Dagur - 07.01.1999, Blaðsíða 11
Xfc^MT
FIMMTVDAGUR 7. JANÚAR 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna í írak: stjórnvöld í írak hafa lengi sakað þá um að stunda njósnir og á
þeim forsendum hvað eftir annað neitað samstarfi við þá.
Vopnaeftimt SÞ
sagt stunda njósnir
Framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna
hefur alvarlegar efa-
semdir nni hlutverk
vopnaeftirlitsins.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna (SÞ), hefur
undir höndum upplýsingar sem að
hans mati sanna að starfsmenn
vopnaeftirlitshópa SÞ í Irak hafi
stundað hleranir sem Bandaríkja-
menn hafi síðan notfært sér til að
grafa undan stjómvöldum í írak.
Annan er sagður hafa miklar
áhyggjur af þýðingu þessa fyrir
samtökin.
Sumt af þessum upplýsingum,
sem Annan hefur undir höndum,
eru fengnar úr bandarískum
leyniskjölum sem undirmenn hans
hafa látið hann hafa. Þar er þvf lýst
þegar starfsmenn UNSCOM,
vopnaeftirlitsnefndar Sameinuðu
þjóðanna, aðstoðuðu Bandaríkin
við að hlera viðkvæm samtöl
stjómvalda í Irak. Trúnaðarmenn
Annans segja hann sannfærðan
um að Bandaríkin hafi notað þess-
ar upplýsingar til þess að átta sig
betur á öryggisráðstöfunum sem
gerðar hafa verið til að vernda
Saddam Hussein, forseta Iraks.
„Framkvæmdastjórinn hefur
orðið þess áskynja að UNSCOM
hafi beinlínis aðstoðað við að koma
á fót upplýsingasöfnunarkerfi íyrir
Bandaríkin, sem brýtur í bága við
umboð vopnaeftirlitsins,“ sagði
einn ráðgjafa Annans, sem vildi
ekki láta nafns síns getið en hafði
sömu sögu að segja og tveir aðrir.
„Sameinuðu þjóðirnar geta ekki
tekið þátt í starfsemi sem hefur
það markmið að kollvarpa stjórn-
völdum eins aðildarríkis þeirra.
Þetta er grundvallaratriðið í því,
sem athugavert er við starfsemi
UNSCOM.“
Þessar uppljóstranir um
UNSCOM koma fram samhliða
því sem umræður eiga sér stað inn-
an Sameinuðu þjóðanna um hvert
framtíðarhlutverk samtakanna í
írak geti verið eftir að Bandaríkin
og Bretland gerðu loftárásirnar í
síðasta mánuði. Annan, sem á sín-
um tíma harmaði loftárásirnar og
hefur gagnrýnt aðgangshörku
UNSCOM, hefur verið að vinna að
nýju samkomulagi um aívopnun
íraks, sem Öryggisráð SÞ krafðist
eftir Persaflóastríðið árið 1991.
Allir starfsmenn vopnaeftirlits-
ins yfirgáfu Irak fyrir árásirnar, sem
áttu sér stað 16. til 19. desember.
Annan er sagður þeirrar skoðunar
að ef vopnaeftirlit eigi að hefjast að
nýju verði það að vera nýjum tak-
mörkunum háð og undir nýrri for-
ystu. Bandaríkin hafa verið andvíg
því, en svo virðist sem afstaða
þeirra hafi eitthvað verið að mild-
ast á síðustu dögum.
Sumir ráðgjafa Annans viður-
kenndu, að með því að gera áhyggj-
ur sínar af UNSCOM heyrinkunn-
ar, sé Annan að beita Richard
Butler, yfirmann vopnaeftirlitsins,
þrýstingi um að segja af sér í þeirri
von að eftirmaður hans eigi auð-
veldara með að njóta samþykkis
Iraks og þeirra aðildarríkja Örygg-
isráðsins sem hafa tekið málstað
Iraks. Sömuleiðis gæti Annan verið
að reyna að vernda sjálfan sig gegn
ásökunum síðar meir um að hann
hafi liðið hleranir sem a.m.k. að
nafni til voru stundaðar undir hans
verndarvæng.
- The Washington Post
Réttarhöldin yfir Clinton
hefjast í dag
BANDARÍKIN - í dag heíjast í öldungadeild Banda-
ríkjaþings réttarhöldin yfir Bill Clinton vegna
kvennamála hans. Leiðtogi meirihluta deildarinnar
lagði til að réttarhöldin stæðu í fjóra daga og verði þá
skorið úr því hvort vísa eigi Clinton úr embætti
vegna meinsæris og fyrir að hafa reynt að hindra
framgang réttvísinnar. Tvo þriðju hluta þingmanna Clinton for-
þarf til þess að dæma forsetann úr embætti, en náist sef/ ggmjaríkj-
ekki sá meirihluti er hægt að ganga þegar í stað til anna
atkvæða um hvort deildin samþykki ávítur á hann. -
Nýr forseti fulltrúadeildar
BANDARIKIN - Dennis Hastert, þingmaður Repúblikanaflokksins í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings, verður að öllum líkindum forseti deild-
arinnar og tekur við því embætti af Newt Gingrich.
Notaði skriðdreka til mótmæla
HOLLAND - Hollendingur nokkur í borginni Volendam leigði sér
gamlan rússneskan skriðdreka og lagði honum fyrir framan ráðhúsið
£ mótmælaskyni vegna þess hve erfitt er að finna bílastæði. Einkum
vildi hann mótmæla því að búið var að afnema bann við því að leggja
bifreiðum í götunni sem hann býr í. Gatan er svo þröng að bíllinn
hans lokast oft inni. Borgarstjórinn lýsti furðu sinni á þessum mót-
mælum, en notaði samt tækifærið til að skoða skriðdrekann, sem er
úr seinni heimstyrjöldinni.
Uppreisnarmenn ráðast á Freetown
SIERRA LEONE - Uppreisnarmenn réðust á Freetown, höfuðborg
Sierra Leone, og náðu alla leið inn í nokkur hverfi borgarinnar. Þús-
undir íbúa flúðu undan uppreisnarmönnum og harðir bardagar áttu
sér stað milli þeirra og vestur-afrískra friðarsveita.
Konunglegt hrúðkaup
BRETLAND - Játvarður, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, hef-
ur tilkynnt trúlofun sfna og Sophie Rhys-Jones og mun brúðkaupið
eiga sér stað í vor eða sumar.
Öcalan fyrir ítalskan dómstól?
ITALIA - Kúrdaleiðtoginn Abdulla Öcalan getur reiknað með því að
réttarhöld yfir honum fari fram á Italíu ef ekki verður hægt að vísa
honum úr landi, að því er Massimo d’Alema forsætisráðherra Italíu
sagði. Réttarhöldin gætu farið fram á grundvelli samnings Evrópu-
ráðsins gegn hryðjuverkum, þar sem aðildarríkin skuldbinda sig til
þess að annað hvort framselja hryðjuverkamenn eða draga þá fyrir
dóm ella.
29.90D,-)
uniiuii u u u f u u u
A4 litableksprautuprentari. 2]a hylkja kerfi.
Allt aö 7 lita blöndun. Hraði: 4,5 bls. á mín.
í lit. Upplausn: 1200 dpi. Pappírsmoðíarð:
Arkamatari f. 130 blöð, allt aö 550g pappír.
Annað: "Pop" tækni sem sprautar glæru lakki
og vatnsver prentunina.
Margvorðlaunaður prontari.
Söluaðilar um land allt
Hugver ehf. Vitastíg 12, Reykjavík
Heimilistæki hf. Sætúni 8, Reykjavík
Nýharji verslun Skaftahlíö 24, Reykjavík
Penninn Hallarmúla 2, Reykjavík
Hans Petersen Laugavegi 178, Reykjavík
Oddi söludeild Höföabakka 3-7, Reykjavík
ELKO raftækjastórmarkaður Smáratorgi 1, Kópavogi
Andrós Nielsson hf. Kirkjubraut 54, Akranes
Tölvubóndinn Vöruhús KB, Borgames
Hrannarbúðin sf. Hrannarstíg 5, Grundarfjöröur
Stoinprent ehf. Snoppuvegi, Ólafsvík
Jónas Tómasson hf. Bókaverslun, Hafnarstræti 2, ísfjöröur
Ráðbarður sf. Garöavegi 22, Hvammstangi
Radíónaust Geislagötu 14, Akureyri
Bókval Hafnarstræti 91-93, Akureyri
Árni Björnsson ÁB skálinn við Ægisgötu, Olafsfjöröur
Þórarinn Stefánsson Bókaverslun, Garðabraut 9, Húsavík
Rafeind sf. Miðvangi 2-4, Egilsstaöir
Tölvusmiðjan Miðási 1, Egilsstaðir
Tölvusmiðjan Nesgötu 7, Neskaupsstaöur
Tölvu- og rafeindaþjónusta Suðurlands Eyrarvegi, Selfoss
Tölvun Strandvegi 54, Vestmannaeyjar
CanonBJC-4650
A3 litableksþrautuprentari fyrir PC og Mac.
2ja hylkja kerfi. 2ja hylkja kerfi. Hraði: 2 bls.
á min. í lit; 5 bls. á mín. í s/h. Upplausn: 720
dpi. Pappírsmeðferð: Arkamatari f. 100 blöö.
Annað: "Banner Printing", CCIPS og Drop
Modulation tækni. —^
■r aSBH
Mac OS B
styrkur felst í tækninýjung
hágæðamyndir sem og hnífskarpan svartan taxta
sem hvDrki smyrst né dnfnar. Hann býðst á
Canon
NÝHERJI