Dagur - 14.01.1999, Blaðsíða 11

Dagur - 14.01.1999, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 - 11 Xfe^ur. Santer íhugar afsögn EVRÓPUSAMBANDIÐ - Jacques Santer, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, Iítur svo á að afsögn sín komi til greina ef vantrauststillaga á hendur fram- kvæmdastjórninni verður samþykkt á Evr- ópuþinginu. Atkvæðagreiðslan um van- trauststillöguna fer fram í dag. Milljaröar hurfu í Frakk- laudi FRAKKLAND - Nærri 220 milljarðar króna af láni sem fara átti til Saudi-Arabíu hurfu sporlaust í Frakklandi á stjórnartíma Francois Mitterands, ári 1983, að því er fullyrt var í frönskum fjölmiðlum. Grunur Ieikur á því að hluti fjárins hafi farið til Sósíalistaflokks Mitt- erands, en hugsanlegt er að eitthvað af fénu hafi farið til einstaklinga. Hugsaulega kosið um Evruua í Bretlaudi BRETLAND - Ríkisstjórn Verkamannaflokksins í Bretlandi útilokar ekki lengur að gengið verði til kosninga um það hvort taka eigi þátt í myntbandalagi Evrópusambandsins. Nýja myntin, evran, hafi farið það vel af stað að hugsanlegt sé að efna til kosninga ef fyritæki og íjár- málaheimurinn þrýsta mjög á um það. Hingað til hefur ríkisstjórn Tonys Blairs statt og stöðugt haldið því fram að bíða þurfi næstu þing- kosninga áður en hægt verði að ræða kosningar um þátttöku í mynt- bandalaginu. Cliuton greiddi Paulu Jones 850.000 $ BANDARÍKIN - Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, hefur greitt Paulu Jones 850.000 dollara, eða sem svarar nærri 60 milljónum króna. Samið hafði verið um að Clinton greiddi henni þessa upphæð gegn því málshöfðun félli niður, en hún hafði kært hann fyrir að hafa sýnt sér kynferðislega áreitni á hótelherbergi meðan hann var ríkis- stjóri í Arkansas. Vinstrihreyfingin arœ/itýjram Stofnfundur kjördæmisfélags Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Norðurlandi eystra verður haldinn sunnudaginn 17. janúar kl. 16 á Fosshóteli KEA á Akureyri. Verkefni fundarins er m.a. að kjósa félaginu stjóm og taka ákvörðun um tilhögun framboðsmála. Allir stuðningsmenn velkomnir. Nýir félagar geta skráð sig á staðnum. Vinstrihreyfingin - grænt framboð ERLENDAR FRÉTTIR Clinton skiptir uin tón Lögfræðiugar Clint- ons forðast að styggja öldungadeildina í vamarskjali sínu. Munnlegur málflutningur í kærumálinu á hendur BiII Clint- on Bandaríkjaforseta hefst í öld- ungadeild þingsins í dag. Lög- fræðingar Clintons sendu í gær frá sér vamarskjal sitt, en áður höfðu þingmenn fulltrúadeildar sent frá sér ákæruskjal. Af varnarskjali Clintons má ljóst vera að nokkuð hefur skipt um tón í herbúðum hans, þar Bill Clinton. sem forðast er að styggja þing- menn öldungadeildarinnar með röksemdum á borð við þær að vinnubrögð saksóknarans Kenn- eth Starr hafi verið óviðeigandi. Vörnin byggir frekar á því að segja ákæruefnin ekki hafa við rök að styðjast. Sömuleiðis ákváðu Clinton og aðstoðarmenn hans að leggja ekki til að málinu verði vísað frá fyrr en í fyrsta lagi eftir að munn- legum málflutningi kærenda og verjenda fyrir öldungadeild er lokið. „Þeir eru kviðdómurinn," sagði einn háttsettur starfsmaður Hvíta hússins um þingmenn öld- ungadeildar. „Við viljum ekki reita kviðdóminn til reiði." Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 - Sími 461 2960 - Akureyri Nýtt útlit - kr; 125 hestafla vél. • Ný sjálfskipting. • Ný iimrétting. • Ný speglaljós. • Nýtt loftnet í hlið; Ný Multi Link fjöðrun Sýnum Nýjan Legacy Einnig verður til sýnis ImpresaTurbo 4x4 ásamt fleiribílum. BSV c-1 Toyota Corolla ^ 564 6000 Erum fluttir á Smiðjuveg 1 Kópavogi Bílaleiga Dodge Dakota pick-up m/camper IHHMinHMH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.