Dagur - 14.01.1999, Page 1
^ —
:.ftíS
Ur öllu má búa til nytjalist!
Fríða A. Kristinsdóttir hefur
sérhæft sig í að vefa smá-
hluti úr vír og þykja þeir
afar sjarmerandi og flottir.
Sannkallað listaverk! Karfan
er ofin úr koparvír þó því
sé erfitt að trúa, svo fínleg
og falleg er hún.
- myndir: e.ól.
Fimmtudagui lA.janúar 1999
i
1
1
1
1
1
1
Að vefa,prjóna og hekla úr
kopar er ekkert mál. Fríða A.
Kristinsdóttirframleiðir
kertapoka, vasa og engla úr
skipavír. Stíft og óþjált?
Nehei, aldeilis ekki.
„Ég ætlaði að búa til tösku árið 1994 og
var þá að vinna með hör. Ég fór að forma
til og Ieika mér með litla prufu og var að
hugsa um hvernig ég gæti búið til nytja-
hlut fyrir kerti. Ég velti fyrir mér hvaða
efni myndi ekki brenna og þannig þróaðist
þetta. Þessir koparpokar hafa haldið sessi
hjá mér síðan,“ segir Fríða A. Kristinsdótt-
ir.
Býr til poka
Fríða er mynd- og handmenntakennari og
kennir á listasviði Fjölbrautaskólans í
Breiðholti auk þess sem hún rekur vinnu-
stofu í Listhúsinu við Engjateig. Þar vefur
hún munina sína og selur svo í Kiijsu-
beijatrénu við Vesturgötu. Fríða vefur
einkum úr koparvír og gráum málmþræði.
Hún vefur aðallega tvöfaldan vefnað sem
heitir pokavefur. Ur þessum pokavef vefur
hún poka.
„Ég vef í hringi í vefstólnum og fæ út vef
sem er lokaður £ botn og á hliðum. Ég fæ
eiginlega út flata poka sem ég forma til
eftir á. Ég klippi á milli verka og þarf svo
að ganga frá vírunum neðan á, snúa þá
saman og búa til botn og ganga frá að
ofan. Vírinn kemur lakkaður og heldur sér
þannig," útskýrir hún.
Prjónar og heklar úr skipavímtnii
Munirnir hennar Fríðu þykja gríðarlega
sjarmerandi og smartir en hún hefur ofið
og jafnvel prjónað og heklað úr þessum vír
í nokkur ár. Það eru nytjahlutir af ýmsu
tagi, vasar og kertakoparpokar, jafnvel
englar, jólakúlur og aðrir smámunir. Fyrir
jólin var Fríða að gera tilraunir með að
pijóna og hekla og segir að það hafi verið
lítið mál.
- Er þetta ekki harður efniviður að vinna
með í höndunum?
„Það er hægt að fá margar gerðir af vír.
Vírinn, sem ég nota, er frá því að vera
nánast eins og tvinni upp í það algrófasta,
rafmagnsvír sem er notaður á kefli í skip,“
svarar hún. „Þeim mun grófari sem vírinn
er þeim mun óþjálli er hann. Þeim mun
fínni sem hann er þeim mun þjálli er
hann. Þetta er engin sérstök kúnst. Þetta
er bara spurning um æfingu."
Pappírsþráður í hliðartöskiun
Vírinn er lakkaður og breytir því ekki um
lit í meðferð Fríðu. Hún velur grófleika
vírsins eftir því hvernig hlut hún ætlar að
vinna hverju sinni. I koparpokana velur
hún 0,5 millimetra vír, sama vír í uppi-
stöðu og ívaf, og því getur pokinn staðið
án stuðnings. I hliðartöskum, sem hafa
verið afar vinsælar, er hún hins vegar með
koparvír og sterkan pappírsþráð, sem hún
pantar frá Finnlandi.
„I þeim körfum, þar sem ég hef notað
pappírsþráðinn, má ekki kveikja á kerti því
að hann brennur. Kertapokarnir eru hins
vegar yfirleitt eingöngu úr koparvírnum og
málmþræði, þá má hengja á vegg eða láta
standa á borði, og þeir hitna ekki að utan,
maður brennir sig ekki þó að maður taki á
poka með brennandi kerti og getur því
flutt þá til,“ segir hún.
Margur hefði haldið að vinna með vír
gæti haft áhrif á hendurnar og Fríða er oft
spurð að því hvernig hendurnar á henni
fari við þessa vinnu. Hún segir að vefnað-
urinn hafi Iítil sem engin áhrif á þær. Hún
noti hanska þegar hún þrýstir á vírinn og
sveigir kanta enda mikið nákvæmnisverk,
ekki er hægt að breyta miklu þegar komið
er brot í vírinn. -GHS
SOLUSTAÐIR
KRAFTMESTA OG HRAÐUI
i|a NiNTBfmo.
LEIKJATÖLVAIHEIMI
• Einföld í
• Aflmikil
notkun (Barnavæn)
- 64 bita
* Rauntíma - þrívídd
* Enginn biðtími.
(Allt að 15 min i öðrum leikjatölvum)
* Allt að 4 spilarar í einu
■sj^
'J lsl'fj&i**
dxtef-É
■ ■ . ;
IIIVIUIUU.
• Besta leikjatölvan ‘98
* Golden Eye 007, hæst dæmdi
leikurinn 1998(98%)
* Margföld ending leikja
• Um 80 leikjatitlar
Reykjavík: Hagkaup, Elko, Hljómco, BT-tölvur, Bræöurnir Ormsson, Heimskringlan, Heimislistæki, SAM-tónlist, Japis, Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Hijómsýn, Akranesi. Kf. Borgfiröinga Borganesi. Vestfirðir:
Gelrseyjarbúðin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, Isafirði. Norðurland: Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri. Bókval, Akureyri. Hagkaup Akureyri. Öryggi, Húsavík. Suðurland:
Árvirkinn, Selfossi. Kf. Arnesinga, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Reykjanes: Hagkaup, Keflavík. Ljósboginn, Keflavík. Samkaup, Keflavík.
t