Dagur - 14.01.1999, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 - 21
X^MT.
LÍFIÐ í LANDINU
Fæddlst þú undir góðu tungli?
Vissulega hafði þessi trú djúptæk áhrif á fjöiskyiduiíf kínversku þjóðarinnar,
vináttu manna, viðskipti og hjúskaparáform. Mynd úr bók Erró.
Austurlandabúar hafa
rannsakað stjömumerki
sín á gangi tunglsins og
styðjast stjömuspekingar
þeirra því viðgang tungls-
ins - eða þó öllufremur
tunglárið. Spumingin hjá
þeim erþví: „Fæddistþú
undirgóðu eða slæmu
tungli?“
f einu tunglári eru tólf ný tungl
og er því þrettánda bætt við
tólfta hvert ár samkvæmt Aust-
rænu spekinni, þessvegna er ný-
ársdagur í Austurlöndum aldrei
sá sami frá ári til árs. Þó eru
stjörnumerki Austurlandabúa 12
eins og á Vesturlöndum - en
áhrif þeirra vara í eitt ár en ekki
aðeins í um það bil einn mánuð
einsog við eigum að venjast í
sólarmerkjunum. Hvert merki er
táknað með tilteknu dýri og
þetta dýr hefur áhrif á ævi, örlög
og skapgerð þess fólks sem fætt
er það ár sem viðkomandi dýr
ræður. Hvert dýr hefur verið val-
ið þannig svo að það býr yfir
táknrænni vísbendingu, dæmi:
Rottan verður að varast gildr-
una, Haninn verður að róta með
klóm og nefi eftir æti, Geitin
tekur að jarma sé haginn lélegur
og Kötturinn kemur alltaf niður
á fæturna, en árið 1999 er
einmitt ár Kattarins hjá Austur-
Iandabúum og hefst 16. febrúar.
Austrænu sjörnumerkin eru
jafn gömul sólarmerkjunum sem
við eigum að venjast og njóta
jafnmikils álits í Asíulöndum og
sólarmerkin gera á Vesturlönd-
um. Sjöhundruð milljónir Kín-
verja hafa hagað Iífi sínu sam-
kvæmt spám sem gerðar hafa
verið fyrir hvert tungláranna í
aldaraðir. Hver maður vissi að
sum merki áttu ekki saman og
gátu ekki samlagast hvert öðru
og það varð til þess að margt var
harðbannað vegna þess að tvö
eða fleiri merki rákust á. Vissu-
lega hafði þessi trú djúptæk
áhrif á fjölskyldulíf kínversku
þjóðarinnar, vináttu manna, við-
skipti og hjúskaparáform.
Kyrrð og makræði umfrain
allt
Nafn þessa merkis „Kattarins"
er ekki eins í öllum Asíulöndun-
um, t.d. kalla Japanir þetta
merki Hérann og enn aðrir Kan-
ínu, en öll dýrin eiga það sam-
eiginlegt að þau koma alltaf nið-
ur standandi. Fólkið í merki
Kattarins er það hamingju-
samasta á þessari jörð þ.e. fólkið
sem er ákveðnast í því að vera
hamingjusamt. Það er vel af
guði gert, þægilegt í umgengni,
fágað í framkomu og hefur sinn
metnað, en aldrei um of. Samt
mun enginn líta framhjá þessu
fólki, því það er hinn besti fé-
lagsskapur.
En það hlýtur að vera erfitt
að rogast með svona mikið af
góðum eiginleikum, því fylgja
nefninlega nokkur óþægindi að
vera smádýr einsog Kötturinn.
Þeim sem fæddir eru í þessu
merki hættir til yfirborðs-
mennsku og það verður að segj-
ast að margir hinna fögru ofan-
greindra eiginleika eru mest á
yfirborðinu. Kötturinn elskar
góðan félagsskap, góð sam-
kvæmi, krassandi hneyklissögur
og er sjálfur kjaftatífa en segir
þó kjaftasögurnar af hinni
mestu hæversku. Kettirnir hafa
gaman af að skemmta öðrum og
heimili þeirra eru oft með af-
brigðum falleg og bera vitni
ágætum smekk. Þetta eru
heimsmenn, stundum „snobbar-
ar“. Það er ekki auðvelt að espa
Köttinn upp, því hann er hægur
og rólegur og friðsemdin sjálf,
hneigist til tilfinningavellu í stað
tilfinninganæmi og persónuleg
vandamál snerta hann meira en
vandamál heimsins.
I Asfulöndum líta menn á
Köttinn með nokkurri tor-
tryggni. Alþýðutrúin segir að
nornir og galdrahyski bregði sér
í kattarlíki og voru slík fyrirbæri
brennd á báli grunuð um makk
við djöfulinn. Þrátt fyrir þetta
illa orðspor sem af Kettinum fer
er ekki víst að það sé verðskuld-
að. Egyptar dýrkuðu jú Köttinn
einsog guð til forna. - Guð,
galdrakarl eða maður - hvað um
það? Alltaf verður eitthvað tor-
kennilegt og dularfullt í fari
Kattarins, líkt og hann búi yfir
einhverjum Ieyndardómsfullum
sannindum, sem hann mun
aldrei láta uppi. Svo skulum við
ekki gleyma því, að þótt Köttur-
inn sé ekki stórt dýr getur hann
samt verið ótrúlega sterkur.
Ár Kattarins 1999
- Arið 1999 mun þykja rólegt ár
Kattarfólks, því er rétt að nota
tækifærið og taka það rólega -
þar sem næsta ár getur reynt á
þrekið. Fólk ætti að skemmta
sér, Iesa og gefa sér tíma til að
tala saman á kvöldin.
- Frábært ár fyrir diplómata í
utanríkisþjónustunni. Breyting-
ar kunna að verða gerðar, eink-
um lagabreytingar. Arið verður
semsagt hagstætt fyrir þá lög-
Iærðu.
- Börn fædd á ári Kattarins
munu verða hamingjusöm og ró-
leg sérlega þau sem fæðast að
sumrinu. -W
Hvemig verjast má
lúsmni
8V0JMA
ER LIFID
Pjetur St.
Arason
skrifar
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
;ða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Lús er andstyggilegt kvikindi eins og allir vita. Undanfarið hef-
ur orðið vart við lús í nokkrum grunnskólum Iandsins. Af því
tilefni hafði ég samband við Ingibjörgu Hjálmarsdóttur, skóla-
hjúkrunarfræðing. Hún mælir með því að foreldrar skoði börn-
in sín. Hún segir það vera algjörlega á þeirra ábyrgð að fylgjast
með því hvort börn þeirra séu með lús. „Það er engin leið fyrir
skólana að sjá til þess að enginn sé með Iús, þá jafnvel bæri
maður smitið á rnilli," segir Ingibjörg. Hún segir að hvert eitt
foreldri eigi að vera vakandi fyrir þessu og að foreldrar eigi ekki
að gleyma því að skoða sig sjálfa, ef grunur leikur á lús.
Foreldrum er ráðlagt að að kemba börnum sínum daglega ef
grunur leikur á lús. I öllum apótekum er hægt að fá lúsa-
kamba, þeir eru til í nokkrum gerðum en algeng gerð af lúsa-
kambi kostar um 600 krónur.
I Reykjavíkur-apóteki fengust þær upplýsingar að algengustu
lúsalyfin væru Nix og Príóderm. Báðum þessum efnum fylgja
leiðbeiningar á íslensku. Þetta eru hársápur sem drepa hæði
lúsina og nitin, sem eru egg lúsarinnar. Nauðsynlegt að sápan
nái alveg niður í hársvörðin og að passa uppá að efnin fari ekki í
augun. Annars er mikið atriði að fylgja leiðbeiningunum. Venju-
lega nægir ein meðferð en komi Iús upp aftur má endurtaka
hana að tveimur til þremur vikum liðnum.
Þessi aðferð á að drepa lúsina, en hún kemur ekki í veg fyrir
að lús komist ekki aftur í hárið. Því er gott að kemba hárið
reglulega til fylgjast með því að lúsin komi ekki aftur. Lúsin get-
ur Iíka falið sig í fötum og yfirhöfnum því er nauðsynlegt að þvo
yfirhafnir og föt. Föt sem eru viðkvæm fyrir þvotti er hægt að
frysta, það drepur lúsina.
■ HVAD ER Á SEYII?
RÖKKURKÓRINN LÝSIR UPP TILVERUNA
Rökkurkórinn í Skagafirði á 20 ára
starfsafmæli á þessu ári og af því
tilefni verður tónleikahald með
meira móti en ella. Rökkurkórinn
er blandaður 60 manna kór og eru
æfingarbúðir þeirra í Miðgarði í
Skagafirði. Stjórnandi kórsins er
Sveinn Árnason frá Víðimel og
undirleikari Pál Szabo, en hann
tónlistarkennari á Sauðárkróki og
ættaður frá Ungverjalandi.
Rökkurkórinn hyggst byrja á því
að Iýsa upp tilveru norðlendinga í
janúarmánuði og er fyrsti viðkomustaður Glerárkirkja á Akureyri en þar verða tón-
leikarnir sunnudaginn 17. janúar kl. 15.00 og seinna sama dag Verða aðrir tónleik-
ar að Breiðumýri í Reykjadal kl. 21.00. Seinna í mánuðinum eða þann 31. janúar
eru fyrirhugaðir tónleikar í Ólafsfirði og Dalvík (nánar augl. síðar). Dagskráin er
fjölbreytt þar sem fríður og föngulegur hópur kórsöngvara og einsöngvara ásamt
kvennahópssöngvurum syngur verk eftir bæði innlenda og erlenda höfunda. Norð-
lendingar komið og takið þátt í söngvagleði Rökkurkórsins á nýju ári.
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Speglar samtímans
Sýningunni Speglar samtímans sem
Museet for samtidskunst í Osló sýnir í
Listasafni Islands lýkur sunnudaginn 17.
janúar. Þeir sem ekki hafa séð sýninguna
ættu ekki að láta þetta tækifæri fram hjá
sér fara. Það er ekki áhveijum degi sem
gefst kostur á að sjá samankomið hér á
landi jafn mikið magn af samtímalist eft-
ir marga heimsþekkta listamenn.
Félag eldri borgar Ásgarði, Glæsibæ
Brids kl. 13.00 í dag. Sveitarkeppni í
brids hefst mánudaginn 8. febrúar.
Bingó kl. 19.45 í dag, allir velkomnir.
Kaffistofan í Asgarði er opin kl. 10.00 til
13.00 alla virka daga.
Lífæðar 1999
Sýningin Lífæðar 1999 stendur yfir á
Landspítalanum til 8. febrúar. Tólf
myndlistarmenn sýna samtals þrjátíu og
íjögur myndverk og tólf ljóðskáld birta
átján ljóð. Listamennirnir eru á ólíku
aldursreki en allir legja þeir út ffá lífinu
og tilverunni. í raun endurspegla þátt-
takendur helstu strauma og stefnur í
myndlist og ljóðagerð frá síðari heim-
styijöld til dagsins í dag.
Galleríi Ingólfstræti 8
Asgerður Búadóttir opnar sýningu í Gall-
eríi Ingólfstræti 8, í dag kl. 17.00. Ás-
gerður sýnir níu verk sem hún hefur
unnið sérstaklega fyrir þessa sýningu.
Ásgerður á fjölda sýninga að baki og hef-
ur hún sýnt víða um heim og eru verk
hennar víða í söfnum og opinerum bygg-
ingum hér á landi og erlendis. Sýningin
stendur til 14. febrúar og er galleríið
opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 14.00
til 18.00.
LANDIÐ
Lýrískar abstraksjónir
Páll Sólnes opnar sýningu í Ketilhúsinu,
Listagilinu á Akureyri á laugardaginn nk.
kl. 16.00. Myndirnar á sýningunni eru
11 Iýrískar abstraksjónir, unnar í olíu á
striga á síðustu tveimur árum. Allir eru
hjartanlega velkomnir á opnun sýningar-
innar á laugardaginn en hún stendur til
28. janúar.