Dagur - 13.01.1999, Síða 2

Dagur - 13.01.1999, Síða 2
2 - MIDVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 rDa^ir FRÉTTIR Ríkisendurskoðun segir skii á risnuskýrslum almennt góð og frágang í samræmi við reglur utanríkisráðuneytisins. Sendiráðin tóku á móti 10.500 gestum Samkvæmt risnuskýrsl- um fastanefnda og sendi- ráða íslands var gesta- fjöldi þeirra 10.500 manns árið 1997. Gestafjöldi á risnuskýrslum fasta- nefnda og sendiráða Islands reyndist um 10.500 manns á árið 1997 sam- kvæmt samantekt Ríkisendurskoðun- ar. Sendiráðin tóku höfðinglega á móti álíka mörgum gestum „ffá fjölmiðlum og menningar- og menntalífi" eins og úr hópnum „erlendir stjórnarerindrek- ar og ræðismenn," ríflega 1.500 úr hvorum hóp. „Islenskir stjórnarerind- rekar og ræðismenn" töldu tæpt þús- und. Tæplega 800 gestir „úr íslend- inganýlendunni“ nutu risnu sendiráð- anna á árinu og álíka margir „gestkom- andi íslendingar". Rösklega 1.100 gestir úr stjórnsýslu og stjórnmálum komust á risnuskýrslur og rétt innan við 1.200 úr atvinnulífinu. Um Ijórð- ungur gestafjöldans er óskilgreindur. Smásmugulegheit Rikisendurskoðun segir skil á risnu- skýrslum almennt góð og frágang í samræmi við reglur utanríkisráðuneyt- isins. Nokkrar ábendingar hafi þó ver- ið gerðar: Dæmi reyndust um að til- skilin gögn, meðal annars risnuskýrsla og afrit af gestabókum, væru ekki lögð fram, að reikninga um kostnað á veit- ingahúsum vantaði og að tilefni risnu væri ekki nógu ítarlega tilgreint. Gestalisti ætti að fylgja Þar sem reglur um risnufé eru nú í endurskoðun hjá utanríkisráðuneytinu bendir Ríkisendurskoðun á að eðlilegt væri að kveða á um að reikningum ffá veitingahúsum fylgi Iisti yfir hveijir væru risnunnar aðnjótandi, eins og (á að gera) hjá öðrum stofnunum ríkis- ins. Samkvæmt núgildandi reglum út- hlutar utanríkisráðuneytið hverju sendiráði og fastanefnd vissri upphæð til risnu í upphafi árs og ákveður skipt- ingu fjárins milli sendierindreka. Til risnu teljast: Nauðsynlegur kostnaður í sambandi við veitingar, opinberar gjafir, blóm og kransar og framlög til góðgerðarstarfsemi sem starfsmenn komast ekki hjá. Grábölvaðar laimahækkanir Við endurskoðun á launum flutnings- skyldra starfsmanna komst Ríkisend- urskoðun að þeirri merkilegu stað- reynd, að ráðstöfunartekjur þeirra lækkuðu ef grunnlaunin hækkuðu. Launakerfi þessa hóps var þannig upp byggt 1997, að hækkuðu grunnlaunin (sem eru skattskyld) þá lækkuðu stað- aruppbætur (sem eru skattfrjálsar) um sömu fjárhæð. Launahækkun Ieiddi því til skattahækkunar og þar með lækkunar ráðstöfunartekna. Embættið segir að leiðréttingar hafi nú verið gerðar til að koma í veg fyrir að kjör starfsmanna versni við hveija launa- hækkun. -HEl FRÉTTAVIÐTALIÐ Pólitíkin er á stundum óskaplcga skrýtin og skemmtileg tik. Það var að minnsta kosti mál manna í heita pottinum sem fylgst höfðu með umræðunni um kvótafrumvarpið á Alþingi í gær og fyrradag. Fjóiir fyrstu mennimir scm stigu í pontu þegar ömiur umræða hófst áttu það nefnilega sameigin- legt að hafa verið í Alþýðubandalaginu, þótt aðeins einn eigi þar lögheimili núna. Þetta voru Kristinn H. Gunnarsson, nýbakaðm- Framsóknarmaður, Svanfríð- ur Jónasdóttir sem gerðist krati fyrir alhiokkru en með viðkomu í Þjóðvaka, Steingrímur J. Sigfússon nýorðinn foringi óháðra og svo Svavar Gcstsson, sem er emiþá í Alþýðubandalaginu þótt hann ætli ekki í framboð í vor. Svavar Gestsson. í heita pottinum í morgun var ehmig rætt xun agaleysi landans í skattamálum en Ríkisendurskoðun hefur m.a. verið að fctta fingur út í að memi liafi komist upp með að skila ekki skattframtölum. í pottinum er full yrt að þótt menn skili ekki framtölum á réttum tfrna og láti áætla á sig himinháa skatta sé skýringarinnar ekki alltaf að leita í skorti á aga hcldur auglýsinga- meimsku. Útsjónarsamir eigcndur fýrirtækja hafa fundið út að það sé hin bcsta auglýsingin að láta skrifa um sig og fyrirtækið í hópi skattakónga lands- ins og ókeypis auglýsing að auki. Þeir skila þvl ekki framtali, haða sig í umtalinu, kæra álagninguna um haustið og skattamir lækka. Línur eru að skýrast sögðu meim í hcita pottinum þegar þeir höfðu kynnt sér nýjustu skoð- anaköimun DV. Fylgi rauð græna framboðsins eykst hægt og síg- andi en frjálslyndu og lýðræðis- legu flokkamir tveir virðast ekki eiga mikla framtíð fýrir sér. Sverrir Hermannsson þarf greinilega að bretta heldur betur upp ermamar í kosningabarátt- Sverrir Hermannsson. Ríkisb ankariiir brutu gegn j afnréttislögum Brynhildur Flóvens starfsmaður kærunefndar Jafnréttismála Kærunefnd jafnréttismála telurað Landsbankinn og Bún- aðarbanki mismuni kynjum við greiðslu bijreiðastyrkja og brjóti þarmeðjafnréttislög. - Hvert var tilefni þess að kærunefndfór að skoða þessi mál innan bankanna? „I febrúar í fyrra var umræða á Alþingi um bifreiðastyrki í bönkunum og í fram- haldi af því sendi þingflokkur Jafnaðar- manna erindi til skrifstofu Jafnréttismála þar sem þess var farið á leit að það yrði kannað hver þessi staða væri innan ríkis- bankanna. Jafnframt kom samskonar er- indi frá Sambandi íslenskra bankamanna." - Hverjar voru megintiiðurstöðumar? „Meginniðurstöðurnar voru þær að greiðslur bifreiðastyrkja til starfsmanna Landsbankans og Búnaðarbankans voru taldar brot á jafnréttislögum en ekki í til- felli Seðlabankans." - Karlarfengu sem sagtfrekar bifreiða- styrki en konur jafnvel þótt störf þeirra væru sambærileg? „Já í sumum tilfellum og þau tilfelli taldi kærunefnd brot á jafnréttislögum.“ - Þetta er ekki bara spuming um að yf- irmennirnir fái bílastyrki og þeir séu flestir karlkyns? „Nei. Það hefði verið fullnægjandi skýr- ing. Þá væri um að ræða afleiddan mismun ef við getum sagt svo en ekki beinan." - En það sýndi sig þótt þið hefðuð ekki verið að kanna það sérstaklega að það em mjög fáar konur í yfimiannastöðum í bönkunum? „Afar fáar. Þær er ekki að finna í efstu stöðunum." - Bankastjóm Búnaðarbankans hefur gert athugasemdir við niðurstöðu ykliar og segist hafa sent ykkur gögn sem skýri hvemig staðið sé að greiðslum bifreiða- styrkja og sýni að þeir séu greiddir án til- lits til þess hvort karl eða kona gegni við- komandi starft. Hverju svarið þið þessu? „Þær skýringar sem bankinn kom með meðan málið var í gangi leiddu til þessarar niðurstöðu. Það kann auðvitað að vera að það séu einhverjar aðrar skýringar sem bankinn kom ekki fram með þegar hann átti þess kost að gera það og þá mun kæru- nefndin bara skoða það. Þessu máli er loldð með þessari niður- stöðu og auðvitað fékk bankinn að tjá sig og var ítrekað spurður um skýringar. Jafn- réttislögin gera ráð fyrir því að ef um mis- mun er að ræða sé það vinnuveitandans að sýna fram á að hann stafi af öðru en kyn- ferði. Kærunefnd taldi að þessir tveir bank- ar hefðu ekki getað sýnt fram á það. Ef ein- hverjar nýjar upplýsingar koma fram sem breyta niðurstöðunni er kærunefndarinnar að ákveða hvernig hún tekur á slíku og ekki hægt að segja til um það fyrir fram.“ - Á aðfylgja þessu eftir á einhvern hátt? „Þetta er ekki bindandi úrskurður heldur einungis álit. Eg geng út frá því að bank- arnir hljóti að skoða þetta. Það er engin ástæða til að ætla að það sé vísvitandi ver- ið að brjóta gegn konum í þessum bönkum. Ég held að það hljóti að vera að bankarnir skoði þetta hjá sér og kanni hvort þeir fall- ist á þessa niðurstöðu og geti á einhvern hátt bætt úr. Það finnst mér Iíklegt en við höfum engin bein þvingunarúrræði. Kæru- nefnd getur þó samkvæmt jafnréttislögum höfðað dómsmál í samráði við aðila máls. Það eru reyndar engir beinir aðilar í þessu máli. Það er mjög óvenjulegt að því leyti að það kemur ábending utan frá.“ vj

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.