Dagur - 02.02.1999, Qupperneq 2
2 - ÞRIDJUDAGUR 2. F E B K V A R 1999
ro^ir
FRÉTTIR
Aftur fram tH
1964 í bátastærð
„Rífandi gangur“ er nú á
Suðureyri; íbúðir seljast,
bátamir famir að stækka
á ný, húeigendur era
farair að mála, ísfirðing-
ar koma í vinnu og..........
„Við áttuðum okkur á því, fyrir
nokkrum árum, að gerðum við ekki
hlutina sjálfir þá mundi ekki nokkur
maður hjálpa okkur. Sýndum við hins
vegar frumkvæði og tosuðum okkur
upp sjálfir. þá fengjum \dð örugglega
aðstoð. Þetta var barátta stundum, en
við vonum bara að allt lánist þetta og
haldi áfram á sömu braut,“sagði Óð-
inn Gestsson, framkvæmdastjóri á
Suðureyri, spurður um þau umskipti
sem sögur herma að þar hafi orðið,
sem m.a. kom fram í mikilli fólksfjölg-
un í fyrra.
Óvænt kapítal
„Fyrir nokkrum árum, þegar veiði-
heimildirnar voru að tapast héðan og
r FRÉTTAVIÐTALIÐ
menn sáu hvert stefndi, þá tóku menn
sig saman um smábátaúgerð og tókst
að hökta í gegn um það. Ríkisstjórn-
inni datt síðan í hug að búa til verð-
mæti úr þessu og þá vor menn loksins
komnir með kapítal til að gera eitt-
hvað. Við höfum síðan spilað nokkuð
vel úr þessu og erum nú aftur komnir
fram undir 1964 í bátastærð, en vor-
um áður komnir alveg aftur undir
1930, ef nota má þessa samlíkingu,"
sagði Óðinn.
Hættir að vera í fýlu...
- Hvenær ætla menn að ná aldamótun-
um?
„Við nálgumst skottið á okkur helv...
hratt. Nú er búið að sameina Freyj-
una við Básafell á Isafirði. Þeir reka
mjög öfluga útgerð og við vorum með
þokkalegt frystihús svo þarna fóru
saman hagsmunir. I dag er gott að
gera út á og vinna bolfisk. Vegna
fækkunar í rækjuvinnslu var Isfirðing-
um boðin vinna hérna og það verða
um 10 manns sem fara hérna á milli“.
- Menn virðast hafa öðlast nýja trú á
lífið?
„Já það er orðið mun Iéttara yfir bæj-
arlífinu - allir hættir að vera í fýlu.
Það byTjaði fyrir svona 2-3 árum að
maður fór að sjá að menn ættu fyrir
málningu. Sjálfur keypti ég mér t.d.
hús í fyrra og það hafa fleiri gert.“
Ný matvörubúð að opna
- En sögur herma að göngin hafi gert út
af við matvöruverslun á staðnum?
Óðinn segir matvörubúðina raunar
hafa farið í gjaldþrot íyrir um tveim
árum. „Við sáum að þannig gæti þetta
ekki gengið og tókum okkur saman um
að opna búð, þótt við vissum að við
myndum tapa á því. En tapið var orðið
heldur mikið. Við sömdum því við Ol-
íufélagið, til hagsbóta fyrir báða; að við
hættum að reka hér búð, en þeir gerðu
það þá almennilega í staðinn. Olíufé-
lagið er þar á ofan í sama innkaupa-
sammbandi og Samkaup á ísafirði svo
við ættum að njóta sama vöruverðs. Við
getum líka farið með strætó inn á ísa-
fjörð þrisvar á dag, þannig að valkostur
er fyrir hendi,“segir Óðinn. -hei
í potlinuin vakit mikla at-
hj'gli yfirlýsing Guönýjar
Guðbjömsdóttur um að hún
vilji ekki spilla gleðinni í
Samfylkingunni með próf-
kjörið með því að greina frá
því hvers vegna hún telur
sinn hlut ekki hafa orðið
meiri en raunin varð. Guðný
er augljóslega mjög ósátt við
vinnubrögðin en fclagar
hennar í Kvemialistanum kuima hcmii litlar þakkir
íýrir dylgjumar. í pottinum er fullyrt að Guðný vcrði
krafin skýringa á þessu strax og tækifæri gefst á fundi
kvennalistakvenna í Reykjavík....
í pottinum segja meim að útspil Björ”'- úiamasonar á
kjördæmisþingi Sjálfstæðisflokksins a Norúurlandi
cystra mn helgma hafi ekki veriö aimað cn rökrétt
viöbragð við þeirri stöðu sein komin er upp í varafor-
mamismálum. Geir H. Haarde og hans meim hafa
unniö leynt og ljóst að varaformemiskunni að undan-
fömu og nú telja þeir ljóst að þeir séu yfir í barátt-
unni, bæði hmaii þingflokksins og eins stuðnings-
maima flokksins úti á landsbyggðimú. Þykir þctta þó
að öðm leyti einnig gefa vísendingar um að Bjöm
gæti verið á lcið í ritstjórastól á Mogga, einsog sagt
hefur verið að midanfömu....
Menn velta þvl nú ákaft fyrir
sér livað gcröist hjá Guim
laugi Sigmundssyiú í janúar
sem varð til þess að hami
snerist í 180 gráður varð-
andi áhugami á að bjóða sig
fram til Alþingis. í byijun
mánaðarins hafði liaim mik-
inn áhuga og lýsti þeim
áhuga opinberlega. En þá var
þinginaðurimi t jólafríi. Nú
velta meiin því fyrir sér livort það hafi einfaldlega
þyrmt yfir Gmmlaug þcgar þmgið kom saman á ný og
haim inmiað hvaö þetta var „óintressant" starf, þvi
nú segist hami ekki hafa mikiim áhuga á þinginaims-
starfinu sem slíku....
Ólafur Pétursson
forstöðumaóur mengunarvama Holl-
ustuvemdar ríkisins
Enn stendur styrr um
Krossanesrerksmiðju. Nú síð-
ast snýst bæjarráð Akureyrar á
sveif mt erksmiðjunni og
styður til umhverfisráð-
hem ð Hollustuvemd
takm taifsleyfiviðeitt
ár og afkastaaukningu
arhring.
Kvörtimiun hefur
rignt yfír okkur
- Hver eru viðbrögð þtn við bókun bæjar-
ins og gagnrýni á ykkar gjörðir?
„Við erum búnir að gera okkar tillögur
sem koma fram í starfsleyfinu og teljum
okkur hafa ákveðin rök fyrir því. Hinu er
ekki heldur að leyna, að alda ónægðra fbúa
með lyktina hefur líka haft áhrif á okkar af-
stöðu. Einnig er ágreiningur milli Hollustu-
verndar og forráðamanna verksmiðjunnar
um áhrif afkastaaukningar."
- Ertu að segja að þið berið brigður á að
aukin afköst á hverjutn degi þýði endi-
lega tninni lykt?
„Já. Við erum sammála því að verulegu
mál skipti að hráefnið sé ferskt þegar það er
unnið, en það atriði út af fyrir sig, tryggir
ekki að hráefnið sem unnið er, sé sífellt
ferskt. Aukin afköst á skemmdu hráefni
þýða aukna lykt þannig að þetta er tvíeggj-
að.“
- Hafa fjárfestingar Krossaness í tneng-
unarvömum hingað til aðeins skilað tak-
mörkuðum árangri?
„Þeir hafa í raun og veru gert það sem við
fórum fram á áður. Það hefur eflaust skiiað
árangri, en hann verður að aukast. Ef styrk-
ur lyktarefnanna væri mældur núna, er
nánast öruggt að hann væri minni en var,
en hið undarlega er að kvartanir vegna
ólyktarinnar hafa lítið minnkað. Við lítum
því þannig á að enn verði að gera betur.“
- Og helsti akkílesarhæll Krossaness er
staðsetningin?
„Já, það er engin spurning. Verksmiðjan
er í sjálfu sér búin jafn góðum mengunar-
vörnum og þær verksmiðjur sem best eru
búnar á landinu, en staðsetningin veldur
því að hún verður að gera enn betur. Þeir
geta aukið mengunarvarnir enn frekar en
orðið er og við erum að vonast til þess að
þegar nýtt starfsleyfi verður gefið út verði
nýjar mengunarvarnir í höfn. Þá sé hægt að
gefa út nýtt starfsleyfi.'1
- Ég hef lieyrt að búnað fyrir um 50
millj. kr. þurfi til viðbótar til að þið verðið
ánægðir, er það rétt?
„Mér finnst eðlilegra að talsmenn verk-
smiðjunnar upplýsi um það en ég.“
- En þið eruð sem sagt ekki í einhverju
heilögu stríði? ■ , , .
„Fjarri því. Ákvörðun okkar byggir á rök-
studdum forsendum annars vegar og hins
vegar hefur rignt yfir okkur kvörtunum."
- Hve margir íbúar á Akureyri hafa sent
ykkur undirskriftalista gegn verksmiðj-
unni?
„Á milli 500 og 600 aðilar og mér skilst
að þeir hafi ritað nöfn sín undir mótmæla-
skjal á mjög skömmum tírna."
- Kom á óvart að bærinn tnyndi bregðast
við með fyrrgreindum hætti?
„Já, ég get eiginlega ekki sagt annað. Auð-
vitað skilur maður atvinnusjónarmið bæjar-
ins en það er margt fleira í myndinni. Ég
átti allt eins von á að bærinn myndi styðja
okkar sjónarmið."
- Viltu spá fyrir utn úrskurð umhvetfis-
ráðuneytisins?
„Nei, hann getur farið á hvorn veginn
sem er. Þetta er okkar tillaga en starfsleyfið
tekur ekki gildi fyrr en endanlegur úrskurð-
ur fellur. Þótt úrskurður yrði okkur órilhall-
ur gerir kerfið ráð fyrir þessum farvegi f
dag. Við hlítum að sjálfsögðu úrskurði ráðu-
neytisins, hver sem hann verður.“ . Bl>