Dagur - 02.02.1999, Qupperneq 13
ÞRIDJUDAGU R 2. FEBRÚAR 1999 - 13
Du^ir_
ÍÞRÓTTIR
l.
KeflvíMngar að sttnga af
Þegar DHL-deildin var
hálfnuð var liiíu jöfn,
óvenju jöfn. Nú er
öldiu önnur og þegar
sextáu umferðum er
lokið hefur hilið á
milli eM og neðri
hluta breikkað.
Keflvíkingar sitja einir á toppi
DHL-deildarinnar þegar sextán
umferðum er lokið. A sunnudag
lögðu þeir ÍA, 110-93. Keflvík-
ingar virðast vera óstöðvandi um
þessar mundir og fremstur í
flokki þeirra fer Damon Johns-
son. Hann hefur farið á kostum í
síðustu leikjum Iiðsins. Og með
fullri virðingu og meira en það
fyrir íslenskum körfuknattleik þá
hlýtur hann að fara inn á megin-
land Evrópu næsta tímabil og
leika þar með sterku liði. En
hvað um það þá hafa Skaga-
menn ekki unnið leik í Iangan
tíma en það fer að líða að því.
Þeir hafa eytt löngum tíma í að
finna rétta ameríska leikmann-
inn fyrir lið sitt en þeir virðast
búnir að finna þann rétta.
KR-sigur í „Holuimi“
KR-ingar virðast vera að sanna
tilverurétt sinn með toppliðum
deildarinnar. Eftir ósigur gegn
Grindvíkingum í síðustu umferð
náðu þeir góðum sigri á Njarð-
vík. Leikurinn fór fram í Haga-
skóla, eða „Holunni" eins og
heimavöllur KR-inga er kallaður
og urðu lokatölur leiksins hreint
ótrúlega lágar, 60-59, en svo lágt
skor sést ekki oft í DHL-deiId-
inni. KR-ingar hafa ekki enn tap-
að leik á heimavelli frá því þeir
fóru að Ieika í Hagaskóla og var
leikurinn gegn Njarðvík sá íjórði
í röð. Njarðvík er í öðru sæti
deildarinnar en KR í því þriðja.
Aiuiar sigur SkaUagríms í röð
Skallagrímur hefur núna unnið
tvo Ieiki í röð. I sfðustu umferð
sigruðu þeir Þór frá Akureyri á
Akureyri með minnsta mun, 82-
81, eftir æsispennandi lokamín-
útur. En það voru einmitt
lokamínútur leiksins sem Iyftu
Ieiknum á hærra plan eftir frekar
dapran leik beggja liða. Þór
vermir nú næst neðsta sæti
deildarinnar en þeir eiga að leika
við KFI í kvöld en það er leikur-
inn sem var í fimmtándu um-
ferð. Skallagrímur hefur ekki átt
eins slakt lið og nú í ár síðan þeír
hófu að leika í úrvalsdeild. En
liðið er ungt og þarf tilfinnilega
að tileinka sér reynslu.
Griudvikmgar á beinu braut-
iuni
Grindvíkingar hafa ekki beðið
ósigur á nýju ári. Nú Iágu Hauk-
ar á heimavelli sínum eftir fram-
lengdan leik, 95-100. Herbert
Arnarson hefur verið að Ieika vel
fyrir Grindvíkinga og munar um
minna. Haukar eru komnir með
gríðalega sterkan amerískan leik-
mann sem er mikill skorari. Þeir
eru ekki búnir að segja sitt síð-
asta orð. En ég minni á að Jón
Arnar Ingvarsson, þjálfari og
leikmaður Hauka, þarf að skora
meira.
Réttur taktur hjá ísfirðiiiguin
Isfirðingar virðast vera búnir að
finna rétta taktinn, en þeir sigr-
uðu Snæfelli í Stykldlshólmi, 69-
77. Snæfell sem „rak“ þjálfara
sinn á dögunum hefur ekki verið
á sama flugi og fyrir áramót. En
koma tímar og koma ráð með
nýjum þjálfara. KFI á von á Þór í
heimsókn í kvöld. Þórsarar koma
örugglega hungraðir í sigur og
verða ekki auðunnir.
Valur tapaði en Valur vann
Tindastóll lagði Val á heimavelli,
89-80. Valsmenn verma botn-
sæti deildarinnar og Hrðist fall
blasa váð þeim. En ekki er öll
nótt úti enn, því stutt er í Þór og
Skallagrím sem eru með átta
stig. Valur hefur einungis tvö stig
í augnablikinu. Tindastólsmenn
virðast ekki vera með nógan
stöðuleika. En Valur Ingimund-
arson þjálfari þeirra segir, að það
taki smá tíma að byggja upp lið-
ið. Þeir hafa mjög sterkan
heimavöll, sem á eftir að reynast
þeim vel í úrslitakeppninni ef
þeir ná að halda sér í hópi átta
efstu liða. — GS
Körfubolti - Staðai í DHL-deildinni 1
L U T Mörk S
Keflavík 16 15 1 1519:1272 30
Njarðvík 16 12 4 1444:1199 24
KR 16 12 4 1385:1294 24
Grindavík 16 11 5 1469:1351 22
KFÍ 16 9 6 1274:1262 18
Snæfell 16 7 9 1256:1338 14
Haukar 16 7 9 1277:1348 14
Tindast. 16 7 9 1336:1340 14
ÍA 16 6 10 1204:1282 12
Þór 16 4 11 1134:1273 8
Skallagr. 16 4 12 1276:1399 8
Valur 16 1 15 1213:1429 2
United komið á kuimar slóðir
I/arnarmenn Villa voru grátt leiknlr afAlan Shearer á laugardaginn. Bergkamp fagnar sigurmarkinu gegn Chelsea á Highbury.
Manchester United á
toppinn. Heppnin
með Arsenal. Fyrsta
markið í fjóra mán-
nði. Coventry reynist
Liverpool erfitt.
Rauðu spjöldin vin-
sæl hjá Blackbum.
Beljúkórinn bestur á
Goodison Park.
Dwight Yorke sá til þess, á sfð-
ustu sekúndum leiksins við
Charlton, að Manchester United
hélt heim með stigin þrjú og
toppsætið í ensku úrvals-
deidlinni. Hremmingar Charlton
halda því áfram og fátt bendir til
þess að liðið haldi sæti sínu í úr-
valsdeildinni. Alex Ferguson er
aftur á móti kominn á kunnar
slóðir með sína menn.
Manchester United er á mikilli
siglingu þessar vikurnar. Liðið
leikur frábæra knattspyrnu og
ekkert Iið skorar fleiri mörk.
Varnarleikurinn er allur að koma
til en samt er Ferguson ekki
ánægður. „Eg er enn að leita að
miðverði sem getur leikið við
hlið Jaap Stam. Gary Neville
byrjaði vel og Ronny og Henning
hafa einnig átt góða Ieiki en þeir
hafa ekki sýnt nægan stöðug-
leika ennþá,“ sagði Ferguson.
Það var fyrst og fremst hörku
vinna og mikil barátta sem færði
Arsenal sigur í leik sínum við
Chelsea. Heimamenn á High-
bury voru sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik án þess að fá mörg
marktækifæri. Dennis Bergkamp
nýtti þó eitt þeirra til fullnustu
og skoraði sigurmark meistar-
anna. Með sigrinum batt Arsenal
enda á taplaust tímabil Chelsea,
en þeir hafa ekki tapað deildar-
leik frá því í fyrstu umferðinni
gegn Coventry, þann 15. ágúst
s.l. og mun það vera met í ensku
úrvalsdeildinni.
Loksins, loksins, loksins
Þar kom að því að Newcastle
brýndi klærnar. Með Alan Shear-
er sem besta mann yfirspilaði
Newcastle topplið Aston ViIIa.
Shearer hafði ekki skorað mark í
úrvalsdeidlinni síðan í septem-
ber og því eðlilega orðinn marka-
gráðugur. Hann skoraði fyrsta
mark heimamanna og var óhepp-
inn að fá ekki skráð á sig annað
mark sem dómarinn sá ástæðu
til að telja ólöglegt. Aston Villa
var á hælunum allan leikinn og
átti aldrei möguleika á sigri.
Framlína liðsins er tannlaus án
Dion Dublin. Paul gamli Merson
átti þó góðan leik og mark hans
var af bestu gerð.
Everton jafnaði gamalt met í
efstu deild á laugardaginn er liðið
lék sinn tólfta heimaleik. Eftir 0-
1 tap fyrir botnliði Nottingham
Forest hefur ekkert lið skorað jafn
fá mörk á heimavelli, þijú í tólf
Ieikjum, nema Arsenal sem hefur
haft þennan heiður frá árinu
1912. Beljukórinn á Goodison
Park hefur aldrei baulað hærra á
sína menn en þegar þeir gengu til
búningsherbergja að leik Ioknum.
Og þeir áttu baulið skilið.
Annað botnlið, Southampton,
vaknaði til lífsins og gerði Leesds
lífið Ieitt. Sigurinn, 3-0, var í
stærra lagi en verðskuldaður.
Gamli jálkurinn, Le Tissier, var í
góðum gír á miðjunni hjá heima-
mönnum og vörnin vann fyrir
kaupinu sínu og vel það.
Skárra en 1992
Liverpool sótti ekki gull í greipar
Coventry frekar en fyrri daginn.
Heimamenn á Highfield Road
voru mun ákafari og lögðu á sig
þá vinnu sem þurfti til að sigra.
Gerard Houllier, stjóri Liverpool,
getur þó huggað sig við að tapið
nú, 2-1, var skárra en 1992 þeg-
ar stærsta tap Liverpool í efstu
deild, 5-1, varð staðreynd.
Reyndar sigraði Coventry Liver-
pool 4-0 á síðasta áratug og stát-
ar nú af þvf að vera það lið sem
leikið hefur Rauða herinn hvað
verst síðustu árin.
Ljósi punkturinn fyrir Houllier
og félaga var Rigobert Song, sem
lék sinn fyrsta leik fyrir Liver-
pool og var besti maður vallarins.
Steve McManaman lék síðustu
tuttugu mfnúturnar og skoraði
mark gestanna. Stuðningsmen
Liverpool, sem lögðu leið sína til
Coventry, þökkuðu McMana-
man dygga þjónustu við Iiðið
með bauii þegar hann gekk af
leikvelli. Þeir þola illa að missa
hann í raðir Real Madrid 1. júlí.
Enn sér Blacbum rautt
Leikmenn Blackburn hafa verið
iðnari við að safna gulum og
rauðum spjöldum í vetur en stig-
um. I 1-1 jafnteflinu við Totten-
ham léku heimamenn á Eawodd
Park einum færri síðasta hálf-
tímann eftir að Wilcox var rek-
inn af velli. Nýju menninrnir,
Jason McAteer og Jansen, áttu
báðir fínan leik og koma til með
að styrkja liðið verulega haldi
þeir áfram á sömu braut.
Derby sótti öll stigin til Sheffi-
eld og siglir lygnan sjó fyrir ofan
miðja deild. Wimbledon og West
Ham gerðu markalaust jafntefli í
steindauðum leik. Sömu úrslit
urðu í leik Middlesbrough og
Leicester. Það er helst að frétta
úr herbúðum Boro að Paul
Gascoigne hefur nú snúið sér að
alvöru að því að spila Bingo og
þykir nokkuð sleipur á því s\iði.
ÚrsUt
Blackburn - Tottenham L- 1
Coventry - Liverpool 2-1
Everton - Nott. Forest 0-1
Middlesb. - Leicester 0-0
Newcastle - Aston Villa 2-1
Sheff. Wed. - Derby 0-1
Southampton - Leeds 3-0
Wimbledon - West Ham 0-0
Arsenal - Chelsea 1-0
Charlton - Man. United 0 - 1
- GÞÖ