Dagur - 13.01.1999, Síða 8
8- MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999
Tkgur
FRÉTTASKÝRING
Eyfirðingar í prófk
Framsóknarflokks
Harðnandi barátta í
prófkjöri framsóknar-
inaima, sem fyrst og
fremst er „maður gegn
manni“.
Prófkjör framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi eystra fer
fram dagana 16. og 17. janúar
nk. Sex manns hafa gefið kost á
sér á listann en tveir af þeim sem
voru í efstu sætunum verða ekki
með í vor, þ.e. Guðmundur
Bjarnason landbúnaðarráðherra
sem skipaði 1. sætið og Jóhannes
Geir Sigurgeirsson, sem skipaði
3. sætið. Tveir sækjast eftir fyrsta
sætinu, Valgerður Sverrisdóttir
alþingismaður, sem skipaði 2.
sætið við síðustu kosningar, og
Jakob Björnsson, bæjarfulltrúi á
Akureyri og fyrrum bæjarstjóri.
Tveir sækjast eftir 2. sætinu, Elsa
Friðfinnsdóttir lektor við Háskól-
ann á Akureyri og Daníel Árna-
son, framkvæmdastjóri Ako-
plasts og Kexsmiðjunnar. Axel
Yngvason, bóndi að Merkigili í
Eyjafirði, og Bernharð Stein-
grímsson, veitingamaður á Akur-
eyri, eru ekki taldir eiga mögu-
leika á tveimur efstu sætunum.
Mismunaiidi forui kosninga-
skrifstofa
Valgerður, Jakob og Elsa hafa
opnað kosningaskrifstofu og
Daníel og Bernharð halda fundi
með sínum stuðningsmönnum og
öðrum á sitt hvorum veitinga-
staðnum. Axel rekur sína baráttu
frá búinu. Allir frambjóðendur
búa í Eyjafirði, þar af fjórir þeirra
á Akureyri, en enginn þeirra er þó
þar fæddur, heldur á Vopnafirði,
Óxarfírði, Hörgárdal og Dalvík.
Tveir þeirra, Daníel og Axel, hafa
báðir búið f Norður-Þingeyjar-
sýslu og eiga þar frændgarð, sem
vafalaust mun skila þeim ein-
hveijum atkvæðum en Valgerður
á Iögheimili á Lómatjörn við
Grenivík og getur með nokkru
sanni sagt að hún sé eini Þingey-
ingurinn í þessu prófkjöri sem
þar hafi lögheimili.
Viðmælendum Dags finnst
sumum einkennilega komið fyrir
Framsóknarflokknum að enginn
kandidatanna skuli eiga lögheim-
ili í Þingeyjarsýslum utan Eyja-
fjarðarsvæðisins þó sumir reki
þangað ættir. Ekki síst eru Hús-
víkingar ósáttir, en Húsavík hefur
verið bakland Guðmundar
Bjarnasonar og þeir margir kallað
hann „sinn“ þingmann. Það er
því alls óvíst hvað þingeyskir
framsóknarmenn gera nú og
raunar ríkir enn meiri óvissa um
það hvað þeir gera í sjálfum kosn-
ingunum 8. maí þegar „þeirra"
maður á ekki víst þingsæti.
Hörð barátta
Flestir eru sammála um að bar-
áttan verði mjög jöfh og hörð á
lokasprettinum. Ekki verða
haldnir sameiginlegir framboðs-
fundir, heldur aðeins heimsóknir
og símtöl - eiginlega kosninga-
barátta sem kölluð er „maður á
mann“. Aberandi var meðal
þeirra sem Dagur ræddi við að
þeir töldu að ffamsóknarmenn
væru tregir til að snúast gegn sitj-
andi þingmanni. Því hefði Val-
gerður Sverrisdóttir strax mikil-
vægt forskot í baráttunni. Þá
segja menn það vinna með Val-
gerði að kvennabaráttan í flokkn-
um hefur verið öflug og að menn
væru tregir til að fella konu sem
ætti raunhæfan möguleika á að
leiða lista og jafnvel að verða ráð-
herra. A móti kemur að alls óvíst
er að það verði eingöngu „hefð-
bundnir framsóknarmenn" sem
taki þátt í prófkjörinu, því bein-
línis sé verið að leita út fyrir rað-
ir starfandi flokksfélaga með því
að bjóða óflokksbundnu fólki að
taka þátt, en nóg er að skrifa und-
ir stuðningsyfírlýsingu. Tapi
Jakob þessari sennu telja menn
að svo gæti farið að hann fari alla
leið í 3. sætið því margir sem
ekki kjósa hann í 1. sætið kunna
að færa hann niður í 3. sætið.
Sama gæti þá gerst ef Valgerður
yrði undir.
Búseta miMlvæg
Ljóst er að búsetu- og svæðis-
bundnir þættir munu leika Iykil-
hlutverk í prófkjörinu. Þannig
hefur einnig heyrst að fólk sé
hvatt til þess að kjósa Jakob í
fyrsta sætið vegna þess að stærsta
stjórnmálaflokkinn í kjördæminu
eigi Akureyringur að leiða. Rétt
er þó að benda á að Akureyringar
munu fá þingmann úr röðum Ak-
ureyringa þó hann muni ekki
skipa I. sæti B-lista næsta vor. I
þessu samhengi virðist sú kenn-
ing útbreidd að Elsa Friðfínns-
dóttir gæti, eins og Jakob „gold-
ið“ þess að vera frá Akureyri og
hafnað í 4. sætinu, en þingeysk
tengsl Daníels skilað honum því
þriðja. Möguleikar Axels Yngva-
sonar og Bernharðs Steingríms-
sonar að hreppa eitt af fjórum
efstu sætunum eru taldir hverf-
andi litlir. Axel hefur haldið uppi
gagnrýni á þingmenn Framsókn-
arflokksins sem hann segir bera
ábyrgð á þeirri markaðshyggju
sem sé að sliga landbúnaðinn og
hann telur þá ekkert gera til að
stemma stigu við fólksstreyminu
til suðvesturhorns Iandsins.
Góður stuðniugur Húsvik-
inga
Daníel Arnason segist finna fyrir
góðum stuðningi hvarvetna þar
sem hann komi, og ekki síst í
Þingeyjarsýslum. Hann segist
vongóður um góðan stuðning
Húsvíkinga, ekki síst í Ijósi þess
að hann sé „tengdasonur Húsa-
víkur“, en kona hans, Sigurhanna
Sigfúsdóttir, er þaðan. Daníel
segist ekki hafa verið í neinu
samstarfi við aðra frambjóðendur
um „blokkamyndun" og sé því
andvígur, og sömu svör hafa aðrir
frambjóðendur gefið um það
atriði. Hann segist ekki hafa neitt
óhreint mjöl í pokahorninu i
þessari prófkjörsbaráttu en segist
hafa vissar áhyggjur af því ef fólk
haldi að hann sé að misnota próf-
kjörsreglurnar. Hann segir það
ekki stórmannlega gert af mót-
frambjóðanda sínum að gefa það
í skyn og kvarta til kjörstjórnar.
Hvert atkvæði skiptir máli
Elsa Friðfinnsdóttir segist hafa
fundið fyrir góðum byr síðustu
daga, ekki síst á Húsavík, en
hvert atkvæði muni skipta máli
þegar upp verði staðið í öll fjögur
sætin því baráttan sé mjög tvísýn.
Hún segir það rangt að velja þing-
menn eftir búsetu þeirra í kjör-
dæminu, en auðvitað sé Akureyr-
ingur ekki verri þingmaður og
raunar eðlilegt að stærsti byggð-