Dagur - 14.01.1999, Blaðsíða 3

Dagur - 14.01.1999, Blaðsíða 3
Ty^tr FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 - 3 FRÉTTIR L. Kópavogsbær hirðir alla kauphækkunina Þrátt fyrir fjórfalt meiri hækkun á leikskólanum í Reykjavík en Kópavogi og umtalsverða útsvarshækkun en enga í Kópavogi, þá hafa Kópavogs- hjónin aðeins 100 krónum meira til ráðstöfunar. ASÍ hefur reiknað lít hvað eftir er af 3,65% áramótakauphækkim- inni þegar bæjarfélög- iu hafa tekið iuu sín- ar hækkanir. „Launahækkun þýðir ekki kjara- bót hjá öllum. Aðgerðir sumra sveitarfélaga hafa þurrkað út launahækkunina - og ^gott betur sums staðar," segir ASI, sem hef- ur reiknað út hve miklu fólk heldur eftir af 3,65% áramóta- kauphækkuninni, í sex bæjarfé- lögum sem sum hafa hækkað sinn hlut með auknu útsvari og/eða breytingu á leikskóla- gjaldi (m.v. eitt barn í 8,5 stund- ir á dag). I ljós kemur að þrátt fyrir 3.000 kr. hækkun á 80.000 króna mánaðarlaunum einstæðs foreldris í Kópavogi, þá hefur það nú heldur færri krónur til ráðstöfunar en fyrir ári (þannig að minna en ekkert er eftir til að mæta öllum öðrum verðhækkun- um á tímabilinu). Foreldri í sömu sporum á Húsavík hefur aftur á móti 5.000 kr. (10%) meira til ráðstöfunar. Bilið hefur minnkað Hjá hjónum með 280.000 króna mánaðartekjur hækkuðu ráðstöf- unartekjurnar (eftir útsvar og leikskóla) um 2,3% búi þau í Reykjavík, 2,8% í Vestmannaeyj- um og 3,9% á Seltjarnarnesi. I Kópavogi hafa þau 4,2% meira en í fyrra, í Hafnarfirði 4,5% meira og 6,5% meira ef þau búa á Húsavík, þ.e. nær tvöfalda kauphækkunina, enda lækkaði leikskólagjaldið þar um 3 þús- und krónur um áramótin. Samt hafa Húsavíkurhjónin lægsta ráðstöfunarféð, 163.450 krónur - 70 krónum minna en Reykjavíkurhjónin. Og þrátt fyrir frjórfalt meiri hækkun á leikskól- anum í Reykjavík en Kópavogi og umtalsverða útsvarshækkun en enga í Kópavogi, þá hafa Kópa- vogshjónin aðeins 100 krónum meira til ráðstöfunar. Þetta þýðir í raun að Kópavogsbúar urðu að þola íyTr þá kjaraskerðingu sem Reykvíkingar ganga núna í gegn- um, segir ASI. Breytingar út- svars og leikskólagjalda hafa fyrst og fremst jafnað kjörin milli þessara sex bæjarfélaga. I fyrra munaði 7.000 krónum á ráðstöf- unarfé best og verst settu hjón- anna en sá munur hefur nú minnkað í 2.000 kr. Reykjavík enn á toppniun Hjá einstæðum foreldrum hefur bilið minnkað minna. Eftir skatt og leikskólagjald hafði foreldri á Húsavík 50.600 krónur í fyrra, en 9.100 krónum meira í Reykja- vík. Nú munar 5.000 krónum. En þótt ráðstöfunartekjur Reyk- víkingsins hafi bara hækkað 1,4% (minna en verðbólgan) kemur Reykjavík ennþá best út, með 60.600 kr. ráðstöfunarfé. Foreldrar í Vestmannaeyjum, Kópavogi, Hafnarfirði og Sel- tjarnarnesi eru þarna á milli (57- 59 þúsund). — hei 1 I ■i Bryndís Schram, glæsileg í íslenska þjóðbúningnum, á forsíðu helgar- útgáfu Baltimore Sun. Bryndís á forsíðu Bryndís Schram sendiherrafrú í Washington prýddi forsíðu helg- arútgáfu Baltimore Sun nýlega. I forsíðugrein blaðsins var fjall- að um klæðasiði diplómatíunnar í Washington. Þar kom fram að nokkrir erlendir fulltrúar þjóða sinna í Washington kjósa að klæðast þjóðbúningum landa sinna við ýmis konar athafnir og í veislum, þar á meðal sendi- herrafrú Islands Bryndís Schram. Blaðið segir Bryndísi bera þjóðbúning sinn oftar en aðrar sendaherrafrúr í Was- hington. „Því lengur sem maður dvelur burt frá landi sínu þess heitar elskar maður það,“ segir Bryndís í stuttu viðtali við Baltimore Sun. „Þegar ég klæð- ist þjóðbúningnum er ég að votta forfeðrum mínum virð- ingu.“ Dómax á Netið INNLENT Hæstiréttur hefur stórbætt þjónustu sína við áhugafólk um dómsmál með því að opna heimasíðu, þar sem alla dóma Hæstaréttar sem kveðn- ir verða upp verður að finna ásamt tilheyrandi undirréttardómum. Hæstaréttardómar eru jafnan kveðnir upp síðdegis á fimmtudögum og stundum oftar. Þeir verða samdægurs settir á heimasíðu Hæstarétt- ar, en þar verður að öðru leyti einnig að finna ýmsar upplýsingar er varða starfsfólk og starfsemi réttarins. — FÞG Ekkert prófkjör hjá sjöllimiun Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík ákvað í gær að efna ekki til prófskjörs fyrir alþingis- kosningarnar í vor heldur stilla upp á lista. Ljóst er að forustan í Reykjavík er mjög sterk með Davíð Oddsson í broddi fylkingar. Búist hafði verið við þessari ákvörð- un sem öðlast gildi þegar fulltrúaráðið hefur komið saman og staðfest ákvörðun stjórnarinnar. Betur fór en á horfðist Vinnuslys varð við Borgarkringluna í gærmorgun þegar starfsmenn voru að störfum við nýbyggingu. Þeir voru að saga niður svalir í einingar sem hver um sig var 3,8 metrar á Iengd og fimm tonn að þyngd. Tveir menn stóðu uppi á einni einingunni og voru að störfum með steinsög. Féll einingin þá niður, á fjórða metra, og voru mennirnir fluttir með sjúkra- bíl á slysadeild. Ekki var nákvæmlega vitað um meiðsli þeirra í gær en fram kom hjá Iækni á slysadeild að þeir hefðu sloppið ótrúlega vel ffá þessum hremmingum. Þeir lentu ekki undir farginu, enda hefði þá varla þurft að spyija að Ieikslokum skv. upplýsingum frá Iögreglu. - BÞ Heilsugæsla endurhætt Gengið hefur verið frá samningum milli ríkisvaldsins annars vegar og Akureyrarbæjar hins vegar um fjármögnun og endurbætur á Heilsu- gæslustöðinni á Akureyri. Samningurinn gerir ráð fyrir að heildarkostn- aður við endurbæturnar verði rúmar 80 milljónir króna og að ríkissjóð- ur greiði 85% en Akureyrarbær 15%, sem þýðir að ríkið Ieggur til rúm- ar 68 milljónir en bærinn rétt rúmar 12 milljónir miðað við núverandi verðlag. Endurbótunum á að vera Iokið árið 2001 en vinna á að hefjast i ár. Verkáætlunin gerir ráð fyrir að í ár verði 4. hæð hússins endurbætt, á næsta ári verði 5. hæðin kláruð og loks árið 2001 verði gengið frá end- urnýjun á 3. hæðinni. Það vekur athygli að bærinn hyggst flýtifjár- magna verkið þannig að í ár og á næsta ári mun bærinn leggja til verks- ins tæpar 25 milljónir sem er um 12 milljónum umfram hlut bæjarins. Ari eftir að framkvæmdum lýkur, árið 2002, mun bærinn hins vegar fá endurgreitt þessar tæpu tólf milljónir frá ríkinu. „Bolungamknrlogm“ afgreidd frá Alþingi Þriðja og síðasta umræða fór fram um kvótadómsfrumvarpið á Alþingi í gær. - mynd: gva Stj ómarandstað an sakar meiriMuta sjáv- amtvegsnefndar uin yfirgang og leiðinlegt vinnuandmmsloft. „Með betra vinnuandrúmslofti innan sjávarútvegsnefndar og betri kringumstæðum hefði mátt gera það mikið betur úr garði efnislega og tæknilega, hvað sem líður pólitískum ágreiningi,11 sagði Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður á Alþingi í gær þegar hann skammaði formann sjávarútvegsnefndar fyrir Ieiðin- legt andrúmsloft innan nefndar- innar við meðferð á kvótadóms- frumvarpinu. Kristinn kallaði þetta ósæmileg ummæli. Þriðja umræða um þetta frum- varp fór fram í gær og varð það að lögum síðdegis. Gárungar kalla lögin „Bolungarvíkurlögin," eftir ásakanir Kristjáns Ragnars- sonar hjá LIÚ um að með þeim væri verið að hygla Bolvíkingum. Mildar deilur hafa staðið innan raða stjórnarsinna í málinu og hefur hvað eftir annað orðið að fresta því að hefja umræður um það á þinginu vegna ósamkomu- lagsins. Óþolandi Gríðarlega harðar og snarpar umræður urðu um málið, bæði við 2. og 3. umræðu. Stjórnar- andstaðan gagnrýndi frumvarpið og þær breytingar sem á því hafa verið gerðar. Ekki hvað síst var það gagnrýnt að handfærahópur- inn mætti aðeins veiða frá 1. apríl til 1. október. Margt fleira gangrýndi stjórnarandstaðan og má þar nefna framsalsheimild- ina á sóknarmarksdögunum. Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra kom hvað eftir annað upp í ræðustól £ andsvör- um og sakaði stjórnarandstöð- una um að hafa ekkert málefna- legt fram að færa í málinu. „Það er fullkomlega óþolandi að sitja undir þessu bulli sjávar- útvegsráðherra, þar sem stjórn- arandstaðan hefur lagt fram hveija tillöguna á fætur annarri í sjávarútvegsmálunum. Þetta er beinlínis rangt og hann veit það,“ sagði Margrét Frímanns- dóttir, formaður Alþýðubanda- Iagsins. Vítaverð framkoma Hún sagði að tillögur Alþýðu- bandalagsins, og annarra stjórn- arandstöðuflokka, um stjórn fiskveiða sl. 8 ár sem ríkisstjórn- ir Davíðs Oddssonar hafa verið við völd, séu í bunkum. Hún sagði að Kristinn H. Gunnars- son, núverandi formaður sjávar- útvegsnefndar, hefði verið höf- undur og flutningsmaður að mörgum þeirra en nú væri hann búinn að gleyma þeim. „Framkoma hans nú í garð stjórnarandstöðunnar er vægt sagt mjög einkennileg. Stjórnar- andstaðan telur sig aldrei hafa verið beitta annarri eins ókurt- eisi og yfirgangssemi af hálfu meirihluta sjávarútvegsnefndar eins og á undanförnum dögum. Það er vítavert þegar menn haga sér með þessum hætti,“ sagði Margrét Frímannsdóttir. — S.DÓR J(1( í'Þ '1 8'PÍ‘Ff

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.