Dagur - 07.01.1999, Page 13
FIMMTUDAGUR 7. JAHÚAR 1999 - 13
ÍÞRÓTTIR
L
Toppliðin töpuðu
Gintaras hefur verið drjúgur við að skora fyrir Aftureldingu í vetur og hefur alls gert 67 mörk í Nissandeildinni.
Hér kemst hann í dauðafæri í ieiknum gegn Stjörnunni og skorar eitt af fjórum mörkum sínum í leiknum.
14. umferð
NissandeUdarinnar
var leikin í íyrrakvöld
og töpuðu bæði topp-
liðin sínum leikjum á
útivöllum. Stjamau
vaim iiauinan eins
marks sigur á Aftur-
eldingu og komst þar
með í 2. sæti deildar-
innar.
Eftir misjafnt gengi í upphafi
tímabils hefur Stjarnan í Garða-
bæ nú unnið sjö af átta síðustu
leikjum sínum í Nissandeildinni
og þar af unnið sigur í fímm síð-
ustu leikjum. Nú var það topplið
deildarinnar úr Mosfellsbænum
sem varð að játa sig sigrað í
Garðabænum, en þó aðeins með
eins marks mun, 24-23, eftir að
staðan f hálfleik var 12-10 fyrir
heimamenn. Eins og í Ieiknum
gegn FH í Kaplakrika, fyrir ára-
mótin, var það Arnar Pétursson
sem var bjargvættur Stjörnu-
manna, en hann skoraði nú í
annað sinn sigurmark liðsins
með síðasta skoti leiksins á síð-
ustu sekúndunum. Aðdragandi
marksins var mjög svipaður og í
FH-leiknum, en Arnar skoraði
nú aftur með Iúmsku smugu-
skoti, utan punktalínu.
Afturelding byrjaði betur í
leiknum í Garðabænum og skor-
uðu þeir þrjú fyrstu mörkin áður
en Stjarnan komst á blað. Stjarn-
an sótti svo í sig veðrið þegar leið
á hálfleikinn og hafði náð tveggja
marka forskoti í hálfleik. Eftir
það höfðu þeir forystuna, þar til
langt var Iiðið á seinni hálfleik-
inn, en þá komst Afturelding aft-
ur inn í leikinn. Þeim tókst að
jafna aftur á síðustu mínútunni
og liðin virtust ætla að skipta
með sér stigunum. En þá var
komið að sigurmarki Arnars Pét-
urssonar sem áður er lýst og eins
marks sigur Stjörnunnar í höfn.
Birkir markvörður var besti
maður Stjörnunnar í leiknum og
varði hann alls 17 skot. Af úti-
leikmönnum áttu þeir Konráð
Olavson, Heiðmar Felixson og
járnkarlinn Aliaksandr Shamkuts
bestan leik og var Konráð marka-
hæstur með 7 mörk, en þeir
Heiðmar og Aliaksandr skoruðu
5 mörk.
Hjá Aftureidingu bar Iíka mik-
ið á markverðinum, en Asmund-
ur Einarsson varði alls 15 skot í
leiknum. I sókninni var allt of
mikið um mistök, en Iiðið spilaði
sterkan varnarleik. Bjarki sig-
urðsson var að venju markahæst-
ur hjá Aftureldingu með 7 mörk,
en Gintaras og Magnús Þórðar-
son skoruðu 4.
FH-ingar burstuðu Fram
Hitt toppliðið í deildinni, Fram,
átti aldrei möguleika gegn FH,
þegar liðin mættust í Kaplakrika.
FH-ingar Iéku við hvern sinn
fingur í byrjun og höfðu náð sex
marka forystu um miðjan hálf-
leikinn, en staðan var 17-10 í
hálfleik. Þeir virðast á mikilli
siglingu þessa dagana og
jólasteikin virðist hafa farið vel í
menn. Ekki er hægt að segja það
sama um Framara, sem voru
óvenju dáufir eftir jólafríið.
Vörnin var slök og auðséð að þeir
söknuðu Gunnars Berg Viktors-
sonar, sem ekki Iék með. Þeir
áttu aldrei möguleika í leiknum
og lokatölurnar urðu 30-25.
Knútur Sigurðsson var marka-
hæstur FH-inga með 7 mörk og
gamla brýnið Gunnar Beinteins-
son skoraði 6.
Hjá Fram var Björgvin Þór
Björgvinsson bestur og marka-
hæstur með 6 mörk, en Róbert
Gunnarsson skoraði 5.
Stórleikur Sigurgeirs
A Hlíðarenda mættust Valur og
Grótta/KR og gerðu 17:17 jafn-
tefli í þunglamalegum leik, þar
sem Sigurgeir Höskuldsson,
markvörður Gróttu, átti stórleik
og varði alls 24 skot. Leikurinn
var hnífjafn frá upphafi til enda
og var staðan 9-8 í hálfleik.
Gróttu/KR tókst að jafna leikinn
á síðustu sekúndunni, en Gísli
Kristjánssyni skoraði þá jöfnun-
armarkið um leið og leikurinn
var flautaður af.
Markahæstur hjá Val var Dav-
íð Olafsson með 6 mörk, en
Aleksandr Peterson skoraði mest
fyrir Gróttu/KR, 5 mörk.
Sigur Jónasar
A Selfossi léku Selfoss og Hauk-
ar og sigruðu Haukar með
þriggja marka mun 30-33, eftir
að staðan var 14-17 í hálfleik.
Haukarnir höfðu forystuna mest
allan leikinn, en Selfyssingum
tókst með harðfylgi að jafna í 21 -
21 eftir hálfleik. Leikurinn var
mjög spennandi og harður i lok-
in og fengu Selfyssingar Ijölda
færa. Þeir réðu þó ekki við frá-
bæran markvörð Hauka, Jónas
Stefánsson, sem varði hvert
skotið á fætur öðru í lokin. Segja
má að hann hafi verið maðurinn
á bak við sigur Haukanna, en
hann varði alls 19 skot í leikn-
um.
Markahæstur Selfyssinga var
Valdimar Þórsson, en hann skor-
aði alls 11 mörk og þar af 9 úr
vítaskotum. Þeir Sigurjón
Bjarnason og Robertas Pauzolis
skoruðu 6.
Hjá Haukum voru þeir Óskar
Armannsson og Þorkell Magnús-
son markahæstir með 8 mörk, en
Ketil Ellertsen með 6.
HK klúðraói sigriniun
Eins og svo oft áður misstu HK-
menn niður unninn leik í rest-
ina, þegar þeir léku gegn IR-ing-
um í Breiðholtinu. Klúður á síð-
ustu stundu færði IR-ingum
boltann og þeir jöfnuðu Ieikinn í
26-26. Þegar um það bil 10 sek-
úndur voru til leiksloka og stað-
an 25-26 fyrir HK, átti Stefán
Guðmundsson ótímabært skot á
markið sem markvörður IR
varði. Þeir náðu síðan hraðaupp-
hlaupi og Finnur jóhannsson
náði að jafna leikinn á síðustu
sekúndunni.
Markahæstur IR-inga var
Ólafur Sigurjónsson með 7
mörk, en Róbert Rafnsson og Er-
Iendur Stefánsson skoruðu 5.
Hjá HK skoruðu þeir Helgi
Arason og Stefán Guðmundsson
6 mörk og Hlynur markvörður
varði alls 17 skot.
Heimasigur
ÍBV vann enn einn heimasigur-
inn þegar það lagði KA 27-23.
Sigmar Þröstur átti nú enn einn
stórleikinn fyrir Eyjamenn, varði
hann alls 18 skot í leiknum og
lagði grunninn að góðum sigri
Eyjamanna, sem höfðu undir-
tökin allan leikinn.
Guðfinnur Kristmannsson
skoraði mest Eyjamanna, 7
mörk, en Hilmar Bjarnason var
markahæstur KA-manna, einnig
með 7 mörk.
ÍÞRÓTTA VIÐTALIÐ
Stórstjömiir væntanlegar á Stórmót ÍR
Vésteinn Haf-
steinsson
framkvæmdastjóri Stórmóts
ÍR.
U
StórmótÍR ífrjálsum
íþróttum verðurhaldið í
Laugardalshöllinni 24.
janúarnk. Von erá þekkt-
um stórstjömum á móW
og er Vésteinn Hafsteins-
son,framkvæmdastjóri
mótsins, nú að undirbúa
þátttöku þeirra.
- Hvenær var Stórmót ÍR
fyrst haldið?
„Þetta er í þriðja skipti sem við
höldum þetta mót. I fyrsta skipti
var það haldið árið 1997 í tilefni
90 ára afmælis IR og síðan sem
Stórmót ÍR í fyrra.
Mótið hefur verið að veíja upp
á sig frá upphafi og gengur út á
það að bjóða landanum að sjá
okkar besta frjálsíþróttafólk
keppa við þá bestu í heiminum.
Þar hefur tímasetningin mikið
að segja og mótið er má segja
það eina sem eiginlega býður
upp á það, því mjög erfitt er að fá
hingað erlenda keppendur yfir
sumartímann. Reynslan af fyrstu
tveimur mótunum hefur líka ver-
ið góð og okkur hefur tekist að fá
hingað mjög öfluga keppendur
bæði árin og mér sýnist við einn-
ig vera á réttri leið núna. Einhver
sagði að mótið hefði skapað nýja
vídd í íslensku íþróttalífi og það
hefur sannarlega vakið athygli
víða um heim.“
- Er etfitt að fá stóru nöfnin
til heppni hingað til lands?
„Það getur verið erfitt að vissu
leyti, en samt hefur okkur tekist
að fá hingað mjög sterka einstak-
linga. Við höfum lagt sérstaklega
áherslu á þríþrautina og stangar-
stökkið og tölum við það fólk
sem skipar efstu tíu sætin á
heimsafrekaskránni, upp á það
að fá bestu nöfnin. Síðan er auð-
vitað valið með tilliti til þess
hvað kemur best út kostnaðar-
lega og hvernig keppnisástandi
íþróttafólkið er í.
I fyrra fengum við til dæmis
heimsmeistarann í tugþraut,
Tomas Dvorak frá Tékklandi, til
að koma, sem var auðvitað alveg
meiri háttar mál og einnig hefur
Bartova komið á bæði mótin og
keppt gegn Völu í stangarstökk-
inu.
- Hafa einhver stór nöfn til-
kynnt kotnu sína?
„Þegar er búið að ganga frá
samningum við fyrstu erlendu
stjörnuna, en það er engin önn-
ur en Susan Smith, írski methaf-
inn í 400 m grindahlaupi
kvenna. Hún er heimsfrægur
hlaupari og náði áttunda besta
árangrinum í greininni á síðasta
ári. Hún mun etja kappi við
Guðrúnu Arnardóttur í 50 m
grindahlaupi, auk þess sem þær
hlaupa 50 m hlaup.
Á þessari stundu er svo verið
að ganga frá samningum við aðr-
ar stórstjörnur og mun það skýr-
ast fljótlega hverjir koma. Við
höfum til dæmis verið í sam-
bandi við alla þá sterkustu í þrí-
þrautinni, þar sem keppt verður í
langstökki, 50 m grindahlaupi og
kúluvarpi. Þar erum við í við-
ræðum við kappa eins og Dan
O’Brien, sem hefur sýnt mikinn
áhuga og einnig aðra góða eins
og Chris Huffins, Erka Nool,
Edvard Himalainen, Lev Lobod-
in o.fl.
I stangarstökkinu er svo unnið
að því að fá Balakhonova, Evr-
ópumeistarann innan- og utan-
húss, sem mun þá keppa við þær
Völu Flosadóttur og Þórey Eddu
Elisdóttur.
Við eigum því örugglega von á
stórstjörnum á mótið f ár.“
- Er mikill kostnaður við að
halda mótið og hvemig er það
fjármagnað?
„Við greiðum ferðir og uppi-
hald fyrir keppendur og svo fer
það raunverulega eftir markaðs-
verði hvers og eins, hvað þeir fá
greitt fyrir þátttöku. Það er mjög
misjafnt eftir keppendum, en
auðvitað eru þetta allt atvinnu-
menn. Kostnaðurinn við keppn-
ina er á aðra milljón króna og
stærsti hlutinn er vegna kepp-
enda, sem er þá flug, uppihald
og beinar greiðslur.
Mótið er Ijármagnað þannig
að við erum með átta stóra
styrktaraðila og síðan eru seldar
styrktarlínur í mótsskrá, auk
auglýsingaskilta. Einnig höfum
við notið velvilja nokkurra aðila
eins og æskulýðs- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkur.
Annars hafa tvö fyrstu mótin
komið út með sæmilegum hagn-
aði, sem mætti alveg vera meiri.
Það er allavega fyrir öllu að við
höfum ekki verið að tapa á þessu
og mér sýnist að þetta muni aft-
ur ganga upp í ár, ef við fáum
góða aðsókn í Höllina.
Við höfum hingað til fengið
nokkuð góða aðsókn miðað við
frjálsíþróttamót og í fyrra komu
um 1500 áhorfendur á mótið.
Við vonumst til að auka aðsókn-
ina núna, en í fyrra jókst hún um
300 milli ára. Takmarkið er auð-
vitað fullt hús og ég sagði í fyrra
að ég væri ánægður ef það tækist
á fimmta mótinu. Miðað við
þann uppgang sem er í frjálsum
íþróttum hér á landi og gengi
okkar besta fólks, þá ætti það að
vera raunhæft takmark.11