Dagur - 03.02.1999, Blaðsíða 2
18 - MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
Da^ur
—t.
LJFIÐ ÍLANDINU
L. J
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
BJÖRN
ÞORLÁKSSON
Sigurjón
Benediktsson.
Pósthvarfið
dularfulla!
GULLKORN
„Ég fæ ekki
séð...að það hafi
verið nokkurt
minnsta tilefni til
að færa Loga inn í
lögreglubílinn
eins og var gert,“
segir Bogi Agústs-
son, firéttastjóri
Sjónvarps, eftir að
löggan handtók
Loga Bergmann
fréttamann og sóp-
aði inn í löggubíl á
meðan Logi var við
vinnu sína í
Hörpu-brunanum.
Sjallamir smeykir
Þá er kjördæmisþingi Sjálfstæðísflokksins lok-
ið og búið að raða upp á listann fyrir Norður-
landskjördæmi eystra. Eins og kunnugt er af
fréttum var töluverð óánægja með uppstilling-
una sem kristallaðist einkum í aðför Sigurjóns
Benediktssonar tannlæknis og co. gegn sitj-
andi forystu. Tillögur Siguijóns hlutu hins
vegar ekki náð.
Ofanritaður átti samtal við genetískan sjálf-
stæðismann í Mývatnssveit um helgina þar
sem kjördæmisþingið fór fram. Hann staðfesti
það sem hent hefur verið á lofti að sjálfstæðis-
menn á Akureyri eru smeykir við Iista Fram-
sóknarflokks á Ni. eystra. Þar urðu úrslit
óvænt og eru tvö lítt þekkt andlit á landsvísu í
2.-3. sæti Framsóknar. Einhverra hluta vegna
telja ýmsir að tilbreyting sé af hinu góða og því
sagði sjálfstæðismaðurinn að gott hefði verið
að „poppa aðeins upp“ efstu sætin hjá sjálf-
stæðismönnum.
Hin hliðin á póstmálinu
Tveir íbúar á Akureyri sem fengu jólapóstinn
sinn fyrst borinn út í sfðustu viku höfðu sam-
band við ofanritaðan eftir að Dagur birti frétt-
ina um pósthvarfið dularfulla sem nú hefur
loks verið upplýst. Hvorugur vildi koma fram
undir nafni, en báðir bentu á að í fréttum síð-
ustu viku af málinu, hefði eitt sjónarhorn
vantað í umQöIlun Ijölmiðla. Nefnilega þá
staðreynd að margir þeir sem ekki fengu póst-
inn hefðu ítrekað kvartað til Islandspósts og
sagt að eitthvað hlyti að vera að og viðbrögðin
hefðu verið lítil framan af og mikil tortryggni.
I einhverjum tilfellum hefði nánast verið skellt
á þá sem kvörtuðu. Eftir því sem mynstrið
varð greinilegra, breyttist tónninn hins vegar
til betri áttar og alhliða rannsókn var hleypt af
stokkunum í kjölfarið.
Kona sem talaði \ið ofanritaðan sagði: „Þú
getur rétt ímyndað þér hvort við höfum ekki
vitað að eitthvað var að póstþjónustunni þegar
við vorum farin að sakna 30 jólakorta." Þrátt
fyrir að heimildarmenn hafi ekki viljað tala
undir nafni er þessari skoðun þeirra komið á
framfæri við forráðamenn Islandspósts. Al-
menningur hefur skilning á því sem gerðist, en
kurteisi er alltaf af hinu góða.
Björn Steinar Sól-
bergsson hefur
verið í leyfi frá Ak-
ureyrarkirkju og frá
því í september
hefur hann einbeitt
sér algjörlega að
því að æfa Konsert
Jóns Leifs fyrir
orgel og hljóm-
sveit.
Magnaður suðupottur
Á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands á fimmtudags-
kvöld verður meðal annars flutt-
ur Konsert fyrir orgel og hljóm-
sveit opus 7 eftir Jón Leifs.
Magnaður suðupottur þar sem
Það eralgjörlega
ómetanlegt að geta
farið í burtu og hugs-
frá íslenskum þjóðlögum, tví-
söngslögum og rímum. Þessu
blandar hann öllu saman í þann
magnaða suðupott sem úr verð-
ur.“
- Og þessi grunnur gengur upp í
saman koma áhrif frá íslenskum UIU ekkí UeÍtt aUU- ^onsertfyrtr orgel og hljómsveit?
þjóðlögum, tvísöng, rímum og
fleiru, sem Jón Leifs samdi á ár- ^ m Utffa Verkefni.
unum 1917-1930. Bjorn Steinar r J
Sólbergsson organisti í Akureyr-
arkirkju leikur einleik en hann
hlaut listamannalaun til að æfa
verkið.
„Eg fór út í september og hef
verið búsettur í Cambridge í vetur þar sem ég
gat algjörlega helgað mig þessu verkefni," segir
Björn Steinar. Hann segir mastersritgerð sem
Árni Heimir Ingólfsson skrifaði um orgel-
konsertinn 1997 hafa hjálpað sér mikið \að und-
irbúninginn fyrir þessa tónleika.
„Já, fullkomlega."
SPJALL
Gengur fullkomlega upp
- Þessi konsert gerir miklar kröfur til fly'tjandans?
„Já, ég held að það sé alveg óhætt að segja
það. Grunnhugmyndin varð til þegar Jón Leifs
var í námi í Leipzig og þá fór hann að huga að
því að búa til stóra passacagliu, sem er síendur-
tekið stef í bassalínunni. Síðan vann hann
konsertinn í Ijórum hollum með hléum á milli.
Lokahnykkinn tók hann eftir að hann ferðaðist
um landið og tók upp söng fólks sem var að
syngja íslensk þjóðlög. Það hafði mjög sterk
áhrif á hann og mótaði mikið hans vinnu eftir
það. Hugmyndin á bakvið konsertinn er þrí-
skipt. I fyrsta lagi er það passacagliustef, síðan í
öðru Iagi er lag sem hann heyrði konu einhvers-
staðar á Vesturlandi syngja við útfararsálminn
„Allt eins og blómstrið eina“ og í þriðja lagi áhrif
Ómetanlegt
- Hvers virði er það fyrir þig að fcí
tækifæri til að geta helgað þig dl-
gjörlega því að æfa svona verk?
„Það er algjörlega ómetanlegt
að geta farið í burtu og hugsað
um ekki neitt annað en þetta verkefni. Það er af
þeirri stærðargráðu að það kemst ekkert annað
að á meðan. Konsertinn verður tekinn upp á
geislaplötu. Það er sænska útgáfufyrirtækið Bis
sem stendur fyrir því. Það fyrirtæki hefur á
stefnuskrá hjá sér að taka upp öll verk Jóns
Leifs."
- Er það ill nauðsyn fyrir orgelleikara að þurfa
jafnframt að vinna fyrir sér sem organistar í
kirkjum til dæmis, íföstu starfi.
„Nei, alls ekki. Eg tel það mikla gæfu fyrir
organista að fá að starfa í kirkju. Kirkjan ræður
tónlistarmenn til að vera í fullu starfi sem tón-
listarmenn. Það er alveg stórkostlegt því þá
gefst manni tækifæri til að æfa sig. Þess er kraf-
ist að organisti skili sínu hlutverki, bæði sem
orgelleikari og maður kemur reglulega fram sem
slíkur, bæði við helgihald og síðan á tónleikum.
Akureyrarkirkja stendur til dæmis fyrir mjög öfl-
ugu tónleikahaldi og mér hafa gefist tækifæri til
að stunda tónleikahald fyrir velvilja sóknar-
nefndar og sóknarpresta þannig að þetta fer
mjög vel saman.“ - HI
■ FRÁ DEGI
„Frekjan er barn fáfræðinnar."
Sir. Francis Bacon
Þau fæddust 3. febrúar
• 1887 fæddist austurríska skáldið Georg
Trakl.
• 1889 fæddist danski kvikmyndahöfund-
urinn Carl Theodor Dreyer.
• 1898 fæddist finnski arkitektinn Alvar
Aalto, höfundur Norræna hússins í
Reykjavík.
• 1909 fæddist franski heímspekingurinn
og andspyrnukonan Simone Weil.
• 1935 fæddist bandaríski gítarleikarinn
Johnny Watson.
Þetta gerðist 3. febrúar
• 1815 var fyrsta ostaverksmiðja heims
sett á laggirnar í Sviss.
• 1930 var Islandsbanka (hinum eldri)
lokað eftir að hafa starfað frá 1904.
• 1944 brann Hótel ísland, sem þá var
TIL DAGS
stærsta timburhús í Reykjavík.
• 1945 voru gerðar Ioftárásir á Berlín.
• 1962 lagði Kennedy Bandaríkjaforseti
viðskiptabann á Kúbu.
Merkisdagurinn 3. febr.
I dag er Blasíusarmessa. Blasís var biskup
í Sbaseiu í Armeníu. Hann flúði undan
ofsóknum í fjallshelli, fuglar færu honum
mat og dýr leituðu blessunar hans. Hann
var handtekinn, píndur með þ\i' að skera
úr honum kjötstykki með járnkambi, síð-
an var reynt að drekkja honum en að lok-
um var hann hálshöggvinn. Hann var
höfuðdýrlingur kirkju á Laugarvatni.
Vísan
Vísa dagsins tengist þeim sið að blíðka
goðin með þvf að blóta Þorra:
Þegar stofnast Þorrahlót
þykir vinstur lakans hót.
Sauðar hlóð, erfelldifót,
fjandskap goða hneklú.
Afmælisbam dagsins
Fyrir réttum 190 árum fæddist í
Hamborg í Þýskalandi Jakob Lud-
wig Felix Mendelssohn-Bartholdy,
venjulega þó aðeins nefndur Felix
Mendelssohn. Hann var eldd að-
eins tónskáld, heldur jafnframt
píanóleikari, hljómsveitarstjóri og
tónlistarkennari. Og svo átti hann
drjúgan þátt í að endurvekja áhuga
manna á tónverkum Jóhanns
Sebastians Bachs. Mendelssohn
lést í Leipzig þann 4. nóvember
1847.
Aumingja löggan
Lögreglumanninum s^m fyrstur kom á
árekstursstaðinn varð ekki um sel. Innan á
framrúðunni var eitthvað skelfilega klesst,
grátt og hvítt og rauðir taumar láku niður
úr því. Hann kallaði í skyndi eftir hjálp og
hljóp svo að bílnum.
„Ertu mikið slaðasaður?" spurði hann
manninn sem sat við stýrið.
„Eg? Nei, nei, það er allt í lagi með mig.
En pizzan mín fór illa.“
Veffang dagsins
Á netfanginu http://cgi.pathfind-
er.com/time/daylie er að finna tímaritið
Time og hægt að fylgjast þar með alþjóða-
málum.