessum efnum. Alls 93%
vildu ganga úr bandalaginu en aðeins 5,5% vera áfram innan þess.
Jafnframt var kannaður hugur fólks til aðildar að öðrum bandalögum
og kom þá í ljós að rúmlega 87% þeirra sem þátt tóku vildu að leik-
skólakennarar ættu aðild að nýju kennarasambandi. Alls tóku 434
þátt í þessari könnun, eða 36% félagsmanna. — SBS.
Skipað í stjóm íbúðalána-
sjóðs
Páll Pétursson félagsmálaráðherra hefur skipað
stjórn Ibúðalánasjóðs til næstu fjögurra ára. I
henni eiga sæti Gunnar S. Björnsson, sem jafn-
framt er formaður, Hákon Hákonarson vélvirki á
Akureyri, Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður á
Seyðisfirði, Kristín Astgeirsdóttir, alþingismaður
£ Reykjavfk, og Arni Gunnarsson, fv. aðstoðar-
maður ráðherra, sem búsettur er á Sauðárkróki. 3 e^rSS°^ e
_ SBS lagsmalaraðherra.
Skattkerfið svifaseint
Atvinnurekendur telja að skattkerfið sé svifaseint og ósveigjanlegt og
segja enn fremur að skattareglur verði æ flóknari og kostnaður við að
starfa samkvæmt þeim fari sífellt vaxandi. Þetta kemur fram í skoð-
anakönnun sem gerð hefur verið meðal stjórnenda aðildarfélaga VSI
og Verslunarráðs Islands. Atvinnurekendur segja enn fremur að ekki
sé við þá haft nægilegt samráð þegar reglur um þessi efni eru sett.
Samkvæmt könnuninni er meðaltalskostnaður fyrirtækja vegna
skattamála um 1,5 milljónir króna og sé sá kostnaður yfirfærður á öll
aðildarfyrirtæki Verslunarráðsins og VSI verður hann um Ijórir millj-
arðar árlega. — SBS.
rrr
i )"l i ’
• r I H .
i vt í'r
V *- i v